Morgunblaðið - 10.03.1999, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1999 11
FRETTIR
Lagt til í ályktunardrögum landsfundar að Sjálfstæðisflokkurinn
taki við ráðuneytum heilbrigðis- og orkumála
Byggt á núverandi fískveiði-
stjórnkerfí í grundvallaratriðum
Lagt er til að áfram verði í grundvallarat-
riðum byggt á núverandi fískveiðistjórn-
kerfí í drögum að ályktun í sjávarútvegs-
málum sem lögð verða fyrir landsfund
Sjálfstæðisflokksins um næstu helgi. Með-
al þess sem lagt er til í ályktunardrögum
fundarins er að samið verði um sérstaka
fjármögnun eða yfírtöku útgerðar á sjó-
mannaafslætti og að Sjálfstæðisflokkurinn
taki að sér ráðuneyti heilbrigðis- og orku-
mála í næstu ríkisstjórn. Omar Friðriks-
son kynnti sér ályktunardrög fundarins.
Gi
d
b
| ERÐ er tillaga um það í
-drögum að ályktun um heil-
I brigðismál, sem lögð verða
fyrir landsfund Sjálfstæðisflokks-
ins um næstu helgi, að flokkurinn
auki verulega áherslu sína á heil-
brigðismál og stefni að því að taka
að sér ráðuneyti heilbrigðis- og
tryggingamála í næstu ríkisstjórn.
í drögum að ályktun í orkumálum
segir að landsfundurinn leggi
áherslu á ítarlega og vandaða með-
ferð orkumála og telji rétt að flokk-
urinn taki þau að sér í næstu ríkis-
stjórn.
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
verður haldinn í Laugardalshöll 11.-
14. mars undir kjörorðunum
„Ái'angur fyrir alla“. Unnin hafa
verið drög að ályktunum landsfund-
arins í 23 málaflokkum innan sér-
stakra starfshópa að undanförnu.
Ekki eru lagðar til neinar gnmd-
vallarbreytingar á fiskveiðistjórn-
kerfinu í ályktunardrögum um sjáv-
arútvegsmál. Par segir m.a. að
meginmarkmið sjávarútvegsstefn-
unnar sé að tryggja að arðsemi
fiskistofnanna verði sem mest í
þágu þjóðarinnar allrar, enda séu
fiskistofnamir í hafinu sameign
hennar. Einnig er tekið fram að
mikilvægt sé að hefja sem fyrst
hvalveiðar samkvæmt vísindalegri
ráðgjöf.
Reglur verði einfaldar
og skýrar
Áhersla er lögð á að stöðugleiki í
fiskveiðistjórnun skipti sjávarút-
veginn höfuðmáli og efli þjóðarhag.
Síðan segir: „Landsfundurinn telur
því mikilvægt að í grundvallaratrið-
um verði áfram byggt á núverandi
fiskveiðistjómunarkerfi. Sveigjan-
leiki er þó nauðsynlegur og slík
kerfi þarfnast stöðugrar og viðvar-
andi endurskoðunar hvað varðar
einstaka þætti. Landsfundurinn tel-
ur mikilvægt að við endurskoðun
laga og reglna um sjávarútveg verði
þess gætt að þær verði
einfaldar og skýrar."
Lagt er til að kannað
verði hvort ástæða sé til
að aflétta banni við fjár-
festingu erlendra aðila í
íslenskum sjávarútvegi
og auka þannig aðgengi ““
sjávarútvegsins að erlendu áhættu-
fjáj-magni.
I ályktun um skattamál er lögð
áhersla á að áfram verði unnið gegn
háum skatthlutfóllum og umfangs-
mikilli tekjutengingu bótaréttar.
Lækka þurfi tekjuskattshlutfallið
um leið og dregið verði úr vægi per-
sónuafsláttar. „Jafnframt verði
samið um sérstaka fjármögnun eða
yfirtöku útgerðar á sjómannaaf-
slætti við heildarendurskoðun á
skattlagningu atvinnugreinarinnar.
Sem valkost við vaxtabætur verði
lí
áf
Afnám banns
við erlendri
fjárfestingu í
sjávarútvegi
kannað
fólki sem kaupir sína fyrstu íbúð
gefinn kostur á húsnæðisaðstoð,
sem ekki er tekjutengd og hvetur
ekki til skuldsetningar,“ segir í
drögunum.
Landsvirkjun hlutafélag og
sala Landssímans undirbúin
í sömu ályktunardrögum er lagt
til að þegar verði hafist handa við
að breyta Landsvirkjun í hlutafé-
lag, undirbúin verði sala Landssím-
ans og sala á hlut ríkisins í bönk-
um. Þá er lagt til að sambærilegar
reglur gildi um áfengisútsölur og
vínveitingastaði og þar með hætti
ríkið allri smásöluverslun með
áfengi. „Engin ástæða er fyrir ríkið
að standa í verslunarrekstri.
Leggja skal niður ATVR þegar í
stað og selja eignir þess. Selja skal
áfengi eftir reglum sem að ríkis-
valdið setur,“ segir í drögum að
ályktun um viðskipta- og neytenda-
mál. Þar er jafnframt lagt til að
skylduáskrift að fjölmiðlum verði
afnumin nú þegar.
Erlendir aðilar geti
fjárfest í orkuverum
I ályktunardrögum um orkumál
segir að vinna eigi að skynsamlegri
nýtingu hreinna orkulinda lands-
ins, vatnsorku og jarðhita og
áhersla er lögð á frjálsa sam-
keppni. „Unnið verði áfram að því
af fullum krafti að auka frelsi í öll-
--------- um orkuviðskiptum.
Vinnsla, meginflutning-
ur, dreifing og sala raf-
orku verði aðskilin eins
fljótt og aðstæður
frekast leyfa. Sjálfstætt
fyrirtæki um meginflutn-
ing orkunnar (vinnuheiti:
Landsnet) verði stofnað á næsta
kjörtímabili. Landsnet afhendi ork-
una beint og milliliðalaust til dreifi-
veitna og stóriðnaðarfyrirtækja.
Áhersla verði lögð á að orkufyrir-
tækin verði gerð að hlutafélögum
og almenningur hvattur til eignar-
aðildar. Þar sem hlutafélagsvæð-
ingu verður ekki við komið verði
jafnræði í skattamálum eigi að síð-
ur tryggt. Þá verði erlendum aðil-
um gefinn kostur á að fjárfesta í
orkufyrirtækjum hér á landi,“ seg-
ir í ályktunardrögunum. I drögum
að ályktun um iðnaðarmál segh' að
samhliða því að komið sé á sam-
keppni í orkubúskapnum sé sjálf-
sagt að gera erlendum aðilum
kleift að fjárfesta í byggingu og
rekstri orkuvera.
10 ára verðmætaáætlun
hálendisins
Talið er mikilvægt að sátt náist
um framtíðarnýtingu og -verndun
hálendisins, í ályktunardrögum um
umhverfismál. „Móta ber slíka
framtíðarstefnu á grunni verð-
mætaáætlunar fyrir hálendið, sem
tekur til 10 ára í senn. Samhliða
gerð verðmætaáætlunar hálendisins
verði rannsóknir og þekkingarleit á
vistkerfi og náttúruverðmætum há-
lendisins aukin,“ segir m.a. í drög-
unum. Þar segir einnig að mikil-
vægt sé að Island verði aðili að
Kyoto-bókuninni, að sérstöðu ís-
lands viðurkenndri. í drögum að
ályktun í utanríkismálum er þó í
umfjöllun um Kyoto-bókunina hvatt
til þess að stjómvöld taki sér þann
tíma, sem nauðsynlegur sé til að
tryggja langtíma hagsmuni þjóðar-
innar.
í utanríkismáladrögunum er ít-
rekuð afstaða seinasta landsfundar
Sjálfstæðisflokksins til aðildar að
Evrópusambandinu. „Innganga
eða aðild Islands að ESB kemur
ekki til greina ef í henni felst að ís-
lendingar þurfi að gefa eftir yfir-
ráðarétt að fiskimiðum eða öðmm
auðlindum þjóðarinnar," segir þar.
f drögum að ályktun um iðnaðar-
mál segir að tenging íslensku krón-
unnar við aðra mynt myndi auð-
velda sambýli sjávarútvegs við aðr-
ar útflutningsgreinar og einhvers-
konar tenging krónunnar við evr-
una hljóti vel að koma til greina í
framtíðinni.
A móti sameiningu stóru
sjúkrahúsanna í Reykjavík
í ályktunardrögum um heil-
brigðismál er áhersla lögð á til-
færslu verkefna innan heilbrigðis-
þjónustunnar frá ríkinu til einkaað-
ila og sveitarfélaga. Auka þurfi
fjölbreytni í rekstrarfyrirkomulagi
heilbrigðisþjónustunnar með auk-
inni áherslu á einstaklingsframtak,
sjúkratryggingakerfið verði endur-
vakið og stefnt skuli að því að að-
skilja ráðuneyti heilbrigðis- og
tryggingamála. Þá er lagt til að
Sjálfstæðisflokkurinn lýsi yfir að
hann sé andvígur sameiningu stóm
sjúkrahúsanna í Reykjavík í einn
ríkisrekinn spítala.
Stefna skal að einkavæðingu
Ibúðalánasjóðs
Fagnað er ákvörðun banka um
þátttöku á íbúðalánamarkaði og
tekið fram að nauðsynlegt sé að
ti-yggja eðlilega samkeppnisstöðu
þeirra með afnámi ríkisábyrgðar
húsbréfalána, í drögum að ályktun
um húsnæðismál. Stefnt skuli að
einkavæðingu íbúðalánasjóðs með
sama hætti og ríkisbankanna.
Eðlilegt er að dregið verði úr
tekjutengingum í almannatrygg-
ingakerfinu, að því er segir í drög-
um að ályktun um tryggingamál.
„Nauðsynlegt er að undirbúa það að
einkaaðilar taki við einstökum þátt-
um úr slysa- og sjúkratryggingum
Tryggingastofnunar. Ekkert er því
til fyrirstöðu að allar slysatrygging-
ar flytjist nú þegar frá ríkinu. Huga
þarf að því með hvaða hætti má
breyta sjúkratryggingakerfinu
þannig að það sýni glöggt að um
raunverulegt tryggingakerfi sé að
ræða þar sem menn gi-eiða iðgjöld
og njóta réttinda. Áhersla er lögð á
að þjóðfélaginu er skylt að gæta
þeirra sem ekki geta greitt iðgjöld.
Skattar lækki sem nemi iðgjöldum
til sjúkratiygginga," segir í drögun-
um.
í drögum að ályktun um jafnrétt-
ismál er lagt til að réttur mæðra og
feðra til fæðingarorlofs verði jafn-
aður þannig að 3 mánuðir verði
bundnir móður, 3 mánuðir föður og
foreldrar geti ráðstafað 4 mánuðum
sín á milli.
Þjóðarlottó fyrir listir,
menningu og vísind
Gerð er tillaga um það í drögum
að ályktun um menningarmál að
kannað verði til hlítar hvort ekki
megi hvetja til stuðnings við menn-
ingarstarfsemi með skattaívilnun-
um. Einnig er lagt til að kannaðir
verði möguleikar á að koma á fót
öflugu þjóðarlottói þar sem listir,
menning og vísindi yrðu meðal
þeirra sem nytu góðs af.
Utræðisréttur
strandjarða
verði virtur
í ÁLYKTUN búnaðarþings sem
lauk um helgina er þess farið á leit
við stjórn Bændasamtaka Islands
að hún leiti leiða til þess að fá út-
ræðisrétt strandjarða virtan á ný
og staðfestan í fiskveiðilögum.
I greinargerð er það rifjað upp
að margþættar sjávarnytjar hafi
fylgt jörðum á íslandi frá því land
var numið, þar með réttur til hvers
konar veiða í sjó, og hafi verið önn-
ur undirstaða afkomunnar og
burðarás byggða um allt land.
Færð eru að því rök að lög um fisk-
veiðistjórnun ásamt tilheyrandi
reglugerðum hafi ekki svipt eigend-
ur jarða hinum fornu réttindum til
fiskveiða, heldur sé réttur þeirra
ekki virtur, réttinum haldi þeir að
fullu áfram og tímabundinn missi
eigi að bæta.
Jarðeigendum er bent á að það
væri afar einkennilegt og gæti
hugsanlega veikt málstað þeirra ef
þeir blanda sé nú í hóp umsækj-
enda um veiðiheimildir og sækja
með því móti um rétt sem þeir hafa
fyrir.
Glæsileg
eldri borgaraferð
tii Kanarí
frá kr. 68.190
19. apríl
með Sigurði Guðmundssyni
Heimsferðir kynna nú hina vinsælu vorferð sína til Kanaríeyja
19.apríl í 30 nætur en þessi ferð hefur verið uppseld öll undanfarin
ár, enda frábært veður á Kanaríeyjum á þessum tíma og frábærar
aðstæður fyrir ferðamanninn.
Við bjóðum nú betri gistivalkosti en nokkru sinni fyrr
í hjarta ensku strandarinnar og að sjálfsögðu njóta
farþegar okkar rómaðrar þjónustu fararstjóra Heims-
ferða allan tímann.
Sigurður Guðmundsson verður með fjölbreytta
skemmti- og íþróttadagskrá, leikfimi og kvöldvökur
til að tryggja það að þú fáir sem mest út úr fríinu.
Spennandi Gististaðir
dagskrá Heimsferða
• Leikfimi • Corona Blanca
• Kvöldvökur • Roque Nublo
• Kynnisferðir • Las Arenas
• Gönguferðir • Iguazu
• Spilakvöld • Paraiso Maspalomas
• Út að borða • Tanife
30 nætur
Verð kr.
68.190
19. apríl, m.v. 3 í íbúð, Tanife
frá kr.
72.490
19. apríl, m.v. 2 í íbúð, Tanife
• -
: ■1 'i ~~
Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600 • www.heimsferdir.is