Morgunblaðið - 10.03.1999, Side 8

Morgunblaðið - 10.03.1999, Side 8
8 MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR LÁTTU mig um kauða, ég skal sko þjarma að honum. Rektor HÍ boðar til málþings um framtíð búsetu á íslandi Málþingi sjónvarpað um íjarfundarbúnað A OPNU málþingi sem rektor Há- skóla íslands hefur boðað til um framtíð búsetu á íslandi verður al- menningi á landsbyggðinni, á þeim stöðum sem búa yfir fjarfundarbún- aði, gefínn kostur á þátttöku. Sjón- varpað verður frá fundarstað í Há- skólanum til viðkomandi sveitarfé- laga og tekið á móti athugasemdum og fyrirspurnum frá áheyrendum en sextán sveitarfélögum hefur verið boðin þátttaka. „Grunnhugmyndin er sú að það sé fáránlegt að sitja í Reykjavík og messa yfir Iandslýð um þeirra mál og láta þá sem málið mest varðar vera hlutlausa áhorfendur að borgarbúum að fjalla um landsbyggðina," sagði Magnús Baldursson, aðstoðarmaður rektors. Sagði hann að dagskrá mál- þingsins hafí verið valin með það í huga að vekja áhuga landsbyggðar- innar. Benti hann á að háskóiamennt- að fólk væri í minnihluta en fram- sögumenn verða innlendir og erlendir fræðimenn og fulltrúar atvinnulífsins, stjómmála, mennta- og menningar- mála. „Þama verður mikið af fólki úr atvinnulífinu og fólki með reynslu af þvi að vera úti á landi,“ sagði hann. „Fólk sem hefur unnið þar og verið frumkvöðlar og geta sagt til um hvað það er sem skiptir máli.“ Bein útsending Málþinginu verður sjónvarpað úr Háskólanum, þar sem það verður haldið dagana 20.-21. mars nk., með aðstoð fjarfundarbúnaðar á staði úti á landi, sem hafa yfír þessum búnaði að ráða og em tengdir við menntanetið. „Málþingið verður auglýst á viðkom- andi stöðum þannig að þeir sem áhuga hafa geta farið þangað sem búnaðurinn er og fylgst með fyrir- lestrunum í beinni útsendingu,“ sagði Magnús. „Þeir munu geta komið at- hugasemdum og spumingum að jafn- óðum og beint þeim til fyrirlesara inn á irkið svokallaða, spjallrásakerfið, og munu fundarstjórar á hverjum stað taka við fyrirspumum og slá þær inn. A fundinum í Reykjavík verður annar fundarstjóri, sem tekur við spuming- unum jafnóðum og mun hann sjá um að koma þeim á framfæri. Við teljum að með þessu móti verði komist næst því að allir sitji við sama borð.“ Magnús sagði að þessari hugmynd hefði verið mjög vel tekið en þetta væri tilraun og spennandi að sjá hvernig til tækist. „Ef hún heppnast vel verður sennilega reynt að halda næstu málþing rektors með þessum hætti þó svo landsbyggðamálin verði ekki til umræðu eins og nú, svo Há- skólinn geti staðið undir því nafni að vera háskóli allra landsmanna," sagði hann. Ríkislög1- maður lætur af störfum EMBÆTTI ríkislögmanns hefur verið auglýst laust til umsóknar en Jón G. Tómasson ríkislögmaður hef- ur óskað eftir að láta af störfum, að sögn Olafs Davíðssonar, ráðuneytis- stjóra í forsætisráðuneytinu. Jón varð 67 ára í lok síðasta árs. Forsætisráðherra skipar í emb- ættið til fimm ára. Ríldslögmaður skal fullnægja almennum starfs- gengisskilyrðum og skyldum starfs- manna ríkisins svo og lagaskyldum til að gegna dómaraembætti við hæstarétt. Umsóknir skulu hafa borist for- sætisráðuneytinu eigi síðar en 26. mars nk. Nýr ritstjóri Uppeldis Ahugi á uppeld- ismálum mikill Vigdís Stefánsdóttir EFTIR áramót tók nýr ritstjóri við stjórn tímaritsins Uppeldis. Uppeldi er tólf ára gamalt tímarit og er gefið út af Uppeldi ehf. og er ætlað öllum þeim sem starfa að uppeldismálum, hvort heldur sem er for- ráðamönnum barna eða starfsfólki uppeldisstofn- ana. Hinn nýi ritstjóri heitir Vigdís Stefánsdóttir og var hún spurð hvort hún hygðist breyta til í áherslum tímaritsins? - Já, að því leyti til að ég hef í hyggju að beina sjón- um meira að eldri börnum en áður hefur verið gert í þessu tímariti. Eg ætla að taka fyrir málefni bama allt að tólf ára aldri og jafnvel eldri barna. Það má ektó gleyma því að börn eru börn þótt þau séu að komast á unglingsár. - Eru það að þínu mati mörg málefni eldri barna sem þarf að fjalla um? - Já, ótrúlega mörg. í fyrsta blaðinu sem ég ritstýrði voru tekin fyrir málefni eins og kynlíf og unglingar, þar sem rætt er um að of lítið sé um kynfræðslu enda streymi unga fólkið á Húð- og kynsjúkdómadeildina. Talað er einnig um vímuefnaneyslu barna allt niður í níu ára aldur. Athygli er vakin á að þau böm sem byrja neyslu slíkra efna gera það stundum mjög snemma - en vitaskuld em þau sem betur fer fá sem þannig fer fyrir. Ann- að sem við tökum fyrir er reiði- laust agakerfi - en það er nánar til tekið kerfi sem gengur þvert á þá skoðun að böm séu skynsem- isvemr sem hlusta á rök foreldra sinna fyrir góðri hegðun. Við töl- um einnig um leikfangalausa leikskóla og hleypum karlmönn- um meira í uppeldisskrifin en gert hefur verið. Við kynnum fé- lög eins og Bamaheill, Heimili og skóla og Félag ábyrgra feðra og ætlunin er að kynna í hverju blaði eitt til tvö félög sem koma að uppeldi barna á einhvern hátt. Þá er fjarkennsla kynnt og hvernig það er að fæða í vatni. - Er það þinn bakgrunnur sem veldur þessum breyttu áhersl- um? - Já, ég tel að svo sé. Ég kem núna síðast úr blaðamannsstarfí og hef kynnst frá þeirri hlið bæði mjög góðum pennum og hliðum á málum sem hinn almenni borgari er ekki endilega að hugsa um. Þetta gerir það að verkum að ég sæki efni og greinar til annarra aðila en gert var áður. Þá komu greinarnar meira úr uppeldis- geiranum sem einnig er auðvitað gott í svona blað. En fjöl- breytni er eigi að síður af hinu góða. - Er það eitthvað eitt öðru fremur sem þú berð fyrir brjósti í málefnum barna? - Slysavarnir og öryggi í um- hveril em að mínu viti forgangs- mál og einnig fræðsla til foreldra og forráðamanna barna - allt sem getur orðið til þess að fólk eigi auðveldara með að sinna uppeldi bama sinna. Neytenda- mál em líka þung á metum. Ég tek fyrir í næsta blaði t.d. páska- egg, ekki bara þessi venjulegu heldur páskaegg fyrir börn með ofnæmi. Ég ætla að vera með út- tekt á því hvert sé hægt að leita ►Vigdís Stefánsdóttir er fædd 29. maí 1956 í Reykjavík. Hún stundaði nám við Lindargötu- skóla og menntaskólanám við Menntaskólann í Hamrahlíð og Fjölbrautaskóiann í Breiðholti. Hún starfaði lijá Skýrsluvélum ríkisins um tima og var ritari í tvö ár á Flókadeild Kleppsspít- ala. í 22 ár rak hún heildversl- un og verslun ásamt eigin- manni sínum, Jóseph Le Lemacks. Hún kenndi handa- vinnu í tengslum við verslunar- reksturinn og gaf út prjóna- blöð. Hún var hátt á annað ár blaðamaður hjá Degi og hefur nú tekið við starfi ritstjóra tímaritsins Uppeldis. Vigdís og Jóseph eiga þrjú börn. ef granur vaknar um að eitthvað sé að baminu, það virðist hvergi vera tO á einum stað slík þjón- usta eða listi yfir hvar hennar skuli leita. Þá er tekið fyrir efni sem ekki hefur verið mikið fjall- að um, en það er sorgarferli for- eldra sem uppgötva það að barn- ið þeirra er fatlað. - Hvað koma mörg blöð af Upp- eldi útáári? - Þau em sex. Ég vO leggja áherslu á að blaðið er opið fyrir hvern þann sem vill skrifa eða leggja sitt af mörkum tO uppeld- ismála og í því er sérstakur dálk- ur sem tekur við bréfum utan úr bæ og ber nafnið Pennastrik. - Reynir þú að gera samanburð á uppeldismálum hér á landi og í nágrannalöndunum ? - Já, það er verið að vinna að grein þar sem borið er saman leikskólastarf á Islandi og í Englandi, þar sem ýmsar athygl- isverðar staðreyndir koma fram. Ekki má gleyma því að markmið okkar em ektó bara að gera blaðið fræði- legt og upplýsandi heldur líka skemmti- legt og til þess að gera það emm við með „mola“ hér að þar, þar sem drepið er á ýmislegt skondið og kannski ekki endilega sér- statóega fræðandi. - Virðist þér góður grundvöllur fyrirrekstri svona blaðs? - Tvímælalaust, þeir sem hafa með börn að gera á íslandi hafa greinilega áhuga á uppeldismál- um. Askrifendur em margir og núna fer blaðið í lausasölu í meiri mæli en áður var, þá verður það aðgengilegra þeim sem ekki era áskrifendur en hafa áhuga á ein- hverju sérstöku málefni sem tek- ið er fyrir hverju sinni. Hyggst beina sjónum meira að eldri börnum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.