Morgunblaðið - 19.06.1999, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Höfuðborgarsvædið
Tuttugu manns vinna við að breyta kúabúi í skóla fyrir Staða- og Víkurhverfí
A skóla-
bekk
á hlöðu-
loftinu
FRAMKVÆMDIR við
skólahúsnæði á rishæðinni í
vesturálmunni á Korpúlfs-
stöðum eru í fullum gangi.
Þai- sem áður var hlaða í
stórbúi Thors Jensens setj-
ast um 110 böm á skólabekk
í byrjun september.
Árið 1934 voiu um 300 kýr
í fjósinu á Korpúlfsstöðum,
en nú, í lok aldarinnar, er
gert ráð fyrir að á næstu ár-
um muni um 250 börn úr
Staða- og Víkurhverfi í Graf-
arvogi stunda nám í þessu
fyrrverandi stórbúi. Húsið
hefur fengið nýtt hlutverk,
en auk þess að hýsa skóla-
börn hafa listamenn og Golf-
klúbbur Reykjavíkur að-
stöðu í öðrum hlutum þess.
Ótrúlega gott
ástand á húsinu
Sigurður Ingi Sveinsson,
verkstjóri Trésmiðju
Reykjavíkur, sem sér um
framkvæmdir á staðnum,
sagði að framkvæmdir hefðu
að mestu gengið vel. Rigning
og hvassviðri undanfarið
hefðu þó sett smástrik í
reikninginn varðandi við-
gerðir á þakinu.
„Það er alveg með ólíkind-
um hvað ástandið á húsinu
er gott miðað hvað það hefur
staðið lengi í niðurníðslu,"
sagði Sigurður Ingi. Hann
sagði að framkvæmdir hefðu
hafist í mars síðastliðnum og
að um tuttugu manns ynnu á
staðnum um þessar mundir.
A þeim stað sem nú er verið
að vinna við var áður
geymsla fyrir Reykjavíkur-
borg og að sögn Sigurðar
Inga fór drjúgur tími í að
hreinsa út ýmislegt dót.
Sigurður Ingi sagði að
verið væri að innrétta efri
hæðina, en hún verður að
fullu tekin í notkun í haust.
Jarðhæðin og kjallarinn
verða smám saman tekin í
notkun á næstu árum. I
kjallaranum verður m.a.
mötuneyti íyrir bömin og á
jarðhæðinni verður rými
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
FRAMKVÆMDIR við skólahúsnæðið á Korpúlfsstöðum, sem taka á í notkun í haust, hafa að mestu gengið vel að sögn Sig-
urðar Inga Sveinssonar, verkstjóra hjá Trésmiðju Reykjavíkur. Á minni myndinni má sjá maríuerlu fæða unga en hún
hefur komið sér fyrir og gert hreiður á einum burðarbitanum í rjáfri hússins.
vegna lengdrar viðveru í
skóla.
Sigmar Pétursson, veit-
ingamaður í Golfskála GR í
austurálmu hússins, sagði
kylfinga jákvæða gagnvart
framkvæmdunum í hinum
endanum.
„Menn eru bara ánægðir
með að sjá þessar endurbæt-
ur á húsinu og mikil ánægja
er með að húsið skuli vera
snyrt að innan og utan,“
sagði Sigmar. Hann sagðist
taka því vel að fá skólaböm
á svæðið í haust. Ef til vill
myndi eitthvað fjölga í
klúbbnum þar sem líklega
myndu einhverjir ungir
smitast af golfbakteríunni.
Staðan metin
eftir fimm ár
Það var í nóvember á síð-
asta ári sem borgarstjórn
Reykjavíkur ákvað að vest-
urálma Korpúlfsstaða yrði
tekin til tímabundinna nota
fyrir gmnnskóla í Staða- og
Víkurhverfi, en áætlaður
kostnaður vegna fram-
kvæmdanna er um 70 millj-
ónir króna.
Guðbjörg Andrea Jóns-
dóttir, forstöðumaður þró-
unarsviðs Fræðslumiðstöðv-
ar Reykjavíkur, sagði að til
að byrja með myndu böm á
aldrinum 6 til 12 ára nema
við skólann, en síðan myndi
fjöiga um einn árgang á ári,
þ.e. þau börn sem nú byrja í
7. bekk verða í ákveðnu
frumkvöðulshlutverki því
þau munu ætíð vera elsti ár-
gangurinn í skólanum þar til
þau ljúka samræmdum próf-
um.
Að sögn Guðbjargar er
gert ráð fyrir að Víkurskóli
taki til starfa árið 2001, en
ekki er enn komin verkáætl-
un fyrir Staðaskóla. Hún
sagði að þegar Staðaskóli
tæki til starfa, sem verður
varla fyrr en í fyrsta lagi eft-
ir fimm ár, yrði skólinn á
Korpúlfsstöðum lagður nið-
ur.
Það er síðan menningar-
málanefnd, í samvinnu við
Miðgarð, byggingadeild
borgarverkfræðings og
byggingalistadeild Kjai’vals-
staða, sem mun ákveða
hvernig Korpúlfsstaðir
verða best nýttir í framtíð-
inni.
Hreiður á burðarbita
Það em ekki bara iðnaðar-
mennimir á staðnum, sem
era að vinna fyrir salti í
grautinn, því lítill fugl, mar-
íuerla, hefur komið hreiðri
fyrir ofan á einum burðarbit-
anum uppi í rjáfri hússins.
Hleri á hlið hússins er alltaf
hafður opinn til að fuglinn
geti flogið út til að sækja
orma og annað góðgæti fyrir
afkvæmin og að sögn Sig-
urður er oft fjör á loftinu.
Hann sagði sambúðina við
fuglinn góða og menn sýndu
fuglinum fullan skilning,
enda kannski sjálfir að vinna
til að fæða sína unga.
-------------;-----^--------1 •8'
Staðsetning sölutjalda á Laekjartorgi |
"-----------/.
//
É® Öta°
AUSTUR-
VÖLLUR
Götumarkaður
á Lækjartorgi
Miðborgin
BORGARRÁÐ hefur sam-
þykkt skilmála um götu-
og torgsölu í miðborg
Reykjavíkur, þar sem með-
al annars er gert ráð fyrir
götumarkaði á Lækjar-
torgi á föstudögum og
laugardögum. Götusala
verður ekki heimiluð á
Ingólfstorgi nema í tengsl-
um við skipulagða atburði
á torginu.
Tillagan gerir ráð fyrir
að þeir sem selja vörur á
götum miðborgarinnar
uppfylli ákvæði laga um
verslunaratvinnu. Jafn-
framt að sala á matvælum
sé háð starfsleyfi Heilbrigð-
iseftirlits Reykjavíkur.
Um sölu á Lækjartorgi
segir að heimilt sé að selja
þar ávexti, grænmeti,
blóm, listmuni, heimilisiðn-
að, fornmuni, notaðan og
nýja fatnað og eigin fram-
leiðslu s.s. ýmsa smávöru.
Einungis er heimilt að
leigja sama aðila einn sölu-
bás og er stærð og útlit
sölutjalds háð samþykki
borgarskipulags. Skal það
sett upp af umsjónaraðila
samkvæmt skipulagi svæð-
isins og aðeins á þeim stað
sem leyfið nær til og hann
skal einnig sjá um að taka
það niður.
Korpúlfsstaðir
Islands-
banki
flytur
Hafnarfjörður
TIL stendur að reisa
nýtt hús á lóðinni við
hliðina á Hafnarborg við
Strandgötu 36. Þangað
flytur íslandsbanki
bækistöðvar sínar og
gæti það jafnvel orðið
með næsta vori, að sögn
Alberts Sveinssonai’ úti-
bússtjóra.
Með þessum flutning-
um er bankinn að hag-
ræða hjá sér en núver-
andi húsnæði við Strand-
götu 1 er of stórt. Bank-
inn á kjallarann, jarð-
hæðina, þar sem af-
greiðslan er, og einnig
rými á efri hæð, sem
Hafnarfjarðarbær er nú
með í leigu.
Ekki stendur til að
minnka umsvif bankans í
Hafnarfirði og útibúið á
Reykjavíkurvegi verður
starfrækt áfram. Við
flutningana verður útlit
útibúanna endurnýjað.
Hafnarfjarðarbær hef-
ur nýverið fest kaup á
húseign Islandsbanka að
Strandgötu 1 og verður
húsið allt tekið undir
starfsemi bókasafnsins.
Islandsbanki mun hins
vegar flytja sig um set á
Strandgötunni í nýja
byggingu að Strandgötu
36 við hliðina á Hafnar-
borg. Þar hefur staðið til
um nokkurt skeið að
hefja byggingarfram-
kvæmdir og var í fyrstu
gert ráð fyrir að afhend-
ing færi fram í haust, en
að sögn Alberts verður
það líklega ekki fyrr en
næsta vor.
------++-+-------
Gróðrar-
stöð stækk-
ar við sig
Lambhagi
TILLAGA hefur verið
lögð fram um breytingu
á deiliskipulagi borgar-
innar varðandi stækkun
Gróðrarstöðvarinnar
Lambhaga við Vestur-
landsveg. Lóð gróðrar-
stöðvarinnar stækkar
um 11.200 fermetra og
segir Guðný Aðalsteins-
dóttir hjá Borgarskipu-
lagi Reykjavíkur að þar
sé gert ráð fyrir tveimur
nýjum gróðurskálum.
Skýrsla Línuhönnunar um umferðarmál í Kópavogi á árunum 1992 til 1997 lögð fram í bæjarráði
Urbætur á nokkrum stöðum á þessu ári
Kópavogur
NOKKRAR breytingar
verða gerðar til að auka ör-
yggi í umferðinni í Kópavogi
á þessu ári. Bæjaryfirvöld í
Kópavogi létu gera úttekt á
umferðaröryggi og var
Verkfræðistofan Línuhönn-
un fengin til starfans.
Skýrslan var lögð fram á
fundi bæjarráðs fyrir
nokkru og vora tillögur Þór-
arins Hjaltasonar bæjar-
verkfræðings til úrbóta sam-
þykktar.
Tillögur Þórarins vora
helstar þær að á þessu ári
verði sett stöðvunarskylda á
Urðarbraut gagnvart Kópa-
vogsbraut. Jafnfram verði
settar upphækkaðar stein-
lagnir á Urðarbraut við
Kópavogsbraut, kostnaður
er áætlaður 500 þúsund
krónur. Að grindverk á brú
á Digranesvegi yfir Hafnar-
fjarðarveg verði beygt niður
í gras við austurenda brúar-
innar, kostnaður er áætlaður
100 þúsund krónur. Einnig
að setja miðeyju á beygju á
Engihjalla og stefnuörvar á
vegrið, kostnaður er áætlað-
ur ein milljón króna. Einnig
á að athuga með bætta lýs-
ingu á sama stað.
í öðra lagi gerir bæjar-
verkfræðingur að tillögu
sinni að óskað verði sem
fyrst eftir samstarfi við
Vegagerðina um uppsetn-
ingu myndavélar við mót
Reykjanesbrautar og Ný-
býlavegar til að draga úr
akstri gegn rauðu ljósi og
að mót Nýbýlavegar og
Auðbrekku verði stefnu-
greind með því að afmarka
vinstri beygju af Nýbýla-
vegi meðfram umferðareyju
á Nýbýlavegi. Jafnframt
verði vinstri beygja af Auð-
brekku inn á Nýbýlaveg
bönnuð.
Þá er tillaga um að í sam-
ráði við Vegagerðina verði
ránnsakaðir nánar mögu-
leikar á að auka umferðarör-
yggi á Nýbýlavegi við
Skeljabrekku, Þverbrekku/
Álfatún og Skemmu veg/Val-
hjalla, og að umferðarörygg-
isáætlun fyrir Kópavogsbæ,
þ.e.a.s. framkvæmdaáætlun
um aukið umferðaröryggi til
2001, verði endurskoðuð.
Vandamál víða
í skýrslu Línuhönnunar
era fjölmörg gatnamót og
einstakar götur tekin og
skoðuð með hliðsjón af
slysa- og tjónaskýrsum á
tímabilinu 1992 til 1997. Af
lestri skýrslunar má ráða að
víða er úrbóta þörf, en
vandamálin misstór og mikil
eins og nærri má geta. I til-
lögum bæjarverkfræðings
er t.d. minnst sérstaklega á
uppsetningu myndavéla til
að stemma stigu við akstri
gegn rauðu Ijósi á gatna-
mótum Nýbýlavegar og
Reykjanesbrautar. Á um-
ræddu tímabili, 1992-1997
vora skráð þar 22 óhöpp,
þar af voru 9 með meiðslum.
Níu óhöpp urðu þegar ekið
var gegn rauðu ljósi og þar
af sex með meiðslum, segir í
skýrslunni.
Einnig era nefnd gatna-
mót Nýbýlavegar og Auð-
brekku, en í skýrslunni
kemur fram að á nefndu
tímabili hafi orðið þar 13
óhöpp, þar af 8 með meiðsl-
um, „eða meira en helming-
urinn sem þykir nokkuð
mikið,“ eins og þar stendur.
Einnig stendur um þessi
gatnamót, að í dag séu þau
mjög erfið vegna mikils
hraða og umferðar, án allrar
stefnugreiningar, á Nýbýla-
vegi.
Skýrslan er seld á skrif-
stofu tæknideildar Kópa-
vogs, á þriðju hæð í Fann-
borg 2 og kostar eintakið
eitt þúsund krónur.