Morgunblaðið - 19.06.1999, Síða 8
8 LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
■W
■W
Clinton rabb-
ar við Davíð
—< —-
íSjGUnttmsagöi
ÍJívíö'æö hann
mæti miTtiis
Það fór ekkert á milli mála að kapparnir þínir gerðu útslagið á átökin hr. Davíð.
ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN?
Mögnuð opn-
un í Grímsá
„JA, NÚ eru menn
glaðir, skal ég segja
þér,“ sagði Sturla Guð-
bjamarson á Fossatúni
við Grímsá í gærdag, en
þá hafði verið veitt í
ánni sem nam einum
degi. Veiði hófst eftir
hádegi á þjóðhátíðar-
daginn og á hádegi í
gær, eftir tvær vaktir,
voru komnir 68 laxar á
land. „Sumir urðu að
hætta klukkan rúmlega
níu í morgun, voru þá
búnir að fylla kvótann.
Þetta er það langbesta
sem ég man eftir í opn-
un síðan að við bændur
byrjuðum sjálfrr að sjá
um okkar mál,“ sagði
Sturla ennfremur.
Mest hefur veiðin
verið á svæðinu frá
Laxfossi og niður Þing-
nesstrengi. Þingnes-
strengirnir eru að sögn
Sturlu „kakkaðir“ af
laxi og flskur virðist
jafnframt vera genginn
upp um alla á, en í gær-
morgun veiddust til
dæmis laxar á stöðum
eins og Kotakvörn og
Tj amarbr ekkuflj óti,
sem eru í ánni ofan-
verðri. Mest er veitt á
maðk, en flugan er
einnig að gefa, þannig
fékk einn veiðimann-
anna fimm af sex löx-
um sínum fyrsta kvöld-
ið á flugu. Laxinn er blandaður að ar Kristjánsson veiddi í Þingnes-
stærð, smálax og stórir í bland. Sá strengjum. Fyrstu vaktina veidd-
stærsti var 19 punda lax, sem Óm- ust 33 laxar og vom menn hæst-
SIGRÍÐUR Þorláksdóttir hampar hér 11
punda hrygnu af Stokkhylsbroti í Norð-
urá . . . og leiðist ekki.
ánægðir, en hafi menn haldið að
rjóminn hafi þá verið fleyttur ofan
af, kom annað á daginn í gær-
morgun. „Það er fullt af laxi og
þeir eiga góða daga í vændum sem
á eftir koma. Þessi byrjun er
mögnuð og veit sannarlega á gott
framhald," sagði Sturla.
„Dreifist vel...“
Þráinn Júlíusson kokkur í veiði-
húsinu við Þverá sagði veiðina
mjög góða, og menn væm al-
mennt ánægðir. „Áin er að vísu
gmggug og mikil núna, en það er
í fyrsta sinn síðan að veiðin hófst.
Laxinn dreifist enda vel og menn
em ekki síður að fá laxa upp um
alla Kjarrá en hér neðar í sveit-
inni. Þetta era svona 200 laxar í
það heila, um það bil 60% úr
Þverá og 40% úr Kjarrá. Það er
eðlileg skipting, Kjarrá var jú
opnuð nokkmm dögum seinna,“
sagði Þráinn. 22 og 20 punda lax-
arnir sem áður hefur verið greint
frá eru enn stærstu laxarnir úr
ánni.
„Erfíður veiðiskapur...“
„Það em komnir um 60 laxar og
menn em að fá fisk mjög víða.
Þetta er erfiður veiðiskapur, áin er
mjög vatnsmikil og stundum skol-
uð. En á heildina litið emm við
ánægðir, það er að koma talsvert
inn af fiski og hann er enn sem
komið er með mjög háa meðal-
þyngd,“ sagði Asgeir Heiðar,
leigutaki Laxár í Kjós, í gærdag.
Úr ýmsum áttum
Tíu laxar veiddust á þjóðhátíðar-
daginn á svokölluðu Munaðames-
svæði í Norðurá og sáu menn þar
mikið af laxi á ferðinni. Það boðar
gott fyrir aðalsvæði árinnar sem
hefur verið fremur dauft að undan-
förnu. Sama dag lauk holl til dæm-
is veiðum þar með aðeins um 20
laxa.
Fyrstu laxamir hafa veiðst í
Stóm-Laxá í Hreppum. Ekki vit-
um við hve margir, en frést hefur
af a.m.k. tveimur löxum, en veiði
hófst á miðvikudag.
Seinni partinn í gær vom fyrstu
veiðimennimir að tygja sig til
veiða í Miðfjarðará og sagði Þrá-
inn kokkur í veiðihúsinu Laxa-
hvammi að stemmning væri góð,
enda hefðu menn séð mikinn lax
víða á svæðinu.
Nýr formaður UNIFEM á íslandi
Fögnum
nvium félögum
Sigríður Margrét
Guðmundsdóttir
AÐALFUNDI
UNIFEM á ís-
landi var nýlega
kosinn nýr formaður fé-
lagsins. Sigríður Margrét
Guðmundsdóttir hefur
tekið við formannsstarf-
inu af Margréti Einars-
dóttur. Sigríður var spurð
hvert væri markmið þessa
félags.
UNIFEM er kvennafé-
lag innan vébanda Sam-
einuðu þjóðanna. Það
vora konur í stöðum
fastafulltrúa hjá Samein-
uðu þjóðunum sem tóku
sig saman og stofnuðu fé-
lagið vegna þess að þeim
þóttu aðferðir Sameinuðu
þjóðanna stundum full-
hæverskar og ekki nægi-
lega skilvirkar í hjálpar-
starfi. Markmið þessa fé-
lags er að styðja konur í þróunar-
löndunum til sjálfsbjargar og
lögð er áhersla á að verkefnin
sem félagið styrkir séu sjálf-
sprottin, þeir sem þiggi hjálpina
komi með hugmyndimar. Verk-
efnin em síðan skipulögð frá aðal-
skrifstofunni í New York.
- Og hvað er helst á döfínni á
íslandi?
Það er mjög margt, vegna þess
að UNIFEM á íslandi er tíu ára
á þessu ári. Við höfum í hyggju að
gefa út afmælisrit til þess að
vekja athygli á UNIFEM. í haust
verður haldinn norrænn fundur
félaga í UNIFEM, þar sem ræða
á hvemig við getum staðið sterk;
ég vil vekja athygli á að
UNIFEM er ekki eingöngu ætlað
konum. Þótt félagið styrld konur,
geta karlmenn starfað í því. Við
ætlum einnig að gera átak í að
kynna félagið og þau verkefni
sem UNIFEM á Islandi er að
styrkja.
- Hvaða verkefni eru það?
Við fáum verkefnalista frá New
York sem við getum greitt fé til,
sem síðan er ráðstafað þaðan. Af
þeim verkefnalista höfum við val-
ið okkur að styrkja konur sem
stjórna býflugna- og hunangs-
rækt í Mexíkó, og fræða konur í
Indlandi um þjóðfélagslegan rétt
sinn og leiðir til þess að hafa áhrif
í samfélaginu. Við styrkjum
einnig átak UNIFEM-samtak-
anna til þess að útrýma ofbeldi
gagnvart konum og bömum - nú
hefur sjónum sérstaklega verið
beint að afnámi þess að umskera
konur, sem ennþá viðgengst ótrú-
lega víða.
- Hvernig gengur að safna fé til
þessara verkefna?
Fyrir ötult starf þeirra kvenna
sem hafa undanfarin ár starfað á
vegum UNIFEM á íslandi hefur
UNIFEM nú fengið fjárveitingu
frá íslenska ríkinu, 2,5 millj.kr.,
og er það alger forsenda þess að
við getum tekið þátt í þessu al-
þjóðlega starfi. Auk þess er hver
einstaklingur, sem
skráir sig í UNIFEM
og greiðir til þess ár-
gjald, ómetanlegur
stuðningur. Við höf-
um látið hanna litla
kertastjaka með merki
UNIFEM, svo og nælur og fleiri
smáhluti sem seldir eru til ágóða
fyrir félagið. Loks höfum við í
hyggju að láta gefa út kveðju-
kort.
- Hvar hefur félagið aðstöðu?
Við höfum skrifstofu á Lauga-
vegi 7 í húsnæði Mannréttinda-
skrifstofu Islands. Við emm ný-
lega komin með þessa skrifstofu
og það er alger bylting að hafa
fengið þessa aðstöðu. Auk þess
►Sigríður Margrét Guð-
mundsdóttir er fædd í Reykja-
vík 1950. Hún lauk kennara-
prófí frá Kennaraskóla íslands
1971. Hún starfaði sem kenn-
ari og umsjónarmaður barna-
tíma Sjónvarps, Stundarinnar
okkar, ásamt Hermanni Ragn-
ari Stefánssyni um árabil. Hún
bjó í Bretlandi í sex ár, þar
sem hún lagði stund á nám í
leikstjórn og leikhúsfræðum.
Hefur síðan starfað við leikhús
við leiksljórn og skriftir en
stýrir nú menningarþættinum
Kristal á Stöð 2. Sigríður er
gift Kjartani Ragnarssyni.
Hún á tvo syni af fyrra hjóna-
bandi og Kjartan einn son.
höfum við nú ráðið starfsmann í
hálft starf.
-Er starfsemi UNIFEM um-
fangsmikil erlendis?
UNIFEM er með deildir í
nítján löndum og á þeim tíma sem
félagið hefur starfað hefur það
komið að verkefnum til hjálpar
konum um allan heim. Sú hug-
mynd hefur komið upp að halda
næsta alþjóðlega þing UNIFEM
árið 2000 á íslandi þótt ekki sé
endanlega búið að taka ákvörðun
um að svo verði.
- Hvers vegna fórst þú að
starfa í þessu félagi?
Upphaflega var ég beðin að
koma þar á fund til þess að segja
frá dvöl minni í Mexíkó, þar sem
ég dvaldi meðal maya-indíána. Þá
fann ég að þarna var vettvangur
til þess að starfa í félagsskap sem
raunverulega getur komið illa
stöddum konum til hjálpar. Þeg-
ar ég dvaldi í Mexíkó fann ég hve
mikið munar um hverja einustu
manneskju sem gerir eitthvað til
hjálpar, hvort sem það er í formi
fjárstuðnings eða vinnuframlags.
Þar er til dæmis fjöldi manns
sem vinnur sjálfboðavinnu. Ég
fékk þar sérstakan áhuga á að
styrkja ungar konur til þess að
læra að lesa, því rann-
sóknir hafa sýnt að
það að kenna konum
að lesa hefur marg-
feldisáhrif til betra
lífs. Þær verða með-
vitaðri, fá aðgang að upplýsing-
um og hægt er að ná til þeirra
með fræðslu af ýmsu tagi. Konur
sem kunna að lesa gera meiri
kröfur til eiginmanna sinna, líða
síður ofbeldi, þær hafa líka meiri
metnað fyrir hönd barna sinna.
Ég vil hvetja fólk, sem langar til
að leggja hönd á plóg svo að fleiri
geti öðlast mannsæmandi líf, til
þess að hafa samband við
UNIFEM. Við fógnum hverjum
nýjum félaga.
Styðjum
konur til
sjálfsbjargar