Morgunblaðið - 18.02.1999, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1999 31
LISTIR
Verðlaunaverk frumsýnt í hádegisleikhúsi Iðnó í dag
Oendanlegir möguleik-
ar fólks á misskilningi
Gamanleikritið Leitum að ungri stúlku eftir
Kristján Þórð Hrafnsson verður frumsýnt
í Iðnó í dag. Margrét Sveinbjörnsddttir
fylgdist með æfingu og forvitnaðist um
verkið hjá leikurunum og höfundinum.
HANN er ungur kviktnvndaleik-
stjóri og er að leita að stúlku til þess
að leika aðalhlutverkið í stuttmynd.
Hún er þrettánda stúlkan sem kem-
ur í prufu til hans út af hlutverkinu
en sjálf er hún að fara í prufu í fyrsta
sinn. Fljótt kemur í ljós að hug-
myndir leikstjórans og stúlkunnar
um lífíð og listina stangast harkalega
á og samskiptin taka óvænta stefnu.
„Það er allt svo nýtt fyrir henni,
hún býst við fleira fólki og öðrum
leikstjóra, þannig að hún gengur
svolítið á vegg í byrjun. En svo held
ég að hún færi sig upp á skaftið og
ætli bara að standa sig í prufunni,
sýna hvað í henni býr,“ segir Linda
Asgeirsdóttir, sem leikur stúlkuna.
En leikstjórinn ungi, hvernig er
hann? „Hann er með miklar hug-
myndh' um kvikmyndir og ætlar sér
að búa til miklar og góðar myndir.
Hann verður bara að byrja á stutt-
mynd, það verða flestir að byrja þar.
Hann hefur sjálfur skrifað handrit,
sem hann hefur lagt mikinn metnað í
og hefur mjög sterkar skoðanir á.
Hann er búinn að búa sig mjög vel
undir þessar prufur og hefur mjög
ákveðnar skoðanir á því hvernig
leikkonu hann vill fá og hvað hann
vill fá fram en fær kannski ekki alltaf
það sem hann býst við. Hann veit al-
veg hvað hann vill og er með mjög
rómantískar hugmyndir um sjálfan
sig sem leikstjóra. Þetta er bara
fyrsta skrefið í áttina að því að gera
listaverk,“ segir Gunnar Hansson,
en hann er í hlutverki leikstjórans.
Ein manneskja þarf að
sannfæra aðra um hæfni sína
Leikritið hlaut fyrstu verðlaun í
leikritasamkeppni sem efnt var til í
kjölfar enduropnunar Iðnó á liðnu
hausti. Höfundurinn, Ki-istján Þórð-
ur Hrafnsson, hefur hingað til verið
þekktari fyrir að vera ljóðskáld en
leikritahöfundur. Hann segist þó
hafa verið að fást við leikritun að
undanförnú en þetta sé fyrsta leik-
ritið sem hann setji punkt aftan við
og það sé jafnframt skrifað gagngert
fyrir leikritasamkeppni Iðnó. „Ég
átti þessa hugmynd og svo þegar ég
sá samkeppnina auglýsta ákvað ég
að fullvinna hugmyndina og senda
hana inn,“ segir hann. „Það er mjög
gaman að fá að vera ljósmóðir í þess-
ari fæðingu," segir Gunnar.
„Mig langaði til að skrifa leikrit
um krefjandi aðstæður, þar sem ein-
staklingurinn þarf að sanna sig eða
sýna fram á hæfni sína. Þá fór ég að
hugsa um aðstæður eins og inntöku-
próf í listaskóla, þegar fólk er að
sækja um hlutverk í auglýsingu eða
kvikmynd eða fara í atvinnuviðtal.
Og ég hélt að svoleiðis aðstæður, þar
sem ein manneskja þarf að sannfæra
aðra um hæfni sína, gæti verið
skemmtilegt efni í leikrit. Ég hafði
séð persónurnar fyrir mér, þessa
stelpu sem er svona ofsalega frökk
og með svona miklar hugmyndir um
hvað hana langar að gera, og svo
Morgunblaðið/Kristinn
LINDA Asgeirsdóttir í hlutverki stúlkunnar fyrir framan myndavél-
ina hjá kvikmyndaleikstjóranum, Gunnari Hanssyni.
þennan unga hlédræga mann, sem er
líka með miklar hugmyndir en allt
öðru vísi manngerð," segir Kristján.
„Mig langaði til að tefla fram ólík-
um persónum, sem eru kraftmiklir
einstaklingar hvor á sinn hátt. Annar
byrgir allt innra með sér en hinn
lætur allt koma fram. Þetta er svona
gamanleikrit sem fjallar um sál-
fræðilegt valdatafl, ólíka drauma og
ólíkar væntingar. Og um óendanlega
möguleika fólks á að misskilja hvert
annað, hve lítið þarf í raun til að
koma af stað miklum misskilningi,
sem getur haft ófyrirsjáanlegar af-
leiðingar,“ heldur höfundurinn
áfram.
Leitum að ungri stúlku verður
sýnt í hádeginu alla miðvikudaga,
fímmtudaga og fóstudaga næstu
fjórar vikurnar. Sýningin stendur í
um hálfa klukkustund og á undan
gefst gestum kostur á að snæða létt-
an hádegisverð. Borðhald hefst kl.
12, leiksýningin hefst kl. 12.20 og
henni lýkur kl. 12.50. Leikstjóri er
Magnús Geir Þórðarson, leikmynd
er eftir Snorra Frey Hilmarsson og
lýsingu annast Ólafur P. Georgsson.
Önnur verðlaun í samkeppninni
hlaut leikritið Þúsund eyja sósa eftir
Hallgrím Helgason og þriðju verð-
laun hlaut Bjarni Bjarnason fyrir
leikritið Sameiginlegur vinur. Verkin
verða bæði sýnd í hádegisleikhúsi
Iðnó innan skamms, að sögn Magn-
úsar Geirs. Alls bárust 56 leikrit í
keppnina eftir 42 höfunda.
Nú sparar pú verulega...
kæfiskáaumínohkradaga!
Þúspararkr. _
15.000.-
Tvær hurðir, tvær pressur.
180x59,5x58 cm
IDO230 *giWIIIIH.IM,l»
Verð aður kr.
59.900
Uerð nú kr.
43.900,-
Þú sparar kr.
16.000
L
Tvær hurðir,
146x59,8x58,8 cm
Mfli
Einni
JSl.
frábæru
iniga
verði:
Verð áður kr.
51.900.
Tvær hurðir
170x59,8x
58,8 cm
Verð nú kr.
41.900.-
Þú sparar kr.
10.000
Tvær hurðir
146x55x58 cm
DC336
Verð áður kr.
79.900.
kæliskápur m/frysti
Verð nú kr.
EDD226 cmm
Verð ðður kr.
48.900.-
SMÞIUl
Þú sparar kr. >
30.000
Verð nú kr.
38.900.-
Þú sparar kr.
10.000.
L
EdesaS115
undirborðsskápur
85x55,3x57cm
Verð nú kr. 24.900,-
Verð áður kr. 32.900.-
Þú sparar kr. 8.000,-
Edesa S223
Kæli/frystisk.1 hurð
109x55x58 cm
Verð nú kr. 34.900.-
Verð áður kr. 42.900.-
Þú sparar kr. 8.000.-
Edesa C337
Kæli/frystisk.
2 hurðir/2pressur
170x59,8x58 cm
Verð nú kr. 59.900.-
Verð áður kr. 79.900.-
Þú sparar kr. 20.000.-
L
Ein hurð
123x55x58cm
4f/k id
Kæliskápur m/frysti
170x59,5x58 cm
I"
Ath. Öl
verð eru staðgreiðsluverð
RflFTfEKGflPERíLUN ÍSLflNDSIf
- AN NO 1 929 -
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776