Morgunblaðið - 19.02.1999, Síða 46

Morgunblaðið - 19.02.1999, Síða 46
46 FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1999 MORGUNB LAÐIÐ Dýraglens /IFHZEP7UFLJUG/Ð þ/Ð') /Áre/A/GUM M/G L/&LANG/1N U/)G/A/AS/ J Smáfólk QUICK, MARCIE, 5HE 5 CALLIN6 ON MEÍ6IMME THE AN SU)ERHURRT,' HURRI'! HURRT / YE5,MA‘AM..WELL/LET ME THINK ABOUT IT..THISI5 ONE OF TH05E PROBLEMS THAT REQUIRE5 REALTHOU6HT... Fljót, Magga, hún er að hlýða mér yfir! Láttu mig fá svarið! Fljót! Fljót! Fljót! Já, kennari... ja, leyf mér að hugsa mig um... þetta er eitt þeirra vandamála sem krefjast rækilegrar umhugsunar... Sextán... SEXTÁN!! BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Islensk Frá Jóni B. Hólm: NÚ ER enn eina ferðina verið að undirbúa kosningar, það er nú fjör og enn fyllast blöðin af stórkostleg- um lofor.ðum þar sem stjörnum prýtt stjómmálafólkið útlistar hug- sjónir sínar og markmið til að gera okkar ágæta land að því besta og fullkomnasta sem til er. Samfylkingarfólkið á eftir að hamra á jafnréttinu og kærleikn- um til þeirra sem minna mega sín og Sjálfstæðisflokkurinn heldur áfram að slá sér á brjóst með yfír- lýsingum um góðæri og frábæra hagstjórn, gott og blessað. Sverrir Hermannsson og félagar eiga eftir að úthýsa spillingunni (gott að geta litið í eigin barm hahaha), og græna framboðið, drifið áfram af náttúruvitund, mun leiða okkur í allan sannleik um málefni móður náttúru. Síðan kemur Framsókn (jamm, sá flokkur er til) og beinir okkur öllum inn að miðju jafnvæg- isins og síðan er eitthvert annað framboð í gangi sem ég man ekki alveg hvað heitir, eitthvað í takt við sannleiksást og lýðræði. Lýðræðið á íslandi er stórkostlegt sjónarspil sem eflaust er hægt að semja margar góðar ritgerðir um, en það er annað mál. Mér fínnst pólitíkin á landinu svo mikill brandari að maður hreinlega þarf prozac til að komast í gegnum eins og eitt stykki frétta- þátt, hugsjónamenn eru ekki til pólitík héma og stjórnmálafólk sem blæs í herlúðra af einhverjum duldum hvötum og hvetur til samstöðu af einhverju tagi minnir mig helst á beljur á ofskynjunarefnum þar sem raunveruleikinn hjá þessu fólki er einhvers staðar í felum bak við flokksfánana. Síðan eftir kosningar eru öll lof- orðin gleymd og grafín og þing- menn komnir í fullt starf við að hygla sér og sínum þegar þeir nenna að mæta á þingið þ.e.a.s. og síðan hefst barátta ríkisstjórnar og andstöðu um hin ýmsu mál, allt er þetta stórkostlegt leikspil þar sem lög og reglugerðir eru til þess fallin að þjóna hagsmunum þeima sem mest eiga inni hjá viðkomandi vald- höfum, síðan kemur þjóðarsátt hin nýja, eitt og eitt verkfall og nokkr- ar „hatrammar" deilur. Það er hægt að verða hrikalega reiður af að fylgjast með íslenskum valdhöfum og þeirri egó-bragð- bættu spillingarsúpu sem þetta lið svamlar í, en eins og einn gamall og vitur maður sagði þá eru Islend- ingar upp til hópa gamlar og vitrar sálir, nokkrar ungar slæðast þó með og enda þær allar á þingi. Maður skammar ekki börn í sandkassa, maður leiðbeinir þeim og hlær að vitleysunni. JÓN B. HÓLM, Miðstræti 8a, Reykjavík. Flug’virkj anám í Calgary, Kanada Frá Gísla Harðarsyni: í CALGARY er tækniskólinn SAIT (Southern Alberta Institute of Technology). Hann býður meðal annars upp á flugvirkjanám og er viðurkenndur og vel metinn á al- þjóðlegum vettvangi. íslendingar hafa sótt nám í flugradíóvirkjun og annað tækninám í SAIT en þó í litl- um mæli, _ þar sem hann er lítt þekktur á íslandi. Áhugi fyrir hvers konar tækninámi hefur aukist og eru menn óhræddir við að fara ótroðnar slóðir. I dag er ég undimt- aður í flugvirkjanámi og munu tveir Islendingar í viðbót hefja sama nám í haust. Calgary í Albertafylki er atorku- söm og spennandi borg með um 800.000 íbúum, staðsett 192 km norður af kanadísku/bandarísku landamærunum. Calgary er mjög fjölskylduvæn borg, þar sem ekki er mikið um glæpi. Hér er fólk alls staðar að úr heiminum en rekja þó flestir ættir sínar til Evrópu. Dag- heimili og skólar fyrir börn eru mjög góð. Húsaleigumarkaðurinn er ágætur og er allt húsnæði sem í boði er mjög hreinlegt og leigan sanngjörn. Calgary er staðsett við rætur hinna stórfenglegu kanadísku Klettafjalla og njótum við þess að sjá þennan stórkostlega fjallahring, sem er eitt af eftirsóttustu skíða- svæðum í Kanada. Sumrin eru mild og veturnir frekar kaldir, en hnúka- þeyrinn hlýjar okkur jafnt og þétt yfir háveturinn, og breytist hitastig- ið oft frá -25 til +10 stiga hita á nokkrum klukkustundum, en það vorar snemma með mildu sumri í kjölfarið. I Calgary höfum við okkar eigið litla samfélag Islendinga, og er það mjög notalegt að geta leitað til ann- arra og tilheyrt góðum kunningja- hópi, t.d. til að halda uppá hátíðis- dagana saman. Calgary er ein helsta borgin í ol- íu- og gasiðnaði og einnig mikilvæg miðstöð fyrir verkfræðinga. I raun hefur Calgary að geyma fleiri höf- uðstöðvar fyrirtækja en allar aðrar borgir í Kanada fyrir utan Toronto. Hér er gott að vera og mæli ég undirritaður með SAIT fyrir þá sem hafa hug á að sækja flug- virkjanám eða hvers konar tækni- nám, en hægt er að ná í mig f síma (403) 257-2341. GÍSLI HARÐARSON, 29 Inverness Drive SE Calgary, Alberta T2Z 3E5 Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.