Morgunblaðið - 19.06.1999, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 19.06.1999, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Jim Smart EKKI er hægt að segja að veðurguðirnir hafi verið í þjóðhátíðarskapi á 17. júní. Þessi unga stúlka lét það þó ekki á sig fá heldur spennti upp regnhlífina sína til að veijast vatni og vindi. Morgunblaðið/Jim Smart ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti íslands, leggur blómsveig að minnisvarðanum um Jón Sigurðsson á Austurvelli. Hátíðahöld á höfuðborgarsvæðimi 17. júní. Góð aðsókn þrátt fyrir hryssings- legt veður LÖGREGLA og skipuieggjendur hátiðahaldanna 17. júní á höfuð- borgarsvæðinu eru sammála um að þjóðhátíðin hafi almennt farið vel fram og verið ágætlega sótt þótt heldur hryssingslegt veður hafi orðið til að draga nokkuð úr aðsókn. Reykjavík í Reykjavík fóru hátíðahöldin nyög vel fram og án nokkurra vandræða, að sögn Geirs Jóns Þórissonar aðstoðaryfirlög- regluþjóns. Sagðist hann ekki vita betur en að fólk hefði al- mennt verið ánægt með þá dag- skrá sem f boði var enda hefði verið margt um manninn í mið- bænum meðan skemmtiatriðin stóðu sem hæst. „Hér voru vel yfir 20.000 manns um daginn en heldur fækkaði þó þegar kvöld- aði og ég hugsa að um 8000-10.000 manns hafí fylgst með þeirri dagskrá sem þá fór fram,“ sagði Geir Jón. Hann sagði eitthvað hafa verið um ölv- un um kvöldið en hún mun þó ekki hafa valdið neinum vand- ræðum. Þá munu hátíðahöldin hafa gengið slysalaust fyrir sig nema hvað ungur maður féll of- an af styttunni af Ingólfi Arnar- syni á Arnarhóli og meiddist á fótum. Seltjarnarnes Haukur Geirmundsson, æsku- lýðs- og tómstundafulltrúi Sel- tjarnarness, var ánægður með hátíðahöldin þar í bæ. „Þetta gekk alveg frábærlega. Skrúð- gangan var að vísu ekki eins Qöl- menn og venjulega en Eiðistorg var hins vegar troðfullt allan þann tíma sem dagskráin stóð yf- ir. Þetta gekk líka allt afskap- lega vel fyrir sig og við erum því mjög ánægð með hvernig til tókst,“ sagði Haukur. Lögreglan á Seltjamamesi tók undir orð Hauks og sagði hátíðahöldin hafa farið hið besta fram. Mosfellsbær Að sögn Eddu Davíðsdóttur, tóm- stundafulltrúa Mosfellsbæjar, gengu hátíðahöld þar vel fyrir sig. Þó segir hún veðrið hafa strítt mönnum svolítið og að heldur færri en venjulega hafí tekið þátt í gleðskapnum. „Hér vom aðallega á ferð foreldrar sem vildu leyfa börnum sínum að taka þátt í skrúðgöngunni og Engu líkt! Nám í málaskóla er árangursríkt og ógleymanlegt sumarleyfi. Kynntu þér málið. Samvinnuferðir Landsýn Á VBrOi fyrir þigl Morgunblaðið/Halldór Kolbeins MARGT var um manninn á Amarhóli í gær til að fylgjast með þeim skemmtiatriðum sem boðið var uppá. Morgunblaðið/Jim Smart ÞÓREY Sigþórsdóttir, leikkona, flutti ávarp fjallkonunnar að þessu sinni. þess háttar. Við sáum hins vegar minna en venjulega af öðra fólki,“ sagði Edda. Kópavogur í Kópavogi er áætlað að um 4.000-5.000 manns hafi tekið þátt í hátíða- höldum á Rútstúni, að sögn Lindu Udengard, æskulýðsfulltrúa. Sagð- ist hún ánægð með alla þætti hátiðarinnar aðra en veðrið og kvað þá nýbreytni að bjóða uppá kvölddagskrá hafa gefið góða raun. „Ég held að fólk í Kópavogi hafi al- mennt verið ánægt með þann kost að geta hald- ið þjóðhátíð í sinni heimabyggð. Hér gekk líka allt vel og segja má að dagurinn hafi runnið Lögreglan um handtöku herstöðva- andstæðinga á Ingólfstorgi Ekkert ðeðlilegt við handtökuna GEIR Jón Þórisson, aðstoðaryf- irlögregluþjónn í Reykjavík, seg- ir herstöðvarandstæðingana þrjá sem handteknir voru á Ingólfs- torgi í gærmorgun, hafa verið gripna þar sem þeir hafi haft mótmæli sín í frammi á afmörk- uðu hátíðarsvæði þar sem skipu- lögð dagskrá átti að fara fram. Geir Jón, sem var einn þeirra lögreglumanna sem stóð að handtökunni, segir lögregluna hafa lagalegar forsendur fyrir þessari aðgerð og að ekkert sé óeðlilegt við hana. Mennirnir þrír hafi einfaldlega verið hand- teknir þar sem þeir trufluðu hina fyrirfram ákveðnu dagskrá með því að fara inn á hátíðarsvæðið. Síðan hafi þeir verið færðir til stuttrar yfirheyrslu og loks sleppt aftur að henni lokinni. Sagði Geir Jón jafnframt að mönnunum hefði verið fyllilega heimilt að koma boðskap sínum á framfæri annars staðar en á af- mörkuðu hátíðarsvæði. Við því hefði lögreglan ekki amast. afskaplega ljúft og blautt í gegn,“ sagði Linda. Lögreglan í Kópavogi var að sami skapi ánægð og sagðist ekki hafa þurft að skipta sér af nokkmm hlut meðan á dagskrá hátíða- haldanna stóð. Garðabær Gunnar Einarsson, forstöðumað- ur fræðslu- og menningarsviðs Garðabæjar sagði þátttöku í öll- um dagskrárliðum hátíðahald- anna í Garðabæ hafa verið góða. „Nefna má að kvenfélagið var með kaffisölu í skólanum og þar var fullsetið. Síðan vomm við með dagskrá í íþróttahúsinu frá 17-18 og ég giska á að þar hafi verið 500-600 manns. Um kvöldið var svo diskótek fyrir yngri kyn- slóðina og þar var hin besta stemmning hjá foreldram og börnum,“ sagði Gunnar. Lögregl- an í Garðabæ þurfti að eigin sögn að hafa meiri áhyggjur af veðrinu en þátttakendum í hátíð- ardagskránni og kvað ekkert óeðlilegt hafa borist inn á sitt borð. Hafnaríjörður í Hafnarfirði gerði veðrið sitt besta til að setja strik í reikning skipuleggjenda hátíðarhaldanna og sagði Arni Guðmundsson framkvæmdastjóri 17. júní- nefndar Hafnarfjarðar það hafa verið afar erfitt að halda dag- skránni gangandi með eðlilegum hætti yfir daginn. Það mun þó hafa tekist og kvaðst Árni merkja að fólk hefði verið ánægt með þau atriði sem í boði voru. Þá sagði hann að dagskrárliðir kvöldsins, svo sem djasstónleik- ar og gömlu dansarnir hefðu komið afskaplega vel út og væru Hafnfirðingar því ánægðir þeg- ar á heildina væri litið. Lögregl- an í Hafnarfírði tók í sama streng og sagði hátíðahöldin hafa gengið ljúflega og slysa- laust fyrir sig. Helst væri hægt að kvarta undan veðrinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.