Morgunblaðið - 19.02.1999, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 19.02.1999, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ STJÓRN Starfsmannafélags KR, Vigdís Guðjónsdóttir, Margrét Björg- vinsdóttir, Matthi'as Pétursson og Ragnhildur Ólafsdóttir ásamt Þor- steini Pálssyni kaupfélagssljóra KÁ og Erlingi Loftssyni sljórnarfor- manni KÁ. Kynjaverur á ferð- inni á öskudag Tölvunámskeið á Tálknafirði Tálknafirði - Þessa dagana er haldið tölvunámskeið á Tálknafirði á vegum Farskóla Vestfjarða í samvinnu við grunnskólann á staðnum sem leggur til aðstöðu og tækjakost. Kennari á námskeiðinu er Agústa Bárðardóttir en hún hef- ur kynnt sér tölvu- og upplýsinga- tækni í Kennaraháskólanum og hjá Ismennt kynnti hún sér heimasíðu- gerð og notkun Netsins. Á námskeiðinu eru 8 nemendur og er það fullsetið. Farið er yfir helstu notkunarmöguleika Windows-kerfisins, kennd notkun ritvinnsluforrita og í lokin verður lauslega kynnt reikniforritið Excel. Þrír þátttakenda eru starfsmenn frá Eyrasparisjóði, en í ráði er að taka í notkun nýtt AKS-afgreiðslu- kerfi í sparisjóðnum, sem byggist á Witidows og því er starfsfólkinu boðið upp á námskeiðið. Aðrir þátt- takendur eru fyrst og fremst að leita eftir þekkingu til þess að geta ráðið við heimilistölvuna, en eins og flestir vita, sem nálægt tölvum hafa komið, geta þær verið hinir viðsjárverðustu gripir ef ekki er farið rétt að þeim. Ánægja er með framtakið og nú þegar er fullbókað á annað námskeið. ÓLAFUR Ólafsson sein lengi var kaupfélagsstjóri KR við skenkinn góða frá Rauðalæk. Minnisvarði um Morgunblaðið/Finnur Pétursson Á TÁLKNAFIRÐI voru veitt verðlaun fyrir þrjá bestu búningana og fékk Sindri Sveinn Sigurðsson 1. verðlaun fyrir geim- farabúninginn sögu Kaupfélags Rangæinga Hvolsvelli - Opnað hefur verið á Hvolsvelli safn sem spannar sögu Kaupfélags Rangæinga frá upphafi 1919 til ársins 1996, þegar það sam- einaðist Kaupfélagi Árnesinga. Safnið er í húsi Sögusetursins á Hvolsvelli, Sunnuhúsinu, og sam- anstendur af miklum fjölda mynda og muna úr sögu félagsins. Á safninu era uppsettar þrjár skrifstofur fyrrverandi kaupfélags- stjóra, krambúð o.fl. Innréttingar eru m.a. úr gömlu búðinni á Rauða- læk, en hún er frá fyrstu áratugum nítjándu aldar, upphaflega úr fínni búð á Eyrarbakka. Á sýningunni má sjá slu-ifstofu fyrsta kaupfélags- stjórans, Guðbrands Magnússonar, frá því félagið var stofnað í Hall- geirsey. Þar era einnig allar algeng- ar skrifstofuvélar frá því farið var að nota slíkar vélar, til dagsins í dag. Segja má að á sýningunni sé einnig rakin byggðasaga Hvolsvall- ar, því kaupfélagið reisti fyrstu hús- in á Hvolsvelli 1930 og er saga kaupfélagsins og þorpsins rækilega samtvinnuð. mui gunuiauuyr íiinui í cuuiaouii SIGRÍÐUR, Lára, Eygió. Fanney, Guðlaug, Freyja, Bragi og Guð- mundur. Ágústa stendur fyrir aftan. GUÐBRANDUR Magnússon fyrsti kaupfélagsstjóri KR og Matthildur Kjartansdóttir við upphaf búskapar í Hallgeirsey. Það var fyrir tilstilli félaga úr St- arfsmannafélagi Kaupfélags Rang- æinga að þessi draumur fyrrverandi starfsmanna félagsins hefur nú orð- ið að veruleika. Starfsmannafélagið gaf aleigu sína til að hrinda þessu í framkvæmd, það hefur séð um að safna munum og heimildum og greitt kostnaðinn við uppsetningu sýningarinnar með dyggi’i aðstoð Kaupfélags Árnesinga og Hvols- hrepps. Þau Margrét Björgvins- dóttir og Matthías Pétursson fyrr- verandi starfsmenn KR hafa borið hitann og þungann af því að koma þessu í framkvæmd. Um hönnun og uppsetningu sýningarinnah sá Björn G. Björnsson hönnuður og Sigurður Guðmundsson smiður, en Hvolshreppur lagði til húsnæðið. í húsi Sögusetursins eru nú tvær sýningar, þ.e. Kaupfélagssýningin og sýningin á Njáluslóð. I bígerð er að koma þar upp fleiri sýningum og einnig að innrétta víkingaveislusal. Húsið verður því einskonar sýning- armiðstöð og er starfsemin liður í að sameina menningu og ferða- mennsku. Morgunblaðið/Albert Kemp MIKIÐ fjör var hjá ungu kynslóðinni á leikskólanum Kærabæ á Fáskrúðsfirði þegar þau slógu köttinn úr tunnunni á öskudaginn. Vaðbrekku, Jökuldal, Tálknafírði - Litlar kynjaverur vora víða á ferðinni á öskudag og kötturinn var sleginn úr tunnunni eins og hefð er fyrir. Á Tálknafirði var haldinn ösku- dagsfagnaður í íþrótta- og félags- heimilinu. Og að venju vora bún- ingar og gervi af ýmsum gerðum og augljóst að mikil vinna liggur að baki sumum búninganna. Þarna mátti sjá kynjaverar og heimilistæki ásamt fulltrúum úr dýraríkinu, sumir jafnvel langt að komnir, eins og ljónin sem lædd- ust um gólfið. Eftir að farið hafði verið í nokkra leiki, stilltu gestirnir sér upp í langa röð og byrjuðu að slá „köttinn“ úr tunnunni. Það gekk vel að þessu sinni, því að botninn féll áður en allir höfðu fengið tækifæri til þess að slá í tunnuna. Niður úr tunnunni hrandu kara- mellur og létu viðbrögðin ekki á sér standa. Hópurinn stakk sér undir tunnuna og reyndi hver sem best hann gat að ná sér í mola. Prinsessurnar óttuðust drekana Drekar, trúðar, prinsessur og indíánar skemmtu sér konunglega saman á árlegu grímuballi Höfða- skóla á Skagaströnd á öskudag. Þar ægði saman börnum í hinum ótrúlegustu búningum og var svo að sjá að hugmyndafluginu væra engin takmörk sett. Flestjr bún- Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson ÖSKUDAGSSKEMMTUN var haldin í Skjöldólfsstaðaskóla. Á myndinni má sjá Ævar Þor- geir Aðalsteinsson slá köttinn úr tunnunni. ingarnir voru búnir til heima en ekki aðkeyptir eða leigðir. Ekki voru allir hinna grímu- klæddu háir í loftinu því þeir yngstu vora ekki orðnir eins árs gamlir. Vora þeir af þeim sökum veralega valtir á fótunum og ein- staka prinsessu leist ekkert á drekana og skrímslin og hágrét í fanginu á mömmu sinni þar til mesta hættan var liðin hjá.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.