Morgunblaðið - 19.02.1999, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1999 21
VIÐSKIPTI
Seðlabanki Islands lýsir yfír áhyggjum af mikilLi aukningu í útlánum íslenskra lánastofnana
Einkenni aðvífandi
fjármálakreppu ?
SEÐLABANKI íslands lýsir
áhyggjum af mikilli aukningu í út-
lánum bankanna á síðasta ári. Pessi
vöxtur útlána sé áhættusamur þar
sem hann leiði til áhættusamari út-
lána. Eins er talin hætta á að vöxtur-
inn leiði til eignaverðbólgu og auki á
ójafnvægi í utanríkisviðskiptum.
Þessi atriði geta verið upphafíð að
fjármálakreppu, að því er kemur
fram í janúai-hefti Hagtalna mánað-
arins.
Bráðabirgðatölur benda til að
aukning útlána innlánsstofnana hafi
verið 31,2% á árinu 1998, samanbor-
ið við 12,7% aukningu árið 1997.
Eins og á árinu 1997 var stærstur
hluti aukningarinnar vegna endur-
lánaðs erlends lánsfjár.
„Reynsla annarra landa er víti til
varnaðar. Erfiðleikamir í fjármála-
kerfum nokkurra Norðurlanda í
upphafí þessa áratugar voru í kjöl-
far þess að saman fóru efnahags-
þensla og frjálsir fjármagnsmark-
aðir án hafta á viðskipti með erlend-
an gjaldeyri," að því er fram kemur
í Hagtölum mánaðarins.
Einkenni aðdraganda fjár-
málakreppu er gjaman mikil aukn-
ing útlána á skömmum tíma, sem
leiðir til þess að hlutfall útlána af
landsframleiðslu eykst, ásamt auk-
inni notkun á erlendu lánsfé sem
kann að spenna eignaverð upp fyrir
eðlileg mörk, en slíkt getur leitt til
ótryggari útlána lánastofnana en ella.
„Tiltæk talnagögn sýna ekki enn
það mikla hækkun fasteignaverðs
að umtalsverðum áhyggjum valdi.
Við sjáum hins vegar að fasteigna-
verð er byrjað að taka við sér,“ seg-
ir Már Guðmundsson, aðalhagfræð-
ingur Seðlabanka Islands.
Margt getur sett af stað þróun
sem leiðir til fjármálakreppu, en
ævinlega er um að ræða að mark-
aðsaðilar endurmeta fyrirvaralítið
horfur á hagvexti eða ákveða að
gengi gjaldmiðilsins eða eignaverð
innanlands séu óraunhæf.
Aðspurður segir Már að Seðla-
bankinn beiti peningalegu aðhaldi
til að hafa hemil á þróuninni, en hafí
einnig komið almennum viðvörun-
um á framfæri við bankakerfið. „Við
höfum fært þetta í tal við bankana
og brýnt það fyrir þeim að fara var-
lega,“ segir Már.
„Við erum þó meira þama að vísa
til þess sem gæti gerst í framhaldinu,
og reynslu annarra af mikilli útlána-
aukningu. Sem betur fer eru óræk
einkenni bankakreppu ekki enn kom-
in fram,“ segir Már Guðmundsson.
Breyttar lánareglur
Lífeyrissjóðs sjómanna
Vaxtalækk-
un og hærri
hámarkslán
STJÓRN Lífeyrissjóðs sjómanna
ákvað í fyrradag að lækka vexti af
nýjum og eldri lánum til sjóðfélaga
úr 6% í 5,5% frá og með þeim degi,
og jafnframt var ákveðið að hækka
hámarkslán úr 2 milljónum króna í
4 milljónir. Að sögn Arna Guð-
mundssonar, framkvæmdastjóra
lífeyrissjóðsins, voru þessar breyt-
ingar gerðar til að fylgja þeirri
þróun sem verið hefur undanfarið
hjá öðrum lífeyrissjóðum og lána-
stofnunum.
„Við teljum eðlilegt að sjóðfélag-
ar hér hafi sama rétt og félagar í
öðrum lífeyrissjóðum," sagði Ami.
Stjórn Lífeyrissjóðs sjómanna
ákvað einnig að stytta þann tíma
sem það tekur fyrir sjóðfélaga að
ávinna sér réttindi til hámarksláns
og verður hann nú um 3 ár. Aður
unnu sjóðfélagar sér rétt til há-
marksláns í tveimur þrepum og gat
það tekið allt að fimm og hálfu ári.
Þá hefur hámarkslánstíminn verið
lengdur í 30 ár í stað 20 ára áður,
en veðreglur verða óbreyttar og
miðast þær við 65% af . fasteigna-
mati. Þá er lántökugjald 1% eins
og áður.
---------------
ÍMARK
*
Islenski mark-
aðsdagurinn
ÍMARK - félag íslensks markaðs-
fólks, mun í dag, föstudag, standa
fyrir íslenska markaðsdeginum.
Fjallað verður um leiðir til árang-
ursríkari samskipta auglýsenda og
auglýsingastofa. Auk þess verða
veitt verðlaun fyrir athyglisverð-
ustu auglýsingar ársins 1998.
Ráðstefnan verður haldin í sal 2 í
Háskólabíói. Að þessu tilefni mun
ÍMARK fá hingað til lands Lars
Kruse Thomson markaðsstjóra Hou-
se of Prince, stærsta dótturfyrii-tæk-
is Scandinavisk Tobakskompani og
Timo Suokko, framkvæmdastjóra
viðskiptamála hjá SEK & GREY
Advertising í Finnlandi, en hann hef-
ur séð um markaðssetningu Nokia-
síma í Evrópu.
Niðurstöður könnunar um ís-
lenska auglýsingamarkaðinn, sem
Gallup vann fyrir ÍMARK og SÍA,
Samband íslenskra auglýsingastofa,
um samskipti 300 stærstu aug-
lýsendanna árið 1998 og auglýsinga-
stofur þeirra verður einnig kynnt á
Islenska markaðsdeginum. Þar
koma m.a. fram svör um fjölmiðla-
val, hvort megi búast við auknum
fjái-útlátum hjá fyrirtækjum í aug-
lýsingai- á þessu ári, hvort fyrirtæk-
in séu ánægð með auglýsingastofu
sína og hvað skipti máli þegar velja
eigi auglýsingastofu.
RAÐSTEFNA
23. febrúar 1999
A T M
Sveigjanleiki, hraði og gæði
í marsmánuði nk. mun Landssíminn opna nýja
gagnaflutningsþjónustu sem byggir á ATM tækni.
í tilefni þessara tímamóta boðar Landssíminn til
ráðstefnu um ATM fjarskipti þriðjudaginn
23. febrúar nk. kl. 13 -17.
Ráðstefnan verður haldin á Grand Hótel Reykjavík.
Hægt verður að taka þátt í ráðstefnunni á Akureyri
í húsi Háskólans að Glerárgötu 36 með hjálp ATM
sambands milli Reykjavíkur og Akureyrar. Notaður
verður fjarfundabúnaður sem þróaður hefur verið
fyrir ATM samband.
Fluttir verða fyrirlestrar um ATM tæknina,
þa þjónustu sem hægt er að bjóða með ATM.
verðlagningu þjónustunnar og reynslu nokkurra
fyrirtækja sem hafa notað ATM í tilraunarekstri.
RAÐSTEFNA UM ATM
23. febrúar 1999
DAGSKRÁ
13:00 Opnunarávarp frá Akureyri
Halldór Blöndal, samgönguráðherra
13:10 Yfirlit yfir ATM tæknina
Davíð Gunnarsson, verkfræðingur hjá
Landssíma Islands hf.
13:35 The Benefits of ATM in the Business
Environment - ATM Services
FrédéricThépot, Fore Systems Inc.
14:25 Ouality of Service in Data Networks
-IPvs.ATM
Peter Feil, DeutscheTelekom Berkom
15:10 Kaffihlé
15:40 Nýting ATM og annarra háhraða
fjarskipta frá sjónarhóli Flugleiða
Öm Orrason, verkfræðingur hjá Flugleiðum hf.
16:00 Kostir háhraða fjarskipta fyrir fyrirtæki
á landsbyggðinni
Bjarni Hjarðar, forstöðumaður rekstrardeildar
Háskólans á Akureyrí
16:15 Hagkværrmi ATM fjarskipta
Sævar Freyr Þráinsson, forstöðumaður
fyrirtækjaþjónustu Landssímans
16:35 Fyrirspurnir og umræður
17:00 Léttai veitingar
Ráðstefnustjori verður ÞórarinnV. Þórannsson,
stjórnarformaður Landssímans.
Ráðstefnugjald er 5.000 kr.
Skráning fer fram 1 síma 550 7700 eða með tölvupósti
til atm@simi.is, eígi siðai en á hádegi mánudagsins
22. febrúar.
www.simi.is