Morgunblaðið - 19.06.1999, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1999 57
Fyrirlestur
og málstofa
í lagadeild
ÁSTRALSKUR fyrirlesari flytur
tvo fyrirlestra á vegum lagadeildar
Háskóla íslands dagana 21. og 22.
júní n.k.
í fréttatilkynningu segir að fyrir-
lesarinn, Dr. Ian Freckelton, sé
þekktur og virtur ástralskur lög-
maður og háskólakennari, m.a. við
Monash University, Victorian-rétt-
arlæknisfræðistofnunina, La Tro-
be-háskóla í Melbourne og afbrota-
fræðideild Melbourne-háskóla.
Gegnir hann einnig ýmsum öðrum
störfum svo sem ráðgjöf, ritstjóm
o.fl. á sviðum lögfræði, réttarlækn-
isfræði, afbrotafræði o.fl.
Fyrirlestrarnir eru fluttir á
ensku. Fyrri fyrirlesturinn verður í
stofu L.101 á fyrstu hæð í Lög-
bergi, mánudaginn 21. júní kl. 17.
Þar verður umræðuefnið: „Upplýst
samþykki við læknisaðgerðir og
hugsanleg refsi- og skaðabótaá-
byrgð, ef út af er brugðið".
Þriðjudaginn 22. júní kl. 17 verð-
ur lokuð málstofa fyrir sérfræð-
inga, þ.á .m. lögmenn, dómara,
rannsóknarlögreglumenn, saksókn-
ara, NMVN, lækna og fl., í stofu
L.101 á fyrstu hæð í Lögbergi þar
sem umræðuefnið verður: „Sönnun
byggð á sálfræðilegum sjúkdóms-
myndum og ófullnægjandi niður-
stöðum réttarlæknisfræðinnar".
Seinni fyrirlesturinn, málstofan á
þriðjudeginum, er sérstaklega ætl-
aður þeim sérfræðingum, sem
koma að rannsókn og meðferð til-
tekinna brotamála, s.s. kynferðis-
brotamála, en þar verður m.a. fjall-
að um ýmis álitamál varðandi sönn-
un í kynferðisbrotamálum, um nið-
urstöður DNA-rannsókna og fl.
Doktorinn hefur komið fram með
harða gagnrýni á DNA-rannsóknir
í brotamálum og það, að sakfelling
og/eða sýkna sé byggð á niðurstöð-
um þeirra rannsókna.
Karlrembuhlaup
Finngálkns og
Stálbandalagsins
HIÐ árlega karlrembuhlaup Finn-
gálkns fer fram í dag, laugardag.
Safnast verður saman fyrir utan
Vesturberg 8 og hlaupið af stað,
stundvíslega, kl. 10:30. Hlaupið
verður sem leið liggur um Elliðaár-
dalinn og Fossvogsdalinn og lýkur
hlaupinu á Lækjartorgi. Eftir
hlaupið verður farið á veitingastað
og snædd steik og drukkinn bjór.
Allar sannar rembur af báðum
kynjum eru velkomnar í hlaupið,
segir í fréttatilkynningu frá Finn-
gálkni, íþrótta- og hreystimannafé-
laginu.
Stálbandalagið, hlaupaarmur
íþrótta- og hreystimannafélagsins
Finngálkns, ræsir sitt hlaup kl. 11.
Karlremburnar hlaupa undir yfír-
skriftinni „gegn aðskilnaði".
Hlaupið verður sem leið liggur um
Elliðaárdalinn og Fossvogsdalinn
og lýkur hlaupinu á Lækjartorgi.
Eftir hlaupið verður farið á næstu
krá. Allar sannar rembur eru vel-
komnar í hlaupið, segir í fréttatil-
kynningu frá Stálbandalaginu.
Breyttur tími á
tónleikum
VEGNA fjölda áskorana hafa for-
svarsmenn afmælistónleika FM957
fært byrjunartíma tónleikanna aft-
ur um þrjár og hálfa klst. og lengt
þá til miðnættis.
Fjöldi fólks hefur haft samband
við FM957 þar sem óánægju er
lýst með upphafstíma tónleikanna.
'Kl þess að koma til móts við óskir
tónleikagesta var ákveðið að færa
byrjun tónleikanna þannig að
fyrsta íslenska hljómsveitin mun
koma fram kl. 17, að því er segir í
fréttatilkynningu frá FM957.
FRA afhendingu gjafarinnar: Gunnar Herbertsson, læknir, Árni
Sverrisson, forstöðumaður, Benedikt Ó. Sverrisson, læknir, Jórunn
Jörundsdóttir, forniaður, Lóa Leósdóttir, ritari, Hildigunnur Ólafs-
dóttir, hjúkrunarfræðingur, Áslaug Bjarnadóttir, formaður líknar-
nefndar, Margrét Þórðardóttir og Rut Ólafsdóttir.
Lionsklúbburinn Kaldá
gefur myndbandstæki
LIONSKLÚBBURINN Kaldá
færði St. Jósefsspítala fyrir
nokkru fullkomið myndbands-
tæki og prentara að gjöf. Verð-
mæti gjafarinnar er 227.000 kr.
en tækið er notað til speglunar
í fjölmörgum aðgerðum. Árni
Sverrisson, forstöðumaður spít-
alans, tók við gjöfinni fyrir
hönd spítalans. I sama mánuði
voru Heilsugæslu Ilafnarfjarð-
ar einnig færð Dopler-tæki og
mjaltavélar að upphæð 287.000
kr. í tilefni opnunar á endur-
bættri heilsugæslustöð að Sól-
vangi.
Klúbburinn styrkti Samhjálp
kvenna að upphæð 100.000 þús.
kr. Að auki hefur Lionsklúbbur-
inn styrkt fjölmarga aðila á ný-
liðnu starfsári og nemur heild-
arupphæð styrkja um einni
milljón króna.
Peninga hefur meðal annars
verið aflað með jólakortasölu,
penna- og merkjasölu fyrir
Krabbameinsfélag Hafnarfjarð-
ar og Skyggnilýsingakvöldi
með Þórhalli Guðmundssyni
miðli.
Kvennahlaup á
Þingvöllum
LANDVERÐIR á Þingvöllum
bjóða upp á gönguferð og barna-
stund um helgina. Dagskráin hefst
með kvennahlaupinu kl. 13 í dag,
laugardag. Hlaupnir, eða gengnir,
verða tveir eða fímm km. Hlaupið
hefst á bílastæðinu neðan við Öxar-
árfoss og verður að mestu hlaupið
á göngustígunum í þjóðgarðinum.
Styttri vegalengdin verður um Al-
mannagjá og Lögberg og þaðan að
Flosagjá og aftur að bílastæði.
Lengri leiðin liggur í Skógarkot
um Skógarkotsveg og þaðan
Gönguveg að Flosagjá og að upp-
hafsstað.
Þátttakendum er bent á að mæta
tímanlega til skráningar og upphit-
unar. Gegn greiðslu 650 kr. gjalds
fá þátttakendur bol og viðurkenn-
ingarpening að hlaupi loknu, segir í
fréttatilkynningu.
Sunnudaginn 20. júní hefst dag-
skráin á bamastund kl 11, auðveld
náttúruskoðunarferð fyrir krakka
sem hefst við þjónustumiðstöðina.
Dagskráin er aðallega ætluð börn-
um á aldrinum 5-12 ára, en þó eru
allir velkomnir. Æskilegt er að
böm undir 5 ára aldri séu í fylgd
með fullorðnum. Ferðin tekur
Í-IV2 klst.
Kl. 13 verður gengið í Skógar-
kot. Farið verður frá Flosagjá
(Peningagjá) og gengið inn í Skóg-
arkot eftir Gönguvegi og Skógar-
kotsveg til baka. Á leiðinni verður
hugað að menningarminjum og bú-
setu í Þingvallahrauni. Gangan
tekur 2-3 tíma. Kl. 14 verður guðs-
þjónusta í Þingvallakirkju, sr.
Ingólfur Guðmundsson prédikar.
Organisti er Ingunn H. Hauksdótt-
ir.
Gagnvirk
heimasíða um
Kvennahlaupið
„OPNUÐ hefur verið sérstök
gagnvirk heimasíða á Netinu vegna
Kvennahlaups ÍSÍ sem fram fer í
dag. Heimasíðan er vistuð á vef Sjó-
vár-Almennra, sem hefur verið að-
alstyrktaraðili hlaupsins undanfarin
ár.
Á vefsetrinu, http:/Avww.sjal.is/,
verður hægt að sjá myndir af þátt-
takendum strax að hlaupi loknu í
Garðabæ og Mosfellsbæ og næstu
daga á eftir verður fleiri stöðum
bætt inn. Fjöldi mynda mun skipta
hundruðum og vona íþróttir fyrir
alla og Sjóvá-Almennar að í fram-
tíðinni verði þannig til söguleg
heimild um Kvennahlaupið og þátt-
takendur þess.
Heimasíða Kvennahlaupsins er
gagnvirk á þann hátt að þátttakend-
ur geta skráð sig í (hlaupa)gestabók
og um leið sagt frá upplifun sinni.
Nú þegar hafa nokkrar konur not-
fært sér það,“ segir í fréttatilkynn-
ingu.
Blaie® f Negro
Skólavörðustíg 21 a,
101 Reykjavík.
Símí/fax 552 1220
Netfang:
blanco@itn.is
Veffang:
www.blanco.ehf.is
Nýtt - nýtt - nýtt!
Komdu heilsunni og þyngdinni í lag fyrir
300 kr. á dag. Ath. klúbbana okkar!
Upplýsingar í síma 588 0809, Alma.
Hlutur kvenna á
Alþingi 35%
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá
ráðheiTaskipaðri nefnd um aukinn
hlut kvenna í stjórnmálum.
„Ráðherraskipuð nefnd um auk-
inn hlut kvenna í stjórnmálum hef-
ur starfað síðan í október á síðasta
ári. Starf nefndarinnar hefur að
stórum hluta einkennst af því að
upplýsa fólk um mikilvægi þess
fyrir lýðræði og jafnrétti meðal ís-
lensku þjóðarinnar að fleiri konur
taki þátt í stjórnmálum. Það er
hagur þjóðarinnar að þátttaka
kvenna aukist, þar sem mikilvægt
er að ólíkum sjónarhomum beggja
kynja sé gert jafn hátt undir höfði.
Því er það nefnd um aukinn hlut
kvenna í stjómmálum sérstakt
gleðiefni að hlutur kvenna á Al-
þingi er nú orðin 35%, en var eftir
síðustu kosningar 25%. Þá mun
hlutur kvenna í ráðherraliði ís-
lands innan tíðar verða 33,3%, þeg-
ar konur verða 4 af 12 ráðherrum,
en í síðustu ríkisstjóm var hlutur
kvenna 10%.
Það er álit nefndarinnar að eitt
af því sem vegið hefur þungt og
hefíir haft mikil áhrif á að hlutur
kvenna á Alþingi hefur aukist er sú
jákvæða og mikla umfjöllun sem
blaðamenn og almenningur hafa
haft um málið. Fyrir það vill nefnd-
in þakka.
Siv Friðleifsdóttir sem nýlega
tók við starfí sem umhverfísráð-
herra og samstarfsráðherra Norð-
urlanda hefur látið af formennsku
nefndarinnar, en nýr formaður er
Hildur Helga Gísladóttir. Aðiir í
nefndinni em: Arnbjörg Sveins-
dóttir, Bryndís Hlöðversdóttir,
Elsa Þorkelsdóttir, Hólmfríður
Sveinsdóttir, Kristín Halldórsdótt-
ir og Ragnhildur Guðmundsdóttir.
Verkefnisstjóri nefndarinnar er
Una María Óskarsdóttir.“
Fréttir á Netinu
vg> mbl.is
_/\LLrrAf= œitth\sa£} nýtt
HAPRDRÆTTI ^
virmingrarnirfáfít
Vinningaskrá
7. útdráttur 18. júní 1999
íbúðarvinningur
Kr. 2.000.000 Kr. 4,000.000 (tvöfaldur)
6 5 19 1
F crðavinningur
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
1 3 7 6 9 | 1 8 2~3~0
35630
3 8 637
F crdavinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
5866 25399 30621 40199 65658 78518
21457 26378 34805 48267 75591 79402
Húsbúnaðarvinningur
Kr. 10,000 Kr. 20.000 (tvöfaldur)
144 10725 24772 35999 47494 53809 61359 72083
493 12790 24963 36186 47884 55600 62078 73327
1571 14167 26298 36781 48424 55758 63241 73481
2013 14755 26523 36831 48937 55974 63810 74359
2592 16079 27051 37041 48945 56573 65123 74724
4206 16881 27227 37610 49755 56926 65399 74868
4444 17166 28534 38090 50771 57238 66364 75189
5917 17433 31258 39154 51256 58750 67670 77789
5980 19231 31902 41728 51905 59467 67805 78174
6020 20408 32880 43427 52131 59685 70197
6081 20639 34873 45193 52914 60135 70421
6666 21176 35194 45788 53433 60534 71025
8222 23870 35458 47383 53730 61128 71916
Húsbúnaðarvinni ng u r
Kr. 5.000 Kr. 10.000 (tvöfaldur)
191 8369 19620 29327 41594 52886 61845 71836
396 8650 19887 29538 41716 53008 62368 71865
1001 8917 20296 30671 41836 53093 62686 72124
1093 9118 20418 31014 41991 54187 62808 72360
1406 9506 20537 31600 42108 54284 63097 72791
1543 9684 20642 32335 42849 54411 63347 72976
1560 9773 20835 32359 43251 55156 64417 73116
1695 9988 20916 33078 43525 55478 64549 74152
1706 11638 21023 33099 43876 55895 64576 74823
1858 11689 21307 33181 44048 55958 65131 74967
1864 11991 21410 34520 45036 56111 65242 75083
1913 12362 21594 34605 45874 56297 65562 75173
2217 12948 22208 34876 45962 56336 66087 75810
2346 13516 22383 35137 45974 56904 66411 75840
2480 14205 22643 36280 46769 56981 66489 76372
3677 14334 22810 36302 46993 57112 66874 77195
3821 14599 23197 36553 47118 57438 67311 77945
3837 14758 23474 36655 47195 57609 67386 78011
4685 14943 23487 37120 47715 58041 67708 78183
5432 15360 23632 37146 47927 58488 67924 78420
5651 16723 24253 37159 48536 58572 68273 78452
5792 17047 24547 37380 48744 58626 68320 78808
6094 17422 24652 37763 49226 58705 68397 78901
6233 17525 24759 37817 49862 58859 68770 79509
6239 17775 25372 37896 50099 59283 68849 79622
6288 18685 25469 38808 51140 59734 69859 79682
6509 18758 26653 39102 51475 60008 70077
6581 18839 26824 39366 51499 60340 70160
6980 19046 26914 39587 51678 60465 70233
7676 19124 27361 39751 52406 61120 70486
7888 19158 27956 39796 52720 61288 70597
7980 19333 28690 41589 52853 61706 71305
Næsti útdráttur fer fram 24. júní 1999.
Heimasiða á intemcti: www.das.is