Morgunblaðið - 19.02.1999, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/RAX
Urskurður í máli Vífílfells gegn Framsóknarflokki og Framkvæmdasjdði
Hæstiréttur hafnar
endurkröfurétti
HÆSTIRÉTTUR úrskurðaði í gær í tveimur
áfrýjunarmálum Vífilfells ehf. gegn Framsókn-
arflokknum annars vegar og Framkvæmdasjóði
hins vegar. í báðum tilvikum staðfesti Hæsti-
réttur úrskurði héraðsdóms og hafnaði endur-
kröfurétti Vífilfells á hendur nefndra aðila.
Tildrög málsins eru þau að Vífilfell ehf.
keypti árið 1988 eignalaus félög í eigu ofan-
greindra aðila í þeim tilgangi að nýta uppsafnað
tap þeirra móti hagnaði við álagningu skatta.
Um er að ræða annars vegar hlutafélagið Farg
hf. sem Framsóknarfiokkurinn átti og hafði áð-
ur heitið Nútíminn hf., og gaf út dagblaðið NT.
Hins vegar var félagið Gamli-Alafoss sem var í
eigu Framkvæmdasjóðs.
Vífilfell greiddi ekkert fyrir félögin en yfirtók
skuldir þeirra, tæpar 23 milljónir Fargs og
rúmar 30 milljónir Gamla-Álafoss. Skattyfir-
völd höfnuðu því að taka tillit til sameiningar
Vífilfells og umræddra félaga við álagningu
skatta og var réttmæti þeirrar ákvörðunar
staðfest með dómi. Reis ágreiningur um hvort
kaupandi gæti rift samningnum vegna þessa.
I samningi kvað á um að
frádráttur væri forsenda
I samningi aðila var kveðið á um að það væri
forsenda kaupenda fyrir kaupunum að skatta-
legur frádráttur vegna taps nýttist þeim og að
ef þetta skattalega hagræði nýttist ekki vegna
breytinga á skattareglum skyldu seljendur
endurgreiða kaupendum kaupverðið. Lá fyrir
að þetta ákvæði var upphaflega runnið frá
kaupendum og var nánast orðrétt tekið upp úr
samningi um kaup þeirra á öðru fyrirtæki í
sama tilgangi. Að tillögu lögmanns seljenda
þess fyrirtækis hafði orðalaginu verið breytt í
það horf að fyrirvarinn var takmarkaður við
þau atvik að breytingar yrðu á skattareglum.
Dómurinn álítur að áhættunni hafí verið
skipt og að kaupendur hafi sjálfir tekið á sig
áhættuna á því að framkvæmdin stæðist gild-
andi lög og lagaframkvæmd. Kaupendurnir hafi
sætt sig við að endurgreiðslufyrirvarinn væri
takmarkaður með ofangreindum hætti og ættu
þeir því ekki kröfu á seljendurna, enda væru
ákvarðanir skattyfirvalda ekki byggðar á
skattareglum og skattaframkvæmd.
Mótmælaaðgerðir gegn kvótakerfínu
Hvetja Vestfirðinga til
að fjölmenna í róðnr
Morgunblaðið/Halldór Sveœbjörnsson
PETUR Bjarnason og Tryggvi Guðmundsson eru efstir á lista tólf-
menninganna sem hvetja Vestfirðinga til að fjölmenna í róður.
TÓLF manns, víða að af Vest-
fjörðum, hafa sent frá sér
fréttatilkynningu þar sem skor-
að er á Vestfirðinga að tjöl-
menna í róður í fyrstu viku maí-
mánaðar til að veiða sér í soðið
og nýta sér þannig heimild í
lögum um stjórn fiskveiða til
veiða með handfærum til eigin
neyslu.
Tilgangurinn með róðrinum
er, samkvæmt því sem fram
kemur í fréttatilkynningunni,
að hin mikla fískigengd sem
verið hefur við Vestfírði nýtist
íbúunum og að vekja athygli á
því ranglæti sem kvótakerfið
valdi strandbyggðunum „sem
fá ekki að nýta sjálfbærar auð-
lindir við húsdyr sínar á sama
tíma og ýmsar aðrar auðlindir
landsmanna eru nýttar af ein-
staklingum, sveitarfélögum
eða landshlutum, þeim sjálfum
til hagsbóta." Tólfmenningarn-
ir telja að kvótakerfið muni í
náinni framtíð valda auðn á
landsbyggðinni verði ekki
gerðar á því grundvallarbreyt-
ingar.
Þeir segjast vilja heíja bar-
áttuna innan ramma laganna en
segjast munu sækja „frum-
byggjaré1t“ sinn með öllum til-
tækum ráðum ef ekki verði tek-
ið tillit til sjónarmiða þeirra.
Hvatt er til þess að menn hafí
samstarf um að verka aflann,
hvort sem er til að frysta hann,
salta eða herða.
Æðarfugl
leitar vars
ÆÐARFUGL leitaði vars í
Reykjavíkurhöfn seinnipartinn í
gærdag, en svo mikilfengleg
var sú sjón þegar fuglinn
streymdi inn meðfram hafnar-
garðinum að staðkunnugir
menn sögðust aldrei hafa séð
slíka sjón og höfðu á orði að svo
virtist sem fuglinn hefði vit-
neskju umfram mennina um
rysjótta tíð.
Samið um
smíði skips
fyrir millj-
arð í Chile
SKÖMMU fyrir miðnætti í gær-
kvöldi var skrifað undir samning
um að skipasmíðastöðin Asmar í
Chile smíði nóta- og flottrollsskip
fyrir Gjögur hf. og er kaupverðið
um milljarður króna. Fengur ehf.
og norska fyrirtækið Ulstein Nord-
vesteonsult hönnuðu skipið sem
verður afhent um mitt næsta ár, en
smíðatími er áætlaður um 12 til 15
mánuðir.
„Við höfum verið lengi í útgerð
og skipakaupin tilheyra því,“ sagði
Guðmundur Þorbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri Gjögurs, við Morg-
unblaðið í gærkvöldi, spurður um
ákvörðunina. Hann vildi ekki stað-
festa kaupverðið „en ætli þetta séu
ekki um 950 milljónir króna“.
Hann sagði að verð væri hagstætt í
Chile og skipasmíðastöðin hefði
gott orð á sér en þetta er sama fyr-
irtæki og Hafrannsóknastofnun
hefur samið við sem og Haraldur
Böðvarsson hf. á Akranesi og Hug-
inn í Vestmannaeyjum.
Umrætt skip verður 70,20 metr-
ar að lengd og 14,40 metrar að
breidd en að sögn Guðmundar
verðm- það meðal annars gert út á
loðnu, sfld og kolmunna.
m
Á FÖSTUDÖGUM
Irf
Er Kristinn Björnsson not-
aður í tilraunaverkefni?/C3
••••••••••••••••••••••••••••
Norska liðið Brann í
fjárhagsvandræðum/C4
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is