Morgunblaðið - 19.02.1999, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
BREF TIL BLAÐSINS
FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1999 47
Frá Pétrí Bjarnasyni:
SÁ VAR háttur heldri húsmæðra í
sveit í gamla daga, að koma sér upp
duglegri búrtík. Til þess var að jafn-
aði valinn bitgjarnasti og grimmasti
hundurinn á bænum. Honum voru
að jafnaði gefnir bestu bitarnir úr
búrinu og átti þar á móti að varna
því að aðrir kæmust þar að.
Á einni af ferðum sínum kom
Bólu-Hjáimar að slíkum bæ, en var
ekki kunnur húsaskipan og villtist í
búrið, og ekki var að sökum að
spyrja. Búrtíkin birtist urrandi með
uppbrett trýnið og beit Hjálmar í
kálfana. Þá varð Hjálmari að orði.
Ólán vex á illum reit
ei voru leiðir kunnar
mig í kálfa báða beit
búrtík húsfreyjunnar.
Húsfreyja heyi'ði tiltalið og hótaði
Hjálmari öðni harðara, þó ekki
verði það tíundað hér.
Nú undanfarin ár hefur þessu
gamla kerfí verið beitt við stjórnun
fískveiða á Islandsmiðum, þar sem
fámennum en harðsnúnum hags-
munahópum eru afhentir bestu bit-
arnir úr búri þjóðfélagsins og síðan
sagt að verja það með kjafti og
klóm, að aðrir komist ekki að, sem
margoft hefur komið fram í ræðu og
riti ráðherra þeirra sem með mál-
efni sjávarútvegs hafa farið að und-
anförnu.
Enginn hefur komist upp með að
láta í ljósi gagnrýni á þessu kerfi án
þess að einhver úr hagsmunahópn-
um eða leigumálpípur þeirra úr Há-
skólanum og víðar séu roknir upp til
handa og fóta til varnar kerfinu og
eigin hagsmunum með fullyrðinga-
flaumi um að viðkomandi hafí ekkert
vit á því sem hann sé að segja. Þeir
einir viti allt sem vita þarf og öðrum
sé best að þegja, vilji þeir ekki hafa
verra af.
Flestir láta sér segjast, minnugir
þess sem húsfreyja hótaði Hjálmari.
Eg vil þó leyfa mér að benda á að
margoft hafa menn úr fiskimanna-
stétt leyft sér að benda á aðrar leiðir
til úrbóta. Sérstaklega á aðstöðu
smábáta. Til dæmis benti undirrit-
aður á þá leið 1987 að beltaskipta
landhelginni í 0-20 mílur fyrir kyrr-
stæð veiðarfæri, línu og net með ár-
tíðabundnum undanþágum fyrir
rækju, humar og flatfiskveiðar.
20-50 mílur íyrir ísfisktogara og vél-
vædd línuveiðiskip til heimalöndun-
ar, 50-200 mflur fyrir vinnsluskip.
Öllum strandveiðiflotanum yrði
stýrt með takmörkunum á gerð og
búnaði veiðarfæra, svo og með tak-
Búrtíkurbitasamfélagið
mörkun á netafjölda, lengd og dýpt
neta. Takmörkun á línulengd línu-
báta og takmörkun á nillufjölda á
handfærabátum. Ennfremur með
róðrardagafjölda í viku hverri og
ársfjórðungslegum stöðvunum ef
þurfa þykir, eftir aflamagni. Á það
skal bent að þessi floti, sem hér um
ræðir, hefur mesta sóknargetu á
sumrin og sækir þá að mestu leyti í
þorsk, enda sú tegund ein sem notið
hefur friðunar á kostnað allra ann-
arra tegunda, því segja má að allir
aðrir stofnar séu ofnýttir.
Eg vil einnig benda á að ýmsir
fiskimenn hafa bent á svipaðar leið-
ir. Til dæmis Einar Hreinsson og
Halldór Hermannsson 1990 um
flokkun báta. Þórir Hinriksson og
Hrólfur Gunnarsson um takmörkun
á veiðarfærum. Allir þessir menn
hafa fengið hið staðlaða svar, að þeir
hafi ekkert vit á þessu og væri best
að þegja.
Nú síðast eftir hæstaréttardóm-
inn lá beinast við að laga veiðistjórn-
un smábátanna að því sem dómur-
inn raunverulega túlkaði. Það er að
gefa þeim veiðina frjálsa með fram-
angreindum hömlunum, að minnsta
kosti til loka fiskveiðiársins og taka
svo mið af niðurstöðunni með fram-
haldið.
Nú er verð á ferskum flökum 47%
hærra en á frystum flökum, en til
framleiðslu ferskflaka þarf helst
krókaveiddan og lifandi blóðgaðan
fisk. Samt samþykktu þingmenn að
afnema línutvöfóldunina og hafa þar
með hundruð milljóna af þjóðarbú-
inu, og í stað þess að frystihúsin fái
nýveiddan línu- og handfærafisk til
vinnslu á verðmætustu markaði
verða þau að standa í að kaupa og
kroppa beinin úr margfiystum og
hálfúldnum smákóðum frá Rússlandi.
Það má því segja að með afnámi
línutvöföldunar og kvótasetningu
smábátanna séu flestir bitar sjávar-
útvegs komnir í búrið og í vörslu
búrtíkurinnar þar og verða ekki
auðsóttir öðrum í náinni framtíð, og
ekki síst þegar formaður sjávarút-
vegsnefndar gekk fyrir björg og
skipaði sér í varðsveitina og fór að
kyssa framsóknarkonurnar.
Með framngreindum stjórnunar-
aðferðum á smábátum mundi kvóta-
brask stórminnka og frákast einnig
því þeir hafa verið helstu kaupendur
hjá kvótahákörlunum og vegna hins
háa kvótaverðs hafa þeir orðið að
kasta öllu nema stærsta og verð-
mesta fiskinum.
Það er annars merkilegt hvað al-
10% afsláttur
ef pantað í febrúar
LBU
þingismenn eru andstæðir línuveið-
um sem er þó vistvænasta veiðar-
færið, og má að stórum hluta ráða
hvers konar fiskur fæst með beitu-
vali. Ef beitt er sfld og smokkfiski,
og lagt í kanta verður uppistaðan
þorskur, ef beitt er tómri loðnu og
lagt á grynningu verður uppistaðan
steinbítur, ef beitt er sandsfli og lagt
á leyrinn verður uppistaðan í aflan-
um ýsa.
PETUR BJARNASON,
fv. fiskimaður,
Esjugrund 48, Kjalarnesi.
Mikiá úrval af
fallegum
rúmfatnaði
SkúlavörOiiKtíg 21, Reykjavík, HÍmi 551 4050
Við getum boðið þér
eitt alþjóðlegasta
MBA- og MSc-nám
í Skandinavíu
Kynningarfundur
r
á Islandi
mánudaginn 22. febrúar
kl. 18.00 á Hótel Sögu,
Reykjavík,
fundarherbergi A
RÆBA-nám
• Oll kennsla fer fram á ensku
• I I mánaða almennt MBA-stjórnunarnám með áherslu á
áætlanagerð, forystu og uppbyggingu víxlstarfandi liðsheildar
• Nemendur allstaðar að, hámark 40 á námskeiði
• Meðalaldur 32 ár og 7 ára starfsreynsla
• „Hands on“-ráðgjafarverkefni
MSc -nám
• Öll kennsla fer fram á ensku
• Tveggja ára fullt nám
• Sérgreinar:
- Fjármálahagfræði
- Markaðsfræði
- Áætlanagerð
- Alþjóðaviðskipti
- Stjórnun á sviði orkumála
m
Norwegian School of Management BI
Sími 47 67 55 70 00
Netfang: graduate@bi.no http://www.bi.no
JVlyndin hfir...
...vcmdiö valib og verib flott a fermingardaginn
FERMINGARFOTIN
^i.NAx WA
m HAGKAUP
Opift mán.
Þar sem þú vilt vera