Morgunblaðið - 14.07.1999, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 14.07.1999, Blaðsíða 46
MORGUNBLAÐIÐ 47 MIÐVIKUDAGUR 14, JÚLÍ 1999_____ KIRKJUSTARF í DAG Safnaðarstarf Ddmkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10 í safnaðarheimilinu. Orgelleik- ■ ur á undan. Léttur málsverður á eftir. Háteigskirkja. Kvöldbænir og fyr- irbænir kl. 18. Seltjarnarneskirlga. Kyrrðarstund kl. 12. Söngur, altarisganga, fyrir- bænir. Léttur hádegisverður í safn- aðarheimilinu. Fella- og Hdlakirkja. Helgistund í Gerðubergi á fimmtudögum kl. 10.30. Seljakirkja. Fyrirbænir og íhugun kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir vel- komnir. Tekið á móti fyrirbænaefn- um í kirkjunni og í síma 567 0110. Vídalínskirkja. Foreldramorgunn kl. 10-12. Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í hádegi í kirkjunni kl. 12-12.30. Æskulýðsstarf, eldri deild kl. 20-22 í minni Hásölum. Kl. 20-21.30 íhug- un og samræður í safnaðarheimilinu í Hafnarfjarðarkirkju. Leiðbeinend- ur Ragnhild Hansen og sr. Gunnþór Ingason. Kletturinn, kristið samfélag. Bænastund kl. 20. Allir velkomnir. Hdlaneskirkja, Skagaströnd. Mömmumorgunn í Fellsborg kl. 10. Útsalan er byrjuð Buxnadragtir frá kr. 5000 Jakkar frá kr. 3000 Blússur frá kr. 1900 Meiriháttar verðlækkun. - S V -• L. L J 11 I MJMAR Laugavegi 55 sími 561 8414 Þéttiefni HÚSASMIDJAN Sími 525 3000 • www.husa.is SOUDAL Lím og þéttiefni POTTÞETTIR EVA-TRIO KUNIGUND SKOLAVORÐUSTIG 8 - S 551 3469 Lougavegi 40, sími 561 0075. VELVAKAJMDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-13 frá mánudegi til föstudags Horfíð járnhlið! EG bið Velvakanda um að aðstoða mig vegna jám- hliðs sem tekið hefur verið ófrjálsri hendi úr skóg- ræktarlandi okkar nálægt Krísuvíkurvegi. Forsaga málsins er sú að við hjónin höfum haft til umráða erfðafestuland í landi Skógræktar ríkisins, í Straumshrauni rétt við Hafnarfjörð, síðan árið 1975. Land þetta er þing- lýst á okkar nöfn. Þetta iand höfum við, ásamt öðr- um hjónum, girt og gróð- ursett í nokkur þúsund tré, sem við höfum ýmist keypt eða ræktað upp sjálf frá fræi, og er þama smátt og smátt að vaxa upp fallegur trjálundur. Við höfum öðm hvom orðið vör við að einhver eða einhverjir hafa verið á ferð um land okkar og ekki amast við því þar til að fyr- ir 3-4 árum urðum við vör við að söguð höfðu verið niður tvö stór grenitré, væntanlega ætluð sem jólatré. Sjálf höfum við ekki tímt að sækja okkur tré í þennan skóg okkar. I ræktun þeirra höfum við lagt of mikla vinnu til að farga þeim á þann hátt. Fljótlega eftir að við urðum vör við þessi spell- virki létum við útbúa skilti sem á stóð að þarna væri einkaland og umferð bönn- uð. Ennfremur settum við keðju og hengilás á hliðið, til frekari áherslu. Er við komum næst að landinu, 2-3 dögum seinna, var búið að skjóta skiltið í tætlur og rífa það af hlið- inu og henda inn í landið. Hengilásinn hafði verið eyðilagður þannig að hann var troðinn fullur af mold svo ekki var hægt að opna hann. Það var einna líkast sem einhvers konar æði hefði mnnið á þann sem þetta framkvæmdi. Nú, mánudaginn 28. júní, komum við að land- inu, þeirra erinda að sinna trjánum, og þá var hliðið á girðingunni horfið. Ekki er vegur alveg að landinu og hafa þeir sem hliðið tóku þurft að bera það þó nokkum spöl. Búið var að saga með jámsög í annan hliðstóipann svo þarna var greinilega um fyrirfram hugsaðan verknað að ræða. Hlið þetta er mjög auðþekkt því það var sér- smíðað. Það er grænmálað og allt úr járni og eftir því níðþungt. Þeir sem vita hvar hlið þetta er nú niðurkomið vinsamlega láti okkur eða lögregluna í Hafnarfirði vita. Umgengni lýsir innra manni og öll ofangreind spellvirki hafa vitanlega verið kærð tii lögreglu. Með fyrirfram þökk. Guðrún Jdhannsddttir, sími 565-1831. Um Herbalife Um þessar mundir er mik- ið í boði af Herbalife. Ég er ein af þeim sem á við offituvandamál að stríða og er sífellt verið að bjóða mér Herbalife til sölu. En ég þori ekki_ að kaupa þessa vöm. Ég hef haft samband við Lyfjaeftirlit ríkisins þar sem mér er tjáð að sum af þessum efn- um séu leyfileg en önnur ekki. Og eftir lestur blaða- greinar sem læknir skrif- aði hefur mér einnig skilist að sum af þessum efnum geti verið varasöm. Finnst mér að yfirvöld ættu að fela söluna á þess- um efnum ábyrgum aðilum svo fólk geti keypt þetta óhrætt og viti hvað það sé að kaupa. Læknar og heil- brigðiskerfið hafa algjör- lega bmgðist fólki sem á við offituvandamál að stríða og vill ekkert gera til að hjálpa okkur. Ég þekki það sjálf og hefur mér verið sagt að það sé ekkert nema viljinn sem skipti máli til að grennast. Það er vitað mál að þetta er sjúkdómur alveg eins og alkohólismi og ætti að taka á því sem slíku. Offitusjú klingur. Dýrahald Svartur og sætur óskar eftir heimili UNGUR og nettur fressköttur, líklega á 1. ári, er villtur í Vesturbænum. Kisi hefur vanið komu sína að húsi okkar og er bæði gæfur og góður, svo hann gæti vel hafa verið heimil- isköttur. Hann er greini- lega í mikilli tilvistar- kreppu, er bæði rytjulegur og bitinn en þarf bara gott bað og ástríka fósturfor- eldra. Við emm miður okk- ar en getum ekki tekið hann inn, þ.e. kettir em fyrir á báðum heimilunum go ekki stendur til að fjölga þeim. Er ekki ein- hver góður sem vildi gefa fallegum kisa heimili áður en vetur gengur í garð? Upplýsingar hjá Ellu í síma'588 5170 (kl. 13-18) eða 562 7989 á kvöldin SKAK llmsjdn Margeir Pétursson Staðan kom upp á Politiken Cup mótinu í Kaupmannahöfn sem er að ljúka. Ingélfur Gislason hafði hvítt og átti leik gegn Dananum Jonas Raunkjær, sem er frá Holbæk. 31. Hxh5+! (Þessi hróksfóm er eina vinningsleið hvíts) 31. gxh5 32. Dh6+ _ Kg8 33. Rf6+ og svartur gafst upp. Að loknum níu umferðum voru þeir Sune Berg Hansen, Danmörku, Nick deFirmian, Bandaríkjunum, og Stefan Schneider, Svíþjóð, jafnir og efstir með 714 vinning. Margir Islendingar keppa á mót- inu og var árangur þeirra þessi eftir 9 umferðir: Róbert Harðarson 514 v., Stefán Kristjánsson 5 v., Ingi- björg Edda Birgisdóttir, Dagur AÍrngrímsson, Ingólfur Gíslason og Lárus H. Bjamason 4 v., Sigurður Páll Steindórsson 314 v., Aldís Rún Lámsdóttir 3 v., Harpa Ingólfsdótt- ir 214 v. HVÍTUR leikur og vinnur. Víkverji skrifar... MÁLFAR er sívinsælt umfjöllun- arefni, ekki síst á fjölmiðlum, enda er tungumálið verkfæri þeirra. Fjölmiðlar, sem vilja láta taka sig al- varlega, gera sér far um að starfs- menn þeirra skrifi og tali rétt og eðlilega. Því er hins vegar ekki endi- lega að heilsa hjá þeim sem annast samskipti við fjölmiðlana. Á ritstjóm Morgunblaðsins berst daglega fjöldi fréttatilkynninga, boð á blaðamanna- fundi eða kynningar og svo mætti lengi telja. Margt af þessu efni er vel úr garði gert. Undantekningar eru hins vegar á því og í einni slíkri sem Víkverji sá nýverið era t.d. nokkrar ritvillur í bréfi sem er aðeins sex lín- ur. Stafsetningarvillur og málfarsvill- ur em kannski ekki stórskaðlegar í slíkum bréfum en meiri vandi er á höndum varðandi auglýsingaefni sem blaðinu berst og birta skal. Slíkt efni kemur iðulega tilbúið á tölvu- disklingum frá auglýsendum eða auglýsingastofum. Þar má iðulega sjá villur og getur verið snúið að leið- rétta þær í því hraða kerfi sem aug- lýsingavinnslan er og oft ekki hægt að koma slíkum leiðréttingum við á disklingunum á efni sem er tilbúið og frágengið. Af þessum sökum verður að gera mjög ákveðnar kröfur til auglýsenda um að þeir vandi þetta efni. Álgeng- ustu villumar er að punkt vantar á eftir raðtölu og notkun upphafsstafa er oft mjög undarleg í efni frá aug- lýsendum. Þetta eru grunnatriði í stafsetningu sem auglýsendur verða að kunna. Þeir mega heldur ekki láta fagurfræði eða hönnunarsjónarmið taka af sér völdin hvað íslenskt mál varðar. Og úr þvi farið er að fjalla um auglýsingar má minnast á að stundum virðist sem hönnuðir kaf- færi efni sitt gjörsamlega í litagleði og pjátri þannig að lesendum reynist stundum torvelt að grípa á auga- bragði hver kjami boðskaparins er. En einmitt þannig eiga auglýsingar að vera, grípandi á augabragði. xxx HVERS konar þjónusta er einnig sívinsælt umræðuefni hjá Vík- verja og nýverið heyrði hann af skeyti sem var furðu lengi á leið sinni frá Norðurlandi og suður yfir heiðar. Skeytið var sent að morgni dags frá höfuðstað Norðurlands og ætlað fólki í Reykholti sem þar dvaldi fram á næsta dag. Ráðrúmið var því talsvert á annan sólarhring að koma skeytinu í réttar hendur. Ekki tókst þessi fyrirætlan og kom skeytið fram á heimili mannsins í Reykjavík hálfum mánuði og degi betur eftir móttöku þess fyrir norð- an. Það hafði sem sé ekki verið af- hent í Borgarfirði eins og til var ætl- ast heldur borið út þetta miklu síðar í Reykjavík. Þeir sem söguna heyrðu eru allir eitt spumingarmerki. Vík- veiji hélt nú að strandferðimar góðu hefðu verið aflagðar fyrir margt löngu og hvað þá landpóstamir en líklega hefur Landssíminn samt fundið skeytinu einhvem slíkan far- veg þegar ferð féll suður. Verðum við ekki að vona að þetta sé einstakt tilvik og algjör undantekning? Kunningjar Víkverja vora nefnilega á því að enn líti menn á símskeyti sem talsvert mikla forgangssend- ingu sem beri að meðhöndla sem slíka.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.