Morgunblaðið - 18.02.1999, Síða 6

Morgunblaðið - 18.02.1999, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Kristinn SIGRÍÐUR L. Jónsdóttir (f.v.), Hugrún Arnadóttir og Hildur J. Tryggvadóttir. EDDA Sigfúsdóttir (f.v.), Erna Hrund Hermannsdóttir og Valdís Ingimarsdóttir voru vel skreyttar og vígalegar í tilefni dagsins. Glaðvær börn á svölum öskudegi Morgunblaðið/Asdís SKRAUTLEGIR krakkar í Víkinni í Fossvogi. ÖSKUDAGUR fór fram með hefðbundinni gleði og kátínu barna um allt land. I Reykjavík var að vonum mikill fjöldi grímuklæddra barna á ferðinni. Vegna veðurs var færra á ferli ut- andyra en undanfarna Öskudaga. Vonandi að bræðurnir átján fylgi ekki sínum baldna bróð- ur. I Kringlunni var hins vegar mikil þröng á þingi, að sögn Sigurþórs Gunnlaugssonar mark- aðsstjóra Kringlunnar. „Það er búið að vera mik- ið íjör héma í dag. Krakkarnir byrjuðu að streyma hingað inn upp úr klukkan átta, löngu fyrir opnun verslana. Það virðist sem fólk keyri bömin sín hingað á leið til vinnu og skilji þau síð- an eftir í „vistun“„. Sigurþór segir Kringluna hafa boðið upp á létta skemmtidagskrá. „Krökkunum var boðið upp á and- litsmálun og svo bauð Hans Peter- sen þeim upp á myndatöku, annað hvort andlitsmyndir eða hópmynd- ir. Síðan voru einstaka verslanir með sælgæti á boðstólum. Það var mikill söngur hér og þar í húsinu. Síðan var öllum sem komust að boðið í bíó. Við fylltum stóra salinn hérna í Kringlubíóinu. Yfir 400 miðar ruku út á 5 mínútum og komust færri að en vildu.“ Sigur- þór segir Kringluna taka á móti börnum með bros á vör en þó finnst honum afstaða sumra for- eldra umhugsunarverð. „Það er náttúrlega svolítið ábyrgðarleysi foreldranna að keyra bara börnin hingað og svo eiga þau bara að hringja þegar þau em orðin leið. Sumir krakkarnir eru hérna all- an tfmann meðan foreldr- arnir em að vinna. Þegar krakkarnir em búnir að fá nammi og búnir að fara í bíó - hvað þá?“ Vegna veðurs voru færri krakkar á ferli á Laugavegi en venjulega. Heiða Jóhannsdóttir af- greiðslukona í Frísport á Laugavegi 6, sagði samt að mikið hefði verið um að vera. Hún sagði að krakkarnir hefðu þurft að vinna fyrir sælgæti með söng. „Við gáfum þeim karamellu og upp í öskudagspoka, eftir því hvað þau sungu vel. Við gáfuin ekki nema þau syngju.“ Heiða var þó ekki nógu ánægð með viðmót sumra krakk- anna. Sumir spurðu hvort þeir mættu syngja og fá nammi og þökkuðu svo fyrir sig. En mjög margir þökkuðu ekkert fyrir, meirihlutinn fannst mér. Það er eins og þeim finnist sjálfsagt að fá sælgæti." Ófriðlegt skólaball og grunur um fíkniefnaneyslu LÖGREGLAN þurfti margsinnis að hafa af- skipti af skólaballi framhaldsskóla sem haldið var á veitingastað í Armúla í fyrrakvöld og voru meðal annars tvö ungmenni handtekin fyrir að veitast að lögregluþjónum. Þá var lagt hald á ætluð fíkniefni og grunur lék á að gestir á dans- leiknum hefðu losað sig við fíkniefni á salemi staðarins þegar laganna verðir komu á vett- vang. Ómar Smári Armannsson aðstoðaryfírlög- regluþjónn segir ljóst að þeir sem selja eða dreifa fíkniefnum séu ekkert síður í framhalds- skólum en annars staðar, þar sé sá hópur sem markaðurinn beinir athyglinni hvað mest að. Lögreglumenn á eftirliti fengu upplýsingar um að fíkniefnaneysla færi fram á salemi húss- ins um klukkan eitt eftir miðnætti og fóra þeir á vettvang. Höfðu þeir afskipti af ungmennum sem talin voru hafa losað sig við fíkniefni í sal- ernisskál á klósettinu og hafði lögreglan ekki til- efni til frekari afskipta af umræddum einstak- lingum. Ætluð fíkniefni fundust Korter í tvö um nóttina var að nýju óskað af- skipta lögreglu, að þessu sinni vegna líkams- árásar. Maðurinn sem fyrir árásinni varð hafði fengið áverka en vildi ekki leggja fram kæra. Um hálftíma síðar vora framin eignaspjöll á skemmtistaðnum, en þá braut ölvaður maður þar rúðu. Um svipað leyti fannst hvítt duft á staðnum sem talið er vera fíkniefni og var lagt hald á það og sett til rannsóknar, en ekki fannst neinn sem átti efnið eða vildi viðurkenna að hafa haft það í fóram sínum. Um fimmtán mínútur í þrjú komu lögreglu- menn að fjóram aðilum í slagsmálum utandyra og kom í ljós að tveir þeirra höfðu ráðist á hina, innandyra í fyrstu en leikurinn barst síðan út fyrir. TVeir þeirra veittust að lögreglumönnum og voru þeir handteknir og fluttir í fanga- geymslur. Um klukkutíma síðar var lögregla kölluð til og ók hún heim stúlku sökum ölvunar hennar. Skömmu síðar um nóttina var sextán ára pilt- ur handtekinn eftir að hann hafði brotist inn í sýningarsal bílasölu Ingvars Helgasonar hf. og unnið þar miklar skemmdir. Vann miklar skemmdir Eftir að hafa brotist inn í fyrirtækið gangsetti hann þar bifreið og ók af stað. Með akstri sínum skemmdi hann fjóra bíla mikið, ásamt því að aka í gegnum tvær rúður. Reyndi hann m.a. að aka út úr húsinu í gegnum sýningarglugga. Vakt- maður tilkynnti lögreglu um innbrotið og hand- tóku þeir piltinn þegar þeir komu á vettvang og fluttu hann í fangageymslur lögreglu við Hverf- isgötu. Pilturinn var talinn vera undir áhrifum áfengis eða í annarlegu ástandi, samkvæmt upp- lýsingum frá lögreglu. Talið er að hann hafí komið frá áðurnefndu skólaballi. Ómar Smári Ármannsson, aðstoðaryfirlög- regluþjónn rannsóknardeildar auðgunar- og fíkniefnamála, segir að í upphafí þessa áratugar hafí dansleikir framhaldsskóla ítrekað farið úr böndunum, með þeim afleiðingum að fjöldi þeirra og tímalengd skemmtunarinnar var mjög takmörkuð. Þá var eftirlit með samkomum hert til muna og gert samkomulag við Félag fram- haldsskólanema um að það legði sig fram um að settum reglum yl’ði fylgt og myndi sjá til þess að þessar skemmtanir gætu gengið vel fyrir sig þannig að ekki þyrfti að koma til kasta lögreglu. I kjölfarið hafí ástandið lagast stórum. „Ölvun var mikil á þessum skemmtunum, auk þess sem granur lék á fíkniefnaneyslu. Þá voru slys og meiðingar tíð. Eftir ráðstafanir þær sem vora gerðar batnaði ástandið mikið en nú virðist aftur vera farið að slakna á,“ segir Ómar Smári. Hann segir að um langt skeið hafi verið rætt um áhuga fíkniefnasala á dansleikjum fram- haldsskóla og jafnvel grunnskóla, en munurinn á þessu tvennu væri m.a. sá að skólastjórnendur og foreldrar fylgdust betur með bömum sínum í grannskóla og veitti þeim aukið aðhald. Hópur sem markaður horfir til „Það hafa komið upp dæmi þar sem menn vora að nota þessi efni á böllum og orðrómur þar að lútandi hefur verið lífsseigur, auk þess sem heyrst hafí að fíkniefnasalar nýti sér þessar skemmtanir til að koma efnum á framfæri. Það er auðvitað ljóst að þeir sem selja eða dreifa fíkniefnum eru ekkert síður í framhaldsskólum en annars staðar. Þar er sá hópur sem markað- urinn beinir athyglinni hvað mest að, enda ein- staklingarnir oft óráðnir eða óákveðnir og láta til leiðast. Við höfum sent menn á skólaskemmtanir beinlínis til að kanna meinta fíkniefnasölu, höf- um haft afskipti af einum og einum en það má auðvitað gera betur. Við höfum hins vegar alltaf treyst því að meirihluti framhaldsskólanema sé skynsamlegt fólk sem hafni notkun eiturlyfja," segir Ómar Smári. Ahöfn Vatneyrar yfirheyrð SKÝRSLUTÖKUR vegna veiða Vatneyrar BA umfram kvóta fóru fram hjá ríkislög- reglustjóra í gær en skipið landaði afla á Patreksfírði á þriðjudag. Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra fer með rannsókn málsins í samvinnu við sýslumanninn á Patreksfirði og voru áhöfn skipsins og full- trúi útgerðarinnar yfirheyrð í Reykjavík í gær. Hjá embætti ríkislögreglu- stjóra fengust þær upplýsingar að ákveðið hefði verið að skýrslutökurnar færu fram í Reykjavík þar sem flestii’ úr áhöfn Vatneyrar væru þar bú- settir eða staddir vegna per- sónulegra eiinda. Að loknum skýrslutökum verður gagnaöfl- un haldið áfram og mun sak- sóknari í framhaldi þess taka ákvörðun um hvort gefin verður út ákæra á hendur útgerðinni. Mótás bauð hæst MÓTÁS bauð hæst í bygginga- rétt á lóðum á Þróttarsvæði við Holtaveg. Tilboðin voru opnuð hjá borgarverkfræðingnum í Reykjavík á þriðjudag og bár- ust tólf tilboð. Boðið var í lóðir fyrii’ fjögur einbýlishús og 10 íbúðir í par- húsum samkvæmt samþykktu skipulagi. Tilgangurinn með út- boðinu var að byggingar verði samstæðar á byggingai’svæðinu. Tilboð Mótáss hljóðaði upp á 37 milljónir króna. Næsthæsta tilboð átti Guðleifur Sigurðs- son, 32,8 milljónir króna, og þriðja hæsta ÁHÁ Byggingar ehf., 31,8 milljónir króna. Lægsta tilboðið kom frá Ár- mannsfelli hf. og hljóðaði upp á 14 milljónir króna. Svar um björgunar- laun í næstu viku LANDHELGISGÆSLAN og Slysavarnarfélag íslands munu fá viðbrögð við kröfu sinni um björgunarlaun frá Daimei Fish- ery Co. Ltd. og tryggingafélagi þess í næstu viku vegna björg- unar japanska túnfiskveiði- skipsins Fukuyoshi Maru 68, sem strandaði við Jörundar- boða í Skerjafirði 13. október á síðasta ári. Forstjóri Landhelgisgæsl- unnar, Hafsteinn Hafsteinsson segir þó of snemmt að segja ná- kvæmlega til um kröfugerðina en unnið hafi verið að lausn málsins frá upphafi. íshúsfélagið Tveimur verkstjórum sagt upp TVEIMUR verkstjórum íshús- félags ísfirðinga hefur nú verið sagt upp störfum eftir 25 og 29 ára starf hjá fyrirtækinu. Þess- ar uppsagnir koma í kjölfar stjórnarskipta í félaginu íyrr í þessum mánuði og uppsagnar framkvæmdastjórans. Það vora þau Jón Krist- mannsson og Guðbjörg Ás-- geirsdóttir sem sagt var upp nú í vikunni. Hvoragt þeirra vildi tjá sig um uppsagnirnar. Guðni Jóhannesson, stjórn- ai-formaður og framkvæmda- stjóri íshúsfélagsins, vildi held- ur ekki tjá sig um málið að svo stöddu. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið að þetta væri erfítt og viðkvæmt mál.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.