Morgunblaðið - 10.03.1999, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 10.03.1999, Qupperneq 24
24 MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ t ICELAND Tríó: Sig’urður Bjarki Gunnarsson, Sigurbjörn Bernharðsson og Nína Margrét Grímsdóttir. Góður rómur gerður að leik Iceland Trio ICELAND Trio hélt tónleika fyr- ir fullu húsi í sendiherrabústað íslendinga í Washington föstu- daginn 26. febrúar sl. Iceland Trio skipa þau Nína Margrét Grímsdóttir, píanó, Sig- urbjörn Bernharðsson, fiðla, og Sigurður Bjarki Gunnarsson, selló. Leikin voru kammersveit- arverk eftir Þorkel Sigurbjörns- son, Sjostakovitch og Brahms. Á meðal gesta voru forstöðu- menn National Gallery, Woodrow Wilson Institute, Keit.h Olson, formaður Scandinavian Americ- an Society, listamenn og tónlist- argagnrýnendur. I hléi voru bomar fram veitingar, íslenzk síld á rúgbrauði, lax, rækjur og loks pönnukökur. Undirtektir vom góðar og var listamönnum fagnað ákaft. Að lokum léku þau eitt lag eftir Sig- fús Einarsson. Skjaldbakan á sviði í New York LEIKRIT eftir Árna Ibsen, Skjald- bakan kemst þangað líka, var á fjöl- unum í New York í upphafi ársins. Það var leikflokkur er nefnir sig The Luminous Group sem valdi verkið úr 150 leikritum víðs vegar að úr ver- öldinni og sýndi það síðan 10 sinnum í Grove Street Playhouse, litlu en þekktu leikhúsi utan Broadway. Kristina O’Neal, stjómandi hóps- ins, sagði í samtali við Morgunblaðið að leikritið hefði verið sett upp sem kynningarsýning, ShowCase, og þannig orðið að lúta ákveðnum regl- um sem samtök leikara og höfunda setja um slíkar uppfærslur. „Þetta þýðir að heildarkostnaður við upp- færsluna má ekki fara yfir tuttugu þúsund dollara og öllum sem koma að sýningunni eru tryggð laun fyrir vinnu sína. Aðeins má sýna í tvær vik- ur og þess vegna gátum við ekki sýnt oftar en 10 sinnum. Verkið vakti tölu- verða athygli og margir lýstu áhuga sínum að kynnast þessu leikskáldi frá íslandi betur. Efni Skjaldbökunnar höfðaði til áhorfenda okkar, en það fjallar um tvö bandarísk ljóðskáld, William Carlos Williams og Ezra Pound. Margir voru hissa á því að ís- lenskur leikritahöfundur skyldi velja að skrifa leikrit um þá tvo.“ Að sögn Kristinu O’Neal er í und- irbúningi að sviðsetja á vegum hóps- ins annað verk eftir Árna Ibsen, Að eilífu, sem Leikfélag Hafnarfjarðar frumflutti fyrir tveimur árum. „Þetta leikrit hitti okkur hér í New York beint hjartastað. Þarna er ver- ið að lýsa á bráðskemmtilegan hátt öllu tilstandinu og fyrirhöfninni í kringum giftingar og skilnaði. Hér eru allir ýmist að giftast eða skilja eða giftast í annað eða þriðja sinn. Hvernig er það hjá ykkur á Islandi? Er Árni Ibsen að lýsa ykkar raun- veruleika líka?“ spurði Kristina O’Neal stjómandi Luminous leik- hópsins í New York. Aðspurð um hvaða möguleikar fælust í þessu fyrir höfundinn sagði Kristina O’Neal að svona sýningar vektu ávallt athygli og möguleikinn væri alltaf fyrir hendi að einhver að- ili fengi áhuga á sviðsetja verk eftir höfundinn sem um væri að ræða. „Það er mjög sjaldgæft að sýningar séu keyptar eða fluttar í stærra leik- hús eins og þær koma fyrir. Til þess er ekki nógu mikið í þær lagt í upp- hafi. Það er miklu líklegra að sýning- in kveiki löngun annarra til að kynna sér höfundinn og verk hans betur,“ sagði Kristina O’Neal. LISTIR | Sagnakennd málverk MYJVPLIST Gallerí Fuld MÁLVERK ÓMAR STEFÁNSSON Opið-18. Sýningin stendur til 14. mars. GALLERÍ Fold sýnir myndlist af ýmsu tagi og nú má þar sjá sýn- ingu á málverkum eftir Ómar Stef- ánsson. Ómar hefur verið iðinn við að mála upp á síðkastið, eins og hér má sjá, en hann hefur gegnum árin sinnt ýmiss konar annarri listsköp- un þótt hann hafi aldrei sagt alveg skilið við málverkið. Greinilegt er að nokkur umskipti eru nú að eiga sér stað í verkum hans og í verkun- um má sjá að hann vinnur nú af miklu öryggi við strigann. Ómar hefur ætíð verið nokkuð sér á báti meðal íslenskra málara og óhætt er að segja að verk hans hafi alltaf borið sterk einstak- lingseinkenni. Rætur þessara verka liggja víða, enda hefur Ómar einnig fengist við gjörningalist, teiknimyndasögur og sviðsetningu með tónlistarflutningi, svo fátt eitt sé nefnt. Málverk hans eru gjaman sagnakenndari en myndir annarra jafnaldra hans og endurspegla gjaman sterkan áhuga hans á goð- sögnum, galdri og frumspeki. En þrátt fyrir að víða bregði fyrir minnum úr slíkum fræðum eru myndimar alltaf líka húmorískar í káldhæðnislegum ádeilustíl sem skilar sér einkum vel í stíl sem minnir sterkt á teiknimyndasög- una. Húmor af þessu tagi má til dæmis finna á sýningunni í mynd- unum „Áhyggjukórinn“ og „Víns- mökkun á Melrakkasléttu“ en hann má reyndar greina í nær öllum myndum Ómars ef vel er gáð. í sumum myndum á sýningunni sést að vinnubrögð og viðfangsefni Ómars era að taka nokkram breyt- ingum. Þar er um að ræða myndir sem jafnvel virðast farnar að nálg- ast eins konar afstrakt náttúrusýn. Þar má nefna myndimar „Skipulag náttúrunnar" og „Tröll að baða sig“, og ekki síst stóra og áhrifa- mikla mynd sem ber titilinn „Brjál- semis Baula“. Ekki svo að skilja að hér sé Ómar beinlínis að söðla um eða hverfa aftur í einhverja eldri hefð; höfundareinkenni hans er ekki síður greinilegt í þessum myndum en hinum og þær era greinilega sprottnar upp úr hans eigin stíl og hugsun - þróast beint upp úr starfi hans sjálfs. Með þess- um myndum sést að Ómar hefur góð tök á hinum malerískari hlið- um ekki síður en á teikningunni, sem gjarnan hefur gegnt höfuð- hlutverki í verkum hans. Á sýningunni í Fold era tuttugu og sjö verk sem tengja vel hinar mismunandi tilhneigingar í mál- verkavinnu Ómars. Flest verkin era sjálfstæð og tengjast fyrst og fremst af stíl og framsetningu, en sex málverkanna mynda þó eins konar heild og era hengd upp sam- an undir yfirski-iftinni „Falsanir l-6“. Þessar myndir era unnar í anda gamalla meistara og signerað- ar „Melge“. Þar mun kominn alter ego Ómars, Japhet Melge, sem jafn- framt hefur (kannski) skrifað grein- ar um grasafræði og fleira sem liggja frammi í sýningarsalnum. Hér, eins og svo oft í verkum Ómars, fer saman húmor og beitt ádeila. Ómar hefur sýnt víða síðan hann lauk námi frá Listaháskólanum í Berlín og reyndar fyrir þann tíma, allt frá því hann var við nám í ný- listadeild Myndlista- og handíða- skólans. Hann hefur haldið ellefu einkasýningar auk fjölbreyttra myndlistarstarfa á öðrum vettvangi. Þetta er þó beittasta málverkasýn- ing hans um nokkurt skeið og til vitnis um ný og voldug tök á þess w sviði. Án þess að framlag hans á öðram sviðum sé rýrt sannast hér að málverkið er miðill sem Ómar ætti ekki að vanrækja því hann get- ur þar unnið einstök og áhrifamikil verk. Jón Proppé Það er alltaf gaman að prófa nýjar og framandi drykkjartegundir. Celestial Seasonings býður upp á fjölbreytilegar tegundir af tei sem eru jafn ólíkar og þær eru margar. í þeim fjölskrúðuga hópi er að finna nokkrar skemmtilegar og ferskar tegundir ávaxta- og kryddtes. Þetta te er tilvalið fyrir alla nýjungagjarna sælkera og kemur /py.F.STI AI. skemmtilega á óvart við hvaða tækifæri sem er. §EÁSONING§, m w : j-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.