Morgunblaðið - 10.03.1999, Side 56

Morgunblaðið - 10.03.1999, Side 56
\ Heimavörn Sími: 533 5000 Heimavörn SÉCURITAS Sími: 533 5000 MORG UNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 MIÐVIKUDAGUR 10. MARZ 1999 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Róbert Guðfinnsson kosinn stjórnarformaður SH í stað Jóns Ingvarssonar Kostnaður við húshitun verðijafn- aður JÖFNUN húshitunarkostnaðar og námskostnaðar er meðal þess sem nefnd, sem forsætisráðherra skip- aði, leggur til. Einnig er lagt til að námsmenn á landsbyggðinni fái af- slátt af afborgunum námslána. Pá er lagt til að framkvæmdum í vega- málum verði flýtt. Nefndin leggur til að einum millj- arði verði varið árlega á næstu þremur árum til að jafna búsetu- skilyrði á landinu, samtals þremur milljörðum króna. Pá er gerð tillaga um aukna end- urgreiðslu ferðakostnaðar sjúk- linga. Einar Guðfinnsson, formaður nefndarinnar, segir að mjög góð samstaða hafí tekist milli fulltrúa stjómmálaflokkanna í nefndinni. Hún var skipuð að tilhlutan nefndar um kjördæmabreytingar, en nefndin taldi nauðsynlegt að grípa tO að- gerða til að jafna búsetuskilyrði á landinu samhliða því að atkvæðis- réttur væri jafnaður milli landshluta. ■ Þrír milIjarðar/6 ---------------- Hlutafé OZ aukið um 273 milljónir GENGIÐ var í gær frá samningum um kaup Landsbréfa hf. og Fjárfest- ingarbanka atvinnulífsins hf. á millj- ón hlutum í OZ hf. á genginu 3,8 og er heildarsöluverðmætið því um 273 milljónir króna. Um er að ræða útgáfu nýrra hluta og koma 500 þúsund bréf í hlut hvors aðila. FBA og Landsbréf áttu hæstu boð í hlutaféð í útboði meðal fjárfest- ingarbanka. Skúli Mogensen, forstjóri OZ hf., segist í samtali við Morgunblaðið vera mjög ánægður með útboðið en hann segir að ekki verði um frekari hlutafjáraukningu hérlendis að ræða áður en fyrirtækið verður skráð á bandarískan hlutabréfamarkað. ■ Siðasta útboðið/13 Hlutabréfakaup Róberts réðu úrslitum í kjörinu RÓBERT Guðfinnsson frá Siglu- firði var kosinn formaður Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna hf. í gær, í stað Jóns Ingvarssonar sem verið hefur stjórnarformaður í fimmtán ár. Fyrir kjörið ríkti mikil óvissa um úrslit vegna breytinga í hluthafahópnum á síðustu stundu. Þannig keypti Róbert Guðfinnsson í gærmorgun, með aðstoð fleiri fjárfesta, 7% eignarhluta Haraldar Böðvarssonar hf. í SH. Jón Ingvarsson og Róbert Guð- finnsson náðu báðir kosningu í stjórn SH á aðalfundinum í gær. I formannskjöri hafði Róbert betur, fékk liðlega 734 milljónir atkvæða á móti liðlega 733 milljónum at- kvæða Jóns. Atkvæðamagn Ró- berts samsvarar 50,035% og Jóns 49,965% og er munurinn því aðeins 0,7%. Kaup Róberts á 7% hlut Harald- ar Böðvarssonar (HB) í gærmorg- un hafa því ráðið úrslitum. Ekki var full samstaða í stjórn HB um söluna og nokkrir af stærstu hlut- höfum í félaginu voru henni and- vígir. Eyjólfur Sveinsson, stjórn- arformaður HB, segir að áður en gengið var að tilboði Róberts hafi stuðningsmönnum Jóns verið boð- ið að kaupa helming hlutabréf- anna, á móti jöfnum hlut Róberts. Því var hafnað enda töldu stuðn- ingsmenn Jóns ekki meirihluta innan HB fyrir sölunni og óskuðu eftir viðræðum við stjómina en áð- ur en málið komst lengra tóku stjómendur HB tilboði Róberts og félaga. Eftir það réð Róbert yfir um 23% atkvæða á aðalfundinum. t Vill breytingar Akveðinn ágreiningur hefur ver- ið innan SH undanfarin ár um störf félagsins og stefnu. Róbert lýsti því yfir þegar hann bauð sig fram gegn Jóni að hann vildi breyta stefnunni. Eftir kjörið í gær fór hann varlega í yfirlýsingar um það efni. „Það era engar breytingar ákveðnar nú þegar. Eg beld að ég Morgunblaðið/Golli NÝKJÖRINN stjórnarformaður SH, Róbert Guðfinnsson, þakkar hluthöfum stuðninginn. Við háborðið sitja Friðrik Pálsson forsljóri og Jón Ingvarsson fráfarandi sljórnarformaður. kjósi aðeins að sitja á mér núna og bíða þess að geta sest niður með stjóminni og farið yfir þessi mál. Það era svo margir þættir í rekstri félags eins og SH, sem þarf langt mál til að skýra. Eg held að það sé ekki rétt að vera að fara með það í fjölmiðla á þessu stigi. Eg á von á því að þetta félag muni breytast og þroskast í náinni framtíð, enda bauð ég mig beinlínis fram til for- manns stjórnar til að ná fram ákveðnum breytingum. Það er al- veg Ijóst að félagið hefur haldið að- eins í þessi gömlu vinnubrögð sem tíðkuðust meðan það var samlag. Eg held að ekki sé hægt að kenna neinum einum um það, málin hafa einfaldlega þróast á þessa leið. Nú er ætlunin að reyna að stilla þessu upp á nýtt og sjá hvert við komumst með félagið," sagði Ró- bert. Vonbrigði „Það era alltaf vonbrigði þegar maður nær ekki settu marki. En maður verður að sætta sig við það sem að höndum ber,“ sagði Jón Ingvarsson þegai- leitað var álits hans á niðurstöðum formanns- kjörsins. Aðspurður kvaðst hann hafa átt von á því að ná endurkjöri. „Það kom mér á óvart hvað þessir aðilar vora tilbúnir að ganga langt til að seilast til áhrifa í félaginu," sagði Jón þegar hann var spurður hvaða augum hann liti kaup Ró- berts Guðfínnssonar á hlutabréfum HB. Þegar niðurstöður formanns- kjörs lágu fyrir tók Friðrik Páls- son, forstjóri SH, til máls og þakkaði Jóni Ingvarssyni ánægjulegt samstarf. „Hann hef- ur að mínu mati leitt þetta félag einstaklega vel inn á þær brautir sem það er á í dag og ég held að nýkjörin stjórn taki þar við mjög góðu búi frá honum. Eg skal vera alveg hreinskilinn með það að mér hefði fundist það miklu skemmtilegra ef stjórnarfor- mannskjör hefði getað orðið með öðrum hætti en við því er að sjálf- sögðu ekkert að segja,“ sagði Friðrik. ■ Sviptingar á síðustu/28-29 ■ Skin og skúrir í fyrra/18 Sprautu- fíklum fjölgar SPRAUTUFÍKLUM fer fjölgandi hér á landi og era 21% líkur á því að sjúklingur sem innritast á sjúkrahúsið Vog hafi sprautað sig í æð með vímuefnum. Líkurnar vora 3% árið 1983. Af 860 sprautufíklum sem hafa komið sl. átta ár á Vog höfðu 279 greinst með lifrar- bólgu C. 45 tilfelli fundust á síðasta ári. Fjöldi unglinga sem leita sér meðferðar hjá SÁÁ á Vogi hefur meira en tvöfaldast sl. átta ár. 74% unglinga sem leit- uðu í meðferð í fyrra greindust stórneytendur kannabisefna eða amfetamíns. ■ Meira/4 Grunur á að skipverjar á Goðafossi hafí varpað talsverðu af áfengi í sjóinn Gæsluvarðhalds krafíst yfír áhöfn DÓMARI við Héraðsdóm Reykja- víkur hafði klukkan eitt í nótt úr- skurðað sex skipverja á Goðafossi í gæsluvarðhald til 15. mars. Gæslu- varðhalds var krafist yfir allri áhöfn- inni, alls 11 manns. Skipverjarnir munu í samráði við lögmenn sína taka afstöðu til þess í dag hvort þeir kæri úrskurð dómara tO Hæstarétt- ar. Áð sögn lögreglunnar er um að ræða grun um stórfellt smygl. Rannsóknai-deOd lögreglunnar í Reykavík fór fram á gæsluvarðhald- ið eftir yfirheyrslur yfir mönnunum í gær. Grunur leikur á að talsverðu af smyglvarningi hafi verið kastað í sjó- inn, að skipverjar á Goðafossi hafi áður smyglað áfengi og auk þessa er ætlaðra samverkamanna í landi leit- að. í fyrrinótt komu tæplega 600 lítr- ar af smygluðu áfengi og 550 lengjur af vindlingum í leitimar eftir um- fangsmikla leit ToOgæslunnar í Reykjavík um borð í Goðafossi. Einnig var leitað í sjónum milli Gróttu og Akureyjar þar sem toll- verðir veittu því eftirtekt við eftirlit að varningi var varpað frá borði Goðafoss nálægt 6-baujunni. Við nánari athugun reyndist vera um að ræða plastbrúsa sem höfðu innihald- ið áfengi. Þá var leitað aðstoðar lög- reglunnar í Reykjavík við rannsókn- ina. Ennfremur var smyglvarnings leitað neðansjávar með aðstoð þriggja kafara í nági’enni við Garð- skaga, en ekkert hefur fundist við þá leit leit samkvæmt upplýsingum blaðsins. Tollverðir unnu í gærkvöldi við að kanna gáma skipsins við losun þess í Sundahöfn, en gámarnir eru alls um 300 talsins. Vegna grunsemda um að smygl- varningur væri um borð í Goðafossi ákváðu tollverðir að hafa eftirlit með skipinu vegna komu þess frá Kanada og Bandaríkjunum á mánudag. Upp úr hádegi á mánudag var hafinn und- irbúningur aðgerða og fóru tollverðir og lögreglumenn á báti frá Keflavík að skipinu úti við Garðskaga og fylgdu því eftfi til hafnar þar sem fjölmennt lið lögreglu og tollvarða beið komu þess og hóf þegar ítarlega leit um borð. Fundust þá 600 lítrar af áfengi í lokuðu rými í skipinu og telur lögreglan að öðru eins hafi ver- ið varpað útbyrðis.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.