Morgunblaðið - 19.02.1999, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 19.02.1999, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1999 25 Reuters IRA Einhorn veifar til ljósmyndara er hann yfirgefur réttarsal í Bor- deaux ásamt eiginkonu sinni eftir að dómstóll samþykkti framsal hans. Á flótta undan réttvísinni í tvo áratugi Ira Einhorn framseldur til Bandar rkj anna Bordeaux. Reuters. FRANSKUR dómstóll samþykkti í gær að framselja Ira Einhorn, sem hefur verið á flótta undan réttvís- inni í tæpa tvo áratugi, til banda- rískra stjómvalda með því skilyrði að hann ætti ekki yfir höfði sér dauðarefsingu. Einnig var þess krafist að réttað yrði að nýju í máli Einhorns í Pennsylvaníu-ríki. Hann var dæmdur í lífstíðarfangelsi árið 1993 fyrir að bana unnustu sinni, Helen Maddox, árið 1977. Gert er ráð fyrir að Einhorn áfrýi framsals- dómnum. Ávallt neitað sakargiftum Ira Einhorn, sem er 58 ára gam- all, var áberandi í baráttunni gegn Víetnamstríðinu á sjöunda áratugn- um í Bandaríkjunum og bauð sig eitt sinn fram til borgarstjóra í Philadelphia. Hann hefur ávallt neitað sakargiftum þrátt fyrir að lík konunnar hafi fundist í kistu inni í skáp á heimili hans í Philadelphia. Einhorn gekk laus gegn trygg- ingu er hann flýði frá Bandaríkjun- um fyrir 17 árum stuttu fyrir upp- haf réttarhaldanna gegn honum. Arið 1997 fannst hann í þorpinu Champagne-Mouton í suðvestur- Frakklandi en þar hafði hann sest að ásamt eiginkonu sinni og tekið upp nýtt nafn. Síðastliðin tvö ár hafa lögfræðingar Einhorns barist gegn því að hann yrði framseldur til Bandaríkjanna. Líkið fannst í íbúð Einhorns Þegar Helen Maddux, fyiTver- andi klappstýra frá Texas, hvarf um miðjan áttunda áratuginn sagði Ein- horn að hún hefði farið út í búð en aldrei komið heim aftur. Einu og hálfu ári síðar kölluðu nágrannar hans á lögregluna vegna þess að megnan óþef lagði úr íbúð Einhorns. Þá fannst lík Maddux. Höfuðkúpan hafði verið brotin með barefli. Ættingjar Helen Maddux fögn- uðu í gær fréttum af framsalinu. „Loksins þarf Einhorn að standa skil gjörða sinna,“ sagði Elisabeth Hall, systir fórnarlambsins. Athygli vakti að franski dómstóll- inn dæmdi Einhorn ekki til gæslu- varðhalds en bandarískir saksókn- arar iýstu áhyggjum sínum af því að hann reyndi aftur að flýja land á meðan áfrýjunarferlið stæði yfir. Dómstóll í Bordeaux hafnaði fyrstu kröfunni um framsal Ira Ein- horns í desember árið 1997 með þeim rökum ekki væri tryggt að réttað yrði að nýju í máli hans. Rík- isþing Pennsylvaníu greip þá til þess ráðs að samþykkja lög sem tryggja að réttað verður aftur í máli Einhorns er hann snýr aftur á heimaslóðir. Uið getum ■ á þig! Lýsing býður þér á landsleik Islands og Bosníu í körfubolta miðviku- daginn 24. febrúar. Nánari upp- lýsingar á slóðinni www.lysing.is Bardagar hefjast á ný í Kongó Kinshasa. Reuters. SKÆRULIÐASVEITIR Emest Wamba dia Wambas, sem undanfar- in misseri hafa barist við hersveitir Laurents Kabila, forseta lýðveldisins Kongó, voru á þriðjudag sagðar hafa hafið nýja sókn gegn stjórnarhern- um. Markar sóknin enda á mánaðar- hléi á bardögum en afrískir sátta- semjarar hafa að undanfornu reynt að fá Kabila til að samþykkja vopna- hlé og beinar viðræður við skærulið- ana. Dia Wamba sagði í gær að skæru- liðasveitirnar ættu einskis annars úrkosti en að berjast þar sem Kabila neitaði öllum samningaumleitunum. Talið er að stjórnvöld í Rúanda að- stoði skæruliðana með vopnasend- ingum og herafla. Fréttastofa CNN hefur það eftir ónafngreindum heim- ildarmönnum innan rúandísku stjórnarinnar að rússneskar leiguflugvélar hafi flutt þúsundir rú- andískj'a hermanna til Mbuji-Mayi- héraðs í Suðaustur-Kongó til að að- stoða skæruliða í sókn sinni að Kins- hasa, höfuðborgar lýðveldisins. Ef aðgerðin tekst ná skæruliðar völdum yfir stærstu demantanámum verald- ar og svipta þá jafnframt stjórn Ka- bilas helstu tekjulind sinni. Kabila sagður í Sádí-Arabíu Stjórnvöld í Kinshasa hafa gert lítið úr sókn skæruliðanna og segja stjórnarherinn vera að ná, hægt og sígandi, lokatakmarki sínu um end- urráð yfir öllu Kongó. Kabila forseti, sem sakað hefur Rúanda og Úganda um stuðning við skæruliðana, hefur ekki sést í Kongó undanfarna daga. Súdönsk dagblöð greindu frá þvi að Kabila hefði verið þar í landi á þriðjudag og fundað með ráðamönn- um. Eitt blaðanna taldi sig hins veg- ar hafa heimildir fyrir því að forset- inn væri í Sádí-Arabíu að leita sér læknisaðstoðar. Afganistan 350 látnir úr óþekktum sjtíkdómi Islamabad. Reuters. RÚMLEGA 350 manns hafa látist úr óþekktum sjúkdómi í norðausturhluta Afganistans, að því er heimildir innan stjórn- ai'andstöðunnar í landinu greina frá. Flestir hafa látist í Badakhsan-héraði, sem liggur að landsmærum Tadsjikistans og Kína, en þar ráða stríðsherr- ar andsnúnir talebönum ríkjum. Sjúkdómurinn lýsir sér í miklum hita, niðurgangi og köldu, en er hvorki sagður vera kólera né taugaveiki. Badakhsan er mjög afskekkt og fjalllent hérað í Afganistan. Um þessar mundir er fannfergi þar mikið og tekur a.m.k. 12 daga að komast frá miðju hér- aði til endimarka þess fótgang- andi ellegar ríðandi á asna. \ f I f—F 17.-21. febrúar Einu sinni enn endurtökum við okkar vinsælu hestadaga 1999 • Togs reiðúlpur, litir: rauður, blár.5.200,- • Kuldareiðgallar, litir: blár, grænn.13.900,- • „Fleece" peysa með regnheldu fóðri ..3.900,- • „Fleece" peysa........3.400,- • Reiðúlpa vatt, litur: dökkblár.3.900,- • Trico ullarsokkar............... 490,- • Rússkinns reiðskálmar..........5.900,- • Rússkinns legghlífar...........2.900,- 15% afsláttur af öllum skó- og reiðbuxum Hairaaí't- **"**■£!$** Afgreiðslutími: miðvikudaginn 17. kl. 8-19 fimmtudaginn 18. kl. 8-19 föstudaginn 19. kl. 8-19 laugardaginn 20. kl. 10-16 sunnudaginn 21. kl. 11-16 Veitingar í kaffihorninu Stóraukii vöruval Fóðurvörur «? Racing steinefnablanda Bíótín 1 og 5 Ktra Hestamín Fóðurlýsi Graskögglar 10% Reiðlygi • Beisli, í gjafaumbúðum (höfuðleöur, reiðmúll, taumur, mél)....,...3.100,- • Beisli, í gjafaumbúðum (höfuðleður, reiðmúll, taumur, mél)........3.600,- • Hnakkur, Hrímnir með öllum fylgihlutum. 23.500,- • Hnakkur, Sörli með öllum fylgihlutum ..22.500,- • Gjarðir 14 strengja...700,- • Gjarðir 7 strengja....400,- • Reiði.....1.200,- • ístaðsólar.1.200,- • Istöð, tvíbogin brass/ryðfrí...l .400,- • Teymingar- gjarðir.....1.900,- • Stallmúlar frá kr.300,- • Jofa reiðhjálmar frákr.......3.570,- Multifan viftur oq stýringar Brynningarskálar MRbúðin Lynghálsi 3 Sími: 5401125 *Fax: 5401120 / Avallt í leiðinni ogferðarvirði TÖ LV U G Ó K fl D fifififtEE m _ O íl f ö r rt ir v V ! / _, - . , > / r- IX K ^ í fejþim&r Af því tilefni höfum við pantað fjöldann allan af nýjum titlum Efþú átt ekki heimangengt er WWW.bokSttlcl.ÍS einföld og örugg leið til að nálgast mörg þúsund bókatitla. 25-70% afsláttur bók/ai^ /túdei\t&. Stúdentaheimilinu við Hringbraut • Sími: 5700 777
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.