Morgunblaðið - 19.02.1999, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1999 27
ERLENT
Dularfullt njósnamál setur rfkisstjórn Tékklands í vanda
Ásakanir um bellibrögð
gegn leyniþjónustunni
Prag. The Daily Telegraph.
TVEIR fyrrverandi yfirmenn
tékknesku leyniþónustunnar
gagnrýndu í fyrradag stjórn jafn-
aðarmanna í Tékklandi fyrir þátt
hennar í dularfullu máli sem
snertir bresku leyniþjónustuna
MI6, umdæmisstjóra hennar í
Tékklandi, meinta samkynhneigð
hans og „upplýsingaleka" innan
leyniþjónustu Tékklands.
Oldrich Cherny, fyrrum yflr-
maður tékknesku leyniþjónust-
unnar (UZSI), lýsti framgangi
málsins sem algeru klúðri og St-
anislav Devaty fyrrum starfsbróð-
ir hans hjá gagnnjósnastofnun
Tékklands (BIS) hefur ásakað
stjórnvöld um pólitísk bellibrögð
gegn leyniþjónustunni.
Forsaga málsins er sú að upplýst
var í tékkneskum sjónvarpsþætti í
byi'jun mánaðarins að Christopher
Hun'an, íyrrum liðsforingi í breska
hemum, væri umdæmisstjóri MI6 í
Tékklandi undir því yfirskyni að
vera pólitískur ráðgjafi við sendi-
ráð Breta í Prag. Ennfremur var
gi-eint frá heimilisfangi HmTans,
að hann væri samkynhneigður og
að hann byggi með suður-amerísk-
um kai’lmanni í Prag.
Tildrög uppljóstrananna eru
þau að Hurran sendi Jaroslav
Basta, ráðherra leyniþjónustu-
mála í tékknesku ríkisstjórninni,
bréf í desember þar sem hann
kvartaði yfir upplýsingalekum
innan tékknesku leyniþjónustunn-
ar varðandi mál Jabir Salims,
írasks leyniþjónustumanns í Aust-
ur-Evrópu sem hljópst undan
irierkjum og leitaði ásjár austur-
rískra stjórnvalda í desember sl.
Opinberlega sagt
til samkynhneigðs
MI6-manns
Talið er að Salim hafi verið
gagnnjósnari fyrir MI6.
I kjölfar bréfsins var Karel
Vulterin, yfinnanni BIS, sagt upp
en tékkneskir ráðamenn létu hafa
eftir sér að breska leyniþjónustan
væri óánægð með störf hans. St-
arfsmönnum BIS sem voru hlið-
hollir Vulterin hefur verið kennt
um að leka persónulegum upplýs-
ingum um umdæmisstjórann
breska, til fjölmiðla og valda því
íraþári sem á eftir hefur fylgt.
í viðtali við The Daily Telegraph
í gær sagði Oldrich Cemy, sem er
náinn samstarfsmaður Vaclav Ha-
vels, forseta Tékklands, að málið
væri hið vandræðalegasta fyrir
stjómvöld. Sagðist hann halda að
ákveðin öfl innan ríkisstjómarinn-
ar, sem vildu sundra leyniþjónust-
unni, bæm ábyrgð á því að nafn
Hurrans hafi komist í hámæli. Inn-
an BIS væri enginn sem gæti
hagnast á því að ljóstra upp nafni
Hurrans. Jafnframt sagðist hann
harma það að fjölmiðlaumræðan í
Tékklandi hefði beinst fyrst og
fremst að samkynhneigð Hurrans;
„ég veit ekki hvers vegna nokkur
myndi vilja upplýsa það að Hurran
sé samkynhneigður. Jafnvel undir
stjóm kommúnista áttu samkyn-
hneigðir ekki í nokkmm vandræð-
um,“ sagði Cemy.
Tékklandi verður boðið form-
lega til aðildar að Atlantshafs-
bandalaginu (NATO) í næsta mán-
uði og hefur landið treyst mjög
tengsl sín við Vestur-Evrópu og
Bandaríkin síðan stjórn kommún-
ista féll í „flauelsbyltingunni"
1989. Telja stjórnvöld því að málið
sé tilkomið að undirlagi Rússa,
sem þau segja að reyni allt til að
spilla hagsmunum Tékklands í
vestrænu samstarfi.
„Óvirkir" njósnarar Rússa
Jaroslav Basta hefur lýst því
yfir að forsenda Rússa væri að
„nýta síðustu tækifærin til að
koma í veg fyrir aðild Tékklands
að NATO“ og hefur hann farið
fram á viðamikla rannsókn á því
hvaðan málið sé sprottið. Er talið
að Basta vilji gera sem mest úr
því að Rússar hafi skilið eftir tugi
„óvirkra“ njósnara er þeir fóru
frá Tékklandi 1991. Jan Kavan,
utanríkisráðherra Tékklands, hef-
ur sagt að grunsemdirnar um þátt
Rússa í málinu séu á tilgátustigi.
,ýtugljóslega er það mjög vand-
ræðalegt að upp skuli komast um
upplýsingaleka af þessari stærð-
argráðu, aðeins nokkrum dögum
áður en Tékklandi er formlega
boðin aðild að NATO. Einu aðil-
arnir sem gætu hugsanlega hagn-
ast á málinu eru þeir sem eru and-
vígir stækkun NATO,“ sagði Ka-
van.
Þrátt fyrir að hafa verið nefnd-
ur opinberlega er talið líklegt að
Hurran haldi kyrru fyrir í Prag.
MI6 telur að starfi hans hafi ekki
verið stefnt í voða og vill ekki færa
hann til fjarlægari staðar að svo
stöddu.
Skýrsla nýs yfírmanns leyniþjónustu Slóvakíu
Flett ofan af undirróðri
og persónunjósnum
Reuters
EFTIR því sem lengra líður frá stjórnartíð Vladimirs Meciars, sem hér
ráðfærir sig við Gustav Krajci, innanríkisráðherra í hinni föllnu stjórn
hans, kemur betur í ljós hve ólýðræðislegir stjórnarhættir hans voru.
Bratislava. Reuters.
NÝR yfirmaður leyniþjónustu
Slóvakíu - eða „ríkisöryggisþjón-
ustunnar" sem almennt er þekkt
undir skammstöfuninni SIS -
greindi frá því á lokuðum þingfundi
að í stjórnartíð Vladimirs Meciars
hefði henni verið óspart beitt á vafa-
saman hátt gegn þegnum landsins
og til undirróðurs gegn grannríkj-
um. Frá þessu var greint í
slóvakíska dagblaðinu SME í gær.
Undirróðursáform leyniþjónust-
unnar fólust meðal annars í því að
styðja nýfasískar hreyfingar í Tékk-
landi, að því er segir í frásögn
blaðsins af ræðu sem Vladimir
Mitro, núverandi yfirmaður SIS,
flutti á lokuðum fundi slóvakíska
þingsins í síðustu viku. Opinber út-
gáfa ræðunnar hefur ekki verið gef-
in út og enginn innanbúðarmaður
SIS var tilbúinn til að tjá sig um
málið við fjölmiðla í gær.
Ríkisstjórn Meciars, sem féll í
kosningum í september sl., sætti
harðri gagnrýni bæði heima fyrir og
erlendis fyrir að standa sig ekki í að
koma á lýðræðisumbótum í landinu
eftir að það losnaði úr viðjum
kommúnismans.
Samkvæmt frásögn SME sagði
Mitro að SIS hefði í stjórnartíð
Meciars reynt að sverta nafn Ung-
verjalands í augum grannþjóðanna
á svæðinu og að sá fræjum tor-
tryggni milli Austurríkis og Þýzka-
lands.
Víðtækar persónunjósnir
Mitro er sagður hafa nafngreint
marga menn, sem SIS hefði njósnað
um heima hjá þeim. Þar á meðal
væru yfirmaður hersins, einn fyrr-
verandi varnarmálaráðhen’a, hátt-
settir menn innan kirkjunnar, sam-
starfsmenn Meciars í ríkisstjórninni
og stjórnmálamenn úr röðum
stjórnarandstöðunnar. Síðast en
ekki sízt mun hafa verið fylgzt með
hverju fótmáli og reynt að hlera
hvert orð sem féll af vörum Michals
Kovac, forseta lýðveldisins og
áhrifamesta pólitíska andstæðings
Meciars.
Mitro leiddi einnig að því líkum
að SIS hafi framið mannránið á
Michal Kovac yngi-i, syni forsetans,
árið 1995 og áformað áróðursher-
ferð sem miðaði að því að telja
Slóvaka á að affarasælast fyrir þá
væri að leita aftur undir stórveldis-
verndarvæng Rússa.
Af því sem Mitro upplýsti vakti
þó einna mesta athygli frásögn hans
af því að leyniþjónustan hefði lagt
drög að þvi að kynda undir sígauna-
hatri í Tékklandi, með það fyrir
augum að spilla fyrir möguleikum
Tékka á að fá inngöngu í vestrænar
stofnanir, þeirra helztar NATO og
ESB.
Ný ríkisstjórn Slóvakíu, sem nú
hefur setið við völd í fjóra mánuði,
sækir það nú fast að koma sam-
skiptunum við Vesturlönd og grann-
ríkin í lag og að koma lýðræðisum-
bótum í landinu í réttan farveg.
LISTIR
Morgunblaðið/Kristinn
„SITKOVETSKIJ er „virtúós" og lék konsertinn af glæsibrag, nokkuð
með rómantískri tilfinningatúlkun og töluverðum átökum,“ segir í
dómnum.
I drauma-
veröld skáld-
verkanna
TÓJVLIST
II á s k ó 1 a h í»
SINFÓNÍUTÓNLEIKAR
Flutt voru verk eftir Tsjakovskíj
Mozart og Prokofiev. Stjórnandi og
einleikari var Dmitri Sitkovetskíj.
Fimmtudaginn 18. febrúar.
SAGT er að maðurinn leiti upp-
runa síns í sköpun listaverka sinna
og hinar mögnuðu ástarsögur bók-
menntanna séu tilraun til að finna
aftur frumkraft ástarinnar, sem sé
orðinn andstæður fáguðum tilfinn-
ingum siðmenningarinnar, sem svo
á seinni tímum hefur brenglast í
dýrkun á kynhvötinni. í listinni er
draumurinn veruleikinn og fyrir
mikilleik og undur draumsins lifir
maðurinn sínar stóru stundir,
langt handan napurleika þess sem
vakan getur verið honum.
Sagan af Rómeó og Júlíu fæst
við tilfinningar sem fáum eru gefn-
ar en snertir við öllum og því yrkja
menn um þessi gæfulausu ung-
menni og gefa ímyndunaraflinu
lausan tauminn, svo að í hnúkana
tekur. Forleikurinn að Rómeó og
Júlíu, eftir Tsjakovskíj er glæsi-
legt verk og þar er ástinni sungið
lof með hástemmdum hætti, er
Dmitri Sitkovetskíj túlkaði af
sterkri innlifun, svo að hljómsveit-
in hefur ekki oft leikið betur.
Fiðlukonsertinn í G-dúr, eftir
meistara Mozart, var næst á dag-
skrá en þessi konsert er af þremur
vinsælustu, ásamt þeim í D-dúr og
A-dúr, veikastur að byggingu og
endar t.d. á frekar ósannfærandi
máta. Hvað um það. Þá getur þar
að heyra margt af ekta Mozart,
eins og t.d. í hæga þættinum, sem
er yndislegt „sönglag". Sitkovet-
skíj er „virtúós“ og lék konsertinn
af glæsibrag, nokkuð með róman-
tískri tilfinningatúlkun og tölu-
verðum átökum, sem mætti segja
að væri fjarri klassískri gerð
verksins en þó með þeim hætti að
túlkun hans var sannfærandi og
glæsilega mótuð.
Rómantíkin var í fyrirrúmi á
þessum tónleikum og lauk með
þáttum úr báðum ballettsvítunum
sem Prokofiev gerði upp úr hinum
fræga balletti sínum um elskend-
urna Rómeo og Júlíu. í þessu
glæsilega verki áttu nokkrir hljóð-
færaleikarar vel leiknar smástróf-
ur, t.d. Bernharður Wilkinson á
flautu, Einar Jóhannesson á klar-
inett, Sigrún Eðvaldsdóttir á fiðlu
og Richard Talkowsky á selló, svo
nokkrir séu nefndir.
Sitkovetskíj er ekki aðeins frá-
bær fiðluleikari heldur og magnað-
ur hljómsveitarstjóri, því bæði
Tsjakovskíj og Prokofiev voru
glæsilega mótaðir, t.d hinn glæsi-
legi upphafskafli úr svítu nr. 2 og
lokaþáttur ballettsins, harmljóðið,
þar sem strengjasveitin og hornin
eiga að túlka sorgarsársauka Ró-
meó er hann kemur að gröf Júlíu,
en kaflinn allur er gæddur þeim
harmi sem menningin hefur fægt
af mannfólkinu og er aðeins að
finna í draumaveröld skáldverk-
anna. Þessum tilfinningum náði
hljómsveitin, undir stjórn Sit-
kovetskíj, að túlka með eftirminni-
legum hætti.
Jón Asgeirsson