Morgunblaðið - 19.02.1999, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 19.02.1999, Blaðsíða 36
36 FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN MÉR hafa borist í hendur tvær greinar sem birtust í Morgun- blaðinu 6. og 9. febrú- ar og veitast að mér persónulega, doktors- ritgerð minni og Lancaster-háskóla á , Bretlandi. Það er at- hyglisvert að í báðum þessum greinum er fullyrt að ég hafi sett fram „safaríka" „alls- herjar“ samsæris- kenningu í doktorsrit- gerð minni án þess að höfundar þeirra hafi kynnt sér innihald rit- gerðinnar. Það er nefnilega svo að höfundar þessara tveggja greina hafa hvorugir aug- um litið doktorsritgerð mína og aldrei hafa þeir komið að máli við mig til að fá nánari upplýsingar. Það eina sem þeir byggja á er stutt blaðaviðtal við mig, er birtist ^ í Morgunblaðinu 31. janúar síðast- liðinn. í því stutta viðtali eru nefndar örfáar niðurstöður úr doktorsritgerð minni, sem er röskar 300 blaðsíður og er af- sprengi margra ára vinnu. Ætti það að vera flestum ljóst að ekki er hægt að gera svo umfangsmiklu verki nákvæm og greinargóð skil í jafnstuttu máli og eitt blaðaviðtal er. Þaðan af síður er hægt að tína til öll rök og forsendur sem niður- ^ stöður byggjast á. Það hefur þó ekki stöðvað þessa aðila í að skálda orsakasamhengi og draga ályktanir án þess að kynna sér málið nán- ar. Það er nákvæm- lega það sama og þessir höfundar ásaka mig um að hafa gert í ritgerð minni. Það er þó sérstak- lega í seinni greininni sem keyrir um þver- bak, en höfundur hennar er Arnar Guð- mundsson, upplýs- ingafulltrúi ASI. Arn- ar tínir til ýmsar „vel þekktar lykilstað- reyndir" sem hann fullyrðir að ég viti ekki um og hafi ekkert kynnt mér og þ.a.l. sé öll mín vinna byggð á vanþekkingu, for- dómum og misskilningi. Meðal þess sem Arnar heldur fram er að ég þekki ekki sögu almenna lífeyr- issjóðakerfisins, viti ekkert um fjárfestingarstefnu sjóðanna né að hlutafjáreign sjóðanna sé að mestu tilkomin eftir 1990 og að ég átti mig ekki á því að það sé ekki ASÍ heldur viðkomandi stéttarfé- lög sem skipi í stjórnir lífeyris- sjóðanna. Að lokum fullyrðir hann að ég þekki ekkert til nýlegra laga um lífeyrissjóði og þ.a.l. viti ég ekki að fjárfestingarreglur al- mennu sjóðanna hafi verið rýmkaðar. Ég ætla því að nota þetta tæki- færi til að upplýsa „upplýsinga- fulltrúann“. Éf Arnar hefði haft fyrir því að afla sér haldbetri þekkingar á viðfangsefninu, þ.e. doktorsritgerð minni, í stað þess að byggja sínar fullyrðingar á einu stuttu blaðaviðtali við mig, þá hefði hann komist að því að ég fjalla vel og rækilega um allar þessar „lykilstaðreyndir". I dokt- orsritgerð minni rek ég sögu og uppbyggingu almennu lífeyris- sjóðanna frá upphafi, geri grein fyrir eignum og eignasöfnun sjóð- anna, greini þróun og breytingar á Verkalýðshreyfingin Þrátt fyrir að íslensk verkalýðshreyfíng virðist öflug á yfirborð- inu, segir Herdís D. Baldvinsdóttir, er svo ekki þegar betur er að gáð. fjárfestingarstefnu þeirra frá upp- hafi, m.a. með hliðsjón af reglu- gerðum sjóðanna, og komst því ekki hjá að vita að hlutafjáreign þeirra var hverfandi þar til eftir 1990 en hefur aukist með ótrúleg- um hraða síðan þá. Fjárfestingar- stefna lífeyrissjóðanna var einnig skoðuð í ljósi þess að hlutabréfa- markaðurinn hér er nýr af nálinni, sem eðlilega hefur áhrif á hvar sjóðirnir geta fjárfest á öruggan hátt. Einnig er sérstaklega fjallað um stjórnunarfyrirkomulag ein- stakra sjóða sem og Samband al- mennra lífeyrissjóða og Lands- samband lífeyrissjóða, sem eru regnhlífasamtök almennu sjóð- anna. Um nýju lögin sem Arnar vísar til fjalla ég ekki sérstaklega þar sem þau voru aðeins í frum- varpsformi er rannsókninni lauk og er því aðeins vísað í þau í neð- anmálsgrein. (Allra gagna er getið í nákvæmri heimildaskrá í ritgerð- inni.) Það ætti því að vera ljóst að ég þekki vel til þessara mála. Arnar lætur ekki staðar numið þar en heldur áfram að setja fram fullyrðingar eða „staðreyndir" eins og hann kýs að kalla það. Hann staðhæfir að ég þekki ekki uppbyggingu verkalýðshreyfing- arinnar og ferli ákvarðanatöku. Einnig að ég skilgreini ekki hvað ég eigi við með „árangri verka- lýðshreyfingarinnar", beri ekki saman „árangur" verkalýðshreyf- ingarinnar fyrir tíma lífeyriskerf- isins og eftir, o.fl. í þessum dúr og vísa ég hér með í grein hans fyrir þá er kynnu að hafa áhuga. Hin greinin, sem er eftir Asmund Stefánsson, kemur einnig inn á „árangurý verkalýðshreyfingar- innar en Asmundur gefur sér þó að það sé hugsanlegt að ég hafi lagt mat á þá þróun í doktorsrit- gerðinni. Það gleður mig því að geta sagt að í henni er gerð góð grein fyrir þessum þáttum sem og baráttumálum verkalýðshreyfing- arinnar. Arnar og Ásmundur benda á margvísleg réttindi launþega, fé- lagslegt íbúðarkerfi, lífeyrissjóð o.s.fi'v. sem dæmi um árangur verkalýðshreyfingarinnar. Vissu- lega fallast allir á að hér er um ár- angur að ræða, en hver hefur náð þessum árangii og hversu mikill er hann? Augljóslega er þetta ekki bara verk verkalýðshreyfingar- innar, heldur einnig hluti af ár- angri íslenskra stjórnmálaflokka. Eingetni er ekki meginreglan í líf- inu og allra síst á vinnumarkaðn- um. Að meta árangur verkalýðs- hreyfingarinnar á svo einfaldan hátt eins og þeir félagarnir gera segir harla lítið, því það er sama hversu lítið hefur áunnist, allt má kalla árangur ef minnsta breyting á sér stað. Raunhæfara er að skoða árangur í tengslum við efna- hagsþróun á íslandi og í saman- burði við önnur lönd. Islensk verkalýðshreyfing hefur ekki náð árangri í að koma á launaþróun sem kemur í veg fyrir að tilteknir hópar launafólks dragist ítrekað aftur úr öðrum hópum á þenslu- tímabilum. Jafnframt hefur hreyf- ingin ekki náð árangri í að byggja upp velferðarkerfi sambærilegt því sem þekkist á Norðurlöndum, þrátt fyrir að óvíða hafi hagvöxtur verið jafn mikill og á Islandi eftir stríð. Svona mætti lengi halda áfram. Samhljóða röksemdafærsla þeirra félaganna um árangur er því næsta haldlaus. Svo notuð sé álíka skáldleg líking og þeir al- þýðuski-iffinnar nota í greinum sínum má segja, að það er eins og Ásmundur hafi heimsótt Ai'nar í barrtrjágarð hans á frostköldum vetrardegi, þeir hafi kastað þar af sér vatni og liggja þeir nú báðir flatir á svellinu. Ég hef ekki í hyggju að um- skrifa ritgerð mína í formi blaða- deilna á síðum Morgunblaðsins. Ég vil bara árétta að þrátt fyrir að íslensk verkalýðshreyfing virðist öflug á yfirborðinu, þar sem all- flestir launþegar eru félagsbundn- ir, þá er svo ekki þegar betur er að gáð. Að lokum vona ég að vinnubrögð upplýsingafulltrúans endurspegli ekki almenn vinnu- brögð innan ASI. Höfundur vinnur við rannsóknar- störf á Islandi og á Bretlandi. Skáldskap alþýðu- skriffínna svarað Herdís D. Baldvinsdóttir Mæla mig hvar? Braun eyrnahitamælirinn fæst í apótekum, góöur fyrir mig og mömmu. ThermoScan BRflun >• í hádeginu virka daga: JKvöld- og hdgartilbod: HLAÐBORÐ SÆLKERANS Frjálst val: Súpa, salatbar os heitur matur, marsar tesundir. SJAVARREJTA FAHTASIA (3 tegundir af ferskum fiski dagsins), m/kryddgrjónum og tveimur tegundum af sósu. AÐÐNSKR. 1.490.- kr.890.- Bamamatseðill fyrir smáfólkið! Öllum þessum gómsætu réttum fylgirsúpa, brauðbar, salatbar og svo ísbarinn á eftir. Grilluð NAUTALUND m/gljáðu grænmeti og bernaisesósu. AÐÐNSKR. 1590.' Grillaður LAMBAVÖÐVI með bakaðri kartöfiu og sósu að eigin vali. AÐÐNSKR. 1.490.- Hunangsgljáð KJÚKUNGABRINGA borin fram með rifsberjasósu og avocado. AÐÐNSKR.1.490.' Grillaður SKOTUSELUR BRflUTflRHOLTI 22 SÍMI 551-1690 ci\>róiuUuu' uóijúóu! /I'/'íV) iH’/homin ! POTTURINN OG m/sjávarréttasósu og hvítlauksbrauði. AÐÐNSKR. 1.490.- Röskva vill sterkan lánasjóð ÞEGAR stjórnmála- menn þjóðarinnar koma saman og halda ræður í hanastélssam- kvæmum verður þeim tíðrætt um gildi menntunar og að okk- ur beri að hlúa að þeim vaxtarbroddi menn- ingar sem í menntun er fólginn. Nú er kom- inn tími til að þeir efni loforðin. Grunnframfærslan er of lág I dag er grunnfram- færsla sú sem námslán á íslandi miðast við kr. 57.600 á mánuði. Þrátt fyrir fögur fyrirheit ráðamanna eru námslán- in í dag 16,7% lægri að raunvirði en þau voru 1982. Á sama tíma hafa laun á almennum markaði hækkað um tugi prósentustiga. Snemma á síðasta ári sáu stjórn- völd að sér og bættu verulega úr því óréttlæti sem fólst í lágum ör- orku- og atvinnuleysisbótum. Sa- mið var um nær 14% prósenta hækkun þeirra og skyldi hækkun- in koma til framkvæmda í fjórum þrepum á tveimur árum. Síðastliðið vor voru úthlutunar- reglur Lánasjóðs íslenskra náms- manna til endurskoðunar. Röskva hafði skýra stefnu, námslán yrðu að hækka. Lögð var fram ósk um sömu prósentuhækkanir og á ör- orku- og atvinnuleysisbótum og skyldu þær framkvæmdar með sama hætti og hækkanir þeirra bóta sem vísað var til. Ríkisvaldið hafnaði tillögunum. Baráttan heldur hins- vegar áfram og af- staða Röskvu er óbreytt. Okkar óskir eru raunhæfar en það er aðeins með beinni hækkun grunnfram- færslu sem lagfær- ingar á sjóðnum koma þeim til góða sem mest þurfa á framfærslulánum að halda. Við viljum nýta þau sóknarfæri sem gefast í vor vegna al- þingiskosninganna, og þrýsta á stjórn- málaflokkana að hafa umbætur á lánasjóðskerfinu ofar- lega á sinni stefnuskrá. Frítekjumarkið er jaðarskattur Við útreikning námslána er svo- kallað frítekjumark lagt til grund- Stúdentaráð Lánasjóðurinn, segir Eiríkur Jónsson, taki Netið meira í sína þjónustu. vallar við útreikninga vegna tekju- skerðingar lánanna. Frítekju- markið fyrir skólaárið 1998-99 er kr. 185.000 miðað við 3ja mánaða vinnu árið 1998. Það er að segja kr. 61.667 á mánuði. Af tekjum umfram þessa upphæð koma 50% til frádráttar við útreikning náms- lána. Með svo lágt frítekjumark geta námsmenn ekki einu sinni unnið fyrir lögboðnum lágmarks- launum í sumarleyfi sínu án þess að námslánin skerðist. Þannig eru jaðarskattaáhrif vegna of lágs frí- tekjumarks u.þ.b. 12.500 krónur á ári. Röskva hafnar of lágu frítekju- marki og krafa okkar er einföld: Frítekjumarkið verður að hækka upp í kr. 210.000 eða kr. 70.000 á mánuði. Allt innan við það er skattlagning á námslán. Lánasjóðinn á Netið Gæði þjónustu Lánasjóðsins hafa lengi verið þyrnir í augum viðskiptavina hans, okkar náms- manna. Mikið pappírsflóð er sam- fara umsókn og afgreiðslu náms- lána og í því langa ferli getur margt farið úrskeiðis. í því tækni- þjóðfélagi sem við lifum í í dag er ekki nema eðlileg krafa að Lána- sjóðurinn taki Netið meira í sína þjónustu. Röskva vill sjá umsókn- arferlið fara fram á Netinu. Þannig er hægt að spara mikinn tíma og fyrirhöfn. Við lánsumsókn fengi námsmaður þá aðgangsorð að sínum ferli við sjóðinn og hefði jafnframt yfirsýn yfir stoðu sína á öllum tímum. Gangi okkar stefnu- mál eftir sér Röskva fyrir sér sterkan Lánasjóð sem mun vera námsmönunm stoð inn í nýtt ár- þúsund. Höfundur er laganemi og skipar Ijórða sæti á lista Röskvu til Stúd- entaráðs. Eiríkur Jónsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.