Morgunblaðið - 10.03.1999, Side 12

Morgunblaðið - 10.03.1999, Side 12
12 MIÐVTKUDAGUR 10. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR 65 ár sfðan fyrst var dregið í Happdrætti Háskóla Islands "T Morgunblaðið INGIGERÐUR Jónsdóttir var 13 ára og Jónas K. Guðbrandsson var 7 ára þegar þau voru fengin til að draga í fyrsta útdrætti Happdrættis Háskóla Islands árið 1934. A myndinni er einnig happdrættisráð og starfsmenn HHI. Happdrættismiðinn kostaði 6 krónur ÞAÐ eru 65 ár síðan dregið var fyrst í Happdrætti Háskóla fs- lands, en þá voru tvö börn af barnaheimilinu Vorblóminu, þau Ingigerður Jónsdóttir, 13 ára, og Jónas K. Guðbrandsson, 7 ára, fengin til að draga. Fyrsti drátturinn fór fram árið 1934 á sviðinu í Iðnó, en þá kost- aði miðinn 6 krónur og hæsti vinningur í hverjum drætti var 10 þúsund krónur, en í desember var hann 50 þúsund. Ingigerður og Jónas sögðust muna nokkuð vel eftir þessum tíma. Ingigerður sagði að þau hefðu verið í þessu í heilt ár og að þau hefðu skipt með sér verkum því hún hefði dregið númerin en hann vinn- ingsupphæðina. Jónas sagði að eftir hvern drátt hefði þeim verið boðið á Hótel Borg þar sem þau fengu súkkulaði að drekka. Ingigerður, sem nú er 78 ára, sagðist hafa hætt í þessu stuttu eftir fermingu, en að hún hafi að mestu leyti fengist við sauma- skap síðan, auk þess að halda hcimili og ala upp börn. Hún vann hjá Vinnufatagerð íslands í rúm 20 ár, eða allt þar til verk- smiðjan hætti störfum. Jónas, sem nú er 72 ára, sagð- ist hafa hætt á svipuðum tíma og Ingigerður. Hann sagði að hann hefði gert margt síðan, en lengst af hafi hann unnið sem verkstjóri hjá Pípugerð Reykjavíkur. Morgunblaðið/Golli INGIGERÐUR, sem nú er 78 ára og Jónas, sem er 72 ára, sögðust muna vel eftir þeim tíma þegar Iðnó var troðfullt og þau stóðu á svið- inu fyrir framan mannfjöldann og drógu út númer og vinningsupp- hæðir í Happdrætti Háskóla íslands. Bjargráðasjóður styrk- ir eigendur húss sem veggjatítla eyðilagði Talið flokkast undir náttúru- hamfarir BJARGRÁÐASJÓÐUR hefur ákveðið að veita styrk til eigenda húss sem brennt var í Kapellu- hrauni um helgina á þeim forsend- um að það væri ónýtt af völdum veggjatítlna. Húsið stóð í Haí'nar- firði og uppgötvaðist tjónið, sem skordýrategund þessi hafði unnið, fyrir nokkru. Birgir Blöndal að- stoðarframkvæmdastjóri sjóðsins, segir hann ekki gefa upp einstaka styrki til tjónþola. Bjargráðasjóði er skipt í tvær deildir og er umrædd styrkveiting úr almennri deild sjóðsins, en hún bætir fyrst og fremst eignir sem ekki er hægt að tryggja á almenn- um markaði. „Það er túlkun frá fyrri tímum að bæta eigi tjón af völdum náttúruhamfara og við höf- um fordæmi fyrir því að tjónið sem þetta skordýr vann í Hafnarfirði teljist til náttúruhamfara í víðasta skilningi þess orðs,“ segir Birgir. Bjargráðasjóður fær tekjur frá sveitarfélögunum í landinu og eru tekjur almennu deildarinnar um 18 milljónir króna á ári, auk þess sem ríkið greiðir sjóðnum 15 milljónir á þessu ári. Búnaðardeildin, sem gi'eiðh' m.a. tjón á búfé og tjón af völdum kals í túnum, fær aðallega tekjur af gjaldi sem lagt er á sölu- vöru landbúnaðarins, en einnig lít- ilsháttar framlag frá sveitarfélög- unum. „Tekjur sjóðsins koma einnig af vöxtum af bundnum fjár- munum hans. Peningaeign sjóðsins í báðum deildum hans nemur um 200 milljónum króna,“ segir Birgir. Forseti Islands fer í opinbera heimsókn til Póllands Viðstaddur þegar NATO- fáninn er dreginn að húni Morgunblaðið/Rax Sýningin Lífsstíll ’99 í Laugardalshöll Áhersla á það sem gerir lífíð þægilegra UNDIRBÚNINGUR sýningarinn- ar Lífsstíll ’99 - glæsileiki og mun- aður, sem haldin verður í Laugar- dalshöllinni 28. til 30. maí næst- komandi, stendur nú yfir. A sýning- unni verður lögð áhersla á flest það sem gerir lífið þægilegra og skemmtilegra, hvort sem um er að ræða heimili fólks, tísku, útivist, tómstundir eða hvers konar afþrey- ingu. Vörusýningafyrirtækið Sýn- ingar ehf. stendur að sýningunni, en það er í eigu Samtaka iðnaðarins ogKOM ehf. I fréttatilkynningu segir að Lífs- stíll ’99 sé sýning fyrir þá, sem kunni að meta vandaða vöru og þjónustu. Með þetta að leiðarljósi verði settar upp margs konar sýn- ingardeildir sem endurspegli lífs- stfl, tíðaranda og lífsstílskröfur landsmanna. Lífsstíll ’99 sé vett- vangur fyrir verslanir og þjónustu- íyrirtæki sem vilji kynna vöru sína og þjónustu fyrir þeim vaxandi hópi Islendinga sem fylgist með því besta sem sé í boði á hverju sviði. Borgarstjóri kosinn formaður INGIBJÖRG Sélrún Gísladóttir borgarsljóri var kjörin formaður borgarráðs á fundi ráðsins í gær með fjórum atkvæðum meirihlut- ans eftir að Sigrún Magnúsdóttir, borgarfulltrúi Reykjavíkurlista, óskaði eftir að verða leyst frá störfum sem formaður. Á sama fundi tók Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks- ins, sæti í borgarráði og eru borg- arráðsfulltrúar þá sjö í stað fimm áður. Fund borgarráðs sátu meðal annarra þau Gunnar Eydal, skrif- stofustjóri borgarstjómar, borg- arstjóri, Inga Jóna Þórðardóttir, Sjálfstæðisflokki, Helgi Hjörvar, Reykjavíkurlista, og Sigrún Magnúsdóttir, Reykjavíkurlista. ÞRÍR íslendingar í viðskiptaerindum í París lentu í þeirri lífsreynslu um helgina að lenda í návígi við eldsvoða á hóteli sínu. Enginn þeirra hlaut brunasár og sluppu þeir allir út á götu að endingu. Einn mannanna, Gunnar Gíslason frá Akureyri, sagði í samtali við Morgunblaðið, að líklega megi telja að hann hafi lent í lífshættu þótt hann hafi ekki metið aðstæðurnar svo þeg- ar hann varð brunans var. Hann vaknaði við sírenuvæl aðfaranótt sunnudags og grunaði ekki að um væri að ræða brunaboð heldur taldi FORSETI íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, heldur til Varsjár í Pól- landi í dag, miðvikudag, en opinber heimsókn hans til Póllands hefst með formlegum hætti á morgun. í fylgdarliði forsetans eru m.a. Hall- dór Ásgrímsson utanríkisráðherra, forsetaritari, ráðuneytisstjóri utan- ríkisráðuneytisins og Dalla, dóttir forsetans. Akveðið hefur verið að Ólafur Ragnar verði sérstakur gestur við athöfn við pólsku for- setahöllina í Varsjá á föstudags- kvöld, þegar Pólverjar fagna inn- göngu sinni í NATO með því að draga NATO-fánann að húni. Pól- verjar hafa um langt árabil barist fyrir þessari inngöngu sinni í Atl- antshafsbandalagið. í ár verða auk Póllands, Tékk- neska lýðveldið og Ungverjaland gerð að fullgildum aðildarríkjum bandalagsins. Um fyrsta skrefið í stækkun bandalagsins er að ræða. Fjölbreytt dagskrá Forsetinn kemur ásamt dóttur sinni og forsetaritara frá París, en hávaðann frekar tengjast þjófavöm í bifreið úti á götu og lét sér viðvörun- arhljóðið því í léttu rúmi liggja. „Svo fann ég brunalyktina og fór út í glugga og sá þar margmenni fyrir neðan að góna upp. Þá uppgötvaði ég fyrst að það væri kviknað í hótelinu,“ hann mun í dag setja fund sjávar- útvegsráðherra FAO-ríkja í Róm. Opinbera heimsóknin hefst með formlegri móttökuathöfn í garði forsetahallar Póllands í fyrramálið, en þar verða þjóðsöngvar leiknir og heiðursvörður kannaður. I kjöl- farið hefst viðræðufundur Ólafs Ragnars og forseta Póllands, Aleksander Kwasniewski, og utan- ríkisráðherranna, Halldórs og Bronislaw Geremek. Meðan á þess- um fundum stendur hitta dóttir forsetans og makar þeirra sem era í fylgdarliðinu forsetafrú Póllands. Síðar um daginn mun forsetinn setja fund íslenskra og pólskra við- skiptaðila, ásamt því að skoða forn- frægan kastala í Varsjá og leggja blómsveig að leiði óþekkta her- mannsins. Þá verður efnt til vinnu- hádegisverðai' með forsætisráð- herra Póllands, Jerzy Buzek. For- setinn mun síðan taka þátt í um- ræðufundi með pólskum fræði- mönnum úr stjórnmálafræðideild háskólans um lýðræði, öryggi og efnahagslega framþróun í Evrópu sagði Gunnai'. Einn félaga hans, Kjartan Sveinsson, var þá þegai' kominn niður á götu og kallaði til Gunnars og sagði honum að kviknað væri í hótelinu. „Eg heyrði snarkið í eldinum hin- um megin við þilið og það var orðið nýiTa tíma. Forseti Póllands og kona hans munu síðan efna til há- tíðarkvöldverðar til heiðurs forseta Islands. Laxness-sýning skoðuð Á föstudag mun forsetinn meðal annars funda með forseta fulltrúa- deildar pólska þingsins og forseta öldungadeildar pólska þingsins, ásamt því að skoða farandsýningu um Halldór Laxness í bókmennta- safninu í Varsjá og skoða sýningar- bás Lýsis hf., þar sem lýsi og heilsuvörur eru kynntar Pólverj- um. Þá mun forsetinn verða sér- stakur gestur þegar fáni NATO er dreginn að húni við forsetahöllina. Á föstudagskvöld mun Ólafur Ragnar síðan efna til móttöku fyrir gestgjafa sína á Hótel Bristol. Halldór Ásgrímsson utanríkis- ráðherra mun í ferðinni m.a. funda með forsætisráðherra, fulltrúa Al- þjóðabankans, varahéraðsstjóra Gdansk og pólskum viðskiptaaðil- um, ásamt því að skoða skipa- smíðastöðina Nauta Shipyard. vel heitt inni í herberginu, en ég gerði mér enga grein fyrir því hvort þetta væri mikið bál eða bara reykur.“ Gunnar beið í 20 mínútur með höf- uðið út um gluggann þangað til reykkafarar komu á vettvang og not> aði tímann líka til að pakka farangri sínum niður í töskurnar. Reykkafai'- amir leiddu hann síðan í gegnum reykinn og niður á götu. Hann sá ekki handa sinna skil og hélt niðri í sér andanum á meðan hann óð reykinn með reykköfurunum, sem einnig björguðu félaga hans, Matthíasi Sturlusyni, sem var í öðru herbergi. „Heyrði snarkið í eldinum“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.