Morgunblaðið - 19.02.1999, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
kröfur
þægindi
Gerðu
Pil
••••
Heilsu- og hægindostóllinn fró
PeopLoungers logar sig einstoklego
vel oð boki og herðum líkomons
og veilir þar með góðan stuðning
og slökun. Með einu hondtaki lyftir
þú innbyggðum fótoskammeli og
uummmmmhh.
Betra
Faxafeni 5 ■ 108 Rvk ■ Simi:588-8477
Lögfræðing'ar Oz um
tölvur og hugbúnað
með 2000 galla
Abyrgð í
sumum til-
vikum hjá
seljendum
SELJENDUR hugbúnaðar og
tölva ættu í sumum tilvikum að
standa straum af kostnaði
vegna breytinga, enduimýjunar
eða tjóns sem verður vegna
kaupa á tölvum og hugbúnaði
vegna 2000 vandans svonefnda.
Þetta er mat Gunnars Thorodd-
sen lögfræðings sem starfar hjá
hugbúnaðarfyrirtækinu Oz.
„Mér finnst umræðan um
þetta mál hafa verið einsleit og
það sjónarmið að kaupendur
hugbúnaðar beri sjálfir tjónið
verið einrátt. Seljendur hafa
greint vandann og lagfært
hann en kaupendur hafa gert
ráð fyrir því að þurfa að bera
tjónið sjálfir. í mörgum tilvik-
um bera seljendur ábyrgð á
hugbúnaðinum og ber þeim
þar með að standa straum af
kostnaði vegna greiningar á
vandanum og huganlega einnig
vegna tjónsins. Tjónið getur
komið fram með ýmsum hætti,
til dæmis vegna lagfæringar á
búnaði eða gagnvart þriðja að-
ila,“ segir Gunnar.
Gunnar segir að ekki sé hægt
að svara því á einn veg í hvaða
tilvikum seljendi beri ábyrgð á
tölvubúnaði vegna 2000 vand-
ans. Pað ráðist af aðstæðum
hverju sinni. Miklu skiptir
t.a.m. til hvers hugbúnaðurinn
er ætlaður og hvað megi telja
eðlilegan notkunartíma hans. I
sölusamningum geti verið fyrir-
varar sem er ætlað að firra selj-
endur ábyrgð. Vegna kaupa-
laga, sem kveða á um að ekki sé
hægt að bera fyrir sig galla
þegar eitt ár er liðið frá afhend-
ingu, skipti miklu máli hvenær
búnaðurinn er keyptur. Búnað-
ur keyptur fyrir febrúar 1998
er t.d. falÚnn úr ábyrgð.
Ákvæði kaupalaga eða einstaka
samningsákvæði segi hins veg-
ar alls ekki alla söguna: „Oft
eru það sérfræðingar sem selja
búnaðinn sem eru jafnframt í
ráðgjafarhlutverki gagnvart
kaupandanum. Peir geta hugs-
anlega borið skaðabótaábyrgð
fyrir að hafa ekki gefið rétt ráð
og gildir þá ekki kaupalagaregl-
an um eins árs ábyrgð," segir
Gunnar.
Gunnar segir mikilvægt fyr-
ir hvert fyrirtæki að láta fara
fram athugun á því hvar
ábyrgðin liggi.
Morgunblaðið/Golli
í HINUM nýja þingflokki eru sautján manns úr þingflokkum Alþýðubandalags, jafnaðarmanna og Samtaka um kvennalista.
Rannveig Guðmundsdóttir formaður nýs þingflokks Samfylkingarinnar
Einhver stærstu póli-
tísku tíðindi aldarinnar
RANNVEIG Guðmundsdóttir var
kjörin formaður þingflokks Sam-
fylkingarinnar sem stofnaður var í
gær. Jafnframt stofnun hins nýja
þingflokks voru þingflokkar Al-
þýðubandalags, jafnaðarmanna og
Samtaka um kvennalista lagðir nið-
ur.
Sautján þingmenn eru í hinum
nýja þingflokki, fimm úr Alþýðu-
bandalaginu, ellefu úr Þingflokki
jafnaðarmanna, sameiginlegum
þingfiokki Alþýðuflokks og Pjóð-
vaka, og einn úr Samtökum um
Kvennalista.
Gömlu þingflokkamir héldu sinn
síðasta fund í Alþingishúsinu síð-
degis í gær en síðan var gengið yfir
í Þórshamar þar sem haldinn var
stuttur sameiginlegur fundur og
kjörin stjórn fyrir þingflokk Sam-
fylkingarinnar. Ragnar Arnalds var
kjörinn varaformaður og Guðný
Guðbjömsdóttir ritari.
„Það sem við emm að gera er
mjög sögulegt," segir Rannveig.
„Það að þrír flokkar, sá elsti stofn-
aður 1916, skuli vera að leggja sig
inn í nýja pólitíska hreyfingu, era
að mínu mati einhver stærstu póli-
tísku tíðindi á þessari öld. Þessir
flokkar eru ekki að þessu út í loftið.
Þeir hafa verið að vinna undir
stefnu jafnaðarmennsku og félags-
mjög stórt sem við erum að gera
núna.“
Verður fljótlega vart
í starfi Alþingis
Ingibjörg
Pálmadóttir
fimmtug
INGIBJÖRG Pálmadóttir heil-
brigðisráðherra hélt í gær upp á
50 ára afmæli sitt í Fjölbrauta-
skóla Vesturlands á Akranesi.
Um 500 manns mættu í afmælið.
Leiðtogar ríkisstjórnarinnar,
Davíð Oddsson og Halldór Ás-
grímsson, fluttu ræður ásamt
fjöldamörgum öðrum. Davíð
upplýsti leyndarmál frá síðustu
stjórnarmyndunarviðræðum
þess efnis að hann hefði haft
vissar efasemdir um að hin fag-
urklædda Ingibjörg réði við hið
geysierfiða heilbrigðisráðuneyti.
Þá hefði Halldór Ásgrímsson
sagt, með sínum alkunna þunga:
Ég held ekkert um hana Ingi-
björgu, ég veit að hún veldur
Morgunblaðið/Kristinn
DAVÍÐ Oddsson óskar Ingibjörgu Pálmadóttur tit hamingju.
þessu! Davíð sagðist frá þeirri unni, sem síðar hefði komið í
stundu hafa treyst henni til allra Ijós að hefði verið algerlega
góðra verka í heilbrigðisþjónust- verðskuldað.
SVAVAR Gestsson stýrði fyrsta fundi þingflokks
Samfylkingarinnar í Þórshamri síðdegis í gær.
hyggju. Þetta era flokkar frelsis og
jafnréttis. Þeir hafa verið mótandi
um afstöðu í þjóðfélaginu og hafa í
sumum tilfellum mótað þjóðfélags-
gerðina. Þeir hafa þó sökum smæð-
ar sinnar ekki náð þeim mikla ár-
angri sem okkur hefur dreymt um.
Á síðastliðnu ári hafa þessir ílokkar
skipað sér saman í sveit, fyi-st í
sveitarfélögunum, með því að bjóða
fram sameiginlega lista í sveitar-
stjórnarkosningum næstum um allt
land. Síðan með því að halda áfram
þessu ferli í landsmálapólitíkinni.“
„Ég held að flestir í þessum
þremur flokkum séu famir að líta á
sig sem Samfylkingarmenn. Það
verður væntanlega verkefni næsta
kjörtímabils að við föram saman
með enn formlegri hætti, en það er
Rannveig segir að stofnunar
þingflokksins muni fljótlega verða
vart í starfinu á Alþingi. „Þetta hef-
ur talsvert mikla praktíska þýðingu
því þetta auðveldar okkur að sam-
ræma málabúnað okkar og skipa
talsmenn í ýmsum málum. Fyrst og
fremst hefur þó stofnun þingflokks-
ins pólitíska og táknræna þýðingu."
Fundarherbergi þingfiokksins
verður í Þórshamri, í herbergi sem
notað er til nefndafunda, en jafn-
framt munu þingmennirnir halda
aðstöðunni í þingflokksherbergjum
Alþýðubandalags, jafnaðarmanna
og Kvennalista í Alþingishúsinu.
Alþýðuflokkurinn var stofnaður
árið 1916 en kom fyrst manni á þing
undir nafni flokksins árið 1921 og
hafa fulltrúar flokksins setið á þingi
óslitið síðan.
Alþýðubandalagið var stofnað
1956 sem kosningasamtök en varð að
formlegum stjómmálaflokki 1968.
Það fékk fulltrúa kjörna á þing 1956
og hefur átt þingmenn síðan.
Kvennalistinn var stofnaður árið
1983 og hefur átt fulltrúa á þingi frá
sama ári.