Morgunblaðið - 14.07.1999, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 14.07.1999, Blaðsíða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG L. GUÐJÓNSDÓTTIR, Holtsgötu 34, Reykjavík, er látin. Útförin auglýst síðar. Jóhanna Sigr. Sigurðardóttir, Jón Erlendsson, Nanna K. Sigurðardóttir, Smári S. Sigurðsson, Guðrún Erla Sigurðardóttir, Þorgeir J. Andrésson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkaer móðir okkar, LILJA HALLDÓRSDÓTTIR, dvalarheimilinu Lundi, áðurtil heimilis að Hólavangi 5, Hellu, lést á Sjúkrahúsi Suðurlands, Selfossi, laugar- daginn 10. júlí. Útförin fer fram að Odda á Rangárvöllum laugardaginn 17. júlí kl. 14.00. Guðrún Sigmarsdóttir, Arnar Sigmarsson og aðrir aðstandendur. + Eiginmaður minn, HAUKUR SVEINSSON, Langholtsvegi 154, lést á Landakotsspítala mánudaginn 12. júlí. Hólmfríður Sölvadóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær dóttir mín og móðir, ESTHER ALEXANDERSDÓTTIR, lést á heimilis sínu að kvöldi mánudagsins 12. júlí. Jarðarförin auglýst síðar. Alexander Stefánsson, Margrét Alexandersdóttir. + Ástkær eiginmaður minn, EYJÓLFUR ÁGÚSTSSON, Vesturvör 22, Kópavogi, varð bráðkvaddur sunnudaginn 11. júll. Fyrir hönd aðstandenda, Kristfríður Kristmarsdóttir. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, KRISTJÁN FRIÐGEIR KRISTJÁNSSON frá Bolungarvík, Boðahlein 16, Garðabæ, lést á heimili sínu laugardaginn 3. júlí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Pökkum auösýnda samúð. Jónfna Eliasdóttir, Kristján Benóný Kristjánsson, Þuríður Guðmundsdóttir, Elín Ingibjörg Kristjánsdóttir, Leifur Albert Símonarson, Þórir Sturla Kristjánsson, Guðmunda Inga Veturliðadóttir, Dagbjartur Hlfðar Kristjánsson, Sigríður Björg Gunnarsdóttir, Jón Pétur Kristjánsson, Helena Snæfríður Rúriksdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. GUÐLAUGUR AÐALSTEINSSON + Guðlaugur Að- alsteinsson fæddist í Baldurs- haga á Fáskrúðs- firði 26. desember 1929. Hann lést á Landspítalanum 23. júní síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Val- gerður Júlía Jóns- dóttir frá Rauðs- bakka undir Eyja- fjöllurn, f. 1. júlí 1899, d. 11. septem- ber 1961, og Ottó Aðalsteinn Stefáns- son útvegsbóndi frá Höfðahús- um á Fáskrúðsfirði, f. 12. októ- ber 1898, d. 6. ágúst 1987. Kona hans var Finndís Helga Péturs- dóttir, ættuð úr Dölunum, f. 28.8. 1928, d. 27.4. 1973. Börn þeirra eru Pétur, Elísabet og Aðalgerður. Fyrir átti hann soninn Magnús. Utför Guðlaugs fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. Kæri bróðir, mig langar að kveðja þig með nokkrum orðum. Það er margs að minnast í uppvexti okkar. Við vorum mjög ung þegar mamma og pabbi tóku sig upp á sumrin og fluttust með okkur systk- inin út á Kolfreyjustað, sem við kölluðum að fara í verið, þaðan sem pabbi reri til fiskjar. Var það oft erfitt fyrir mömmu að búa á þessum hættustað með mörg ung böm. Samt var ýmislegt hægt að gera, það var farið í fjöruna og leikið sér að leggjum og skeljum og annað sem við fund- um upp. Oft fórum við til krakkanna á Kol- freyjustað og var þar oft glatt á hjalla. Þegar við stækkuðum fórum við í heyskap með full- orðna fólkinu, en alls vomm við í verinu í þrettán sumur. Þú varst ekki gamall þegar atorkusemin hjá þér kom í Ijós. Þú byij- aðir ungur til sjós með pabba, og aðeins sautján, átján ára gam- all keyptir þú sýningarvél og varðst fyrstur manna til að sýna talmyndir á Fáskrúðsfirði. Þú varst mjög mús- íkalskur og eignaðist harmóniku sem þú spilaðir á víða á Austfjörð- um. Síðan keyptir þú vörubíl og hafðir nóg að gera bæði í heyflutn- ingum og öðrum flutningum. Ungur kynntist þú elskulegri eig- inkonu þinni, Finndísi Pétursdótt- ur, sem var stoð þín og stytta í líf- inu, og keyptuð þið Nýjabæ í Vog- um á Vatnsleysuströnd ásamt miklu landi og hófuð þar búskap. I landinu var mikil sandnáma þaðan sem þú fluttir sand til byggingarverktaka í Reykjavík. Þið giftuð ykkur 26.12. 1956. Þið eignuðust þrjú böm, Pét- ur, Elísabetu og Aðalgerði. Þið reistuð síðan samkomuhúsið Glað- heima í Vogum og var þar oft glatt á hjalla. Seinna byggðuð þið frystihús og keyptuð bát sem þið rákuð í nokkur ár. Það var fastur siður að fara í jóla- boð til ykkar á hverju ári, þar sem gestrisnin var til fyrirmyndar, því Dísa var einstök húsmóðir, en hún lést fyrir aldur fram, aðeins fjörtíu og fjögurra ára gömul, og var það mikill missii' fyrir þig og börnin ykkar. 1983 fluttist þú síðan tO Reykja- víkur með Aðalgerði og keyptir hús á Laugamesveginum og hófst salt- fiskverkun sem þú vannst við til dauðadags. Aðeins em fimm mán- uðir síðan Stefanía systir okkar lést og nú ert þú líka farinn og ég er ein eftir af okkur sjö systkinunum og það finnst mér sárt. Elsku Laugi, nú ert þú kominn til Dísu þinnar, mömmu og pabba og systkina okkar. Eg vona að þér líði betur núna, því þú _ gekkst ekki alltaf heill til skógar. Ég votta böm- um þínum, bamabörnum og tengda- börnum innilega samúð mína og bið algóðan guð að varðveita ykkur öll. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Pig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þásælteraðvitaafþví, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sig.) Þín systir, Karólína (Kalla). Elsku pabbi minn, það er erfitt að sætta sig við að þú sért farinn frá okkur. Þú varst alltaf svo góður við mig og bömin mín. Ég mun ætíð geyma minninguna um allar þær góðu stundir, sem við áttum saman, í huga mínum. Ég veit að þér líður vel5 því núna ertu hjá mömmu. Ég vil þakka þér, elsku pabbi, fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur og bið ég góðan Guð að blessa minningu þína. OLAFUR HALLDÓRSSON + ÓIafur Hall- dórsson fæddist á ísafirði 16. júlí 1929. Hann lést á Sjúkrahúsi Isaíjarð- ar laugardaginn 19. júní síðastliðinn. Ut- för hans fór fram 26. júní. Kær vinur minn, Ólafur Halldórsson, er látinn. Hann var búinn að berjast við erfíðan sjúkdóm um árabil en samt kom andlát hans með stuttum fyrirvara. Sjötugur maður telst ekki neitt gamalmenni nú til dags og þess vegna fannst mér hann fara of fljótt. Fyrir sjö árum byrjaði ég að vinna á Kópavogshæli þar sem Sig- urður bróðir hans býr. Þannig kynntist ég Óla gegnum Sigga og Steina, bræður hans, og urðum við strax mjög góðir vinir. Öli var alltaf mjög hlýr og góður þegar við hitt- umst eða töluðumst við. Við Siggi fórum vestur á Isafjörð og vorum hjá honum í nokkra daga. Einnig fórum við á ættarmót ásamt Steina og Gunnu, konu hans, og alltaf tók Óli okkur jafn vel. Eitt sumar fór ég ásamt syni mínum, Gunnari Geir, og Öllu, systur minni, sem einnig vann þá á Kópavogshæli, í sumarfrí vestur að Bijánslæk í sumarbú- stað hjá Óla; ókum við um yestfirðina og sýndi Óli okkur marga fagra og eftirminnilega staði. Síðan enduðum við ferðina í boði hans á heimili hans á Isafirði. Mig langar að þakka þér, Óli minn, öll þín gæði við mig og son minn sem þú gladdir oft eins og þér einum var lagið. Síðasta ár lástu lengi á Land- spítalanum og þar komum við Siggi oft til þín og alltaf varst þú jafn já- kvæður og glaðvær, hversu veikur sem þú varst, og aldrei langt í húmorinn og veit ég að það hefur fleytt þér langt í þínum erfíðu veik- indum. Ég vil hér einnig flytja kær- ar þakkir og kveðjur frá Sigga bróður þínum og Öllu systur minni. Öllum aðstandendum viljum við votta okkar dýpstu samúð. Far þú í friði, Óli minn. Ragna Berg Gunnarsdóttir. + Elskuleg eiginkona mln, móðir okkar, tengda- móðir og amma, BJÖRG GUNNARSDÓTTIR, Sæbólsbraut 47, Kópavogi, ÍSPK andaðist á heimili slnu aöfaranótt þriðju- dagsins 13. júlí sl. Fyrir hönd annarra vandamanna, Ingvar Hólmgeirsson, Jóhanna Ingvarsdóttir, Grétar Friðriksson, Sigríður Ingvarsdóttir, Hermann Einarsson og barnabörn. Far þú í íriði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgr. Pét.) Þín dóttir, Aðalgerður. Nú er elsku afi okkar farinn að hitta ömmu og heldur finnst okkur tómlegt hjá okkur núna. Það er sárt að þurfa að kveðja hann. Élsku afi, þú varst tekinn svo skyndilega frá okkur, miklu fyrr en við áttum von á. Huggun okkar eru allar minningarnar sem við hvert og eitt okkar eigum um þig. Þær munu lifa í hjarta okkar að eilífu. Við viijum þakka þér fyrir allar ógleymanlegu stundimar sem við áttum með þér og fyrir umhyggjuna sem þú sýndir okkur á þinn einlæga hátt. Við kveðj- um þig með miklum söknuði. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tlð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Barnabörn og barnabarnabörn. Handrit afmœlis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skróa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal- línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.