Morgunblaðið - 19.02.1999, Side 26
26 FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
• •
Handtaka tyrknesku leyniþj ónustunnar á Abdullah Ocalan
Afrakstur samvínnu
íjölda leyniþjónusta
Aþena. Reuters.
ÞÓTT enn sé margt á huldu um til-
drög handtöku skæruliðaleiðtogans
Abdullah Öcalans í Kenýa á mánu-
dag, virðast vissir hlutar reyfara-
kenndrar atburðarrásar málsins
vera að skýrast. Nú hefur það verið
upplýst að Öcalan kom tvisvar sinn-
um til Grikklands á þeim tíma sem
hans var sem ákafast leitað af tyi'k-
neskum stjórnvöldum. Ennfremur
hefur þáttur ísraelsku og bandarísku
leyniþjónustunnar í handtökunni
verið að skýrast en þær eru taldar
hafa komist á snoðir um að Öcalan
hafi haldið sig í Kenýa og komið
þeim upplýsingum áleiðis til tyrk-
neskra stjórnvalda.
Undanfamar tvær vikur hafa
grísk stjómvöld neitað því alfarið að
hafa hýst Öcalan en yfirlýsingar
Alekos Papadopoulos fyrrverandi
innanríkisráðherra Grikklands og
Theodoros Pangalos fyrrum utanrík-
isráðherra - sem era meðal þeirra
ráðherra sem sögðu af sér í gær,
hrekja þá sögu.
Að sögn Papadopoulos kom Öcal-
an fyrst á laun til Grikklands frá
Rússlandi. „Flugvallaryfirvöld vora
blekkt og þeim sagt að þar væri
rússneskur aðstoðarráðherra á
ferð“, sagði ráðherrann fyrrverandi.
Þaðan var honum komið fyrir á
heimili Andonis Naxakis, grískum
flotaforingja á eftirlaunum og áköf-
um stuðningsmanni frelsisbaráttu
Kúrda.
Naxakis sagði grískum dagblöðum
í gær að menn úr grísku leyniþjón-
ustunni hafi komið á heimili sitt rétt
fyiir utan Aþenu og sótt Öcalan.
Þaðan hafi honum verið ekið á flug-
völl þaðan sem honum var flogið víðs
vegai- um Evrópu í örvæntingarfullri
tilraun til að fínna honum hæli. Eftir
að hafa verið neitað um lendingar-
leyfi í Hollandi og Hvíta-Rússlandi
hafi flugvélinni verið snúið aftur til
grísku eyjarinnar Korfú til að taka
eldsneyti. Þaðan hafi verið haldið til
Naíróbí í Kenýa þai- sem Öcalan var
komið fyrir í gríska sendiráðinu. Þar
hafi Öcalan dúsað í 12 daga á meðan
grísk stjórnvöld hafi reynt árangurs-
laust að semja við ýmis Afríkuríki
um landvistarleyfi honum til handa.
Pangalos sagði í gær að það sem
hefði orðið Öcalan að falli var að
hann hafi notað farsíma sinn óspart
og hafi erlendar leyniþjónustur náð
að rekja símtölin.
Sérsveitarmenn
handtaka Öcalan
Samkvæmt heimildannönnum
Lundúnablaðsins The Times var
handtaka Öcalans afrakstur sam-
vinnu sem fjöldi leyniþjónustuaðila
hafi komið að. Er talið að tyrknesk
yfirvöld hafi getað leitað til leyni-
þjónustu Bandaríkjanna (CIA) og
Israels (Mossad) um aðstoð við að
finna Öcalan. Bandarísk og ísraelsk
stjórnvöld hafa neitað þessum ásök-
unum. Niðurstaðan varð hins vegar
ótvíræður árangur tyrknesku sér-
sveitarinnar sem rændi Kúrdaleið-
toganum fyrir framan nefið á
kenýskum yfirvöldum og grískum
erindrekum.
Samkvæmt frétt blaðsins beið sér-
sveit sex dulbúinna tyrkneskra her-
manna í bifreið eftir því að bílalest
fylgdarsveitar Öcalans flytti hann frá
gríska sendiráðinu í Naíróbí að al-
þjóðaflugvellinum í útjaðri borgarinn-
ar. Er bílalestin keyrði hjá hafi sér-
sveitarmennimir króað bifreið Öcal-
ans af, ráðist inn í bílinn, handjámað
Öcalan og ekið með ofsahraða að flug-
vellinum, þaðan sem þota flutti hann
til Tyrklands. Hafi aðgerðin einungis
tekið nokkrar mínútur.
Heimildarmenn The Times sögðu
að allur undirbúningur handtökunn-
ar hlyti að hafa hafist um leið og
Öcalan og fjórir félagar hans lentu í
Kenýa. A flugvellinum hafi Öcalan
ekki þurft að fara í gegnum venju-
bundna vegabréfsskoðun og að
gríski sendihemann í Kenýa hafi tek-
ið á móti honum. Að auki hafi Öcalan
verið með í fórum sínum falsað kýp-
verskt vegabréf ef til vandræða hefði
komið á flugvellinum.
Hélt hann væri á
leið til Hollands
Þrátt fyrir að kenýsk stjórnvöld
hafi neitað því að vita um ferð Öcal-
ans til Naíróbí, var bandarískum og
ísraelskum stjómvöldum fullkunn-
ugt um dvöl hans þar, að sögn The
Times. Bandaríska leyniþjónustan
(CIA) hafi náð að rekja samtöl Öcal-
ans við lögmann sinn og kenýsk yfir-
völd, með aðstoð gervihnatta.
Þegar hinni annáluðu tyrknesku
leyniþjónustu, MIT, hafi verið gert
viðvart var aðgerðinni leynilegu
hleypt af stokkunum. Sérsveitar-
mönnum ásamt flugmanni og lækni
var komið um borð í einkaþotu sem
fengin hafði verið að láni hjá Cavit
Caglar, tyrkneskum kaupsýslu-
manni og fyrram ráðherra, án vit-
Reuters
ABDULLAH Öcalan handjárn-
aður og með bundið fyrir augu
á tyrknesku fangelsiseyjunni
Imrali.
neskju hans um raunverulegan tO-
gang ferðarinnar. Þotunni var flogið
frá Tyrklandi til Úganda sl. laugar-
dag og sérsveitin beðin um að bíða
átektar uns færi gæfist til að hand-
taka Öcalan.
Sú ákvörðun kenýskra öryggis-
sveitarmanna og grískra embættis-
manna um að Öcalan yfirgæfi Kenýa
á mánudagskvöld hefur ýtt undir
gransemdir um að grísk eða kenýsk
stjómvöld hafi vitað að handtaka
Kúrdans væri yfirvofandi. Hvað sem
því líður virðist Öcalan hafa verið í
góðri trú um að hann væri á leið til
Hollands, þangað sem hann hélt að
ferðinni væri heitið, er hann ók hinn
stutta spöl frá sendiráðinu að flug-
vellinum.
Urskurður hæsta-
réttar Pakistans
Áfall
fyrir
stjórnina
Islamabad. Reuters.
HÆSTIRÉTTUR Pakistans úr-
skurðaði á miðvikudag að umdeildir
herdómstólar, sem Nawaz Sharif,
forsætisráðherra landsins,' setti á
laggirnar til að stemma stigu við
vaxandi ólgu og ofbeldisverkum í
hafnarborginni Karachi, brytu í
bága við stjórnarskrá Pakistans.
Dómurinn er sagður vera verulegt
áfall íyrir ríkisstjórn landsins.
Benazir Bhutto, leiðtogi stjórnar-
andstöðunnar lýsti úrskurðinum
sem „stóra stökki í þá átt að styrkja
réttarríkið og lýðræði í Pakistan."
Mannréttindasamtök í Pakistan
hafa einnig fagnað niðurstöðunni
sem þau segja vera sigur fyrir
stjómarskrá landsins.
Heméttirnir, sem komið var á
laggirnar fyrir tæpum 3 mánuðum,
hafa þegar dæmt á annan tug
manna til dauða. Dómar þessir hafa,
samkvæmt úrskurðinum, verið aft-
urkallaðir og sendir til annarra
dómstiga. Tveir menn voru teknir
af lífi vegna dóma herréttanna.
Gagnrýni á þá komst í hámæli í jan-
úar þegar 13 ára drengur var
dæmdur til dauða vegna morðs.
Chaudry Farooq hershöfðingi,
ríkissaksóknari Pakistans, sagði að
ríkisstjóm landsins myndi taka mál-
ið fyrir á fundi og ákveða hvort hún
bæði hæstarétt að endurskoða nið-
urstöðuna. Úrskurðum hæstaréttar
Pakistans er ekki hægt að áfrýja en
biðja má dómara um að endurskoða
afstöðu sína í einstökum málum.
BlöiiduíiBrtSBki
Moraterm sígild og stílhrein.
Með Moraterm er alltaf kjörhiti
í sturtunni og öryggi og þægindi
í fyrirrúmi.
Mora sænsk gæðavara.
Heildsöludreifing:
, — Smiðjuvegi 11, Kópavogi
TÍilGltM Sími564 1088,fa*564 1083
íæst í byggingavöruverslunum m land allt.
Þýzkur sjóður fyrir
fórnarlömb nazista
Bonn. Reuters.
TÓLF þýzk stórfyrirtæki hafa
samþykkt að greiða fólki bætur,
sem þvingað var til vinnu í
Þýzkalandi á dögum síðari
heimsstyrjaldar eða varð á ann-
an hátt að þola raunir af völdum
nazistastjómarinnar. A vegum
fyrirtækjanna verður settur á
stofn veglegur sjóður, sem gyð-
ingasamtök og ýmsir umbjóð-
endur lögmanna í Bandaríkjun-
um geta leitað í, en þessir aðilar
hafa lagt fram skaðabótakröfur
á hendur fyrirtækjum og stjóm-
völdum í Þýzkalandi að andvirði
milljarða króna.
í kjölfar þessarar ákvörðunar
féllu stjómvöld í New York-
borg frá hótun um að hindra
fyrirhuguð kaup Deutsche
Bank, stærsta banka Þýzka-
lands, á Bankers Trust, einum
stærsta fjárfestingarbanka
Bandaríkjanna. I kjölfar þess
rauk verð hlutabréfa í Deutsche
Bank AG upp um fimm pró-
sentustig.
Heimsráð gyðinga, WJC,
fagnaði þessari niðurstöðu og
tilkynnti að samtökin myndu nú
snúa sér að frönskum bönkum
og stjórnvöldum vegna skaða-
bótakrafna í tengslum við hel-
fiírina á hendur gyðingum.
30 ára reynsla
Einangrimargler
Lán vegna
berkla í
Rússlandi
Moskvu. Reuters.
RÁÐHERRA heilbrigðismála í
Rússlandi hafur farið þess á leit
við Alþjóðabankann að hann veiti
Rússum lán svo að þeir geti betur
hamlað gegn útbreiðslu berkla í
landinu.
„Tíðni smits óx um 7% árið
1998,“ sagði ráðherrann, Vladimir
Starodubov, í útvarpsviðtali og
bætti því við að 100.000 manns
hefðu smitast af berklum á tíu
mánuðum, frá febmar til ársloka í
fyrra. 83 af hverjum hundrað þús-
und Rússum bera berklasmit.
„Viðræður standa yfir við Al-
þjóðabankann um lán til þess að
standa straum af kostnaði við að
hefta útbreiðslu sjúkdómsins,"
sagði ráðherrann.
^ Reuters
Sólmyrkvi í Ástralíu
Á ÞESSARI mynd, sem tekin er á færðist yfir sólina og olli nærri al-
tíma í fyrradag í Perth í Ástralíu, myrkva hennar. Smellt var af á 20
sést hvernig skuggi tunglsins mínútna fresti.