Morgunblaðið - 10.03.1999, Side 18
18 MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
IMECALUX
retta-
rekkar
VIÐSKIPTI
Skin og skúrir hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hf. í fyrra
Góðir rekkar tryggja hámarksnýtingu á
dýrmætu plássi. Bjóðum allskonar
lager- og hillukerfi. Jafnt rúllurekka sem
innkeyrslurekka, jafnvel færanlega rekka.
Mjög gott verð!
Lyftitæki og trillur færðu einnig hjá okkur.
Lagerlausnir eru okkar sérgrein
MECALUX
- gæði fýrir gott verð
UMBOÐS- OG HEILD VERSL UN
Siraumur shf
SUNDABORG 7 • SlMI 568-3300
Tölvur og tækni á Netinu
mbl.is
\LLTAf= £!TTH\SA£> NYTT
SKIN og skúrir skiptust á í rekstri
Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna
hf. (SH) á síðastliðnu ári og var það
langt frá því að vera gott rekstrarár.
Góður rekstrarárangur móðurfélags-
ins á Islandi og nokkuð góður árang-
ur Coldwater í Bandaríkjunum náði
ekki að vega upp þau áfóll sem félag-
ið varð fyrir í Bretlandi, Rússlandi og
Sæmarki hf. Samkvasmt rekstrará-
ætlun fyrir yfirstandandi ár er gert
ráð fyrir viðunandi afkomu og tekist
hefur að snúa taprekstri við í Bret-
landi. Þetta kom fram í ræðu Jóns
Ingvarssonar, fráfarandi stjórnarfor-
manns SH, á aðalfundi félagsins í
gær.
Jón sagði að árið 1998 hefði um
margt verið sérstakt í því umhverfi
sem SH starfaði í. „í fyrsta lagi varð
stöðugt hækkandi verð á bolfiskaf-
urðum, sem olli alvarlegum erfiðleik-
um í rekstri fiskréttaverksmiðju fé-
lagsins í Bretlandi. í öðru lagi fór fé-
lagið ekki varhluta af þeim erfiðleik-
um, sem hlutust af efnahagshruninu í
Rússlandi á síðari hluta ársins, þar
sem mikið gengistap átti sér stað. I
þriðja lagi gekk rekstur Coldwater í
Bandaríkjunum nokkuð veþ þrátt
fyrir erfið rekstrarskilyrði. I fjórða
lagi gekk rekstur móðurfélagsins í
Reykjavík vel og í fimmta lagi gekk
sölustarfsemi félagsins með ágæt-
um.“
Góð frammistaða Coldwater
Jón gat þess að stöðugt hækkandi
fiskverð á heimamörkuðum hefði alla
jafna dekkri hliðar fyrir rekstur fisk-
réttaverksmiðja SH erlendis enda
væru aðfóng verksmiðjanna fyrst og
fremst fiskur, sem keyptur væri á
heimsmarkaðsverði. „Um 90% af eig-
in fé samstæðunnar er bundið í
rekstri tveggja fiskréttaverksmiðja í
Bandaríkjunum og Bretlandi og því
ríður á að rekstur þeirra gangi vel, ef
...JIIU
HÖNNUN / SMÍÐI / VIÐGERÐIR / ÞJÓNUSTA
= HÉÐINN =
SMIÐJA |
Stórási 6 »210 Garðabæ
sími 565 2921 • fax 565 2927
#
Aðalfundur
Olís 1999
Aðalfundur Olíuverzlunar íslands hf. vegna starfsársins
1998 verður haldinn í Sunnusal, Hótel Sögu,
fimmtudaginn 18. mars nk. og hefst kl. 16.00.
Dagskrá fundarins er þessi:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 13. gr. samþykkta
félagsins.
2. Breytingar á samþykktum.
3. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál,
sem löglega hafa verið upp borin.
Tillögur um breytingar á samþykktum og ársreikningur
félagsins ásamt skýrslu stjórnar og endurskoðenda mun
liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis,
7 dögum fyrir aðalfund.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent við
upphaf fundar.
II
Stjórn Olíuverzlunar íslands hf.
Gert ráð fyr-
ir viðunandi
afkoinu íár
unnt á að vera að skila arðsemi af
rekstri SH.“
Sagði Jón að Coldwater Seafood
Corporation 1 Bandaríkjunum hefði
tekist að skila hagnaði, þrátt fyrir
miklar verðhækkanir á fiski til verk-
smiðjunnar, sem teljast mætti viðun-
andi afkoma í ljósi erfiðra aðstæðna á
markaðnum vestra. Félaginu hefði
tekist einkar vel að koma hækkuðu
verði út í markaðinn og virtist sem
veitingahúsa- og mötuneytamarkað-
urinn hefði tekið betur við verðhækk-
unum heldur en smásöluverslunin
gerði, en sem kunnugt er hefur Cold-
water mjög sterka stöðu á veitinga-
húsamarkaðnum vestanhafs.
Tap í Bretlandi
Viðskiptavinir Coldwater Seafood í
Bretlandi eru hins vegar aðallega
stórar smásölukeðjur og sagði Jón að
mjög erfiðlega hefði gengið að koma
umræddum verðhækkunum út í
verðlagið þar. Stjórn fyrirtækisins
hefði komist að þeirri niðurstöðu að
af tvennu illu væri skynsamlegra að
freista þess að halda viðskiptavinum
félagsins enda þótt því fylgdi tap-
rekstur um sinn, heidur en að hækka
verðið óhóflega, missa viðskipti og
þurfa að kaupa þau aftur dýrum
dómum. „Fiskréttaverksmiðja fé-
lagsins í Bretlandi var þannig rekin
með miklu tapi á síðasta ári og er það
félaginu talsvert áfall... Tapið á
rekstri félagsins í Bretlandi var aðal-
lega um miðbik ársins og hafa síð-
ustu mánuðir verið taplausir og áætl-
anir fyrir þetta ár gera ráð fyrir við-
unandi rekstrarafkomu."
Hrun í Rússlandi
Jón lýsti endurkomu Sölumið-
stöðvarinnar á rússneska markaðinn
á síðasta ári en lagt var í verulegar
fjárfestingar í því skyni. Sagði hann
að rekstur og áform þar hefðu gengið
samkvæmt áætlun þar til efnahags-
hrunið skall á í ágúst sl. „Starfsmenn
félagsins hér heima og í Rússlandi
hafa gert allt sem nokkur kostur er
til að minnka þann skaða sem af
þessu hlaut að verða. Engu að síður
varð félagið fyrir umtalsverðu tapi,
fyrst og fremst gengistapi, en þar
hefur þó tekist að snúa rekstrinum
við. Er reksturinn þar nú í sæmilegu
jafnvægi, en augljóslega eru þai’
miklir óvissutímar og áætlanagerð
afar erfið.“
Jón sagði að SH hefði einnig orðið
fyrir talsverðu áfalli í rekstri Sæ-
marks hf. á árinu og hefði það valdið
fyrirtækinu erfiðleikum og miklum
vonbrigðum. „Þetta félag, sem eins
og kunnugt er stundar kaup og sölu
af ýmsum framleiðendum, sem ekki
eru með samninga við SH, lenti í
veralegri tapsáhættu vegna óvar-
legra útlána. Stofnað var til
ótryggðra viðskipta án heimilda og
er ekki enn séð fyrir endann á þeim
vanda en unnið er að því að greiða úr
honum eftir fóngum. Lagt hefur ver-
ið til hliðar fjánnagn til að mæta
þessum áfóllum og er rekstur félags-
ins nú kominn á fullan skidð að nýju.“
Betri hagur framleiðenda
Starfsemi SH gekk að öðra leyti
vel á árinu, starf söluskrifstofanna í
Þýskalandi, Frakklandi, Japan og
Spáni hefði t.d. gengið að mestu sam-
kvæmt áætlun. „Sölustarfið fyrii’
framleiðendur og þjónustan við þá
gekk vel og eins og ég nefndi áðan
var verðlag hátt og sala góð. Birgða-
söfnun var lítil og hagur ft-amleið-
enda vænkaðist vegna batnandi ytri
skilyi’ða.“
Stefnan í sífelldri endurskoðun
Jón sagði að félag eins og SH væri
og ætti að vera í sífelldri endurskoð-
un. „Þetta 57 ára gamla en síunga fé-
lag hefui’ gengið í gegnum miklai’
breytingar á tiltölulega fáum árum.
SH var breytt í hlutafélag íyrir
tveimur árum og markaði hluthafa-
fundur og stjóm félagsins þá stefnu,
að í upphafi skyldi stefna og starf-
semi félagsins verða með mjög svip-
uðu sniði og það hafði áður verið.
Gerð var ítarleg og skýr krafa til arð-
semi eigin fjár félagsins um leið og í
engu skyldi slakað í þjónustu við
framleiðendur.
Ýmsir hafa gagmýnt að félagið
skuli ekki hafa tekið enn hraðai’i
breytingum en raun ber vitni. Um
það vil ég segja, að ég tel mjög mikils
um vert, að um þær breytingar, sem
gerðar hafa verið á þeim tíma, sem
ég hef gegnt stjórnarformennsku í
félaginu, hefur náðst víðtæk sam-
staða. Enda þótt litið hafi svo út að
þær kynnu að verða félaginu dýrar,
hefur tekist að ná um þær sátt að
lokum. Það tel ég að hafi verið og sé
félaginu mikill styrkur,“ sagði Jón.
Skeljungur skilar 242 m.kr. hagnaði
Hreinar rekstrartekj
urjukust um 15%
HAGNAÐUR Skeljungs hf. árið
1998 nam 242 milljónum króna en
var 74 milljónir króna árið á undan.
Hagnaður af reglulegri starfsemi
nam 133 milljónum króna saman-
borið við 72 milljónir árið á undan.
Skuldir félagsins lækkuðu á árinu
um tæpar 470 milljónir. Heildartekj-
ur hlutafélagsins á síðasta ári námu
8.359 m.kr. sem skilaði félaginu
2.317 milljónum í hreinar rekstrar-
tekjur. Árið 1997 námu heildartekj-
ur 8.346 m.kr. og voru hreinar
rekstrartekjur þá 2.008 m.kr. Vöra-
sala félagsins dróst saman um 1% á
milli ára, en hún nam 8.012 milljón-
um króna á síðasta ári samanborið
við 8.072 milljónir árið á undan. Af-
skriftir félagsins jukust frá fyrra ári
og námu 293 m.kr sem er 22%
hækkun miðað við árið áður.
Eigið fé í árslok 1998 var samtals
3.094 milljónir og hafði hækkað um
243 milljónir miðað við sama tíma
árið áður. Eiginfjárhlutfall í árslok
1998 var 47,1% samanborið við 42% í
árslok 1997 og arðsemi eiginfjár var
8,5% á síðasta ári samanborið við
2,6% árið 1997. Á síðasta ári seldi fé-
lagið hlutabréf í öðram félögum fyi’-
ir 212 m.kr. samtímis því sem keypt
voru ný hlutabréf fyrir 182 m.kr., að
því er fram kemur í fréttatilkynn-
ingu. Heildareignir félagsins í árslok
námu 6.568 milljónum. Fjárfesting í
varanlegum rekstrarfjármunum
nam 269 milljónum ki’óna árið 1998
en var 627 milljónir árið 1997.
Stjórn Skeljungs mun leggja til að
hluthöfum verði greiddur 9% arður
á aðalfundi félagsins þann 23. mars
næstkomandi.
Æ\ Skeljungur hf. Úr ársreikningi 1998 jan.-des. jan.-des.
Rekstur Milljónir króna 1998 1997 Breyting
Rekstrartekjur 8.359 8.346 0,2%
Kostnaðarverð seldra vara (6.043) (6.339) -4.7%
Hreinar rekstrartekjur 2.317 2.008 15,4%
Rekstrargjöld án afskr. 1.733 1.557 11.3%
Hagnaður fyrir afskriftir 584 451 29,5%
Afskriftir (293) (240) 22.1%
Hagnaður fyrir fjármagnsgj. 290 210 38,1%
Hrein fjármagnsgjöld (92) (113) -18,6%
Tekju- og eignaskattar (66) (25) 164,0%
Hagnaður af reglulegri starfsemi 133 72 84,7%
Aðrar tekjur og gjöld 110 2 5400.0%
Hagnaður tímabilsins 242 74 227.0%
■
Efnahagur Milljónir króna 31/12 '98 31/12 '97 Breyting
Eigið fé 3.094 2.851 8,5%
Sjóðstreymi 1/1 - 31/12 1998 1997
Veltufé frá rekstri Milljónir króna 503 319 57,7%
Kennitölur 30/6 '98 31/12 '97
Eiginfjárhlutfall 47,1% 42,0%
Veltufjárhlutfail 1,73 1,58
Kristinn Björnsson, forstjóri
Skeljungs, segist á heildina litið
nokkuð sáttur við afkomu ársins
1998. Hann bendir á að stefnumörk-
un sú sem mótuð var í fyrra um að
greiða niður skuldir, fara rólega í
fjárfestingar og ná betri tökum á
útistandandi lánum, hafi skilað til-
ætluðum árangri. „Við vonumst auð-
vitað til þess að geta aukið hagræði