Morgunblaðið - 18.02.1999, Síða 44
44 FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
'j
JSfe
w:.^rw
f -rflí
- "'ír#2-'' -
5>§
!
Shakespeare
á mbl.is
Shakespeare In Love
ÞJOÐLEIKHUSIÐ
Mál ujApog menning
WmmmP
Aðstoðaðu Shakespeare við að velja titil!
Shakespeare er í miklum vandræðum með að finna titil á leikrit um elskendurna Rómeó
og Júlíu. Nokkrir íslenskir rithöfundar voru fengnir til að leggja honum lið.
Rithöfundarnir komu með sjö tillögur, sem gestum mbl.is er ætlað að velja úr.
Ef þú kýst það nafn sem flestir velja, getur þú unnið leikhúsferð fyrir tvo til London frá
Samvinnuferðum-Landsýn, leikhúsferð fyrir þig og vini þína í Þjóðleikhúsið (allt að
10 manns), Orðsnilld Shakespeare í samantekt Helga Hálfdanarsonar frá Máli og menn-
ingu, Shakespeare-bókamerki og -pappírsarkir auk miða á Shakespeare ástfanginn.
Stórmyndin Shakespeare ástfanginn er frumsýnd um þessar mundir, en hún hlaut flestar
tilnefningar til Óskarsverðlauna í ár, 13 talsins.
Myndin fjallar um vandræði leikritaskáIdsins, m.a. vegna ritteppu, nafngiftar og
ástarævintýra.
Aðstoðaðu Shakespeare á mbl.is og hver veit nema að þú dettir í lukkupottinn!
Samviiiiiiiferilir-Laiiilsýn
i • i
HÁSKÓLABÍÓ
Lestu um ritteppu íslenskra rithöfunda!
Hmbl.is
-J\LL.TAf= GITTH\SA£> NÝT~!
UMRÆÐAN
Vei þér
aumi þræll!
ÞEGAR tvö lið eigast
við í bikarúrslitaleik í
fótbolta ráðst úrslitin á
skoruðum mörkum í
viðkomandi leik. Um
þetta eru allir sammála,
ekki satt? Okkur þætti
það óeðlilegt og í hæsta
máta óréttlátt ef annað
liðið hefði þyngra vægi
en hitt fyrir leikinn, t.d.
fengi að byrja með
tveggja marka forskot.
En þannig er það í bik-
arúrslitaleiknum sem
fram fer í vor, þ.e.a.s.
kosningunum til AI-
þingis.
Rétt úrslit
Samjrvæmt stjórnarskrá lýðveld-
isins Islands næst jafnræði með
misvægi. Þetta „lýðræðislega" jafn-
ræði og misvægi byggist á hátækni-
legum útreikningum um hinn full-
komna jöfnuð. Þessi reikniformúla
réttlætisins fínnur út vægi einstak-
lingsins eftir því í hvaða kjördæmi
viðkomandi býr. Að sjálfsögðu á
Atkvæðisréttur
_______Samkvæmt____________
stjórnarskrá
lýðveldisins íslands,
segir Hólmsteinn
Brekkan, næst
jafnræði með misvægi.
þessi jafnræðismisvægis útreikn-
ingur að gilda í fótbolta líka. Rétt
úrslit ráðast því ekki af skoruðum
mörkum í bikarleiknum heldur
vægi hvers marks sem liðið skoraði
og vægið færi eftir því úr hvaða
kjördæmum liðin koma.
KR - Þróttur Neskaupstað/ 4-2?
Hvort liðið fer heim með bikar-
inn? Fyrst þurfum við að reikna út
vægið, KR tilheyrir Reykjavíkur-
kjördæmi og hefur því vægið 1,02.
Þróttur Neskaupstað tilheyrir
Austurlandskjördæmi og hefur þar
af leiðandi vægið 2,41. Eftir að
mörk skoruð á vellinum eru sett inn
í jafnræðisformúluna liggja úrslitin
fyrir. Þróttur Neskaupstað vann
með 4,82 á móti KR með 4,08. Rétt-
látt eða hvað?
Þskj. 141 - 141. mál
Fyrir Alþingi liggur núna frum-
varp til stjómskipulaga um breyt-
ingar á stjómarslörá lýðveldisins ís-
lands. Þetta mál hefur farið lágt og
lítið sem ekkert um það fjallað í fjöl-
miðlum eða kynnt á nokkum hátt.
Lítillega var tæpt á þessu mikilvæga
máli sl. haust en það alls ekki krufið.
Það virðist eiga að fai-a eins hljóð-
lega og hægt er með þetta mál og
áfram að misbjóða kosningabærum
Islendingum með óviðunandi
misvægi milli atkvæðisréttar eftir
búsetu. Þó stendur það skýrt í þess-
ari sömu stjórnarskrá að ekki megi
mismuna mönnum um lýðræðisleg
réttindi þeirra eftir búsetu. Vegna
þess hversu illa þetta mál hefur ver-
ið kynnt náði ég mér í frumvarpið og
skýrslu nefndar um kosningalög og
kjördæmaskipan. Þetta er veglegur
pappírsbunki með mörgum þétt-
skrifuðum síðum. Eftir nokkra yfír-
lestra hef ég aðeins fundið eina vit-
Aðsendar greinar á Netinu
ýS> mbl.is
_/\LLTA/= eiTTH\TA£J NÝTT
ræna setningu sem
hljóðar þannig: „Yrði
landið gert að einu
kjördæmi, þar sem at-
kvæði allra kjósenda
hefðu sama vægi, þyrfti
enga jöfnun á milli
flokka.“ Það verður að
segjast eins og er að
nánast allt annað sem
stendur í skýrslu
nefndarinnar og þess-
um lögum er merking-
arlaus feluleikur og
bull.
Feluleikur
Það er undarlegt
hvemig við látum enda-
laust blekkjast af hentugleikastærð-
fræði valdhafanna. Leikið er fram og
aftur með tölur, þær síðan bh-tar eða
settar fram í prósentum eða sem
vægi eftir því hvemig það lítur best
út eða þjónar viðkomandi hagsmun-
um. Síðan er þetta allt saman sett
upp í óskaplega falleg súlurit, línurit
eða kökurit í mörgum litum. Þó svo
að við séum engir snillingar í stærð-
fræði ættum við að geta gert okkur
grein fyrir því að niðurstaða byggist
á forsendum. Til þess að fela ræki-
lega þau mannréttindabrot sem fel-
ast í því að takmarka atkvæðisrétt er
að segja að hver einstaklingur í því
kjördæmi sem hefur flest atkvæði á
bak við hvem þingmann hafi eitt at-
kvæði. Ailir aði-ir í öðram kjördæm-
um hafa því meiri atkvæðisrétt.
Fallegar tðlur
Með því að setja dæmið upp á
þessum forsendum er hægt að fela
sannleikann með fallegum og „lág-
um“ tölum. Lægsta vægi atkvæðis-
réttar er því 1 en hæsta vægi er
bara 3,55. Taktu eftir hvernig þetta
breytist ef forsendurnar eru settar
réttar.
Réttar forsendur
Ef við viljum finna réttar for-
sendur að vægi atkvæða hljótum við
að vera sammála um það að einn
maður hafi eitt atkvæði. Þá hljótum
við að miða eitt atkvæði við hæsta
vægi atkvæðisréttar sem er 3,55 og
allt annað er því hlutfall af því.
Raunvemlegur atkvæðisréttur
eftir kjördæmum er því eftirfarandi
miðað við það að Vestfirðingar einir
hafi fullan atkvæðisrétt.
Vestfjarðakjördæmi: 100%
Norðurlandskjördæmi vestra:
86%
Austurlandskjördæmi: 67%
Vesturlandskjördæmi: 61%
Suðurlandskjördæmi: 50%
Norðurlandskjördæmi eystra:
38%
Rcykjavíkurkjördæmi: 28%
Reykjaneskjördæmi: 28%
„Vei þér aumi þræll!“
Það er staðreynd að sannleikur-
inn getur aldrei skaðað hinn góða
málstað og þess vegna hefur sann-
leikanum verið haldið leyndum fyrir
kjósendum. Það er staðreynd að
mikill meirihluti íslendinga hefur
ekki nema um 28% atkvæðisrétt og
hugsanlega ætla hagsmunagæslu-
mennin að skenkja þessum sama
meirihluta íslendinga allt að 22%
atkvæðisréttar til viðbótar. Hvílík
göfugmenni! Þvflíkir höfðingjar!
Vér leysingjamir þiggjum alla þá
mola og mylsnu sem af borðum yð-
ar hnjóta, halelúja, við þykjumst
ekki sjá, heyra né skilja feluleikinn
til þess að styggja ekki yður, dýrð
sé yður í upphæðum, þér hafið vald-
ið til að gefa og taka réttindi okkar
leysingjanna, amen.
„Vei þér aumi þræll að þiggja
slíka ölmusu!“ Við verðum að gera
það upp við okkur hvort við viljum
vera þrælar, þegnar eða fullgildir
einstaklingar í lýðræðisþjóðfélagi.
Hólmsteinn
Brekkan
Höfundur er blikksmíðamcistari.