Morgunblaðið - 19.02.1999, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1999 17
LANDIÐ
Gamla Ljósavatns-
kirkja að ljúka núver-
andi hlutverki sínu
Laxamýri - Ný
kirkja verður tekin í
notkun að bænum
Ljdsavatni á næsta
ári í tilefni af því að
eitt þúsund ár eru
liðin frá kristnitöku
á Islandi. Þegar hef-
ur verið gerður
grunnur að nýju
kirkjunni og verður
framkvæmdum fram
haldið í sumar.
Gamla kirkjan,
sem þar stendur nú,
lýkur því hlutverki
si'nu á staðnum, en
hugmyndir hafa
komið fram um að
flytja hana eitthvert
annað. Kirkja þessi
var tekin í notkun í
byrjun árs 1893 og
er byggð af bóndan-
um Birni Jóhanns-
syni og aðstoðar-
smiðum hans. Björn
var annálaður fyrir
listfengi sitt sem tré-
smiður, en engar
teikningar hafa
fundist af kirkjunni
og er talið að reynsla og færni
hafi mestu ráðið um útlit hennar.
Hún var sjálfstæð smíð í þeim
skilningi að hún fylgdi ekki hefð-
um 19. aldar í byggingu timbur-
kirkna og er klæðning hennar lá-
rétt og fylgdi það hefðum frá
Noregi og Svíþjóð.
Ekki var lokið við kirkjuna frá
upphaflegum hugmyndum og
risu forkirkja og turn aldrei.
Krossinn var settur á hana 19 ár-
um eftir vígslu hennar og það
sem einkennir hana eru háir
veggir.
A Ljósavatni mun hafa verið
bændakirkja í um 900 ár, en það
var árið 1914 sem hún er afhent
söfnuði til eignar og umsjár. I tíu
ár þar á undan var í henni skóli
og var kirkjuloftið svefnstaður
ALTARISTAFLAN af Kristi á tali
við kanversku konuna.
skólapilta sem þótti heldur köld
vistarvera.
Merkilegir munir í kirkjunni
Ljósavatnskirkju hafa verið
færðar margar góðar gjafír. Alt-
aristaflan er af Kristi á tali við
kanversku konuna, merkt ártal-
inu 1918 og er verk Kristians
Bangs (f. 1868), gjöf hjónanna
Önnu Jónsdóttur og Stefáns
Jónssonar á Eyjadalsá árið 1927
til minningar um dætur sínar.
I kirkjunni eru tvær klukkur,
önnur með ártalinu 1810 og hin
ómerkt og eldri að því er virðist.
Inni í kór kirkjunnar er svo
rúnasteinn sem talinn var bauta-
steinn Þorgeirs Ljósvetninga-
goða en er sennilega legsteinn
frá 15-öld.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
GAMLA kirkjan á Ljósavatni.
nilar plzzur ð
aðeina 899 Hr.
Við bjóðum nú allar pizzur á 899 kr.
Skiptir þá engu hversu stór pizzan er,
hvort áleggstegundirnar eru I eða 10,
hvort þú sækir uppáhaldspizzuna þína
eða snæðir hana einfaldlega í góðu
yfirlæti hjá okkur á Austurströnd eða
í Hlíðarsmáranum. Athugið beinan
síma á Austurströnd: 561 0070
Kynntu þér hin frábæru
heimsendingartilboð okkarl
554
..fín sending!
6600
Hlíðarsmára 8 — Kópavogi
Austurströnd 8 - Setjarnarnesi
Ofnasmiðja Reykjavíkur
Vagnhöfðal 1 112 Reykjavik
Hágæða heitavatnsofnar frá Danmörku.
PBRUGMAN
HANDKLÆÐAOFNAR
Steypusögun.kjarnaborun,
múrbrot, smágröfur. (jfc)
w
THOR
Leitið tilboða. ,|li(l
S:577-5177 Fax:577-5178
HTTPV/WWW.SIMNET.IS/THOR