Morgunblaðið - 19.02.1999, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1999 29
„Enginn venju-
legur perri!44
LEIKLIST
Leikfélag fslaiuls
f IðllÚ
LEITUM AÐ UNGRI STÚLKU
Höfundur: Kristján Þórður Hrafns-
son. Leikstjóri: Magnús Geir Þórðar-
son. Leikmynd: Snorri Freyr Hilm-
arsson. Lýsing: Ólafur P. Georgsson.
Leikarar: Gunnar Hansson og
Linda Ásgeirsdóttir. Fimmtudagur
18. febrúar.
HÁDEGISLEIKHÚS hefur skot-
ið upp kollinum öðru hvoru undan-
farna áratugi og má t.d. minna á leik-
ritið Eru tígrisdýr í Kongó, sem var
fyrsta leikritið sem fjallaði um
alnæmi á íslensku leiksviði.
Iðnó er tilvalið leikhús fyrir slíkar
uppákomur enda notfæra forráða-
menn hússins sér staðsetninguna og
samvinnu við veitingahús til að bjóða
upp á stuttan einþáttung yfir léttum
málsverði.
Fyi-sta verkið af þremur sem
ákveðið hefur verið að sýna við
þessar aðstæður er eftir Kristján
Þórð Hrafnsson, en gefin hafa verið
út þrjú ljóðasöfn eftir hann auk þess
sem hann þýddi Abel Snorko býr
einn sem er sýnt um þessar mundir á
Litla sviði Þjóðleikhússins.
Formið er knappt, hálftímalangur
leikþáttur og leikendur tveh'. Þetta
setm- efnistökunum óneitanlega
þröngar skorður en hér tekst nokkuð
vel til - efnið er hæfilegt og kemst
vel til skila á þessum stutta tíma.
Höfundur leiðir saman ólíka ein-
staklinga og framvindan einkennist
af samskiptum þeirra, væntingum
þeiiTa hvors til annars og hvernig
þeir bregðast við þegar væntingarn-
ar standast ekki og þeir verða að slá
af kröfum sínum og, fyrir vikið, þró-
ast sem persónur. Ekki ber á frum-
leika í efniviði eða framvindu verks-
ins, en þátturinn hefur töluvert
meira til að bera en að vera einfóld
fingraæfing og samskipti persónanna
eru tekin fóstum dramatískum tök-
um og vel er unnið úr efninu.
Stúlkan Berglind kemur í
prufutöku vegna vals á leikkonu í
fyrirhugaða stuttmynd. Hún er týp-
an sem vill ekki verða flugfreyja og
þá er ekki um annað velja en módeþ
störf eða kvikmyndaleik. Hennar sýn
á lífið litast af heimi fjöldafram-
leiddrar dægrastyttingar og
viðbrögð hennar við hugsjóna-
mennsku Ólafs leikstjóra eru algjört
skilningsleysi. Ef hann sækist ekki
eftir líkama hennar - sem flokkast
samkvæmt henni undir venjulegan
perraskap - hlýtur eitthvað ennþá
verra að vaka fyrir honum!
Linda Ásgeirsdóttir smellpassaði í
hlutverkið og lék af þrótti og mikilli
leikgleði. En stundum var eins og
bóklegt orðavalið vefðist fyifr henni.
Það helsta sem mætti setja út á hvað
persónusköpun höfundar varðai- er
að hann gerir sér ekki mat úr þeim
möguleikum sem munur á málfari
persónanna gæti gefið. Þó að Berg-
lind notist við slangur og slettur not-
ar hún annars sama bóklega tungu-
takið og Ólafur. Ef höfundm- léki sér
meira að tungumálinu og fyndi
málsnið sem hæfði hvorri persónu
betur væri orðræðan öll trúverðugri.
Ólafur var mun alvarlegri og dýpra
þenkjandi en Berglind og það komst
vel til skila í meðfórum Gunnars
Hanssonar. En á meðan persónan
Berglind sprettur fullsköpuð úr höfði
höfundar er Ólafur full stífur og lit-
laus. Gamanið er fólgið í andstæðun-
um og árekstrum milli þeirra og þó
að verkið sé bráðfyndið mátti gera
meira úr þessu en misskilning sem
endar vel.
Magnús Geir Þórðai-son leikstýrir
verkinu bráðvel og er sérstaklega út-
sjónarsamur hvað hreyfingar persón-
anna um sviðið varðar. Ljós og leik-
munir voru fábreytt en þjónuðu full-
komlega tilgangi sínum. Sýningin er
skemmtileg og nýbreytni að þessu
framtaki.
Sveinn Haraldsson
Píanótónleikar
á Hvammstanga
ÖRN Magnús-
son píanóleikari
heldur tónleika
í Félagsheimil-
inu Hvamms-
tanga næstkom-
andi sunnudag
kl.16.
Á fyrri hluta
tónleikanna leik-
ur Öm Rímna-
dans Op. 11 ásamt þremm' köflum
úr op. 2 eftir Jón Leifs og píanó-
sónötu Beethovens ópus 27 nr. 2,
hina svonefndu Tunglskinssónötu.
Eftir hlé leikur Örn Image 1, eða
Myndir 1, þrjú myndræn tónverk
og Eyju gleðinnar eftir Claude
Debussy.
Örn hefur leikið inn á
hljómdiska píanótónlist Jóns Leifs,
frumflutt og hljóðritað Svipmyndir
Páls ísólfssonar, auk þess að hjóð-
rita píanóverk yngri íslenskra
höfunda.
Örn tók burtfararpróf frá Tón-
listarskólanum á Akureyri og
stundaði framhaldsnám í Man-
chester, Berlín og London fram til
ársins 1986.
Örn
Magmísson
Nýjar bækur
• MAÐUR og meaning er eftir
Harald Ólafsson.
í fréttatilkynningu segir að í
þessari bók sé fjallað um skilning
og skýringar á eðli manns og
menningar frá
sjónarhorni
mannfræðinnar.
Höfundur rekur
þróun helstu
hugmynda um
manninn frá
tíma upplýsing-
arstefnunnar til
nútímans og set-
ur hugmyndir
mannfræðinnar i
samhengi við almenna hugmynda-
sögu þjóðfélagsfræða og líffræða.
Höfundur fer sínai' eigin leiðir í
túlkun klassískra fræðiverka á
fræðasviðinu og byggir jöfnum
höndum á þýskum, frönskum og
engilsaxneskum frumheimildum.
Viðfangsefnið er fjölbreytt, frá
göldrum, trú og töfrum til verald-
legi-ar skynsemishyggju, frá
fábrotnum siðum frummannsins til
flókins nútímalegs þjóðskipulags.
Haraldur Ólafsson stundaði nám
í heimspeki við háskólann í Strass-
borg og París. Hann lauk einnig
prófi í trúarbragðafræði og menn-
ingarlegri og líffræðilegri mann-
fræði frá háskólanum í Stokkhólmi
og Uppsölum. Þá lauk hann Fil.lie.-
prófi frá Stokkhólmsháskóla. Hann
hefur kennt mannfræði, trúar-
bragðafræði og kenningar í félags-
vísindum við Háskóla Islands frá
1973, fyrst í námsbraut í
þjóðfélagsfræðum og í félagsvís-
indadeild frá stofnun hennar.
Utgefandi er Félagsvísindastofn-
un Háskóla Islands og sér
Háskólaútgáfan um dreifíngu. Bók-
in erinnbundin og210 bls. Verð:
3.200 kr.
Haraldur
Ólafsson
Snúður og Snælda frum-
sýna nýtt íslenskt leikrit
LEIKFÉLAG eldri borgara,
Snúður og Snælda, frumsýnir í
Möguleikhúsinu við Hlemm tvo
einþáttunga á morgun, laugardag
kl. 14.
Fyrra verkið heitir Maðkar í
mysunni og er eftir Mark Lang-
ham. I leikritinu segir frá sex kon-
um á Englandi, sem eiga fleira
sameiginlegt en virðist í fljótu
bragði.
Leikarar eru Aðalheiður Guð-
mundsdóttfr, Aðalheiður Sigur-
jónsdóttii', Guðlaug Hróbjai-tsdótt-
ir, Guðrún Jóhannesdóttir, Ólöf
Jónsdóttir og Sigrún Pétursdóttir.
Seinna verkið er nýtt íslenskt
leikrit eftir Sigrúnu Valbergsdótt-
ur, Ábrystir með kanel. Sigrún
skiifaði leikritið sérstaklega fyrir
leikhópinn Snúð og Snældu.
Ábrystir með kanel gerist í
rammíslensku umhverfi, á sveita-
bæ í afdal þar sem boðið er upp á
bændagistingu og notaðar eru nýj-
ar aðferðir í markaðssetningu.
Lífsglaðir eldri borgarar streyma
á staðinn og ævintýrin bíða á
hverju strái.
Leikarar eru Sigmar Hróbjarts-
son, Sigrún Pétursdóttir, Theódór
Halldórsson, Þorgeir Jónsson,
Aðalheiður Guðmundsdóttir, Aðal-
heiður Sigurjónsdóttfr, María H.
Guðmundsdóttir, Guði-ún Jóhann-
esdóttir og Þorsteinn Ólafsson.
Leikstjóri er Helga E. Jónsdóttfr.
Ljósahönnuður er Benedikt Axels-
son.
Næstu sýningar verða miðviku-
daginn 24., laugardaginn 27. og
sunnudaginn 28. febrúar kl. 16.
Morgunblaðið/Ásdís
ATRIÐI úr leikritinu Ábrystir með kanel.
Sýning af ljós-
myndasamkeppni
SÝNING á myndum úr ljós-
myndasamkeppni FF, Ljós-
broti, verður opnuð laugardag-
inn 20. febrúar kl. 14. Þema
sýningarinnar er hegðun. Sýn-
ingin verður í Galleríi Geysi,
Hinu húsinu, Aðalstræti 2 og
bstendur frá 20. febrúar til 7.
mars. Hún er opin frá klukkan
8-22 virka daga og 12-18 um
helgar.
Við opnunina verða úrslit
keppninnar tilkynnt og koma
þátttakendur alls staðar að af
landinu.
Aðgangur er ókeypis.
Bókmenntayerðlaun Halldórs Laxness
500.000 KRÓNA
VERÐLAUNAFÉ!
Skilafrestur til 1. maí
Nú eru rúmir tveir mánuðir til stefnu
fyrir höfunda til að skila inn handritum
í samkeppni um Bókmenntaverðlaun
Haildórs Laxness. Skilafrestur er til 1. maí
1999. Verðlaunin verða veitt í fjórða sinn
á hausti komandi og kemur verðlauna-
bókin út sama dag hjá Vöku-Helgafelli.
Megintilgangur Bókmenntaverðlauna
Halldórs Laxness er að efla íslenskan
sagnaskáldskap og stuðla þannig að
endurnýjun íslenskrar frásagnarlistar.
Bókaforlagið Vaka-Helgafell stendur að
verðlaununum.
VERÐLAUNIN
Vaka-Helgafell leggur fram verðlaunaféð
sem nemur 500 þúsund krónum en við
verðlaunaupphæðina bætast venjuleg
höfundarlaun samkvæmt rammasamningi
Rithöfundasambands Islands og Félags
íslenskra bókaútgefenda.
Verðlaunin eru veitt fyrir nýja og áður
óbirta íslenska skáldsögu, eða safn smásagna,
að undangenginni samkeppni sem er öllum
opin. Árið 1998 hlaut Sindri Freysson verð-
launin fyrir skáldsöguna Augun í bænum.
Handritum skal skilað til Vöku-Helgafells,
Siðumúla 6, 108 Reykjavík, merkt „Bók-
menntaverðlaun Halldórs Laxness“. Hand-
ritin eiga að vera merkt dulnefni en rétt
nafn fylgi með í lokuðu umslagi.
SAMKEPPNIN ÖLLUM OPIN
Minnt er á að samkeppnin um Bókmennta-
verðlaun Halldórs Laxness er öllum opin og
eru ungir jafnt sem aldnir höfundar hvattir
til þess að senda handrit sín í keppnina.
Að samkeppni lokinni geta þátttakendur
vitjað handritanna hjá Vöku-Helgafelli.
Upplýsingar um samkeppnina veitir
Pétur Már Ólafsson hjá Vöku-Helgafelli
í síma 550 3000 milli kl. 9 og 17.
*
VAK4HELGAFELL
Síðumúla 6 • 108 Reykjavík
Sími: 550 3000 • Vefsetur: vaka.is