Morgunblaðið - 10.03.1999, Síða 39

Morgunblaðið - 10.03.1999, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1999 39 + Magnús Þor- leifsson fæddist á Karlsskála í Helgustaðahreppi í S-Múlasýslu hinn 19. september 1914. Hann lést á Sjúkra- húsi Reykjavíkur 19. febrúar síðast- liðinn og fór útför hans fram frá Dóm- kirkjunni 2. mars. Magnús Þorleifsson var tímalaus. Þannig var hann. Þannig fannst mér að hann ætti að vera. Þess vegna eru það svik af hálfu almættisins að taka hann í burtu frá okkur. Nú er hann horfinn - og með honum ákveðið „stabílitet“ sem gerði tilveruna eðli- legri, áþreifanlegri, skynsamlegri. Hann Maggi var alltaf til staðar. Alltaf þar sem hann átti að vera. Það er sama hvort ég rifja upp löngu liðna tíma eða velti vöngum um nýliðna atburði, Maggi er alltaf nærri. Hann fæddist fyrir austan, hann Maggi. Það er hægt að segja að hann hafi komið í heiminn í túnfæt- inum á Karlsskála við Reyðarfjörð, þar sem langamma mín og langafi bjuggu. Seinna meir bættist hann svo að segja óvart í hóp bama sr. Olafs, afa míns, og Steinunnar konu hans frá Karlsskála. Með Magga taldi hópurinn tólf. Magnús, föðurbróðir minn, gekk honum síðar í föðurstað og kenndi honum að lesa og skrifa og bera virðingu íyrir umhverfi sínu, fyrir hestum og hundum. Þeir töluðu ekki mikið Magnúsamir, en þeir skildu hvor annan. Það var mikils- verðast. Stærðfræðin bættist við í Há- skóla Islands. Þar nam Maggi við- skiptafræði, bjó heima hjá foreldr- um mínum og þráttaði við föður minn og heimilsvin okkar, Þor- varð Sölvason kaup- mann, um pólitík. Stjómmálaþras var þeim dægrastytting sem átti sér engan enda. I raun og veru þráttuðu þeir um allt á milli himins og jarðar. Þeir þráttuðu til þess að þrátta. Þetta var fyrir daga sjónvarps- ins! Maggi kvæntist Idu Sigríði, dóttur Áslaug- ar móðursystur minnar, sem einnig var uppeldissystir móður minnar og móðursystra. Þau bjuggu á Gmnd- arstíg í húsi móðurafa míns og ömmu. Þar söng hann fjárlögin með Geira Jóns Þórarinssonar fræðslu- málastjóra og glúntana með föður mínum. Söngur og sönglög vom hans yndi. Þessar fáu línur hér að ofan sýna væntanlega hve náinn skyldleiki var með okkur Magga, skyldleiki sem ekki fór eftir neinum ættfræðiregl- um. Þessi skyldleiki byggðist á fjöl- skylduböndum, sem ætíð hafa verið flestum böndum sterkari. Maggi var líka sannur vinur, sem gerði samvistir við hann einlægari og nú verðmætari. Hann Maggi var þess vegna nán- asta skyldmenni mitt í orðsins tær- ustu merkingu. Allt frá því að ég man eftir mér var Maggi einhvers staðar í nágrenni mínu. Hann var og verður ávallt skammt undan. Annað virðist mér óhugsandi. Fyrstu endurminningar mínar era um þýskar herflugvélar á stríðsámnum. Þær flugu könnunar- flug yfir Hljómskálagarðinn á sunnudagsmorgnum og hurfu svo í áttina að Skerjafirðinum. Þessar ógnvekjandi flugferðir urðu til þess að ungur piltur á þríhljóli fleygði sér af hjólinu og reyndi að fela sig á bak við „stakketið" hjá Bh’ni Þórð- arsyni, lögmanni, úti á horni. Maggi Þorleifs bauð þýska luftvaffinu byrginn. Hann óð út Bjarkargötuna með ýlfrandi loftvamaflautugaul fyrir eymnum og bjargaði vini sín- um og hjólinu hans frá ímyndaðri tortímingu! Maggi gat allt. Þegar norðanáttin blés sem mest á gömlu Tjamarbrúnni, fylgdi Maggi mér í Miðbæjarskólann. Þótt hann væri sjálfur ekki hávaxinn maður, veitti hann mér skjól í næð- ingnum. Stundum áttum við samleið með fröken Ragnheiði, skólastýru Kvennaskólans. Hún spurði okkur alltaf hvort við væmm ekki ábyggi- lega í síðum nærbuxum! Þvílík af- skiptasemi hjá bláókunnugri konu! Seinna meir stóð hann með mér í baráttunni við bókfærsluna í Verzl- unarskólanum. Maggi kunni skil á debit og kredit. Hann gat því fylgt mér um völundarhús skólabók- færslunnar og séð til þess að ég álp- aðist ekki inn í blindgötur þegar kom að uppgjöri ársreikninga hjá Þorsteini Bjamason, bókara og bókfærslukennara. Maggi var með færslurnar á hreinu, bæði hjá skóla- stráknum og í alvöranni. Hornafjörður stóð nærri hjarta hans. Árin í Bjarnanesi vora honum kær. Þar gerðust ótrúlegustu hlutir. Fyrsta raflýsing sveitarinnar, hestamennska sem átti sér fáa líka, afdrifaríkar nágrannakrytur, - og blessuð blíðan. í gamla daga var aldrei slæmt veðui’ í Bjamanesi. Það er til dæmis hægt að sanna með því að líta á málverkin, sem Maggi átti uppi á vegg í stofunni þeirra ídu; - falleg sveit í ótrálega góðu veðri. Það er óskaplega erfitt að sætta sig við að Magnús Þorleifsson sé ekki lengur með okkur. Hann var svo ríkur þáttur í uppvexti mínum og uppeldi. Maggi var ekki síður hluti af fullorðinsáram mínum, góð- ur vinur og traustur. Tilveran verður fátæklegri án hans. Ólafur Stephensen. MAGNÚS ÞORLEIFSSON + Kristín Katrín Gunnlaugsdótt- ir fæddist í Stokk- hólmi 24. júní 1945. Hún andaðist á heimili sínu 28. febrúar siðastliðinn og fór útför hennar fram frá Dómkirkj- unni 5. mars. Skoðaðu hug þinn vel, þegar þú ert glað- ur, og þú munt sjá, að aðeins það, sem valdið hefur hryggð þinni, gerir þig glaðan. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aft- ur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess sem var gleði þín. (Kahlil Gibran.) Þessi orð lagði hið heimsþekkta skáld Spámanni sínum í munn í samnefndri ljóðabók er Spámaður- inn var að tala um gleðina og sorg- ina. Orð þessi eiga afar vel við, nú á þeirri sáru og alls ótímabæru stundu er ég kveð í þessum heimi hana Krissí, mína nánu vinkonu. Hvorki mölur né ryð hefði nokkru sinni getað grandað okkar vináttu. Krissí var einstök kona. Persónu- leikinn var heilsteyptur, sterkm’ en hlýi1. Allt fas og viðmót heillandi þannig að hvar sem þessi glæsilega kona fór var ósjálfrátt tekið eftir henni. Persónutöfrarnir eða útgeisl- unin sindruðu hreinlega af henni Rrissí. Vinátta okkar Krissíar hefur staðið með miklum sóma og ágæt- um í yfir þrjátíu ár en ég átti því láni að fagna að kynnast henni um borð í Lofteiðaflugvél á leið til kóngsins Kaupmannahafnar. Við vora þá báðar ungar flugfreyjur í starfi hjá spennandi og kraftmiklu fyrirtæki sem óx og dafnaði með hverju árinu. Síðan leiðir okkar Krissíar lágu saman á loftsins vegum hefur þær aldrei skilið. Lífið lék við okkur. Báðar sinntum við húsmóður- hlutverkinu og því ánægjulega og gjöfula hlutskipti að koma ungum börnum okkar til manns. Okkur þótti yndislegt að sjá blessuð börnin vaxa úr grasi og dafna. Við Krissí megum vera for- sjóninni þakklátar fyr- ir það barnalán sem við okkur hefur leikið. Síð- ar á lífsleiðinni settumst við vinkon- urnar saman á skólabekk til að búa okkur undir að halda galvaskar aft- ur út á vinnumarkaðmn. Ferðalögin okkar hér heima og erlendis vora fastur punktur í tilverunni og góð upplyfting frá hinu daglega amstri og það er margs að minnast frá þeim ánægjutímum. Skíðaferðir í Kerlingarfjöll, gönguferðir með leikfimihópnum okkar TBK eða bara gönguferð niður Laugaveginn til að skoða úrvalið í verslunar- gluggum. Það var einfaldlega alltaf gaman að vera með Krissí og skiptu hvorki staður né stund þá neinu máli. í einkalífi sínu var Krissí ham- ingjusöm kona. Eftirlifandi manni sínum, honum Linda, kynntist hún snemma og kom fljótt í ljós að þar fóru samrýnd hjón sem myndu ná góðum árangri í lífinu. Með vænt- umþykju hafa þau hjónin átt góða ævi saman. Þau mega vera stolt af sínum yndislegu og gjörvilegu börn- um. Á þrítugsafmæli sínu fékk Kris- sí þá bestu afmælisgjöf sem nokkur kona getur nokkra sinni hugsað sér. Þá voru henni færðar þær fréttir að hún bæri tvíbura undir belti og í ágúst ól hún tvo fallega stráka en íýrir var lítil mömmustelpa. í einu vetfangi var fjölskyldan á Markar- flötinni allt í einu orðin að stórfjöl- skyldu sem síðar átti eftir að flytja búferlum í Stigahlíðina. Krissí vinkona mín kvaddi á ein- um fegursta sunnudagsmorgni sem upp hefur rannið um langt skeið hér í borginni, bjartur og sólríkur morgunn, og var það sannarlega tákn fyrir líf slíkrar manneskju. Sól Rrissíar er nú hnigin til viðar, blessuð sólin sem elskaði allt. Ávallt skær og hátt á lofti, sólin sem bað- aði fjölskyldu sína og vini birtu og yi- Það er þungbært þegar dauðinn kveður á brott fólk á besta aldurs- skeiði en það kann að vera kærkom- inn léttir þegar við illvígan sjúkdóm hefur verið glímt. Krissí háði þessa glírnu með æðraleysi og í hinni erf- iðu baráttu hennar var orðið uppgöf aldrei til í orðabókinni. Ég votta fjölskyldunni í Stigahlíð- inni og móðm’, sem horfir á eftir yndislegri dóttur, mína innilegustu samúð og bið þess góðan Guð að hann blessi ykkur og styrki í þess- ari miklu sorg. Kæra vinkona, hjartans þakkir fyrir trausta og gæfuríka vináttu. Far þú í friði. Friður Guðs þig blessi Hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem) Ingibjörg Haraldsdóttir. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal- línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. KRISTÍN KATRÍN GUNNLA UGSDÓTTIR Morgunblaðið/Amór SVIPMYND frá undankeppninni um síðustu helgi. Vestflrðingar og Austfirðingar takast á. Talið frá vinstri: Árni Guðmundsson, Jón Árnason, Skúli Sveinsson og Jökull Kristjánsson. BRIDS llmsjón Arnór G. Ragnarssun Bridsfélagið Muninn Sveit Garðars Garðarssonar sigr- aði í Board Match-sveitakeppninni sem lauk síðastliðinn miðvikudag. Auk Garðars í sveitinni vora þeir Bjarni Kristjánsson, Kjartan Óla- son og Óli Þór Kjartansson. Lokastaða efstu sveita er þessi: Sv. Garðars Garðarssonar 144 Sv. Karls G. Karlssonar 139 Sv. Jóns Erlingssonar 139 Sv. Bjöms Dúasonar 133 Sv. Ævars Jónassonar 129 Næsta miðvikudag 10. mars hefst Landsbankatvímenningur og stend- ur hann yfir næstu 4 kvöld en 3 bestu kvöldin gilda. Spilað verður Michell. Heildarverðlaun era 20.000 kr. fyrir 1. sæti, 8.000 kr. á par. 2. sæti 6.000 kr. á par. 3. sæti 4.000 kr. á par. 4 sæti 2.000 kr. á par. Það par sem er efst eftir hvert kvöld fær spilagjaldið endurgreitt. Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Eftir 8 umferðir í sveitakeppninni er staðan þessi: Sv. Olafs Ingvarssonar 155 Sv. 6 í sveit 154 Sv. Þórarins Arnasonar 143 Sv. Alberts Þorsteinssonar 136 Fimmtudaginn 4. mars spiluðu 25 pör Mitchell. N/S Jón Stefánsson - Sæmundur Björnsson 234 Eyjólfur Halldórss. - Þórólfur Meyvantss. 234 Ingunn Bemburg - Elín Jónsdóttir 232 Haukur Guðmundsson - Öm Sigfússon 226 A/V Magnús Halldórsson - Þorsteinn Laufdal 246 Eysteinn Einarss. - Guðlaugur Sveinss, 245 Halldór Kristinss. - Sigurður Kristjánss. 240 Meðalskor 216 Bridsfélag Fljótsdalshéraðs Lokið er Aðalsveitakeppni Brids- félags Fljótsdalshéraðs sem í tóku þátt átta sveitir. Röð efstu sveita varð þessi: KHB 153 Herðir 149 Malarvinnslan 120 Seyðfirðingar 95 SRHF. 90 Bridsfélag Kópavogs FJÖGURRA kvölda Butler-tví- menningur félagsins hófst s.l. fimmtudag. Staða efstu sveita eftir 5 umferðir: Ragnar Jónsson - Murat Serdar 57 Þórður Jömndsson - Vilhjálmur Sigurðss. 53 Ómar Jónsson - Guðni Sigurbjarnarson 37 Þórður Bjömsson - Bernódus Kristinsson 31 Jón Páll Sigurjónss. - Þorsteinn Berg 31 Næstu umferðir verða sspilaðar fimmtudaginn 11. mars. Spilað er í Þinghóli, Hamraborg 11, Kópa- vogi, og spilamennska hefst kl. 19.45. Bridsfélag eldri borgara í Kópavogi Þriðjudaginn 2. marz sl. spiluðu 19 pör Mitchell-tvímenning og urðu eftirtalin pör efst í N/S: Alfreð Kristjánss. - Birgir Sigurðss. 262 Eysteinn Einarsson - Láms Hermannss. 245 Aðalheiður Torfad. - Ragnar Ásmundss. 232 Lokastaða efstu para í A/V: Jón Stefánsson - Sæmundur Bjömss. 276 Þorleifur Þórarinss - Þórarinn Arnason 249 Ingibjörg Stefánsd. - Þorsteinn Daviðsson 236 Sl. föstudag spiluðu 26 pör og þá urðu úrslit þessi í N/S: Eysteinn Einarsson - Ólafur Lámsson 399 Hannes Ingibergss. - Láms Amórsson 392 Alfreð Kristjánss. - Albert Þorsteinss. 384 Lokastaðan í A/V: Fróði Pálsson - Þorleifur Þórarinss. 356 Halla Ólafsd. - Sigurður Pálsson 350 Þorsteinn Laufdal - Magnús Halldórss. 346 Meðalskor var 216 á þriðjudaginn en 312 á fóstudag. Hekluð taska og trefill I þættinum Spuni/hand- mennt í blaðinu fimmtudaginn 4. marz sl. prentað- ist meðfylgjandi mynd illa í hluta eintaka blaðsins. Myndin birtist hér á ný og vísað er til þáttarins sl. fimmtudag.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.