Morgunblaðið - 19.06.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.06.1999, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 135. TBL. 87. ÁRG. Reuters Konunglegt brúðkaup AFGREIÐSLU STÚLKA í Woolworth-verslun í Windsor, sem er vestur af London, lýkur við sérstaka útstillingu sem sett var upp í tilefni brúðkaups Játvarðar Bretaprins og heitmeyjar hans Sophie Rhys- Jones, sem fer fram í kapellu heilags Georgs við Windsor- kastala í dag. Játvarður er yngstur fjögurra barna Elísabetar Englandsdrottningar og Filippusar drottningarmanns og vonast Bretar til að Játvarði og Sophie takist að rjúfa þau álög sem virðast hafa verið á hjónaböndum barna drottningar, en þau Anna, Karl og Andrés hafa öll gengið í gegnum erfiða hjónaskilnaði. ■ Athöfninni sjónvarpað/25 ítalir fækka glæpum The Daily Telegraph. ÍTALSKA þingið hefur nú brugðist við gífurlegu álagi á þarlenda dómstóla með því að fækka glæpum - það er að segja fækka þeim afbrotum sem viðurlög liggja við. Nú hafa 100 minniháttar af- brot verið fjarlægð úr lagatext- um, þar á meðal það brot sem algengast er, að gefa út inn- stæðulausa ávísun. Svo mikið ber á ávísanamisferli að ekki þykir lengur taka því að draga sökudólgana fyrir dóm. Menn munu líka framvegis komast upp með að móðga opinbera starfsmenn, en ósagt skal látið hvort það sé vegna þess að þeir séu orðnir því svo vanir. Meðal annarra brota sem ekki eru lengur saknæm eru vasaþjófnaður, þjófnaður á húsdýrum, fölsun á strætis- vagnafarmiðum og einvígi. Þá þykir ekki ástæða til að íþyngja réttárkerfinu með þvi að láta betlara svara til saka fyrir að þykjast vanta útlim, í þeim tilgangi að vekja samúð vegfarenda, en varla verður þverfótað fyrir slíkum loddur- um á strætum Rómar. LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Samkomulag um hlut- verk Rússa í friðargæslu KOSOVO-ALBANSKIR drengir veifa feikfangabyssum og bera ennisbönd merkt Frelsisher Kosovo, UCK, í bænum Gnjilane. Belgrad, Brussel, Helsinki, Prizren. Reuters. WILLIAM Cohen, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, og Igor Sergejev, vamarmálaráðherra Rússlands, skrifuðu í gærkvöld undir samkomulag um hlutverk Rússa í friðargæslustarfi í Kosovo, eftir þriggja daga samningaviðræð- ur Rússa og fulltrúa NATO í Helsinki. Helsti ásteytingarsteinninn í við- ræðunum var krafa Rússa um að fá umsjón með eigin friðargæslusvæði eins og NATO-ríkin Bretland, Bandaríkin, Frakkland, Ítalía og Þýskaland. Rússar féllust loks í gærkvöld á þá málamiðlun að 3.600 rússneskir hermenn tækju þátt í friðargæslu á svæðum Bandaríkja- manna, Frakka og Þjóðverja, undir stjóm herforingja NATO. Rúss- neska friðargæsluliðið mun á hinn bóginn gefa skýrslu um störf sín til yfirmanna í rússneska hernum, sem mun eiga fulltrúa á samráðsfundum með æðstu mönnum NATO og frið- argæsluliðs bandalagsins, KFOR. Cohen sagði á fréttamannafundi er tilkynnt var um samkomulagið í gærkvöldi að Rússar hefðu einnig fallist á að opna flugvöllinn í Prist- ina fyrir friðargæsluliði KFOR, en þeir hertóku hann áður en sveitir KFOR héldu inn í Kosovo fyrir viku. Bill Clinton Bandaríkjaforseti fagnaði samkomulaginu í gær- kvöldi, og sagðist hafa fulla trú á að Rússar hefðu það í heiðri. 50 þúsund Serbar flúnir Frekari fregnir bámst í gær af skæram milli Kosovo-Albana og serbneskra íbúa héraðsins. Skæra- liðar Frelsishers Kosovo (UCK) myrtu í gær þrjá Serba í þorpunum Novo Selo og Kosovska Kamenica, og rændu 18 Serbum í þorpum ná- lægt Pristina, að því er serbnesk fréttastöð skýrði frá í gær, en frétt- in fékkst ekíd staðfest af óháðum aðilum. Serbneskt par fannst að auki myrt á tröppum húss síns, og 16 ára gamall serbneskur piltur lét lífið í umsátri á sveitavegi. Nú er talið að um 50 þúsund Kosovo-Serb- ar hafi flúið héraðið. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hvatti í gær Kosovo-Albana til að sýna þolin- mæði og snúa ekki til heimkynna sinna fyrr en öryggi þeirra hefði verið tryggt. Hvatti hann Kosovo- Serba sömuleiðis til að halda kyrra fyrir í héraðinu, og til að vinna að friðsamlegri sambúð þjóðemis- hópanna tveggja. Aukin völd til að handtaka stríðsglæpamenn NATO samþykkti í gær að veita alþjóðlegum friðargæslusveitum í Kosovo aukin völd til að handtaka ákærða stríðsglæpamenn. Louise Arbour, yfirmaður stríðsglæpadóm- stóls Sameinuðu þjóðanna, sagði á fréttamannafundi í gær að ákvörð- un NATO þýddi að rannsókn stríðs- glæpa yrði sett mjög framarlega í forgangsröð friðargæsluliða banda- lagsins. Að sögn Arbour eru starfsmenn dómstólsins þegar teknir til starfa í héraðinu. Réttarlæknar frá Bret- landi, Bandaríkjunum, Kanada og Frakklandi era auk þess væntan- legir til Kosovo um helgina, þar sem þeirra bíður það verkefni að safna sönnunargögnum frá fjölda staða sem taldir era hafa verið vettvang- ur stríðsglæpa. Svarifjallaland vill endurskoða sambandssáttmála Forsætisráðherra Svartfjallalands, Milo Djukanovic, sem verið hefur hliðhollur Vesturlöndum, sagði í gær að Svartfellingar myndu knýja á um að staða þeirra innan sambandsríkis- ins Júgóslavíu yrði endurskoðuð, á þann veg að tryggt yrði að ekki væri unnt að misnota sameiginlegar stofn- anir í óþökk þeirra. Vék hann sér- staklega að því að Júgóslavíuher hefði verið beitt í bága við vilja Svart- fellinga meðan á loftárásum NATO stóð. Djukanovic sagði að féllust Serbar ekki á þetta kæmi jafnvel til greina að Svartfjallaland lýsti ein- hliða yfir sjálfstæði. Spenna hefur farið vaxandi milli Serba og Svartfellinga, einkum eftir að loftárásir NATO hófust í mars, en þá hikaði Djukanovic ekki við að lýsa ábyrgð á hendur Slobodan Milosevic Júgóslavíuforseta. Ríkis- stjórn Svartfjallalands neitaði að lýsa yfir stríðsástandi, eins og Júgó- slavíustjórn krafðist, og sleit ekki stjórnmálatengslum við ríki NATO, eins og Júgóslavía í heild. Bill Clinton mun eiga fund með Djukanovic í Slóveníu í næstu viku. Fundur leiðtoga G-7-hópsms hófst í Köln 1 gær Skuldum létt af þróunarríkjum Köin. Reuters. LEIÐTOGAR sjö helstu iðnríkja heims sam- þykktu á fundi sínum og Rússa, sem hófst í Köln í gær, yfirgripsmikla áætlun um að létta skuldum af þróunarrílqum. Fögnuðu þeir vísbendingum um að efnahagskreppan í Japan væri senn á enda og öðrum merkjum um viðreisn í efnahagslífi heimsins. Samkomulag leiðtoga G-7-ríkjanna felur í sér að allt að þriðjungur lána fátækustu ríkja heims verði afskrifaður, en samkvæmt sérfræðingum nemur það samtals 70 milljörðum dollara (5.000 milljörðum ísl. kr.). Gene Sperling, formaður efnahagsmálanefndar Hvíta hússins, sagði að ef fleiri ríki tækju þátt í aðstoðinni gæti upphæðin hækkað í um 90 milljarða dollara (6.500 millj- arða ísl. kr.). Sperling sagði að aðgerðirnar yrðu fjármagnaðar að hluta með því að selja allt að tíunda hluta gullforða Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins. Leiðtogar G-7-ríkjanna samþykktu einnig að hvetja til strangari reglugerða um fjármagnsvið- skipti í iðnríkjum og að vinna að stöðugleika al- þjóðlega gjaldeyriskerfisins. Hvöttu þeir þróun- arríki til að styrkja efnahagskerfi sín með því að auka eftirlit með bönkum og fjármálastofnunum, bæta hag þeirra verst settu og forðast að taka á sig miklar skammtímaskuldir. Stepashin vonast eftir bættum tengslum við Vesturlönd Sergej Stepashin, forsætisráðherra Rússlands, mætti til fundarins fyrir hönd Rússa í gær, en Borís Jeltsín forseti mun ekki koma til Kölnar fyrr en á sunnudag. Stepashin kvaðst vona að fundurinn myndi bæta tengsl Rússa við Vestur- lönd eftir ágreining undanfarna mánuði vegna Kosovo-deilunnar. Lagði hann áherslu á að Rúss- ar, sem fengu aðild að hópnum í fyrra, myndu nú taka fullan þátt í umræðu um alþjóðamál á jafn- réttisgrundvelli. Keizo Obuchi, forsætisráðherra Japans, til- kynnti á fundinum í gær að Japanir myndu bjóða Rússum 200 milljóna dollara aðstoð við að taka sundur og farga úreltum rússneskum kafbátum sem liggja við Kyrrahafsströnd Rússlands. Japanskir embættismenn hafa lagt áherslu á að fórgun kafbátanna sé aðkallandi verkefni, bæði vegna vopnaeftirlits og umhverfisverndar í Japanshafi. Obuchi átti fund með Bill Clinton Banda- ríkjaforseta áður en fundur G-7-ríkjanna og Rússa hófst. Hvatti Clinton Obuchi til að gera allt sem í hans valdi stæði til að koma efnahag Japans á réttan kjöl. Obuchi kvaðst staðráðinn í að stýra landinu áfram á réttri braut, en 7,9% hagvöxtur mældist þar á fyrsta fjórðungi þessa árs.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.