Morgunblaðið - 14.07.1999, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 14.07.1999, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1999 25 TITILLAUST verk eftir Guðjón Ketilsson. í MINNINGU Njálsbrennu, eftir Magnús Pálsson. miklu sterkari, ekki síst sökum vel valinna tilrauna hennar til að virkja raunverulegt tungutak og þanka- gang okkar með tvíbentum setning- um við fótmál sinna hálfuppstopp- uðu veislugesta. Hulda tekur drep- fyndinn raunveruleikann fram yfír óljósar, ísætar endurminningar. Þá hleypa allegorísk minni Helga Þ. Friðjónssonar allri viðtekinni skírskotun í frásagnakenndar end- urminningar í hreint uppnám. 011 viðmið eru teygð langt út fyrir kjör- lendi sitt. Segja má að Magnús Pálsson - í hinu snjalla minningarverki sínu um Njálsbrennu - takist einnig á við ís- lenskan raunveruleik, eða réttara sagt minnið sjálft, ímynd þjóðarinn- ar og fjöregg, spegil hennar og ýkj- ur. Sama verk var á sýningunni í fyrra, enda margslungið og mátt- ugt, og þolir endurtekna skoðun án þess að fölna. Sjá má að Þórdís Alda hefur með sínum hætti orðið fyrir áhrifum af myndgerð Magnúsar. Það er stundum stutt í bókmennt- irnar hjá okkur og bókmennta- tengda útfærslu. Það væri vissulega að æra óstöðugan að reyna að fjalla um hvert einasta verk á sumarsýning- unni á Kjarvalsstöðum, en þama em hestamir dásamlegu í tígullaga rammanum, Kiddi og ég, og ýmis önnur smellin verk Kjarvals. Þau færa okkur heim sanninn um óend- anlegt ímyndunarafl málarans og því standa þau óvart sem ákveðin gagnrýni á hugmyndadeyfðina í hefðbundinni landslagsgerð þeirra Asgríms, Júlíönu og Gunnlaugs Blöndal. Hestamynd Kristínar Jónsdóttur sýnir hins vegar hve splundrandi málari hún var og bráðþroska sú árkona íslenskrar málaralistar. Hvað varðar yngri verk þá má alltaf dást jafnmikið að járnteins- höggmyndum Jóns Gunnars Ar-na- sonar og sérstæðum og mjög svo persónulegum abstraktmálverkum Karls Kvaran. Þá kemur titillaust verk Guðjóns Ketilssonar alltaf jafnskemmtilega á óvart. Það er trúlega eitt hans allra besta verk og fetar kunnáttusamlega einstigið milli höggmyndar og málverks. Við hliðina fetar Sigurður Árni Sigurðs- son svipað einstigi milli málaralistar og skipulagsteikninga og beinir sjónum okkar að allri þeirri náttúru sem orðin er skipuleg menning. Reyndar er nýlegt verk Georgs Guðna ekki alls fjarri. Hólar hans sem nú fylla fyrri dali eru á mörk- um þess að geta talist náttúrulegir. Þeii’ eru miklu fremur einhvers konar rómantískt framhald af im- pressjónískum heysátum Monets. Munurinn er rökkrið sem umlykur þessa drungalegu hauga. Skyldi draugurinn Gunnars Hámundar- sonar hafa talað úr slíkri þúst? Eins og lesa má er þessi sýning úr fórum Listasafns Reykjavíkur- borgar ekki sem verst. Hún er prýðilega valin og ógætlega upp sett. En hana skortir samt mikil- vægan lykil allra slíkra sumarsýn- inga. Engar upplýsingar fylgja verkunum og slíkt er afar slæmt. í stað veglegs fjölblöðungs ó fjórum til fimm helstu tungumálum er- lendra ferðamanna um verkin, höf- undana og ágrip af þróun þess sem fyrir augu ber er ekkert sem fylgir sýningunni. Er ekki kominn tími til að veita upplýsingar á söfnum landsins, eða hvers eiga þeir að gjalda, útlendingamir sem ráfa um sumarsýningu Kjarvalsstaða án þess að fá botn í nokkuð það sem fyrir augu ber? Halldór Björn Runólfsson & GÓLFEFNABÚÐIN Mikið úrval fallegra flísa Borgartún 33 • RVK Laufásgata 9 • AK KitchenAid Draumavél heimilanna! Vegleg brúðargjöf! ísaumuð svunta með nöfnum og brúðkaupsdegi fylgir! 5 gerðir - margir litir 60 ára l'rálxer reynsla. Einar Farestvert&Cohf Borgartúni 20 - sími 562 2901 og 562 2900 sTjöld fyrir næstu öld 30 ára reynsla í tjöldum. Allt í útileguna. — Frábært verð. Svefnpokar 15 g verð frá.. kr. 3.900 Bakpokar 55 I________kr. 7.500 UTIVISTARBUÐIN VID UMFERÐAMIDSTÖÐINA SIMI 551 9800 Laugavcgi 25, simi 551 9805 WVVW.MMEDIA.IS/SPOHTLEIGAN LOKAÐ í DAG ÚTSALAN HEFST Á MORGUN r\ 30% - 50% AFSLATTUR K r i n g I u n n i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.