Morgunblaðið - 19.06.1999, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Stríðandi
fylkingar
afvopnast
STRÍÐANDI fylkingar á
Austur-Tímor samþykktu í
gær að afvopnast og halda
friðinn, áður en gengið verður
til kosninga um framtíð svæð-
isins 8. ágúst næstkomandi.
Samkomulagið var undirritað
af Xanana Gusmao, leiðtoga
þeirra sem berjast fyrir sjálf-
stæði Austur-Tímor, og Dom-
ingo Soares, leiðtoga þeirra
sem vilja áfram vera undir
stjórn Indónesíu.
Leeson
látinn laus
NICK Leeson, sem hlaut
fangelsisdóm fyrir svik sem
leiddu til gjaldþrots Barings-
banka árið 1995, verður látinn
laus úr fangelsi í Singapúr 3.
júlí, að því er
lögfræðingur
hans stað-
festi í gær.
Leeson mun
þá hafa af-
plánað nær
þijú ár af sex
og hálfs árs
dómi sínum. í fyrra var beiðni
hans um lausn af mannúðará-
stæðum hafnað, eftir að hann
hafði greinst með krabbamein
í ristli. Gekkst hann undir
læknismeðferð á sjúkrahúsi í
Singapúr og var að henni lok-
inni sendur aftur í fangelsið.
Japanskt her-
skip skaut á
íbúðarbyggð
JAPÖNSK stjómvöld viður-
kenndu í gær að herskip jap-
anska sjóhersins hefði fyrir
mistök hleypt af skotum yfxr
íbúðarbyggð og að yfirmenn
sjóhersins hefðu komið sér hjá
því í fjóra mánuði að tilkynna
mistökin. Skipið lá við bryggju
í borginni Maizuru i Kyoto-
héraði. Við reglubundna æf-
ingu 18. febrúar sl. var
sprengikúlum skotið frá því
yfir íbúðarbyggð, en talið er
að þær hafi lent í fjalllendi í
um 10 kflómetra fjarlægð.
Ekki er vitað til þess að nein-
ar skemmdir hafi orðið af
völdum skotsins.
Coca-Cola
innkallað
á Spáni
SPÁNVERJAR innkölluðu i
gær 390 þúsund flöskur af
Coca-Cola sem fluttar höfðu
verið inn frá Belgíu, þar sem
yfir hundrað manns hafa
veikst undanfarna viku eftir
að hafa neytt drykkjarins.
Coca-Cola-fyrirtækið segir
að mistök hafi orðið við
átöppun í 20 sentílítra flöskur
í Belgíu, en einnig hafa fund-
ist leifar sveppaeyðis í gos-
dósum í verksmiðju þess í
Frakklandi. Belgíska heil-
brigðisráðuneytið aflétti í
gær allsherjarsölubanni á
vörur fyrirtækisins, en enn
um sinn verður þó sala bönn-
uð á vinsælustu di-ykkjunum,
Coke, Fanta og Sprite.
ERLENT
Vopnahlé IRA undir smásjánni
Trimble hvetur til
rannsókna á IRA
Belfast. Reuters.
DAVID Trimble, forsætisráðherra
og leiðtogi stærsta flokks sam-
bandssinna á Norður-írlandi, fór í
gær fram á það við Mo Mowlam, N-
Irlandsmálaráðherra bresku ríkis-
stjórnarinnar, að hún færi yfir ný-
leg morð, sem framin hafa verið í
héraðinu, og legði mat á hvort
vopnahlé Irska lýðveldishersins
(IRA) héldi enn. Ummæli Trimbles
koma í kjölfar þess að reynt var að
ráða Martin McGartland, fyrrver-
andi liðsmann IRA sem gerðist upp-
ljóstrari, af dögum í fyrradag.
David
Trimble
Trimble sagði áhyggjuefni að
orðrómur væru á kreiki að IRA
hefði staðið að skotárásinni gegn
McGartland, sem búið hefur undir
dulnefni í Norður-Englandi, og vit-
að er að IRA vildi gjarnan hafa
hendur í hári McGartlands, sem í
fjögur ár starfaði innan raða IRA á
vegum bresku leyniþjónustunnar
og er sagður hafa bjargað fimmtíu
mannslífum með þeim upplýsingum
sem hann gaf um aðgerðir IRA.
Afleiðingarnar alvarlegar
hefur IRA rofið vopnahlé
Trimble sagði að svo virtist
reyndar að enginn efaðist a.m.k. um
að IRA hefði komið að morðunum á
Eamon Collins, sem einnig var IRA-uppljóstr-
ari, í vetur og tveimur eiturlyfjasölum á síðustu
vikum. ,AJlir þessir atburðir hafa gerst á síð-
ustu mánuðum og því verðum við að fá að vita
mat Mowlam og lögreglustjórans [Ronnie Fl-
anagan],“ sagði Trimble í gær.
Það gæti haft alvarlegar afleiðingar ef nið-
urstaða rannsóknanna reynist sú að IRA hafi í
raun rofið vopnahlé sitt. Samkvæmt friðarsam-
komulagi hefur fjölda fanga sem meðlimir voru
í IRA verið sleppt úr fangelsi á undanförnum
tólf mánuðum, en þeir skilmálar
samkomulagsins eru vitaskuld háðir því að
IRA sé í vopnahléi. Jafnframt er það ljóst að
fótunum væri kippt undan þátttöku Sinn Féin,
stjómmálaarms IRA, í heimastjórn á Norður-
írlandi kæmi á daginn að IRA væri að auka
umsvif sín að nýju.
Hringdu í okkur ef þú hefur ekki
Tvær fjölskyldur
heimsóttar
Það er sama á hvaða aldri
þú ert, það borgar sig alltaf
að skipuleggja fjármálin
íyrir framtíðina. bís.4
GALLUP
Hvað vilja íslendingar
hafa í eftirlaun?
Gallup gerði könnun fyrir
okknr. Bis.12
Gerbreytt sam-
félag á 15 árum
Breytingar á íslandi
undanfarin ár hafa verið
gífurlegar. bis. 10
www.vib.is
Nú geturþú skoðað
og bætt fjármálin þín á
fyótlegri hátt en nokkru
sinnifyrr! bis.is
TITILGREIN
SUMARBLAÐIÐ ER
Lestu allar þessar fréttir um fjármál