Morgunblaðið - 14.07.1999, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 14.07.1999, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1999 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Flutningur stofnana að Rangárvöllum Eignarhalds- félag stofnað SAMÞYKKT hefur verið í bæjar- ráði Akureyrar að stofna eignar- halds- og rekstrarfélag vegna fyr- irhugaðra byggingaframkvæmda og fiutnings stofnana í eigu bæjar- ins á svæði Hita- og vatnsveitu Akureyrar við Rangárvelli. Félagið verður í eigu Hita- og vatnsveitu Akureyrar og Rafveitu Akureyrar og leggja veiturnar fram stofnfé til félagsins og fjár- magna allar framkvæmdir. Gerðir verða samningar við þær stofnanir sem flytjast á svæðið um húsaleigu og þátttöku í sameiginlegum kostn- aði og þátttöku í sameiginlegum rekstri. Verkstæðishús rís fyrir septemberlok Veitustjóm mun fara með mál- efni félagsins og setja því starfs- reglur. Byggingaframkvæmdir á svæðinu verða í umsjón fram- kvæmdanefndar. Nýlega var auglýst eftir tilboð- um í byggingu rúmlega 900 fer- metra verkstæðis- og efnis- geymsluhúss að Rangárvöllum. í verkinu felst jarðvinna, að steypa grunn, reisa límtrésgrind og klæða með einingum, innrétta húsið og fullgera það. Framkvæmdum á að ljúka í lok september næstkom- andi. Skógræktarfélag Eyfirðinga Skógar- ganga SKÓGRÆKTARFÉ LAG Ey- firðinga býður til skógargöngu á Akureyri annað kvöld, fimmtudagskvöldið 15. júlí og hefst hún kl. 20. Farið verður frá Minja- safnsgarðinum við Aðalstræti, garðurinn skoðaður og gengið inn í Gömlu Gróðrarstöð. Báð- ir þessir staðir eru með elstu trjáræktarsvæðum á landinu og er vert að minnast þeirra sérstaklega nú þegar haldið er upp á 100 ára afmæli skóg- ræktar á íslandi. Ráðgert er að gangan taki tvo tíma og er hún við allra hæfi. Skipulag á Oddeyri, Akureyri: TiIIaga um breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 1998 - 2018 og deiliskipulagi suðurhluta Oddeyrar Með vísan til greina 6.2.2 og 6.2.3 í skipulagsreglugerð auglýs- ir Akureyrarbær tillögu að breytingu á deiliskipulagi suðurhluta Oddeyrar og Aðalskipulagi Akureyrar 1998 - 2018. Breyting á deiliskipulagi: í breytingartillögunni er gert ráð fyrir að byggður verði fjögurra deilda leikskóli að Iðavöllum við Gránufélagsgötu í stað þriggja deilda eins og gildandi deiliskipulag gerir ráð fyrir. Jafnframt verði lóð leikskólans stækkuð til austurs þar sem nú er útivistarsvæði. Breyting á aðalskipulagi: Breyting frá gildandi aðalskipulagi er sú skv. tillögunni að almennt útivistarsvæði austan leikskól- ans er lagt niður og svæðinu breytt í stofnanalóð. Uppdráttur er sýnir breytingartillöguna ásamt skýringarmynd- um og greinargerð liggur frammi almenningi til sýnis á Skipu- lagsdeild Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð, næstu 6 vikur frá birtingu þessarar auglýsingar, þ.e. til miðvikudagsins 25. ágúst 1999, þannig að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillög- una og gert við hana athugasemdir. Athugasemdafrestur er til kl. 16.00 miðvikudaginn 25. ágúst 1999. Athugasemdum skal skila til Skipulagsdeildar Akureyrarbæjar. Þeim sem telja sig verða fyrir bótaskyldu tjóni vegna breytingarinnar er bent á að gera athugasemdir innan tilgreinds frests ella teljast þeir samþykkir henni. Skipulaesstióri Akurevrar Morgunblaðið/Sverrir MIKILL fjöldi var um borð í Náttfara þegar hann lagði af stað í hvalaskoðunarferð frá Húsavík í gær. Umfangsmikil hvalaskoðun og fræðsla á Húsavík Mikil fj ölgrtn gesta hefur orðið í sumar ÞAÐ stefnir í mikla aukningu gesta Hvalamiðstöðvarinnar á Húsavík nú í ár að sögn Ásbjöms Björgvinsson- ar forstöðumanns. Sömu sögu segja forsvarsmenn hvalaskoðunarferða, þeir Hörður Sigurbjamarson hjá Norðursiglingu og Arnar Sigurðs- son hjá Sjóferðum Amars. Hvalamiðstöðin var opnuð 20. júní í fyrra og segir Asbjöm að í fyrra hafi um 6.000 gestir skoðað hana. „Nú í sumar hefur gengið mjög vel þannig að við fáum ömgg- lega fleiri nú í sumar en í fyrra. Hingað hafa komið um 3.000 gestir það sem af er sumri og besti tíminn er eftir. Það kemur mest af ferða- mönnum hingað í seinnihluta júlí.“ Hvalasafnið var opnað í byrjun júní eftir vetrarhlé og verður opið fram að septemberlokum. „Við höf- um reyndar fengið skólakrakka af svæðinu í heimsókn yfir veturinn og talsvert í vor frá Akureyri. Þá koma þau og skoða safnið og vinna verk- efni í tengslum við það. Við emm hér með upplýsingar um alla hvali sem hafa sést og fundist hér við land, bæði myndrænt og í texta- formi, þannig að af nógu er að taka.“ Erlendir ferðamenn í miklum meirihluta Asbjöm segir langstærstan hluta gesta vera erlenda ferðamenn, yfir 90%, en hluti Islendinga fari þó vax- andi og þeir sem komi séu alltaf mjög ánægðir. „Þetta er mikið að skoða hér á safninu. Við gemm hvalveiðisögunni góð skil, sýnum myndband um hana og gamlar myndir frá hvalveiðistöðinni á Sól- bakka í Önundarfirði. Þá höfum við safnað saman upplýsingum um all- an hvalreka við Island frá árinu 1000. Síðan sýnum við hluti tengda hvalveiðum, skutla og hnífa.“ Safnið er í 200 fm húsnæði og veitir ekki af. „Hér á safninu má sjá beinagrind hrefnu í fullri stærð og hluta af búrhvalnum sem strandaði í Steingrímsfirði. Þar að auki sýn- um við okkar eigin þingeyska Keiko, uppblásinn í fullri stærð.“ Fyrir utan ferðamannaiðnaðinn stendur Hvalamiðstöðin að rann- sóknum í samvinnu við Hafrann- sóknastofnun. „Við byrjuðum á þessu sem tilraun í fyrra en höfum tekið upp þráðinn að fullu nú á nýj- an leik. Við tökum Ijósmyndii- af öll- um hvölum í flóanum, skráum hegð- un og þess háttar." Islenskum ferðamönnum fjölgar í góða veðrinu Það eru þó ekki eingöngu fræði- menn sem fylgjast með hvölum við Húsavík. Fyrirtækin Norðursigling og Sjóferðir Amars bjóða upp á hvalaskoðunarferðir og eru forsvars- menn þeirra sammála Ásbimi um aukningu ferðamanna nú í sumar. „Það hefur gengið mjög vel hjá okkur í sumar,“ segir Amar Sig- urðsson hjá Sjóferðum Amars. „Veðrið hefur verið betra í sumar en í fyrrasumar og það skilar sér í aukningu ferðamanna, þá aðallega Islendinga. Þeir em þó eingöngu um 15-20% farþega enn sem komið er.“ Hörður Sigurbjarnarson hjá Norðursiglingu segir að stefni í 30-40% aukningu á farþegum í hvalaskoðun nú í sumar. I fyrra flutti Norðursigling um tólf þúsund farþega þannig að búist er við á milli sextán til átján þúsund farþeg- um í sumar. Hann tekur undir það með Amari að fjöldi íslendinga í ferðunum hafi aukist. „Það var það kalt í fyrra að Islendingar vom al- mennt mjög lítið á ferð hér fyrir norðan. Um leið og hlýnar koma þeir hingað og er þá bæði um að ræða fólk á eigin vegum og hópa. Það er talsvert um fyrirtækja- og félagaferðir hingað." Norðursigling fer allt að sex ferð- ir á dag og segir Hörður að hvalur hafi sést í þeim nær öllum. „Okkar aðalhvalur er hrefna og svo sand- reyður og auk þess höfum við séð höfmnga, hnúfubaka og steypireyði. Annars er stórhvala- tíminn ekki kominn hjá okkur, hann kemur yfirleitt aðallega í júlí og ágúst. En þetta er eins og öll nátt- úra, afskaplega óútreiknanlegt." Kaffihúsið í Hótel Hjalteyri Þórey sýnir KAFFIHÚSIÐ í Hótel Hjalteyri vaknar til lífsins á laugardaginn kemur, 17. júlí, en þá opnar Þórey Eyþórsdóttir myndlistarsýningu þar. Þórey sýnir þar það nýjasta úr verkum sínum og kennir þar margra grasa, bæði veflistar og einnig vatnslita- og olíumálverka. Þórey hefur undanfarin tvo ár starað í Noregi og efnt til nokkurra einka- sýninga þar í landi. Sýningin á Hótel Hjalteyri er fyrsta einkasýning hennar hér heima frá því í fyrra- sumar, en þá hélt hún myndlistar- sýningu á sama stað. Þórey rak vinsælt sumarkaffihús og listagallerí í nokkur sumur á Hótel Hjalteyri eða þar til hún tók til starfa í Noregi. í tilefni af sýning- unni ætlar hún að endurvekja kaffi- húsið meðan á sýninguni stendur og gefst fólki því tækifæri á að setjast niður með kaffibolla og veitingar um leið og það skoðar sýninguna. Sýningin stendur yfir í rúmar tvær vikur, en henni lýkur kl. 18 sunnudaginn 25. júlí næstkomandi. Hún er opin daglega frá kl. 14 til 18 og 20 til 22.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.