Morgunblaðið - 19.06.1999, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 19.06.1999, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1999 13 FRÉTTIR Þrjú ungmenni úr SOS-barnaþorpum stödd hérlendis Morgunblaðið/RAX ÞRJÚ ungmenni frá Indlandi og Víetnam, sem hlotið hafa uppeldi í SOS-barnaþorpum, eru í heimsókn hér á landi í tilefni 50 ára afmælis alþjóðasamtakanna og 10 ár afmælis SOS hér á landi. Frá vinstri: Tenzing Lahdon, frá Indlandi, Chung Nguyen, frá Víetnam, Ulla Magnússon, framkvæmdastjóri SOS-barnaþorpa á Islandi, og Jijil Ramakhrisnan frá Indlandi. Halldór Asgrímsson um Evrópuráðið Lagði áherslu á þatt þess HALLDÓR Ásgrímsson, utanrík- isráðherra og formaður ráðherra- nefndar Evrópuráðsins, lagði ríka áherslu á hlutverk Evrópuráðsins í uppbyggingu Kosovo þegar hann ávarpaði ráðstefnu sveitar- og hér- aðsstjórna í Evrópu (CLRAE) í Strassborg á miðvikudag. Ráðstefna sveitar- og héraðs- stjórna er ráðgefandi stofnun inn- an Evrópuráðsins en eitt mikilvæg- asta verkefni hennar er að efla lýð- ræði í sveitar- og héraðsstjómum og stuðla að auknu samstarfi milli þeirra í aðildarríkjum ráðsins. Ráðstefnan kemur saman einu sinni á ári í Strassborg og sitja hana fulltrúar frá aðildarríkjunum. I máli sínu lagði utanríkisráð- herra ríka áherslu á hlutverk Evr- ópuráðsins í uppbyggingarstarf- inu í Kosovo að átökum loknum, að því er segir í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Evrópu- ráðið byggi yfír mikilli sérþekk- i Kosovo ingu á sviði mannréttindamála, uppbyggingu lýðræðislegra stofn- ana og réttarríkis, sem mikilvægt væri að nýta með sem bestum hætti í samstarfi við aðrar al- þjóðastofnanir. Hann lýsti ánægju sinni með starf ráðstefnu sveitar- og héraðsstjóma á þessu sviði og áréttaði mikilvægi þess fyrir lýð- ræðisþróun í álfunni. Utanríkisráðherra greindi jafn- framt frá fyrirhugaðri ferð sinni til Bosníu-Hersegóvínu ásamt fram- kvæmdastjóra Evrópuráðsins en Bosnía-Hersegóvína hefur sótt um aðild að Evrópuráðinu. Að ávarp- inu loknu svaraði utanríkisráð- herra spurningum frá fulltrúum á ráðstefnunni. Utanríkisráðherra undirritaði einnig á miðvikudag rammasamn- ing Evrópuráðsins um samstarf byggðarlaga og svæðisbundinna yfirvalda yfir landamæri ásamt tveimur bókunum við hann. Skemmtilegt að hitta stuðningsforeldra Menn og mýs í PC Week Forritið DNS Expert fær lofsam lega umsögn f tilefni af 50 ára afmæli alþjóða- samtaka SOS-bamaþorpa og 10 ára starfsafmælis SOS á Islandi eru stödd hér á landi þijú ungmenni frá Indlandi og Víetnam sem öll hafa hlotið uppeldi í SOS-bama- þorpum í sínum heimalöndum. Ungmennin komu á þriðjudag og verða hér í viku. Á miðvikudag fóru þau með Ullu Magnússon, framkvæmdastjóra SOS hérlendis, í sund í Hafnarfirði og fannst mik- ið til koma. Jijil Ramakhrisnan er 19 ára Indveiji. Hann, eins og stúlkurnar tvær, Chung Nguyen, 17 ára Ví- etnami, og Tenzing Lahdon, 16 ára Indveiji, hefur siðustu misseri stundað nám við menntaskóla í Noregi sem nefnist The Red Cross Nordic - United World College. Ramakhrisnan hefur nú lokið náminu í Noregi og hyggst leggja stund á upplýsingafræði í Uni- versity of Carleton í Ottawa í Kanada. Stúlkurnar eiga enn eitt ár eftir í Noregi. Nguyen sagði að hana langaði í háskóla í Malasíu eftir námið í Noregi en Lahdon sagðist hafa áhuga á Iæknisfræði. Ramakhrisnan og Lahdon eiga bæði norska stuðningsforeldra en Nguyen á sænska. Ramakhrisnan og Nguyen sögðust bæði hafa hitt sína stuðningsforeldra og að það hefði verið afar skemmtileg reynsla, þar sem gömul sendibréf hefðu verið skoðuð og gamlar minningar í'ifjaðar upp. Ramakhrisnan sagðist eiga SOS margt gott að gjalda. Ulla sagði að ungmennin væru góðir fulltrúar SOS því þetta væru allt klárir krakkar. Hún sagði að ætlunin væri að sýna þeim eins mikið af Islandi og hægt væri á þeim stutta tíma sem þau væru hérna en þegar blaðamaður Morgunblaðsins hitti þau voru þau nýbúin að skoða miðbæinn og fannst Ramakhrisnan heldur mik- ið af bílum hér, sérstaklega miðað við fólksfæðina. Rúmlega 3000 börn í bamaþorp- um SOS í 92 löndum eiga stuðn- ingsforeldra hér á landi og er það hlutfallslega hærri tala en í nokkru öðru landi. Á þeim 10 ár- um sem SOS-bamaþorpin hafa starfað hér á landi hafa verið send- ar rösklega 155 miHjónir íslenskra króna til framfærslu þessara barna. I tilefni af afmælj alþjóðasam- takanna og SOS á íslandi verður haldin skemmti- og fræðsluhátíð í Ráðhúsi Reykjavíkur á sunnudag- inn klukkan 15. ÍSLENSKA hugbúnaðarfyrirtækið Menn og mýs ehf. hefur fengið frá- bæra dóma fyrir nýjustu útgáfu for- ritsins DNS Expert í hinu útbreidda tölvutímariti PC Week. Blaðið birti umfjöllun um DNS Expert hinn 14. júní síðastliðinn þar sem sagt er að forritið sé ómissandi fyrir alla net- umsjónarmenn. I fréttatOkynn- ingu frá Mönnum og músum segir að DNS Expert, sem fór upphaflega á markað sl. haust, sé hjálparforrit fyrir umsjónarmenn nafnamiðlara (e. Domain Name Servers). Það greinir m.a. vandamál í uppsetningu nettenginga og leiðbeinir um lausn þeirra. Forritið er hið eina sinnar tegundar í heiminum. Samningur við Process Software „Menn og mýs hafa undirritað samstarfssamning við bandaríska fyiirtækið Process Software (http://www.process.com). Samning- urinn felur í sér samstarf um þróun og markaðssetningu á DNS Expert. Menn og mýs munu áfram annast alla þróun á DNS Expert en fyrir- tækin munu bæði annast dreifingu þess, hvort undir sínu vörumerki. Fyrirtækin munu einnig skoða möguleika á frekara samstarfi um þróun á nýjum vörum,“ segir enn- fremur. „Process Software er öflugur bandamaður fyrir Menn og mýs. Fyrirtækið mun verja tugum millj- óna til markaðssetningar á fomtinu. Árleg velta Process Software er um 1,5 milijarðar króna en það selur IP- hugbúnað til fyrirtækja um allan heim. Á meðal viðskiptavina Process Software eru flest stærstu fyrirtæki Bandaríkjanna,“ segir í fréttatil- kynningunni. Þar er einnig haft eftir Pétri Pét- urssyni, framkvæmdastjóra Manna og músa, að fyrirtækið muni sækja fram með áframhaldandi þróun á DNS-hugbúnaði. Þörf fyrir hjálp- artól eins og DNS Expert vaxi stöðugt, samfara stækkun Netsins. Umfjöllunina er að finna á slóðinni http://wTAW.zdnet.com/ pcweek/stor- ies/news/0,4153,406542,00.html Jónas Haraldsson ósáttur við starfslok sín hjá Landssambandi íslenskra útvegsmanna JÓNAS Haraldsson, fyrrverandi skrifstofustjóri og lögfræðingur , segist harma hvemig staðið var að starfslokum hans hjá sambandinu. Jónas hefur starfað fyrir LIÚ und- anfarin 27 ár en lét af störfum fýrr í vikunni og sakar hann Kristján Ragnarsson um að hafa bolað sér burt úr starfi. Jónas segir skipulagsbreytingar í yfirstjórn LIÚ og ráðningu nýs framkvæmdastjóra, Friðriks J. Arngrímssonar, vera eðlilegar að mörgu leyti. Kristján Ragnarsson, formaður samtakanna, sé kominn á sjötugsaldur og því tímabært að skipta um andlit samtakanna út á við. Með breytingum muni Friðrik gegna tveimur störfum sem tveir menn hafi gegnt síðustu 40 árin. Hann segir þannig ekkert breytast innan forystu LIÚ nema hvað Kri- stján dragi sig úr sviðsljósinu og muni ekki sinna kjarasamninga- gerð við sjómenn. Hann verði samt áfram á framkvæmdastjóralaun- um. Jónas segist þannig alls ekki óá- nægður með breytingar á yfirstjóm Bolað burt að vilja Kristjáns Ragnarssonar LIU en sé hinsvegar mjög ósáttur við hvernig staðið var að starfslok- um sínum, enda hafi sér verið vikið úr starfí að ósekju. Sér hafi verið tilkynnt um ráðningu Friðriks og um leið verið sagt upp störfum. „Mér var gerð grein fyrir því að ég gæti sagt sjálfur upp með sex mán- uða fyrirvara, ellegar yrði mér sagt upp störfum og ég látinn vinna þriggja mánaða uppsagnarfrest, eins og það var orðað. Þetta var ákveðið fyrir stjómarfundinn sem haldinn var í síðastliðinni viku. St- arfsfólk LIÚ spurði því hvaða aug- um stjórnin liti þessar aðgerðir. Kristján Ragnarsson svaraði því til að enginn í stjóm LIU „mælti Jónasi bót“. Mér mislíkaði þessi framganga og gekk út og hef ekki einu sinni sótt mína persónulegu muni á skrifstofuna." Jónas segir það enga launung að samskipti sín og Kristjáns hafi síð- ustu misserin verið orðin stirð. Með uppsögn sinni sé framkvæmdaráð LIÚ einungis að fara að vilja Krist- jáns. „Mér hefur sýnst framkoma hans í minn garð vera slík að hann sé að reyna að ögra mér til að gef- ast upp og hætta. Hann notar fram- kvæmdaráðið til þess og þar tel ég Brynjólf Bjarnason vera eitt helsta verkfæri Kristjáns í því augnamiði. Þetta er reyndar í annað skipti sem Bi-ynjólfur rekur rýting í bakið á mér,“ segir Jónas. Kveð starfið með söknuði Jónas segist telja sig hafa átt mjög góð samskipti við útgerðar- menn í gegnum tíðina og kveðji starfið með söknuði. Hann eigi síður en svo neitt sökótt við Friðrik J. Arngrímsson. „Við emm ágætis kunningjar og hann meira að segja tekið son minn, sem er laganemi, í vinnu. Ég hlakkaði til að starfa með honum, enda er hann að mínu mati besti maðurinn sem samtökin gátu fengið sem framkvæmdastjóra. Ég tel mig einnig hafa átt mjög gott samstarf við útgerðarmenn um allt land, sem og sjómannasamtökin, þótt vissulega hafi ég tekið nokkrar rimmurnar við forystumenn þeirra eins og starfið gefur tilefni.“ Hvorki Kristján Ragnarsson né Brynjólfur Bjarnason vildu tjá sig um málið við Morgunblaðið í gær. Ekki verður ráðið í stöðu lögfræð- ings LÍÚ fyrr en Friðrik kemur til starfa um næstu áramót. 1 Verð á ökklaskóm 6.995. Verð á sandölum og | ristbandaskóm 4.995. STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN DOMUS MEDICA viö Snorrabraut - Reykjavík XRINGLAN Krlnglunnl S-12 - Reykjavík Síml 551 8519 Síml 568 9212 PÓSTSENDUM SAMDÆGURS 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.