Morgunblaðið - 19.06.1999, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 19.06.1999, Blaðsíða 66
LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ Nuddpottar Amerískir rafmagnspottar fyrír heimili og sumarhús. FOLK I FRETTUM Stærð ca 2x2 m, 1.100 Itr. Kr. 450 þús. VESTAN ehf., Auðbrekku 23, 200 Kópavogi, simi 554 6171, fars. 898 4154. 1/AJFFí REIÍIAVIK i Stuðhljómsveitln Hálft í hvoru og Eyjólfur Kristjánsson halda uppi fjörinu í kvöld til kl. 3. MiSSTU ekki af fjörinu á Kaffi Reykjavík Colon Cleanser örvar mettinguna og tryggir að faeðan fari hratt og örugglega í gegn um meltingarfærin. Éh Eilsuhúsið SkólavörBustíg, Kringlunni, Smáratorgi og Skipagötu, Akureyri SIMON Le Bon fær sér morgnnverð.. Morgunblaðið/Halldór FÉLAGARNIR Simon, Mario Van Peebles og Nick Wood í gullnum sandiuum í Cannes. Skelþunnir á ströndinni VIÐ erum á ströndinni í Cann- es. Alveg hefði maður getað ímyndað sér að ef maður ætti eftir að rekast á Simon Le Bon, hvað þá taka viðtal við hann, yrði það á ströndinni í Cannes. I hvítum sand- inum og íðilfögur þjónustustúlka að færa honum veitingar í formi afrétt- ara. Simon Le Bon með sólgleraugu í hvítum jakkafötum, svona í stíl við sandinn, og brosir svo það glampar á skínandi tennurnar. Með honum situr önnur popp- stjama sem hefur sjálfsagt sitthvað til síns ágætis þótt blaðamanni sé lítt kunnugt um það. Og svo situr með þeim hvítur blaðamaður ný- kominn frá fróni. Hann er af Duran Duran-kynslóðinni og Simon Le Bon er einmitt forsöngvari sveitar- innar. Hann og Nick Wood eiga það sameiginlegt að hafa verið á fylliríi kvöldið áður og einnig að hafa samið tónlistina fyrir mynd Mario Van Peebles Love Kills. En hafa þeir séð hana? „Já, hún er ágæt,“ svarar Simon Le Bon. „Hún er bara skemmtileg og kemur á óvart. Maður sest niður, hugsar með sér: „Myndin er þá svona.“ En svo þegar líður á mynd- ina hugsar maður: „Hver fjárinn!" Hann lítur á Nick. „Myndin er svona er það ekki?“ spyr hann og hlær. „Og frábær tónlist," svarar Nick. „Já, og frábær tónlist," segir Simon Le Bon. Gott að þeir eru sammála. Rústaði hótelbarnum Ykkur líkaði semsagt tónlistin? spyr blaðamaður, svona til að fá það alveg á hreint. „Já,“ segir Simon. „Við erum afar stoltir af því að hafa gert tónlist- ina.“ Ekki orð um það meir. Eruð þið ánægðir með Cannes? „Já, það má hafa gaman af ver- unni héma,“ segir Simon Le Bon. „Sérstaklega í gær. Ég skemmti mér konunglega," segir Nick. * * * * Y KJAVÍK * * * .# f1þ0 breytir ekki Jbví setn er gott“ Simon Le Bon, söngvari Duran Duran, og Nick Wood, sem samið hefur allt tónlistar- litrófið fyrir auglýsingar og kvikmyndir, sitja við sama borð og Pétur Blöndal og hreykja sér af ævintýrum gær- kvöldsins. Þannig er nú það. -eftir frumsýning- arpartj Love Kil]s „Hann rústaði barn- um á Hotel De Cap,“ segir Simon Le Bon og vottar fyrir aðdá- un í röddinni. „Hann gerði það alveg upp á eigin spýtur. - Full- kooomlega! Þegar við fórum á barinn í lok kvöldsins litu barþjónamir ekki einu sinni við okkur. Þeir bara snera svona upp á sig,“ segir Le Bon og setur upp fýlusvip. „Þeir fóru bara að vaska upp glösin og vildu ekki tala við okkur. Þeir vildu ekki líta á okkur. Þeir vildu EKKI VEITA OKKUR FLEIRI HELVÍTIS DRYKKI!" hrópar Le Bon og ber í borðið til áherslu. Blaðamaður er óneitanlega farinn að velta fyrir sér í hvaða félagsskap hann er kominn. „Og þeir tóku aðeins við reiðufé," heldur Nick áfram. „Sem er mjög lúðalegt." „Þeir hefðu nú getað orðið sér úti um meira af því,“ segir Simon og hlakkar í honum. Vindbelgir um allan heim Eftir hverju fómð þið þegar þið sömduð tónlistina? „Ég flaug til Los Angeles að horfa á myndina ásamt Mario,“ segir Nick. „Við vorum með haug af geisladiskum og hann hafði ákveðnar hugmyndir um suma þeirra og sumt lét hann mér eftir...“ „Mario fór eiginlega með okkur að kaupa geisladiska og sagði: Ég ætla að fá þetta og þetta og þetta og þetta,“ grípur Simon fram í. „Síðan leit hann á okkur og sagði: Svona vil ég hafa tónlistina í myndinni. Þið sjáið um það!“ „Við fóram um allt og skoðuðum ýmsa tónlist og... vindbelgi!" heldur Nick áfram. Simon Le Bon finnst þetta óstjóm- lega fyndið og segir: „Já, þessir vindbelgir eru um allan heim.“ Hann vindur sér að uppvörtunar- stúlkunni og segir: „Hef- urðu einhvern tíma velt því fyrir þér hvað er mikið af vindbelgjum um allan heim. Þeir eru úti um allt. Ef maður fer að finna ólykt er allt eins líklegt að einhver hafi verið að leysa vind hinumegin á hnettinum!" „Það kallast fiðrildaáhrifin," segir Niek. „Óreiðukenningin," heldur Simon áfram. „Fiðrildi rekur við í Bangkok," seg- ir Simon. „Það hljómar eins og lagatitill," segir þjónustustúlkan og hlær. Brauð frekar en geisladiska Jæja, segir blaðamaður hálfráð- villtur og langar til að koma sér að efninu. „Ertu viss um að þú viljir spyrja mig fleiri spurninga," segir Simon. Já, svarar blaðamaður ákveðið enda það eina sem hann er hér um bil viss um og bætir við: Nýja plat- an ykkar er ansi áheyrileg. „Electric Barbarella?" Já, hvenær verður hún gefín út? „I augnablikinu verður hún ekki gefin út. Hún hefur aðeins komið út 9^œ.turgaCinn Smiðjuvegi 14, ‘Kópavofli, sími 587 6080 Stuð — stuð — stuð l'kvöld leikurhin eldhressa hljómsveit Stuðbandalagið frá Borgarnesi Opið frá kl. 22—3 Næturgalinn — alltaf lifandi tónlist ■ í Norður- og Suður-Ameríku og Japan. Hún seldist ekkert í Banda- ríkjunum. Hún hefur hins vegar gengið mjög vel í Suður-Ameríku og verið í efstu sætum á vinsælda- listum í Rio. Hængur málsins er sá að Suður- Ameríkubúar kaupa ekki plötur heldur hlusta bara á lögin í útvarp- inu. Fátæktin er svo mikil þar að þeir vilja heldur kaupa brauð. Takk fyrir - það myndi ég líka gera. Við lentum upp á kant við útgáfufyrir- tækið. Þeir sögðu að þeir hefðu sagt upp samningnum við okkur. En raunin var önnur. Við þökkuðum pent fyrir okkur og sögðumst ætla að leita annað. Við erum því að leita okkur að nýjum útgefanda. Við er- um ósamningsbundnir Capitol Records og gjörsamlega óhæfu starfsfólki þeirra. Það er í raun ákaflega leiðinlegt því samstarfið hafði gengið vel við Virgin. En við vorum samnings- bundnir þeim í gegnum Capitol og slæm mál smita alltaf út frá sér. Við erum því hættir hjá Capitol og tökum plötuna með okkur. Við greiðum þeim þóknun fyrir hverja plötu sem selst en eigum upptök- uraar. Við gefum plötuna ekki út strax annars staðar í heiminum vegna þess að við ætlum að hugsa okkar gang. Við erum líka byrjaðir að semja nýja tónlist, öðruvísi tón- list, og ætlum því aðeins að bíða og sjá til. Við hlustum á hana aftur seinna og athugum hvernig okkur líst á. Kannski verðum við óánægð- ir, fellum út nokkur lög og breytum listrænni vinnu við plötuna sem satt best að segja er alveg hræði- leg.“ Erhún unnin af útgáfufyrirtækinu? „Nei, ég vil ekki segja af hverjum," svarar Simon. „Sagan á bakvið það er dapurleg en þannig er það bara. Það gerðist líka á plötunni okkar Black Album.“ Eftir stutta þögn bætir hann við: „Fólk á eftir að kaupa þessa plötu.“ ísland miðdepill heimsins Er Duran Duran á leiðinni til ís- lands? spyr blaðamaður sem lengi hefur heyrt ávæning af því. „Ég hefði mjög gaman af því,“ svarar Simon. „Björk er eini Islend- ingurinn sem ég þekki. En hún er fín. Ég kann vel við hana. Hún er vinkona mín, Björk, mjög góð vin- kona mín. Ég hefði gaman af því að koma til íslands. Jafnvel þótt það væri ekki að spila heldur bara skoða mig um. Mér skilst að það sé stór- kostlegt. Þetta er miðdepill heims- ins núna, er það ekki?“ „Það er alltaf að stækka," skýtur Nick inn í. „Já, allt annað heiminum fer minnkandi, - nema Island!“ segja þeir þáðir í kór. Eftir þetta þróast samræðurnar þannig að Simon Le Bon vill aðeins tala um myndina en ekki Duran Duran og þar sem blaðamaður hef- ur ekki séð myndina er hann ekki beint áhugasamur. Hann hallar sér því aftur í stólnum og hlustar á þá félaga í hrókasamræðum við vini sína um Kalla kanínu og tengsl hans við ítölsku mafíuna. Bara að hann væri ennþá fjórtán ára.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.