Morgunblaðið - 10.03.1999, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1999 21
ERLENT
Reuters
HJÓNIN Agnes og Patrice Gaudin ræða við fréttamenn fyrir utan dómshúsið í París. Tvö börn þeirra smit-
uðust af alnæmi eftir að hafa verið gefið óskimað blóð.
Franski Lýðveldisdómstóllinn hefur kveðið upp
urskurð í „Blóðhneykslinu“
Sýknudómi yfír sak-
borningum mótmælt
París. Reuters.
FRANSKUR dómstóll sýknaði í
gær Laurent Fabius, fyrrverandi
forsætisráðherra, og einn meðráð-
herra hans á sínum tíma af allri sök
í „Blóðhneykslinu", sem svo hefur
verið kallað. Sá þriðji fékk skilorðs-
bundinn dóm íyi-ir manndráp af gá-
leysi. Fórnarlömbin, fólkið, sem
sýktist af alnæmissmituðu blóði á
árunum 1984-’85, mótmælti niður-
stöðu dómstólsins harðlega.
Fabius, núverandi forseti
franska þingsins, og Georgina Du-
foix, fyiTverandi félagsmálaráð-
herra, voru sýknuð í þessu máli en
Edmond Herve, fyri-verandi að-
stoðarráðherra í heilbrigðisráðu-
neytinu, fékk skilorðsbundinn dóm
fyrir manndráp af gáleysi. Sagði í
dómsniðurstöðunni, að dómurinn
væri ekki harðari vegna þess, að
hann hefði þjáðst nóg í þau fimm
ár, sem rannsóknin hefur staðið.
Um 1.000 látnir
Talið er, að allt að 3.600 manns
hafi smitast af alnæmi við blóðgjöf
á fyrrnefndu tímabili og af þeim
eru a.m.k. 1.000 látnir. Héldu tals-
menn þeirra því fram, að stjórn-
völd hefðu vitað um hættuna á al-
næmissmiti án þess að grípa nógu
snemma í taumana.
Fólk, sem smitaðist með þessum
hætti, var fjölmennt við dómsupp-
kvaðninguna í gær og reiddist
mjög niðurstöðunni. „Morðingjar,
morðingjar," hrópuðu sumir og
Sylvie Rouy, alnæmissjúklingur,
sem bundinn er við hjólastól, sagði,
að stjórnmálamenn væni eins og
glæpamenn: „Ef þeir eru ekki
staðnir að verki, er ekki unnt að
koma lögum yfír þá,“ sagði hún.
Dómstóllinn, sem dæmdi í málinu,
er svokallaður Lýðveldisdómstóll,
skipaður dómurum og stjórnmála-
mönnum og aðeins kallaður saman
til að dæma í málum háttsettra
embættismanna.
Francois Honorat, lögfræðingur
alnæmissjúklinganna, sagði, að
niðurstaðan væri „fáránleg" og
sakaði hann dómstólinn um að hafa
hagrætt ýmsu í málaferlunum til
að geta komist að henni.
„Með þessi vinnubrögð í huga
hefði átt að sýkna Maurice Papon,“
sagði Honorat og átti þá við einn
meðreiðarsveina nasista á stríðsár-
unum en hann var dæmdur fyrir
glæpi gegn mannkyni á síðasta ári.
Hver er ábyrgð ráðherra?
Þetta mál er líka merkilegt fyrir
þá sök, að nú í fyrsta sinn var um
það spurt hvort fyrrverandi ráð-
herrar, sem í Frakklandi eru oft
taldir tilheyra hinni „ósnertanlegu"
stétt pólitíkusa, beri ábyrgð á að-
gerðaleysi undirmanna sinna. Tals-
menn alnæmissjúklinganna héldu
því fram, að Fabius hefði tafíð fyrir
því, að blóðskimun væri tekin upp
með því að bíða eftir því að frönsk
fyrirtæki þróuðu aðferðina en þá
var hún þegar komin í gagnið í
Bandaríkjunum. Dómstóllinn úr-
skurðaði hins vegar, að hann hefði
þvert á móti flýtt fyrir því, að heil-
brigðiskerfið tæki á vandanum.
Hafði liðið nóg
Dufoix var sýknuð með þeim
rökum, að hún hefði falið undir-
manni sínum, Hervé, þetta mál en
hann var sakfelldur fyrir að hafa
ekki látið eyða óskimuðu blóði, sem
var notað á sjúkrahúsum mánuðum
saman eftir að áhættan var orðin
ljós. Hann fékk þó aðeins skilorðs-
bundinn dóm vegna þess, að dóm-
stólnum fannst hann hafa liðið nóg.
Allir sakborningarnir þrír héldu
því fram, að þeir væni saklausir
vegna þess, að þeir hefðu látið
þetta mál í hendur undirmanna
sinna og ekki vitað á þessum tíma
hvað alnæmi væri hættulegt.
Breskir fjölmiðlar fylgjast grannt
með heimsókn Monicu Lewinsky
Telur niðurlæg-
ingu sína meiri en
Hillary Clinton
London. The Daily Telegraph.
MONICA Lewinsky telur að
hún hafi borið meiri skaða en
Hillai-y Clinton, eiginkona
Bills Clintons Bandaríkjafor-
seta, af orrahríð
undanfarins árs
vegna sambands
hennar við Clint-
on. Sambandið
varð næstum til
þess að valdamesti
maður heims
hrökklaðist úr
embætti en við
rannsókn málsins
neyddist Lewinsky
til að greina afar
nákvæmlega frá
einkalífi sínu.
„Þetta var miklu
meiri niðurlæging
fyrir mig en fyrir
frú Clinton,“ segir
Lewinsky í samtali
við The Daily Telegraph.
Lewinsky var á forsíðum
flestra bresku blaðanna í gær
eftir að hún brast í grát
vegna ágangs fréttamanna og
blaðaljósmyndara í Harrods-
versluninni í London í fyrra-
dag. Lewinsky var þangað
komin til að árita bókina
Monica’s Story en varð frá að
hverfa vegna aðgangshörku
fjölmiðlafólksins. Hún sneri
hins vegar aftur íjörutíu og
fimm minútum síðar og sló
met sem Margaret Thatcher,
fyrrverandi forsætisráðherra
Bretlands, átti áður í Har-
rods-versluninni. Aritaði
Lewinsky alls 1.150 eintök af
bók sinni fyrir viðskiptavini
sem sumir höfðu beðið frá því
eldsnemma um morguninn.
Lewinsky er nú á ferðalagi
um Evrópu til að kynna bók
sína, sem Bretinn Andrew
Mortons skrifaði, og mun
koma við í nítján bókabúðum
á næstu þremur vikum til að
árita bókina. Harrods var
hennar fyrsti viðkomustaður
en Lewinsky mun þurfa að
þola ágang fjölmiðlafólks, líkt
og þann sem hún mátti þola í
Harrods, næstu þrjár vikurn-
ar, ef ekki það sein eftir er.
Líkir sér við Díönu
Andrew Morton ritaði áður
umdeilda bók um Díönu
prinsessu af Wales og í viðtali
við breska dagblaðið The
Daily Telegraph, sem tekið
var áður en Lewinsky lagði af
stað í kynningarförina til Evr-
ópu, likir hún
stöðu sinni við þá
er Díana lenti í.
„Ég var einnig
svikin af manni
sem sagðist elska
mig,“ segir
Lewinsky.
Blaðamaður
The Daily Tel-
egraph, sem tók
viðtalið, fer held-
ur ófögrum orðum
um Lewinsky, seg-
ir hana virka
grunnhyggna og
hégómagjaraa og
gefur í skyn að
hún sé afar kát yf-
ir þeirri athygli
sem fjöimiðlar hafa sýnt
henni undanfarna daga, þrátt
fyrir staðhæfíngar um að hið
gagnstæða. Segist hann ekki
viss um að Lewinsky takist að
veija mannorð sitt með þeim
aðferðum sem hún hefur beitt
en í bók sinni greinir hún ná-
kvæmlega frá ýmsum per-
sónulegum málum.
Kveðst Lewinsky einmitt
hafa óttast að bók Mortons
yrði of bersögul. „Við
Andrew deildum hvað eftir
annað um þetta atriði. Ég
vildi sleppa því að segja frá
sumum hlutuin en hann sagði
alltaf: „Monica, þetta atriði
verður að vera í bókinni. Hún
verður að vera nákvæm.“
Lýsir hún þó mikilli ánægju
með afraksturinn, og ekki síð-
ur hversu vel bókin hefur
selst.
Lewinsky telur að umheim-
urinn hafi frekar kennt sér en
Clinton um hneykslið, sem
varð er komst upp um sam-
band hennar við forsetann.
„Það var hann sem var maka
sínum ótrúr, ekki ég. Ég
sveik ekki konu hans og dótt-
ur. Það var ekki ég sem stóð
frammi fyrir Guði almáttug-
um og hét því að elska, virða
og lialda í heiðri maka minn.
Hann á mun meiri sök á þeim
sársauka sein Chelsea og frú
Clinton hafa mátt þola heldur
en ég.“
Reuters
MONICA með
bókina sína.
rVfíSúlHJÓL
SPINNING- 0G ÞREKHJÓL í mörgum gerðum ásamt mesta úrvali
landsins af allskyns þrek- og æfingatækjum. Aðeins topp-merki.
ÞREKHJÓL 105p
Þrekhjól sem kemur þér í gott form.
Polar-púlsmælir, stöðugt ástig,
kasthjól, fullkominn tölvumælir.
Stgr. 41.798
kr. 43.998
Stærð: L. 115 x br. 61 xh. 110
V/SA
—
RAÐGREIÐSLUR
ÖRNINNP*
STOFNAÐ1925
- ÞREKTÆKJADEILD -
Skeifan 11, sími 588-9890