Morgunblaðið - 19.06.1999, Qupperneq 16
16 LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Tryggvi Gíslason, skólameistari Menntaskólans á Akureyri
Algert frelsi er full-
komin ánauð nema
sterkur sjálfsagi fylgi
EITT hundrað og sextán stúdentar vora brautski-áðir frá Menntaskólan-
um á Akureyri 17. júní, þegar skólanum var slitið í eitt hundraðasta og
nítjánda sinn. Tryggvi Gíslason skólameistari kom víða við í ávarpi sínu;
ræddi meðal annars hina nýju upplýsingatækni, nýjar heimavistir, for-
varnarstarf og taumleysi og agaleysi þjóðfélagsins, svo eitthvað sé nefnt.
Tryggvi Gíslason sagði meðal
annars í ræðu sinni: „I nýrri upp-
lýsingatækni felast óteljandi tæki-
færi, enda þótt upplýsingatækni
samtímans leysi ekki allan vanda -
og allra síst allan vanda í kennslu
og uppeldi eða mannlegum sam-
skiptum. Hins vegar er enginn
maður í iðnríkjum heims ósnortinn
af þessu tækniundri og skólar
verða að tileinka sér þessa tækni
og nota hana sér og nemendum
sínum til góðs,“ sagði Tryggvi.
Síðar sagði skólameistari: „Ný
upplýsingatækni gerir fólki kleift
að afla sér þekkingar og láta til sín
heyra á annan hátt en áður. Marg-
vísleg einangran er rofin og áhrif
upplýstra einstaklinga á samfélag-
ið getur breyst - jafnvel getur ný
upplýsingatækni breytt fulltrúa-
lýðræði í þingbundnu stjórnarfari,
sem við höfum búið við í eina öld,
svo að við taki beint lýðræði þar
sem stjómarfarslegu valdi er dreift
til einstaklinganna. Viðfangsefni
nýrrar upplýsingatækni era því
bæði hagnýt á sviði kennslu og
náms en einnig á sviði stjómarfars
og lýðræðis."
Ókeypis sálfræðiráðgjöf
Tryggvi upplýsti í ræðu sinni að
skólinn hefði um tveggja ára skeið
veitt nemendum endurgjaldslausa
sálfræðiráðgjöf.
„Þótt það kunni að hjóma undar-
lega í eyram sumra líður mörgum
illa í þessu allsnægtaþjóðfélagi.
Meðal annars líður mörgum böm-
um og ungu fólki illa,“ sagði skóla-
meistari. Hann kvað ástæðumar
margar en taumleysi og agaleysi
þjóðfélagsins sagði hann eiga stór-
an þátt. „Tvennt mætti nefna í því
sambandi; mikil áfengisneysla
ungs fólks og ótímabært kynlíf.
Sennilega hlusta fáir á slíkt tal í
sextugum manni en lífsreynsla er
líka nokkurs virði. Lengi hefur það
verið prédikað að algert frelsi á öll-
um sviðum, sem er hluti af lögmáli
hins frjálsa markaðar, leysti flest-
an vanda. Algert frelsi er hins veg-
ar fullkomin ánauð nema sterkur
sjálfsagi fylgi. Hið vestræna mark-
aðsþjóðfélag hefur hins vegar
bragðist á því sviði að efla sjálfsaga
og mannvirðingu, enda era óheft
lögmál markaðarins og peninga-
hyggju andstæð mannlegri vel-
sæld. Maðurinn lifir ekki af brauð-
inu einu saman, frekar en fyrri
daginn, heldur af trú, von og kær-
leika, mannviti, tillitssemi og um-
burðarlyndi. En meðan blind lög-
mál markaðarins og gróðahyggju
ráða verða skólar að vera undir það
búnir að hjálpa nemendum í neyð,“
sagði Tryggvi Gíslason.
Akureyrarbær
Samþykkt deiliskipulag
Deiliskipulag við Mýrarveg
norðan Akurgerðis
Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti hinn 18. maí 1999 deiliskipu-
lag við Mýrarveg norðan Akurgerðis.
Deiliskipulagið nær til reits sem afmarkast af Mýrarvegi í austri,
Akurgerði í suðri, austurlóðamörkum húsa austan Kotárgerðis
og opnu útivistarsvæði í norðri. Á skipulagssvæðinu er gert ráð
fyrir tveimur fimm hæða fjölbýlishúsum fyrir eldri borgara með
samtals 30 íbúðum og bílageymslum í kjallara.
Deiliskipulagið var auglýst skv. gr. 6.2.3. í skipulagsreglugerð
frá 20. febrúar til 6. apríl 1999. Þnr undirskriftarlistar bárust
með athugasemdum íbúa á svæðinu og 19 bréf með bótakröfum
eigenda fasteigna. Skipulagsnefnd samþykkti deiliskipulags-
tillöguna með minniháttar breytingum og hafa umsagnir bæjar-
stjómar verið sendar þeim sem athugasemdir gerðu. Deiliskipu-
lagið tekur gildi við auglýsingu í B-deild Stjómartíðinda 21. júní
1999.
Frekari upplýsingar eru veittar á skipulagsdeild Akureyrar.
Breyting á deiliskipulagi norðvesturhluta
þriðja áfanga Giljahverfis
Bæjarstjóm Akureyrar samþykkti hinn 20. apríl 1999 breytingu
á deiliskipulagi norðvesturhluta þriðja áfanga Giljahverfis.
Breytingin nær til reits sem afmarkast af Merkigili að vestan og
norðan, Skessugili að austan og grænu svæði norðan Snægils að
sunnan.
Ein athugasemd barst og gerði skipulagsnefnd breytingar á
deiliskipulaginu vegna hennar. Umsögn sveitarstjómar hefur
verið send þeim sem athugasemd gerðu. Deiliskipulagið hefur
verið auglýst I B-deild Stjómartíðinda og tekur þar með gildi.
Frekari upplýsingar em veittar á skipulagsdeild Akureyrar.
Skipulat’sstióri Akurevrar
Á síðasta ári var einn af ís-
lenskukennuram skólans, Stefán
Þór Sæmundsson, ráðinn í hluta-
starf sem forvarnai’fulltrúi skólans
og sagði Tryggvi skólanum mikill
fengur í því.
Forvarnir
„Um langt skeið hefur það verið
stefna skólans að hvetja til heil-
brigðs lífernis án vímuefna og í
skólanum gilda skýrar reglur um
bindindi. Menntaskólinn á Akur-
eyri leggur ríka áherslu á að nem-
endur tileinki sér heilbrigt líf og já-
kvætt lífsviðhorf til þess að efla fé-
lagsþroska sinn. Skólinn vill líka
gera nemendum kleift að styrkja
sjálfsmynd sína og sjálfsvirðingu
með það að markmiði að auka lífs-
leikni til þess að geta notið alls
þess sem heilbrigt líf hefur upp á
að bjóða og sporna gegn sjálfseyð-
andi hegðun. Veigamikill þáttur í
þessari viðleitni er sú stefna skól-
ans að seinka eftir megni - eða
koma algerlega í veg fyrir að nem-
endur neyti áfengis, tóbaks eða
annarra vímuefna og aðstoða þá
nemendur sem þegar hafa ánetjast
vímuefnum," sagði Tryggvi.
Skólameistari minnti á að hann
hefði á undanfömum áram gerst
formælandi þess að lækka áfengis-
kaupaaldur í 18 ár til samræmis við
önnur lög í þjóðfélaginu - „ekki til
þess að auka drykkju í landinu
heldur til þess að koma í veg fyrir
bamadrykkju sem er orðinn ljótur
blettur á íslensku samfélagi. Hins
vegar þýðir ekki að lækka áfengis-
kaupaaldur nema um það sé sam-
komulag og slíkt sé undirbúið vel
og vandlega og fordómalausar um-
ræður fari fram. Einn þáttur í
þeim undirbúningi er að við, sem
fullorðin eram, sameinumst um
það að neyta aldrei áfengis svo að á
Morgunblaðið/Kristján
NOKKRAR þeirrar ungu nieyja sem útskrifuðust frá Menntaskólanum
á Akureyri 17. júní, brosmildar og glaðar í Stefánslundi, þar sem ný-
stúdentar voru myndaðir eftir skólaslitin.
sjái og ölvun á almannafæri verði
talin til skammar og lögregla fylgi
því eftir að fjarlægja ölvað fólk af
almannafæri“.
Nýjar heimavistir liður í
eflingu byggðar
Tryggvi sagði að um fimm ára
skeið hefði verið unnið að undir-
búningi að smíði nýrra heimavista
við skólann en heimavistir hafa
verið reknar við skólann frá upp-
hafi. „Eg tel það hafa verið ótví-
ræðan styrk Menntaskólanum á
Akureyri að reka heimavistir þar
sem nemendur alls staðar að af
landinu kæmu saman og kynntust.
Þetta hefur að mínum dómi verið
þáttur í byggðajöfnun og bættum
skilningi milli landshluta og ólíkra
stétta í landinu auk þess sem
heimavistir gátu ráðið úrslitum í
því að fólk kæmist til náms. Skól-
inn vill nú styrkja stöðu sína sem
„landsmenntaskóli", skóli þar sem
nemendur alls staðar að af landinu
stunda nám í heimavistarskóla úti
á landsbyggðinni. Heimavistir geta
verið öllum góður skóli þar sem
nemendur þurfa að læra að taka
tillit til annan-a og temja sér tillits-
semi og mannvirðingu og reglu-
semi - en á allt þetta skortir í ís-
lensku samfélagi. Oft hefur verið
þörf en nú er nauðsyn að spoma
við landauðn þeirri sem við blasir.
Þetta kunna að þykja stór orð, góð-
ir hátíðargestir, Reykjavík er óum-
deilanlega höfuðborg allra Islend-
inga en að hún verði eina byggð á
Islandi er ekki vænlegt. Borgríki
geta ekki þrifist án upplands og
dreifðra byggða í landinu. Borgríki
verður líka einhæft, einsýnt, sjálf-
hverft og sjálfumglatt og er raunar
farið að bera á öllu þessu. Nýjar
heimavistir við Menntaskólann á
Akureyri era líka hugsaðar sem
liður í baráttu fyrir eflingu byggð-
ar í landinu, þótt fleira verði að
koma til.“
Tryggvi sagði að eftir viðræður
við menntamálaráðherra yrði nú
gengið frá stofnskrá nýs rekstrar-
félags fvrir heimavistir við skól-
ann, þar sem tekjur af rekstri verði
látnar standa undir byggingar-
kostnaði. „Samkvæmt drögum að
stofnskránni er ætlunin að nem-
endur allra framhaldsskóla á Akur-
eyri eigi aðgang að nýjum heima-
vistum. Um leið og gengið hefur
verið frá formsatriðum verður haf-
ist handa um að hanna húsið og
það steypt upp á næsta ári og tekið
í notkun árið 2001. í húsum heima-
vistar skólans verður rekið sumar-
gistihús eins og gert hefur verið
við skólann undanfarna áratugi.
Mikil þörf er fyrir góða gistiað-
stöðu á Akureyri í júlí og ágúst og
verður nýtt heimavistarhús til þess
að mæta þeirri þörf. Gagnsemi af
þessu húsi verður því margföld."
Teitur Arason Dux scholae í MA
Eðlisfræði og knatt-
spyrna í uppáhaldi
TEITUR Arason frá Hrísum í
Reykjadal fékk hæstu meðalein-
kunn stúdenta frá Menntaskólan-
um á Akureyri að þessu sinni; varð
dux scholae, með 9,11 í meðalein-
kunn. Teitur stundaði nám í eðlis-
fræðideild og fékk verðlaun fyrir
framúrskarandi árangur í eðlis-
fræði og stærðfræði.
„Já, mig hefur nú reyndar grun-
að þetta,“ sagði Teitur í samtali við
Morgunblaðið eftir útskriftina,
spurður að því hvort hann hafi
reiknað með því að verða dúx.
„Þetta kemur af sjálfu sér ef mað-
ur hefur áhuga á því sem maður er
að gera. Áhuga fylgir árangur og
öfugt. Það er miklu skemmtilegra í
skóla ef maður veit vel hvað maður
er að gera. Þá verður námið miklu
skemmtilegra.“
Teiti gekk vel öll fjögur árin í
MA, eins og nærri má geta; gekk
vel í öllum fógum, „en ég hef mest-
an áhuga á raungreinunum. Mínar
bestu greinar era eðlisfræði og
stærðfræði og ég stefni á eðlis-
verkfræði í háskólanum í haust“.
Hvað skyldi það vera við eðlis-
fræðina sem heillar Teit svona
mikið? Hann segir: „það er gaman
að ná tökum á þessu; maður getur
útskýrt svo margt með eðlisfræði,
getur reiknað sig fram úr ýmsum
vandamálum."
Teitur segir það hafa blasað við
að hann færi í eðlisverkfræði eftir
menntaskóla, „að minnsta kosti
eftir að ég valdi eðlisfræðibraut-
ina“. Hann var hins vegar í svolitl-
um vafa þegar kom að því að velja
braut, því náttúrufræðibrautin
heillaði líka. „Ætli ég verði ekki
bara venjulegur verkfræðingur,"
segir Teitur þegar framtíðina ber á
góma, en bætir svo við: „Ja, líklega
aðeins óvenjulegur, reyndar! Það
er svo mikil eðlisfræði í þessari
grein. Hún er aðeins fræðilegri en
venjuleg verkfræði. Meiri teoría í
þessu.“
Hann segist hafa eytt nokkuð
miklum tíma í námið. „Já, það gef-
ur augaleið,“ sagði dúxinn aðspurð-
ur. „Maður nær ekki árangri nema
eyða svolitlum tíma í þetta. En ég á
mörg áhugamál, aðallega fótbolta;
ég eyði miklum tíma í fótbolta." Og
hann kveðst nokkuð liðtækur í
þeirri fótamennt. „Ég spila í fjórðu
deildinni með liðinu heima, HSÞ b,
og það er mjög gaman. Ég hef nú
ekkert verið að æfa hér á Akur-
eyri, en við höfum leigt okkur hús-
næði, félagarnir, og leikið okkur
saman í fótbolta á veturna."
Ari Teitsson, faðir Teits, er for-
maður Bændasamtaka íslands, og
nýstúdentinn segist oft hafa velt
því fyrir sér að verða bóndi. „Það
er reyndar farið að fjarlægjast
núna, en ég hef mjög gaman af
dýrum. Það er hins vegar ekki mik-
il tenging á milli þeirra og eðlis-
fræðinnar, þótt maður geti auðvit-
að notað eðlisfræðina eitthvað alls
staðar.“
Teitur segir tímann í MA hafa
verið góðan. „Mér hefur liðið mjög
vel hér. Ég hef verið á heimavist
allan tímann og þar er mjög gott
félagslíf.“ En nú er hvíti kollurinn
kominn upp og háskólanám hefst
strax í haust. Teitur hyggst búa sig
undir eðlisverkfræðinámið heima í
sveitinni í sumar, með því að sinna
skepnum og öðram sveitastörfum.
„Það er alltaf nóg að gera í sveit-
inni,“ sagði hann.