Morgunblaðið - 10.03.1999, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 10.03.1999, Blaðsíða 16
f- 16 MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Hættu áður en þú byrjar Grindavík - Hættu áður en þú byrjar - Viðvörun frá nokkrum sem lifðu af er yfirskrift verk- efnis sem kynnt var nemendum í 9. og 10. bekk og foreldrum þeirra á dögunum. Þetta verkefni er unnið í sam- vinnu lögreglunnar í Keflavík og Grindavík, Félagsmálastofnun- ar Grindavíkur og Marita for- varna- og hjálparstarfs. Nem- endur í 9. og 10. bekk fengu kynningu að morgni en um kvöldið var foreldrum þessa hóps boðið að mæta. Tæplega helmingur foreldra þeirra 70 nemenda sem eru á þessum aldri í Grindavík mættu og kynntust nýju forvarnastarfi enda samtökin, sem eru í farar- broddi, einungis með 6 mánaða starfstíma á Islandi. Jón Indriði Þórhallsson frá „Marita" sagði fundarmönnum frá þessum samtökum og rakti lítillega sögu þessa starfs og kom fram í máli hans að upp- runinn væri í Noregi og nú væru á Islandi 25-30 fíklar sem ynnu við þetta hjálparstarf. Lykilsetn- ingar eins og „hjálpaðu barninu þínu að hætta áður en það byrj- ar“ og „við viljum ræða við ykk- ur, þið verðið að ræða við bömin ykkar“ voru ræddar mjög á fundi í Grunnskóla Grindavíkur við almenna ánægju þess hóps foreldra sem mættu á fundinn. Morgunblaðið/Garðar Páll FUNDUR með foreldrum um fíkniefnavarnir. A Djúpavogi starfar kona sem sjúkraflutningamaður Morgunblaðið/Kristjana GILBERT Hrappur Eh'sson Iætur Ingibjörgu Kristjánsdóttur, hjúkrunarfræðing, mæla blóðþrýstinginn. Heilsugæslustöðin í Búðardal 20 ára Búðardal - í tilefni af 20 ára af- mæli Heilsugæslustöðvarinnar í Búðardal og 25 ára afmælis Heilsugæsluumdæmisins sem nær yfir Dalasýslu og A-Barða- strandasýslu var opið hús hjá Heilsugæslunni 26. febrúar sl. Gestum var boðið að skoða stöð- ina og ræða við starfsfólk. Heilsu- gæslan er vel búin flestum tækj- um sem völ er á í dag, ásamt tveimur sjúkrabílum sem eru mjög vel tækjum búnir. Heilsugæslan hefur verið lánsöm með starfskrafta gegnum árin. Þrír starfsmenn hafa unnið við stöðina frá byrjun, en það eru: Ingibjörg Kristjánsdóttir, hjúkrunarfræðing- ur, Garpsdal, Sonja Símonardóttir, ljósmóðir, Búðardal, og Víví Kristóberts, læknaritari, Búðardal. Þá hafa bílstjórarnir Baldvin Guð- mundsson og Kristján Bergjónsson starfað til margra ára á heilsu- gæslustöðinni. Tveir læknar starfa við stöðina, þeir Þórður Ingólfsson og Gísli Olafsson og hefur umdæm- ið alltaf verið mjög lánsamt með lækna. Fjölmennt var í stöðinni þennan dag, alls komu um 200 manns og boðið var upp á kaffiveitingar, frambornar af starfsstúlkum stöðv- arinnar, þeim Sigurbjörgu Jóns- dóttur og Elínborgu Eggertsdótt- ur. Margar árnaðaróskir bárust í til- efni dagsins, m.a. blómakarfa frá heilbrigðisráðherra, Ingibjörgu Pálmadóttur, blómskreyting frá Reykhólahrepp og blómvendir víða að. , Morgunblaðið/Árni Sæberg SIGRIÐUR Lyngberg Björnsdóttir starfar sem sjúkraflutningamaður á Djúpavogi, en hún er ein örfárra kvenna á landinu sem hafa þetta að atvinnu. Djúpivogur - Sigríður Lyngberg Björnsdóttir er ein af örfáum kon- um á landinu sem starfar sem sjúkraflutningamaður. Nokkur umræða hefur verið um stöðu kvenna innan slökkviliðsins í kjöl- far árangurs þeirra í inntökuprófi hjá Slökkviliðinu í Reykjavík, en engin þeirra sex kvenna sem tók þátt í prófinu var ráðin. I fréttum kom fram að ástæða fyrir þessu var lélegur árangur þeirra í þrek- og styrkleikaprófi. Sigríður hefur unnið sem sjúkraflutningamaður á Djúpa- vogi siðan árið 1991. Hún segist sjálf ekki hafa farið í inntökupróf þegar hún var ráðin, en hún telur að mikil eftirspurn eftir sjúkra- flutningamönnum á landsbyggð- inni skýri það að hluta til. „Uppliaflega fór ég út í þetta vegna þess að ég missti mömmu mína úr krabbameini og ég þurfti Ekki bara karlastarf að vinna úr þeim málum og hugs- aði því með mér að í sjúkraflutn- ingum gæfist mér möguleiki á að miðla einhverju af þeirri reynslu sem ég hafði öðlast,“ sagði Sigríð- ur. „Eg fór í þetta til að geta hjálpað samborgurum mínurn og það hefur hjálpað mér að vinna úr mínum málum.“ Konur geta kennt sjálfum sér um Sigríður sagði starfið oft á tíðum erfitt, en að það væri samt alls ekki bara karlastarf að keyra sjúkrabfl og lyfta sjúkra- börum. Hún sagði að konur gætu kennt sjálfum sér um að komast ekki í gegnum þrek- og styrkleikapróf, því þær skorti oft á tíðum sjálfstraust, þrótt og þor. „Eg er nú bara þannig að ég geri það sem ég ætla mér og ef ég get það ekki strax þá reyni ég bara síðar, en það segir mér eng- inn að ég geti ekki gert eitt- hvað,“ sagði Sigríður. Hún sagði jafnframt að ef hún gæti unnið þetta starf þá efaðist hún ekki um að aðrar konur gætu það líka. Hin 43 ára gamla mamma og amma vinnur ekki aðeins við sjúkraflutninga, heldur vinnur hún einnig í kaupfélaginu og að félagsmálum unglinga, þá er hún formaður skólanefndar, starfar fyrir Sjálfstæðisflokkinn og er stjórnarmaður í Atvinnuþróunar- félagi Austurlands. Búnaðarbanki íslands hf. Aðalfundur 1999 Súlnasal Hótel Sögu 10. mars kl. 14:00 Dagskrá fundarins: 1. Skýrsla bankaráðs um starfsemi bankans sl. starfsár 2. Ársreikningur fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðanda lagður fram 3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar á síðastliðnu reikningsári 4. Tillögur til breytinga á samþykktum 5. Kosning bankaráðs 6. Kosning endurskoðanda 7. Ákvörðun um þóknun til bankaráðsmanna 8. Stofnun menningarsjóðs og tillaga um framlag 9. Önnur mál ffi BÚNAÐARBANKIÍSLANDS HF - SSÚb-UMi '' ' " r ■nv --------OB
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.