Morgunblaðið - 19.02.1999, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 19.02.1999, Blaðsíða 56
56 FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ ciz:szz~x HÁSKÓLABÍÓ # # * * HASKOLABIO ntarh Hamill Peter Stormare. flrmageddon og Fargp Lena Otin Star UJars Hann er búinn að undirbúa sig alla æui og nú er kaliið komiö. w*' lreuist SCEDIGITAL Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11 enskt tal. Sýnd kl. 5 og 7 íslenskt tal. SŒDIGITAL Áltabakka 8, stmi 587 8900 og 587 8905 Skemmtileg rómanttsk gamanmynd frá lólkinu scm gerói Slecpiess in Seattle áp ■ l B8Í V ! 1 mwL -i-; www.samfilm.is KVIKMYNDIR/Háskólabíó sýnir rómantísku gamanmyndina Shakespeare In Love sem tilnefnd hefur verið til 13 óskarsverð- launa, þar á meðal sem besta mynd ársins. Fjöldi þekktra leikara kemur fram í myndinni en með helstu hlutverkin fara Joseph Fiennes og Gwyneth Paltrow sem tilnefnd er til óskarsverðlauna fyrir besta leik kvenna í aðalhlutverki. Uppspretta ástar- sögunnar Frumsýning UNDIR lok sextándu aldar kepptu tvö leikhús í London ákaft utn hylli áhorfenda . með því að lofa sífellt nýjum leikrit- um og stórkostlegum leikurum. Undir miklu álagi við að standa undir kröfunni um ný leikhúsverk er upprennandi ungur höfundur að nafni Will Shakespeare (Joseph Fiennes), en hann er skyndilega haldinn mikilli ritstíflu og svo virð- ist sem andagiftin hafí með öllu yfír- gefið hann. Það er alveg sama hve ákaft hann reynir, hann getur með engu móti öðlast þá hugljómun sem þarf. Þá skiptir heldur engu máli þótt leikhúseigendurnir beiti hann miklum þrýstingi til að Ijúka við leikritið Rómeó og Ethel, dóttir sjó- ræningjans. Hann þarf því nauðsyn- lega á skáldagyðju að halda og á undraverðan hátt finnur hann hana þegar hann verður ástfanginn af konu sem leiðir hann á vit dramat- ísks ástarævintýris í takt við það sem hann er að reyna að skrifa um. Það byrjar allt saman með því að v„ Lady Viola (Gwyneth Paltrow), sem þráir ákaflega heitt að verða leik- kona á þessum tímum þegar óhugs- andi var að konur gætu sýnt sig á leiksviði, dulbýr sig sem karlmann og reynir að fá hlutverk í leikriti Wiils. Dulargervi hennar misheppn- ast hins vegar og ástin kviknar á miili þeirra tveggja á augabragði. I 'kjölfarið tekur blekið að flæða í JUDI Dench leikur Elísabetu drottningu sem vill að Viola gift- ist hinum óþolandi Lord Wessex. stríðum straumi úr penna skáldsins og umbreytir hann eigin ástartil- finningum í ódauðleg orð þegar Vi- ola verður hans eigin Júlía og Ró- meó finnur tilgang í tilverunni. En það er samt ekki ailt með felldu í til- veru Wills því um leið og þéttskrif- aðar síðurnar taka að hlaðast upp hjá honum kemur í ijós að Viola verður að giftast hinum óþolandi Lord Wessex (Colin Firth) vegna skipunar frá sjálfri Elísabetu drottningu (Judi Dench). í mikilli hringiðu misskilnings af öllu mögu- legu tagi, viðureigna við afbrýði- sama eiginmenn og hættulegra kossa, leitar svo Will Shakespeare ákaft að réttri lausn bæði fyrir leik- ritið sitt og eigin ódrepandi ást. Hugmyndin að kvikmyndinni Shakespeare ástfanginn varð til hjá Marc Norman, framleiðanda mynd- ÞAU Viola (Gwyneth Paltrow) og Will Shakespeare (Joseph Fiennes) verða bálskotin hvort í öðru um leið og þau hittast. GWYNETH Paltrow er tilnefnd til óskarsverð- launa fyrir hlutverk sitt í niyndinni Shake- speare In Love. arinnar og meðhöf- undi, þegar sonur hans spurði hann að því hvað hefði verið kveikjan að því að Shakespeare skrifaði leikritið um Rómeó og Júlíu. Norman fékk þá hugmynd að Shakespeare hefði orðið ástfanginn í einum leikaranna sinna, konu sem væri dulbúin sem karl- maður í því skyni að komast á leiksviðið. Vegna þess að Shakespeare var þegar kvæntur mað- ur þá hlaut þetta ást- arsamband að vera fyrirfram dauða- dæmt og þannig væri um ákveðna endur- speglun í ieikritinu að ræða. Leikritaskáldið Tom Stoppard var svo fengið til að varpa töfra- ljóma sínum á handrit myndarinn- ar, en hann er ekki ókunnugur Shakespeare því hann skrifaði á sín- um tíma leikrit um tvær minnihátt- ar persónur í Hamlet, þá Ros- encrantz og Guildenstern. í fyrstu var Stoppard fullur efasemda um hvort hann ætti að taka þetta verk- efni að sér en hann heillaðist fljót- lega að hugmyndinni og sökkti sér á kaf í verkefnið. Frá byrjun voru aðstandendur myndarinnar harðákveðnir í að fá Gwyneth Paitrow til að leika Vioiu, en ekki var jafn augijóst hver ætti að fara með hlutverk Shakespeares í myndinni. Augu þeirra beindust hins vegar fljótlega að Joseph Fiennes sem þeim þótti trúverðug- ur bæði í hlutverki elskhuga og mikilhæfs ieikritaskálds.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.