Morgunblaðið - 18.02.1999, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 18.02.1999, Blaðsíða 72
 ptiNADARBANKINN 1VERÐBRÉF - byggir á t» 4ustí ÖRUGG ÁVÖXTUN MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5G91181 PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@!MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1999 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Smugudeilan Stefnt að fundi með Rússum og Norð- mönnum HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis- ráðherra segir að innan ekki langs tíma verði haldinn sameiginlegur fundur íslenskra, norskra og rúss- neskra yfirvalda til að reyna að ná samningum um veiðar í Smugunni. Málið var til umræðu milli Halldórs og Knuts Vollebæk, utanríkisráð- herra Noregs, í gær. „Næsti fundur um málið verður — að vera milli þessara þriggja þjóða,“ segir Halldór. „Eg mun á næstunni fara yfir þau atriði sem komu fram í viðræðunum við Vollebæk með sam- starfsmönnum mínum í ríkisstjórn og jafnframt ræða stöðu málsins við utanríkismálanefnd og hagsmuna- aðila. Að því loknu getum við metið hvaða líkur eru á samningum.“ Halldór segir að lengi hafi verið unnið að rammasamningi um málið og ríkur vilji sé hjá ríkisstjórnum bæði Noregs og Islands til að kom- ast að samkomulagi. „Það er samt r nokkuð í land með að við sjáum fyr- ir endann á þessu máli.“ Héraðsdómur Reykjavíkur dæmir rfkisskattstjóra f vil Landsbankinn veiti upp- lýsingar um vaxtatekjur STJÓRN Sambands íslenskra viðskiptabanka mun fljótlega meta hvort áfrýja beri dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í gær þess efnis að Landsbanka Islands hf. beri að skila ríkisskattstjóra upplýsingum um innstæður, vaxta- tekjur og afdregna staðgreiðslu 1.347 einstaklinga sem hann hefur farið fram á. Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri og formaður SÍV, segir ekki óliklegt að niðurstöðunni verði áfrýjað, enda sé hér um prófmál að ræða. Indriði H. Þorláksson ríkisskatt- stjóri segir dóminn afdráttarlausan og með honum staðfest að skattyfir- völd geti leitað eftir upplýsingum sem þeim beri að gera að lögum. Hann segir 1.347 framteljendur ekki hátt hlutfall af um 200 þúsund framteljendum. Beiðni embættisins sé eðlileg og eigi að kanna samhengi milli upplýsinga á framtölum og innstæðna og fjármagnstekna. Halldór J. Kristjánsson kvaðst ekki hafa séð forsendur dómsins en taldi ekki ólíklegt að honum yrði áfrýjað. Hann sagði banka hafa neitað skattyfirvöldum um upplýs- ingar um viðskiptamenn. Þegar rík- isskattstjóri höfðaði mál í framhaldi af því ákvað stjóm SÍV að sam- bandið tæki að sér málareksturinn fyrir hönd Landsbankans sem próf- mál fyrir banka og sparisjóði. Sagði formaðurinn það álit bankanna að hér væri um að ræða alltof víðtæka beiðni frá skattyfirvöldum. Þagnarskylda á ekki við Héraðsdómur segir fyrirmæli 43. greinar laga nr. 113 frá árinu 1996 um viðskiptabanka og spari- sjóði um þagnarskyldu ekki eiga við þegar skylt sé að veita upplýs- ingar lögum samkvæmt. Er í niður- stöðu dómsins vitnað til laga nr. 94/1996 þar sem segir m.a. í 1. málsgrein 14. greinar að ríkisskatt- stjóri geti af sjálfsdáðum kannað öll atriði er varða skilaskyldu eða staðgreiðslu. Geti hann í því skyni krafist upp- lýsinga frá skattstjórum, inn- heimtumönnum ríkissjóðs, gjald- heimtum, bönkum, sparisjóðum, fjármálastofnunum eða öðrum aðil- um um viðkomandi viðskipti. ■ Ekki ólíklegt/4 Knatt- spyrnumenn á faraldsfæti Utanþingsviðskipti ekki tilkynnt til Verðbréfaþings 33 milljarða skekkja veg*na galla í tölvukerfum ÍSLENSKIR knattspyrnumenn verða á faraldsfæti um páskana. Þegar hafa 26 knattspyrnulið, eða samtals um 600 knattspyrnu- menn, ákveðið að fara í æfinga- ferð, flest til Portúgals og Spánar. Þessar ferðir eru liður í undir- búningi félaganna fyrir Islands- mótið, sem hefst 20. maí. Kostnað- ur liðanna við ferðirnar nemur uin 35 milljónum króna, þ.e. ef reiknað er með að hvert lið sendi 22 manna hóp og kostnaðurinn verði um 60.000 krónur á mann. ■ 600 leikmenn/C3 UM 16 milljarða króna viðskipti Kaupþings hf. _með verðbréf utan Verðbréfaþings Islands hf. á tímabil- inu frá því í byrjun desember til febrúarbyrjunar voru ekki tilkynnt vegna galla í nýju tölvukerfi fyrir- tækisins. Svipað tilvik kom upp á síð- asta ári er Landsbanka Islands láð- ist að tilkynna utanþingsviðskipti fyrir um 17 milljarða vegna tækni- legra atriða. Stefán Halldórsson, framkvæmda- stjóri Verðbréfaþings íslands hf., segir að þetta kunni að hafa gefið ranga mynd af stöðunni á verðbréfa- markaðinum og ekki sé hægt að úti- loka að einhverjir hafi orðið fyrir tjóni af þeim sökum. Að sögn Stefáns námu tilkynnt ut- anþingsviðskipti, þ.e. viðskipti með verðbréf sem skráð eru á Verðbréfa- þingi Islands án þess að viðskipta- kerfi þingsins sé notað, samtals um 132 milljörðum króna á síðasta ári. Þar af námu viðskipti sem Lands- banka íslands hafði láðst að tilkynna vegna tæknilegra atriða um 17 mUlj- örðum króna, eða um 15% af því sem búið var að tilkynna áður en bankinn tilkynnti viðskipti sín. Ekki liggur fyrir hve mikið af þeim tæplega 16 milljarða króna við- skiptum sem um er að ræða hjá Kaupþingi fór fram fyrir ái’amót. ■ Ekki/Bl Morgunblaðið/RAX Landað í kuldanum SJÓSÓKN hefur veríð stopul síð- ustu daga vegna ótíðar. Netaver- tíðin sunnanlands fer brátt í full- an gang og afli bátanna hefur aukist dag frá degi þegar gefið hefur til sjós. Brælan hefur aftur á móti minni áhrif á sjósókn línu- skipanna og hafa þau fengið ágætan afla. Kuldinn beit samt Iítið á Ágúst Ingólfsson, skip- veija á Hrungni GK, þegar verið var að landa úr skipinu í Grinda- vík í gær, enda kunna sjómenn manna best að klæða sig eftir að- stæðum. Aflinn var dágóður, rúm 70 tonn og uppistaðan þorskur. Fyrsta vetnisöku- tækið inn- an sjö ára NÝTT íslenskt fyrirtæki, Vist- orka, hefur undirritað sam- starfssamning við félögin DaimlerChrysler, Norsk Hydro og Shell-samsteypuna um stofnun íslenska vetnis- og efnarafalafélagsins ehf. Samkvæmt verkefnaáætlun félagsins verður m.a. lögð áhersla á að kanna rekstur al- menningsvagna hér á landi sem ganga fyrir vetni, fram- leiðslu, dreifingu og geymslu vetnis sem og vetnisknúin fiskiskip. Áætlað er að fyrstu tilraunaökutækin verði komin í gagnið eigi síðar en árið 2005. ■ Unnið að/B2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.