Morgunblaðið - 19.02.1999, Blaðsíða 38
HESTAR
J58 FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Hestaskatti
hafnað
Nefnd landbúnaðarráðherra sem fjallaði
um að^erðir til að takmarka fjölda hrossa
og hrossabeit skilaði af sér nýlega.
Af lestri skýrslunnar sá Valdimar
Kristinsson að vandinn vegna of mikils
fjölda hrossa í landinu er ekki auðleystur
og bera þær tvær tillögur, sem nefndin
lagði fram, þess glögg merki.
SKATTLAGNING á hesteigendur
hefur margsinnis komið upp í um-
ræðunni um offjölgun hrossa og of-
beit af þeim vöidum. Hefur þá verið
talað um ákveðinn skatt af hverju
- • hrossi sem eiganda þess bæri að
greiða og fjallaði nefndin um þessa
hugmynd og segir meðal annars í
nefndarálitinu: „Fram komu ýmis
rök með og á móti þessari lausn.
Hóflegt nýtingargjald stuðlar að því
að hrosseigendur haldi fjölda
hrossa í lágmarki og í samræmi við
þann arð sem þeir hafa af hrossun-
um. Gjaldi af hrossum má verja til
eftirlits með hrossaeign vegna
framtals og gjaldtöku, hrossarækt-
ar, þ.m.t. leiðbeiningarstarfs, land-
nýtingar og rannsókna á sviði land-
, kosta og hrossaræktar.“ Petta telur
nefndin til kosta þessarar hug-
myndar. Ókostina telur nefndin
hins vegar þá helsta að erfítt geti
reynst að hafa eftirlit með fjölda
hrossa og fylgja eftir gjaldtöku
enda þótt vel sé mögulegt að
merkja og skrá öll hross landsins.
Ef til gjaldtöku kæmi, segir í nefnd-
arálitinu, þarf hún að byggjast á
lögum og leiddar að því líkur að
slíkt kynni ef til vill að brjóta í bága
við stjórnarskrána.
Þá er það skoðun nefndarmanna
að skattlagning sem þessi gæti orð-
ið mjög ósanngjörn gagnvart þeim
mikla fjölda manna sem halda hross
og nýta land sitt með óaðfínnanleg-
um hætti. Þeir væru að greiða gjald
fyrir vanrækslu annari-a og í ljósi
þessara annmarka leggur nefndin
ekki til að skattleggja beri hesteig-
endur með álagningu nýtingar-
gjalds.
Það sem nefndin hins vegar legg-
ur til að gert verði til úrbóta er
meðal annars gagnger endurskoðun
á lögum um gróðurvernd þar sem
meðal annars verði tekið tillit til of-
beitar af völdum hrossa. Þar leggur
nefndin til að Landgræðslu ríkisins
verði heimilt að koma í veg íyrir eða
stöðva ofnýtingu lands með því að
veita landnotendum eða landeigend-
um áminningu, setja þeim frest til
úrbóta og með banni eða takmörk-
un beitar. Þá leggur nefndin til að
ferli ásetningar ítölu á heimaland
verði gert einfaldara og skipaðar
verði ítölunefndir. Þá telur nefndin
að setja beri skýr ákvæði um að-
gerðir ef landeigandi/notandi hlítir
ekki úrskurði Landgræðslunnar og
síðar ítölunefnd um hvernig standa
skuli að fækkun í haga.
Nefndin telur að efla þurfí leið-
beiningarþjónustu á sviði landnýt-
ingar. Fjölga þurfi þeim sem sinni
slíkri þjónustu og þeir séu í fullu
starfi sem slíkir. I álitinu er bent á
að þörfin sé varanleg, þ.e. að ekki
væri um að ræða tímabundið átak.
Þá leggur nefndin til að vægi gróð-
ureftirlits í búfjáreftirlitskerfinu
verði aukið og að efla beri rann-
sóknir á sviði landnýtingar og
sömuleiðis að gróðurvernd verði
hluti af umhverfisfræðslu í grunn-
og framhaldsskólum í landinu.
Afsetningu hrossa bar á góma hjá
nefndinni og lagt til að leitað verði
eftir stuðningi ríkisins við afsetn-
ingu eins og nú þegar hefur verið
gert þegar selja átti hrossakjöt til
Rússlands fyrir skömmu. Ekkert
varð af því þar sem kaupendur út-
veguðu ekki bankatryggingar fyrir
greiðslum. I álitinu segir að vonir
séu bundnar við að hægt verði að
afsetja allt að 100 hross á viku ef
fleiri sláturhús fá leyfisveitingu hjá
Evrópubandalaginu. Með þessari
afsetningu telja nefndarmenn að
fjöldi hrossa verði orðinn viðunandi
eftir tvö ár.
Nefndin leggur áherslu á að
hagsmunaaðilar í hrossarækt ljúki
þróun á gæðastjórnunarkerfi sem
kynnt hefur verið hér í hestaþættin-
um. Einnig er lagt til að sett verði
afdráttarlaus skilyrði í leigusamn-
inga á ríkisjörðum að um sjálfbæra-
nýtingu verði að ræða en fram kem-
ur að nokkuð sé um óviðunandi
landnýtingu á ríkisjörðum.
Urslit
móta í
hesta-
þættinum
NÚ ÞEGAR hestamótin eru
hafin er sjálfsagt að rifja upp
þær vinnureglur sem viðhafð-
ar hafa verið undanfarin ár við
umfjöllun um þau hér í hesta-
þættinum. Fyrst ber að nefna
þær upplýsingar sem þurfa að
fylgja. Þar er það nafn knapa
og nafn og fæðingarstaður
hests og einkunnir, sé um ein-
kunnagjöf að ræða. Þá er
sjálfsagt að láta fylgja með
einkunnir bæði úr forkeppni
og úrslitum, séu gefnar ein-
kunnir í úrslitum. Nöfn eig-
enda hrossa þurfa einnig að
fylgja með þegar um kapp-
reiðaúrslit er að ræða eða
gæðingakeppni.
Hvað fæðingarstað hross-
anna varðar má geta þess að
um tíma leit út fyrir að hætt
yrði að geta um hann í móts-
ski’ám. Til varnar því að sú
hefði orðið raunin hefur sá
háttur verið hafður á að ein-
ungis hafa verið birt úrsht frá
þeim mótum þar sem fæðing-
arstaður hrossanna fylgir með
öði-um upplýsingum og verður
svo áfram. I úrslitum sem
borist hafa frá tveimur félög-
um það sem af er ári hefur
verið skilmerkilega getið um
fæðingarstað hrossanna.
Til að auðvelda og flýta fyr-
ir vinnslu er hagstæðast að fá
úrslit send í tölvupósti og er
heimilisfangið vakr@vor-
tex.is. Einnig er hægt að
senda úrslitin á faxi í 566 6753.
Æskilegt er að fá ýmsar aðrar
upplýsingar með eins og til
dæmis um þátttökuna, hvar
mótið var haldið og annað sem
á mótinu kann að þykja
áhugavert. Reynt verður að
birta öll úrslit sem berast fyrir
klukkan 18 á sunnudögum í
hestaþætti í þriðjudagsblaði.
Ekki hafa verið birt úrslit í
firmakeppnum í hestaþætti
Morgunblaðsins og verður svo
áfram.
Valdimar Kristinsson
RSTUflD
SÉRVERSLUN
HESTAMANNSINS
Háaleitisbraut 68 .Austurver
Sími 568 4240 -,
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
NEFND landbúnaðarráðherra sem Ijallar um offjölgun og ofbeit hrossa hafnar skattlagningarleiðinni og bendir á að hún sé óréttlát gagnvart
þeim mikla fjölda liesteigenda sem séu með sín mál í góðu lagi hvað varðar landnýtingu.
Hestamótin hafín
HESTAMÓTIN hafa nú hafið innreið sína og
riðu Sörli í Hafnarfírði og Geysir í Rangár-
vallasýslu á vaðið. Sörli með hinu árlega
, Grímutölti sem fram fór í reiðhöllinni sem kall-
ast Sörlastaðh’. Þátttaka var allþokkaleg á
mótinu sem var opið og marvísleg verðlaun
veitt. Ágæt þátttaka var á Gaddstaðaflötum hjá
Geysi og vakti góð þátttaka í barnaflokki at-
hygli en þau voru sautján talsins. Úrslit hafa
ekki borist þaðan.
En úrslit hjá Sörla urðu annars sem hér segir:
Opinn flokkur
1. „Víkingastelpa" Sigríður Pjetursdóttir á
Blóma frá Dalsmynni.
2. „Konungur ljónanna“ Jón Þorberg á Vektor
frá Sandhólafeiju.
3. „Púki“ Inga C. Campos á Kóp frá Hafnar-
firði.
. 4. ,Arabi“ Logi Laxdal á LUla.
5. „Víkingur“ Þorsteinn Einarsson á Þætti frá
Stafholtsveggj um.
Besti búningur: „Slaufa“ Halldóra Hinriks-
dóttir á Hug frá Skarði.
Ungmennaflokkur
1. „Maðurinn með ljáinn“ Hinrik Sigurðsson á
Skolla frá Skollagróf.
2. „Benni þreytti“ Daníel I. Smárason á Mola
Tfrá Miðfelli.
3. „Mæja býfluga" Elísabet E. Garðarsdóttir á
Hrafnhildi frá Glæsibæ.
4. „Köttur“ Gyða Kristjánsdótth- á Gyðju frá
Syðri-Gegnishólum.
Besti búningur: Benni þreytti.
Unglingaflokkur
1. „Zorro“ Sylvía Sigurbjörnsdóttir á Garpi frá
Krossi.
2. „Mexíkani" Bryndís K. Sigurðardóttir á
Skruggu frá Hala.
3. „Bóndi“ Eyjólfur Þorsteinsson á Óttari frá
Þingnesi.
4. „Mulan“ Margrét Guðrúnardóttir á Blossa
frá Árgerði.
5. „Mávur“ Ingibjörg Sævarsdóttir á Töggi frá
Akranesi.
Besti búningur: Mávur.
Barnaflokkur
1. „Ronja ræningjadóttir“ Birna Þorvaldsdótt-
ir á Arvakri frá Sandhól.
2. „Litla Krullubandið" Margrét F. Sigurðar-
dóttir á Skildi frá Hrólfsstöðum.
3. „Ópið“ Sandra L. Þórðardóttir á Spaða frá
Breiðabólstað.
Besti búningur: Ronja ræningjadóttir.
Pollaflokkur
1. „Beinagrind" Birgir R. Þoi-valdsson á Dím-
oni frá Brúsholti, sem einnig var valinn fyrir
besta búning.
Úrslit hjá Gusti m’ðu sem hér segir:
Karlar
1. Bjarni Sigurðsson á Jarli frá Svignaskarði.
2. Páll B. Hólmarsson á Pílu frá Oddhóli.
3. Sigurður Leifsson á Blesa frá Kálfhóli.
4. Kristinn Valdimarsson á Ósk frá Refsstöð-
um.
5. Haukur Guðmundsson á Fífli frá Vallamesi.
Konur
1. Maríanna S. Bjarnleifsdótth’ á Ljúf frá
Hafnarfirði.
2. Linda Reynisdóttir á Galsa frá Hnausum.
3. Sirrý Halla á Kötlu frá Þverá.
4. Björg M. Þórsdóttir á Hörku frá Lundum.
5. María Gunnarsdóttir á Blika frá Bakka.
Oldungar
1. Hilmar Jónsson á Toppi frá Skýbakka.
2. Victor Ágústsson á Funa frá Stærribæ.
3. Ásgeir Guðmundsson á Mósa frá Búðarhóli.
4. Leifur Ehíksson á Degi frá Búðarhóli.
Ungmenni
1. Birgitta Kristinsdóttir á Lauk frá Feti.
2. Sveinbjörn Sveinbjörnsson á Sveiflu frá
Strönd.
3. Jón Angantýsson á Garfield úr Kópavogi.
Unglingar
1. Sigvaldi L. Guðmundsson á Höllu frá
Skógskoti.
2. Erla B. Tryggvadóttir á Hlekki frá Reykja-
vík.
3. Sigríður Þorsteinsdóttir á Árdísi úr Eyjafirði.
Börn
1. Alfa Einarsdóttir á Mozart frá Einholti.
2. Freyja Þorvaldsdóttir á Hæringi frá Gerð-
um.
3. Tryggvi Þ. Tryggvason á Brennu frá Lund-
um.
4. Ólafur A. Guðmundsson á Bifröst frá
Skógskoti.
5. Þórhildur E. Gunnarsdóttir á Kolskeggi úr
Reykjavík.
Pollar
1. Guðlaug Rut Þórsdóttir á Sælu úr Reykja-
vík.
Valdimar Kristinsson