Morgunblaðið - 19.02.1999, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1999 13
FRÉTTIR
Boðið upp á gistingu í gamla kirkjuhúsinu á Stöðvarfírði
Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson
BIRGIR Albertsson trillusjómaður hefur ásamt meðeigendum sínum
breytt gömlu kirkjunni á Stöðvarfirði í gistihús. Með Birgi á myndinni
er sonur hans, Sindri Brynjar.
ALTARI og prédikunarstólí eru enn í kirkjunni ásamt hluta af kirkju-
bekkjunum þótt hún hafi nú fengið nýtt hlutverk og hafi verið breytt í
gistihús.
Sofíð á kórloft-
inu - spj allað
úr stólnum
Ferðafólk sem leið á um Austfirði getur
fengið gistingu í 120 ára gamalli kirkju á
Stöðvarfirði, notið lífsins í rólegu og
fallegu umhverfi, sofíð á kórloftinu eða
á kirkjubekkjum, spjallað við gesti úr
prédikunarstólnum og tyllt kaffikrúsinni
á altarið. Helgi Bjarnason kynnti sér
nýjung í ferðaþjónustu.
GAMLA kirkjan á Stöðvarfirði var
afhelguð um það leyti sem ný
kirkja var vfgð árið 1991. Síðan
hefur hún verið að grotna niður,
enda hefur söfnuðurinn ekki efni á
að reka tvö kirkjuhús. „Eg var bú-
inn að hafa augastað á henni
lengi,“ sagði Birgir Albertsson
trillusjómaður á Stöðvarfirði, einn
af núverandi eigendum hússins,
þegar blaðamenn hittu hann í
gömlu kirkjunni. Kunningjafólk
hans sýndi því áhuga að eignast
húsið fyrir sumarbústað en Birgi
fannst það ekki nóg not fyrir
kirkjuna og drifu þau í því að
kaupa húsið saman.
Kirkjuhúsið hefur nú fengið nýtt
hlutverk. Birgir og Ingibjörg Ey-
þórsdóttir kona hans hyggjast
reka ferðaþjónustu en meðeigend-
ur þeirra, Jón Karl Helgason,
Fríða Jónsdóttir og Þórir Jónsson,
munu nota húsið sem sumarbú-
stað. Fríða og Þórir eru börn syst-
ur Ingibjargar. Þau hafa þegar
sofið í kirkjunni og segja að þar sé
góður andi. Enn hefur ekki verið
seld gisting en byijað verður á því
á næstu vikum eða mánuðum.
Prédikunarstóll og altari
Eftir að kaupin voru gerð hafa
nýju eigendurnir unnið að endur-
bótum á kirkjuhúsinu. Sett hefur
verið upp eldhúsinnrétting og
snyrting með baði. Þurfti að taka
burtu nokkra kirkjubekki til að
koma innréttingunum fyrir. Ekki
eru rúm í gistihúsinu heldur er
gert ráð fyrir svefnpokagistingu á
kórloftinu. Einnig er hægt að sofa
á gólfinu niðri. Sex geta gist í
einu. Birgir segir að til athugunar
hafi komið að færa saman kirkju-
bekki og útbúa rúm úr þeim en
bekkirnir reynst of valtir. Eftir er
að setja tvo neyðarútganga á hús-
ið, að kröfu yfirvalda brunamála,
og að því búnu verður húsið tilbúið
til notkunar sem gististaður.
Safnaðarstjórnin tók altaristöflu
sem sýnir krossfestinguna, skírn-
arsá eftir Ríkarð Jónsson mynd-
höggvara og fleiri muni úr kirkj-
unni til notkunar í þeirri nýju.
Annað er óhreyft, eins og kirkju-
bekkir, prédikunarstóll og altari.
Við breytingarnar var rifinn
upp gólflisti og aftan á honum var
vísa:
Vilt þú náðurs lina lín,
leyfa það án biðai’.
Tveggja blaða bók í þín
barns getnað að skrifa.
Vísan er skrifuð af Erlendi á
Bóli og telur Birgir að hún sé frá
árinu 1925 þegar kirkjan var flutt
frá Stöð á núverandi stað. Birgir
segist ekki hafa áttað sig á merk-
ingu vísunnar fyrr en honum var
bent á að höfundur væri að sjálf-
sögðu að biðja stúlkuna að sofa hjá
sér. Þessi vfsuósómi hefur því
væntanlega verið falinn í kirkjunni
í 70 ár.
Gamla kirkjan stendur hátt í
brekku, á fallegum stað, og þaðan
er gott útsýni. Landssiminn óskaði
eindregið eftir því að fá að setja á
kirkjuna loftnet fyrir GSM- og
NMT-símakerfin og urðu eigend-
urnir við því. Til þess að það væri
hægt varð að taka niður krossinn.
I staðinn setti Birgir kúlu ofan á
kirkjuturninn, í líkingu við það
sem var á kirkjunni í gamla daga,
áður en krossinn var settur upp.
Þykir sérstakt
Gamla kirkjan verður leigð
hveijum sem þar vill gista í lengri
eða skemmri tíma. Birgir er ekki í
vafa um að gestum muni líða vel.
Húsið stendur skammt utan við
steinasafn Petru Sveinsdóttur en
þangað koma um 15 þúsund manns
á hveiju sumri. Ganga sumir gest-
ir hennar upp að gömlu kirkjunni
og halda að hún sé kirkja staðar-
ins. Telur Birgir því rétt að koma
upp góðu skilti um sögu hússins og
notkun þess nú og segir að það
yrði góð auglýsing fyrir starfsem-
ina. Hann hefur hug á að bjóða
ferðafólki upp á siglingar á bát
sfnum og til veiða. Fólkið geti síð-
an grillað þorsk uppi í kirkju.
Birgir telur að það hljóti að gefa
góða möguleika til kynningar að
bjóða gistingu í kirkju. Fólki þyki
það vafalaust sérstakt. Hann segist
hins vegar vera heldur seinn við
að koma þessum möguleika á
framfæri við ferðaskrifstofumar,
þær séu búnar að bóka gistingu
fyrir næsta sumar. Þess í stað ætl-
ar hann að kynna kirkjuna sem
sumarhús og nýta lausaumferðina.
Það er ekki alveg nýtt í Islands-
sögunni að gist sé í kirkjum, svo
ekki sé minnst á þá sem legið hafa
þar á börum af öðru tilefni. I
gömlu Stöðvarkirkju hangir uppi
gömul ljósmynd sem sýnir ferða-
fólk í flatsæng í kirkju og fram
kemur í texta að algengt sé að út-
lendingar gisti í kirkjum á ferðum
sínum um landið.
Sóknarbömin sátt
Sóknarpresturinn, séra Gunn-
laugur Stefánsson í Heydölum, tel-
ur að sóknarbörnin séu almennt
sátt við þessi nýju not kirkjunnar
enda ríki gagnkvæmt traust á milli
þeirra og nýju eigendanna um að
virðuleiki hins gamla kirkjuhúss
verði virtur eins og frekast er
kostur. Sjálfur segist hann ánægð-
ur með að húsið nýtist til annarrar
starfsemi í stað þess að grotna nið-
ur og eyðileggjast.
Gamla kirkjan á Stöðvarfirði
var upphaflega byggð á kirkju-
staðnum Stöð í Stöðvarfirði árið
1879 en rifin og endurreist í kaup-
túninu á Stöðvarfirði um 1925.
Húsið er því að stofni til 120 ára
gamalt.
Lögregla um röstur
á nemendadansleik
Þarf að
ræða
vandann
LÖGREGLAN telur ástæðu til að
lögregluyfirvöld, nemendafélög og
skólayfirvöld hafi samráð um að
skerpa á reglum um nemenda-
skemmtanir í kjölfar rósta og ölv-
unar sem urðu á nemendadansleik
á skemmtistaðnum Broadway sl.
þriðjudag.
Gunnleifur Kjartansson lög-
reglufulltrúi segir að það kastist
oft í kekki hjá nemendum á
skemmtunum en hann kvaðst ekki
muna eftir sambærilegu tilviki síð-
ustu árin og sl. þriðjudagskvöld.
„Þarna virðist allt hafa farið úr
böndunum hvað varðar lögbrot
eins og hugsanlega fíkniefnaneyslu
og ölvun. Það þarf að vekja upp
umræðu um hvað er að gerast í
skólunum. Það er full ástæða til að
koma skikki á þessi mál. Ég held
að allir sem koma að þessum mál-
um geti verið sammála um það en
það er útfærsluatriði hvað er væn-
legast í stöðunni. Að mínu mati
þurfa menn að setjast niður og
ræða vandann," segir Gunnleifur.
--------------
Frjálslyndi
flokkurinn
Lífeyrissjóði
sjómanna
verði úthlut-
að þorski
MIÐSTJÓRN Frjálslynda flokks-
ins hefur lagt til við sjávarútvegs-
nefnd Aiþingis að Lífeyrissjóði sjó-
manna verði úthlutað 10.000 tonn-
um af þorski í tvö ár til að rétta við
fjárhag sjóðsins.
I greinargerð frá flokknum segir
að vegna þrenginga Lífeyrissjóðs
sjómanna hafi forsjármenn hans
neyðst til að skerða greiðslur til líf-
eyrisþega um 12% og að við það
verði ekki unað.
I greinargerðinni segir ennfrem-
ur: „Meðan sú skipan er við lýði að
úthluta þjóðareigninni ókeypis, til
örfárra útgerðarmanna að stærst-
um hluta, virðist einsýnt að sjó-
mennirnir sjálfir njóti í einhverju
þeirra uppgripa."
Sjálfstæðiskonur á Vestfjörðum óánægðar
Krefjast breyt-
inga á listanum
ÓÁNÆGJU gætir meðal sjálf-
stæðiskvenna á Vestfjörðum
með tillögu uppstillingarnefndar
flokksins, en tillagan gerir ráð
fyrir að engin kona verði í fjór-
um efstu sætum framboðslista
Sjálfstæðisflokksins í kjör-
dæminu. Áslaug Jóh. Jens-
dóttir, sem sæti á í stjórnum
Sjálfstæðiskvennafélags Isa-
íj'arðar og Sjálfstæðisfélags
Isafjarðar, segir að verði ekki
komið til móts við þessa óá-
nægju muni konur leggja fram
tillögu um breytingar á listan-
um á fundi kjördæmisráðs
Sjálfstæðisflokksins á Vest-
fjörðum, sem haldinn verður
um næstu helgi.
Áslaug segir að sjálfstæðis-
konur sætti sig ekki við tillögu
uppstillingamefndar. Það sé
óverjandi að konum skuli ekki
ætlað að hafa meiri áhrif á stöðu
þjóðmála en þessi uppstilling
gefi til kynna. Hún segir að
þeim skilaboðum hafi verið
komið til uppstillingarnefndar
að tvær konur væru tilbúnar til
að taka sæti ofarlega á listan-
um. Þessu hafí nefndin í engu
sinnt.
Áslaug segir að ef uppstilling-
arnefnd taki ekki mið af þessari
óánægju sjálfstæðiskvenna
verði lögð fram tillaga á fundi
kjördæmisráðs um breytta upp-
stillingu á listanum. Hún segir
að verið sé að undirbúa slika til-
lögu.
Sjálfstæðiskonur á Vestfjörðum vilja aukna áherslu á konur
—
Overjandi að konum séu
ekki ætluð meiri áhrif
ÁSLAUG Jóh. Jensdóttir og Þór-
laug Ásgeirsdóttir, sjálfstæðiskonur
á Vestfjörðum, hafa sent Morgun-
blaðinu eftirfarandi yfirlýsingu, sem
þær undimita „fyrir hönd óánægðra
sjálfstæðiskvenna á Vestfjörðum“:
„Um síðustu helgi kom fram í
fjölmiðlum að kjörnefnd flokksins á
Vestfjörðum hefði lokið störfum
fyrir kjördæmisþing flokksins sem
vera á um næstu helgi. Kom þar
fram að hún gerði það að tillögu
sinni að í íyrstu fjórum sætum list-
ans sætu aðeins karlar. Sjálfstæðis-
flokkurinn á nú tvo þingmenn og
tvo varaþingmenn. Miðað við það er
engri konu ætlað að skipa
áhrifasæti í komandi kosningum.
Það er ljóst að sjálfstæðiskonur
munu ekki sætta sig við framboðið
ef þetta verður raunin. Það er
óverjandi að konum sé ekki ætlað
að hafa meiri áhrif á stöðu þjóðmála
en þessi uppstilling gefur til kynna.
Það er ótrúlegt miðað við þann tíð-
aranda sem nú ríkir í dag um að
konur skuli taka þátt í mótun og
uppbyggingu samfélagsins að nið-
urstaða uppstillingarnefndar skuli
vera á þessa leið. Er verið að segja
vestfirskum konum að ekki séu
„hæfar“ konur úr þeirra röðum til
að taka sæti á lista flokksins í kom-
andi kosningum þegar aðeins hafa
fundist „hæfir" karlar á listann.
Ýmislegt athugavert við störf
kjömefndar
Það er hugsanlegt.að skýra megi
þessar niðurstöður kjörnefndar
þannig að hún var aðeins skipuð
körlum. Reyndar átti ein kona sæti í
nefndinni en svo virðist sem hún
hafi „gleymst" er boðað var á fundi
kjörnefndar. Einnig virðist
gleymska eitthvað hafa hrjáð for-
mann nefndarinnar því það var ekki
fyrr en undir lok síðasta fundar
kjörnefndar að hann sagði frá því að
tvö framboð kvenna hefðu borist og
reyndar ekki fyrr en einn fulltrúi
nefndarinnar spurðist fyrir um
„kvennamál“ listans.
Sjálfstæðisflokkurinn þarf bæði á
konum og körlum að halda til þeirra
margvíslegu starfa sem vinna þarf á
næstu misserum til að efla byggð á
Vestfjörðum. Sjálfstæðiskonur á
Vestfjörðum munu ekki láta bjóða
sér að áhrif kvenna verði fyrir borð
borin með þessum hætti. Við skor-
um á félaga okkar sem eru fulltrúar
á kjördæmisþingi um næstu helgi
að rétta hlut kvenna og sjá til þess
að flokkurinn fái nýja og nútíma-
legri ásýnd inn í nýja öld.“