Morgunblaðið - 19.06.1999, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.06.1999, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ráðgjafarfyrirtæki skilar skýrslu um úttekt á Mýrarhúsaskóla Skólastjóra og aðstoðarskóla- stjóra sagt upp störfum SKÓLASTJÓRA og aðstoðarskóla- stjóra Mýrarhúsaskóla á Seltjarn- amesi hefur verið sagt upp störfum í kjölfar þess að ráðgjafarfyrirtækið Skref fyrir skref, sem bæjaryfirvöld fengu til að gera úttekt á skólanum, skilaði niðurstöðum sínum. Sigur- geir Sigurðsson, bæjarstjóri á Sel- tjamarnesi, staðfesti í samtali við Morgunblaðið í gær, að skólastjórn- endunum hefði verið sagt upp. Aðspurður hvort skólastjómend- unum hefði verið gert að láta strax af störfum sagði Sigurgeir að ekki hefði verið gerð krafa til þess. Hann vildi að öðru leyti ekki tjá sig frekar um málið og sagði að skýringar yrðu gefnar í fréttatilkynningu sem send yrði út eftir bæjarstjórnarfund sem halda á næstkomandi miðviku- dag. Forystumenn KI gagnrýna uppsagnimar harðlega Forystumenn Kennarasambands Islands gagnrýna uppsagnirnar harðlega og þær aðferðir sem not- aðar voru. Hefur KÍ falið lögfræð- ingi sambandsins að kanna réttar- stöðu skólastjórans og aðstoðar- skólastjórans. Guðrún Ebba Ólafsdóttir, vara- formaður KÍ, segir að krafist verði skýringa á uppsögnunum. „Pað er alveg ljóst að þau hafa ekkert brot- ið af sér. Aðstoðarskólastjórinn hefur starfað þarna í um 30 ár og ég veit ekki til þess að það hafi ver- ið fundið að störfum hans,“ sagði hún. Guðrún sagði einnig að ef um væri að ræða erfiðleika í skólastarf- inu í Mýrarhúsaskóla þyrftu bæjar- yfirvöld og skólanefnd að gefa skýr- ingar á því af hverju ekki hefði ver- ið brugðist fyrr við. ,Af hverju er fengið ráðgjafarfyrirtæki, sem mér vitanlega hefur aldrei gert úttekt á skóla fyrr, rétt fyrir skólalok núna í vor?“ sagði hún. Guðrún Ebba sagði að það væri mjög vafasamt að byggja svo rót- tækar aðgerðir sem hér um ræðir á úttekt sem gerð væri í lok skólaárs og byggðist eingöngu á viðtölum. Hún sagði að bæjarstjórnin gæti ekki firrt sig ábyrgð á uppsögnun- um með því að vísa til þessarar út- tektar. „Það er sveitarfélagið sem rekur skólann og ber ábyrgð á skólahaldinu. Það er mjög ófaglegt að nota þessa skýrslu sem rök- stuðning fyrir uppsögnunum," sagði Guðrún Ebba. Bflvelta á Suður- landsvegi SEX farþegar og ökumaður jeppa- bifreiðar voru fluttir á slysadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur í gærkvöldi, með minniháttar meiðsl að því er talið er, eftir að jeppinn hafði oltið út af Suðurlandsvegi austan við Hafra- vatnsveg á níunda tímanum. Sjömenningarnir voru allir í bílbelti, að sögn lögreglunnar í Reykjavík, og má þakka beltunum að ekld fór verr. Að sögn lögreglu kveðst ökumað- ur jeppans hafa misst hjól bifreiðar- innar ofan í vatnsrásir í veginum og gert tilraunir til þess að komast upp úr þeim. Við það hefði hann hins veg- ar misst vald á bifreiðinni með fyrr- greindum afleiðingum. Jeppinn skemmdist mikið og þurfti kranabif- reið að draga hann af vettvangi eftir slysið. -------------- Kærumál vegna barnaspítala Stöðva ekki fram- kvæmdir ÚRSKURÐARNEFND skipulags- og byggingarmála hefur hafnað kröfu um að framkvæmdum við barnaspítala á lóð Landspítala verði frestað meðan kæra nágranna spít- alans er til meðferðar hjá nefndinni. Hjalti Steinþórsson, fram- kvæmdastjóri nefndarinnar, sagði við Morgunblaðið, að augljóst hag- ræði byggjandans af því að láta framkvæmdirnar fara fram þegar sumarlokanir á kvennadeild valda því að ónæði fyrir starfsemi spítal- ans er í lágmarki hefði verið tekið fram yfir hagsmuni kærendanna af því að fá framkvæmdimar stöðvað- ar. „Þama var farið út í mat á hags- munum aðila,“ sagði Hjalti. Hann sagði að þessi ákvörðun væri háð því skilyrði að farið yrði að ákvæðum útboðslýsingar um sprengingar á byggingarsvæðinu en samkvæmt þeim skilmálum beri að halda sveifluhæð og agnarhraða við sprengingar í lágmarki. Með því séu tryggðar hverfandi líkur á að kærendur verði fyrir tjóni og að ónæði þeirra verði lítið. Þá sé við það miðað að sprengingamar valdi ekki truflun á starfsemi spítalans. Engar steypuframkvæmdir Hjalti sagði að meðal þess sem hefði styrkt þessa niðurstöðu hefði verið yfirlýsing heilbrigðis- og tryggingaráðuneytisins um að ekki yrði byrjað á neinum steypufram- kvæmdum eða varanlegri mann- virkjagerð á lóðinni meðan málið er til úrskurðar. Hjalti sagði að meðferð málsins í úrskurðamefndinni gæti tekið nokkurn tíma vegna anna. Almennt er gert ráð fyrir að meðferð ljúki innan tveggja mánaða en Hjalti sagði hugsanlegt að gripið yrði til undantekningarákvæðis, sem heim- ilar að afgreiða viðamikil mál innan þriggja mánaða. Morgunblaðið/Arnaldur Sumarið nýtist seglbrettamönnum ÁHUGAMENN um seglbretti eru sennilega meðal þeirra fáu sem fagnað hafa rokinu og jafnvel rign- ingunni á suðvesturhorni landsins síðastliðnar vik- ur. Þessi kappi var einn þeirra sem nýtti sér strekkinginn skammt utan við Seltjarnarnes á dög- unum og ekki annað að sjá en rokið og öldugangur- inn hafi gefið tilefni til fjölbreytilegra æfinga á seglbrettinu. Kvennaflug til Kaup- mannahafnar TÍMAMÓT verða hjá Flugleiðum í dag þegar eingöngu konur verða í áhöfn flugs til og frá Kaupmanna- höfn. Að sögn Geirþrúðar Al- freðsdóttur flug- sfjóra er þetta í fyrsta sinn sem eingöngu konur eru í áhöfn þotu, en þetta hefur áður gerst á Fokker-vél. Geir- þrúður segir að sér li'tist vel á flugið og ekki skemmi fyrir að þetta ber upp á kvenréttindadaginn 19. júní. Geirþrúður segir að þetta sé merkur áfangi í flugsögu íslands og henni líst mjög vel á flugið í dag. Nú eru þrjár konur orðnar flugstjórar hjá Flugleiðum, ein stýrir 757-þotu, Geirþrúður stýrir sjálf 737-þotu og sú þriðja stýrir Fokker-flugvél. Geirþrúður Alfreðsdóttir Stjórnarformaður Landssimans gagnrýnir Samkeppnisstofnun í bréfí til ráðherra Segir stofnunina í áróðurs- herferð gegn Landssímanum ÞÓRARINN V. Þórarinsson, stjómarformaður Landssímans, hefur sent Finni Ingólfssyni við- skiptaráðherra bréf þar sem hann gagnrýnir harðlega vinnubrögð og málflutning Samkeppnisstofnunar við birtingu ákvarðana sinna og álitsgerða um málefni Landssímans. Setji reglur um birtingu Þórarinn sagði í samtali við Morgunblaðið að megintilgangur erindisins til ráðherra væri að óska eftir því að ráðherra setti reglur um hvernig staðið er að birtingu álita og úrskurða Samkeppnisstofnunar, þannig að tryggt sé að þeir sem ákvarðanimar beinast að fái þær í hendur á undan fjölmiðlum. í bréfinu segir Þórarinn það m.a. áhyggjuefni að Samkeppnisstofnun virðist skilja hlutverk sitt sem markaðsafl eða aðili sem beita beri öllum tiltækum ráðum til að vinna sjónarmiðum sínum fylgi meðal al- mennings. „Hefur stofnunin nú gengið svo langt í skipulagðri áróð- ursherferð gegn Landssíma Islands hf. að ég tel óhjákvæmilegt að vekja athygli ráðuneytisins á afar sér- stæðum vinnubrögðum í þessu efni,“ segir í bréfinu. Hann heldur því fram að umrædd álit Samkeppnisstofnunar hafi borist fjölmiðlum áður en Lands- síminn fékk þau til skoðunar. Einnig hafi fjölmiðlum verið sendur útdráttur úr álitsgerðum, þar sem helstu þættir sem stofnunin hafi kosið að halda fram voru tíundaðir. „Ég er mjög ákveðið þeirrar skoð- unar að þessi háttur á birtingu álits- gerða og úrskurða Samkeppnis- stofnunar hafi þann tilgang einan að gera þeim sem stofnunin ber sökum erfitt að tjá sig um málið - frétta- mennimir fái betri upplýsingar og fyrr um meginþætti málsins. Þá eru úrskurðir jafnan sendir út undir lok vinnudags, þannig að lítill tími er til undirbúnings andsvara," segir enn- fremur í bréfinu. Þórarinn gagnrýnir Samkeppnis- stofnun einnig fyrir að taka fullan þátt í opinberri umræðu um úr- skurði stofnunarinnar og vitnar m.a. í því sambandi í formlega yfir- lýsingu stofnunarinnar sem birt var í Morgunblaðinu. „Sú yfirlýsing er rætin samsuða sem sýnist hafa þann tilgang einan að koma enn frekar höggi á Landssímann, sem ákveðið hefur að kæra úrskurð til áfrýjunarnefndar," segir í bréfinu. í dag IGARDOG Hákarlar á Hásteinsvelli í Eyjum/C2 Arnór spáir í stórleik helgarinnar/C1 Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.