Morgunblaðið - 14.07.1999, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 14.07.1999, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Draskovic sýnir mót- mælendum stuðning Belgrad. The Daily Telegraph, AFP. Reuters ATOK brutust út milli lögreglu og mótmælenda sem gerðu tilraun til að leggja undir sig ráðhúsið í Valjevo, en um sjö þúsund manns mót- mæltu þar Milosevic Júgóslavíuforseta sl. mánudagskvöld og kröfðust afsagnar hans. Skæruliðar munu „færa sig um set“ Islamabad. Reuters. VUK Draskovic, leiðtogi stjórnar- andstöðuflokksins Endurreisnar- hreyfing Serbíu (SPO) tilkynnti í gær að hann ætli sér að skipuleggja fjöldamótmæli gegn Slobodan Milos- evic, forseta Júgóslavíu, í Kragu- jevac næstkomandi laugardag. Sagði hann að búast mætti við hundruð þúsunda Serba í mótmælin. Hingað til hefur Draskovic ekki viljað taka þátt í mótmælum annarra stjórnar- andstöðuflokka gegn Milosevic, sem hafa verið að vinda upp á sig sl. daga víðsvegar í Serbíu, og því þykja um- mæli hans marka nokkur vatnaskil í andstöðunni gegn Milosevic. Draskovic, leiddi ásamt fleiri stjórnarandstæðingum fjölda mót- mæli gegn Milosevic veturinn 1996-7 sem stóðu yfir í þrjá mánuði. I vetur settist hann hins vegar í ríkisstjórn Júgóslavíu og tók við embætti að- stoðarforsætisráðherra. Hann var hins vegar fljótlega rekinn fyrir að gagnrýna stefnu Milosevics í Kosovo-deilunni. Regnhlífarsamtök stjórnarand- stöðuflokka í Serbíu, Bandalag um breytingar, hafa skipulagt mótmæli víðsvegar um landið sl. vikur þar sem afsagnar Milosevics er krafist. Er Draskovic tilkynnti um breytta afstöðu sína gagnvart mótmælunum lagði hann áherslu á að hann og flokkur hans myndu skipuleggja mótmæli gegn forsetanum á eigin spýtur. Hann sagðist þó ekki hafa í hyggju að snúa baki við hinum stjórnarandstöðuflokkunum og óskaði hann þeim alls þess besta. Sagði Draskovic að Samtök um breytingar væru ekki pólitískir and- stæðingar SPO, heldur væri það Milosevic sem væri þeirra höfuðand- stæðingur. Fréttaskýrendur telja ákvörðun Draskovic geta orðið til þess að mót- mælin eflist ef stjórnarandstöðu- flokkarnir, auk SPO, sameinist í af- stöðu sinni gegn Milosevic. Hins vegar geti það leitt til veikari stöðu stjómarandstöðunnar komi í ljós að hún geti ekki starfað í sameiningu gegn Milosevic. Draskovic varaði við því í samtali við fréttastofu BBC að borgarastríð gæti verið í aðsigi. Sagði hann að ef að Milosevic reyndi að láta hart mæta hörðu gegn mótmælendum, yrði hann fórnarlamb stríðs sem hann sjálfur hefði kynt undir. Mótmælin halda áfram Þrír lögregluþjónar og nokkrir mótmælendur særðust er átök brut- ust út á mánudagskvöld í mótmælum sem haldin voru gegn ríkisstjórn Milosevic í Valjevo, um 80 km suð- vestur af Belgrad, höfuðborg Serbíu, af því er fréttastofan Beta skýrði frá. Auk þess að mótmæla forsetanum lýstu mótmælendur yfir vonbrigðum sínum með að stjórnarandstöðu- flokkarnir skuli ekki geta leyst deilu- mál sín í milli og myndað heildstæða einingu gegn forsetanum. Um sjö þúsund manns tóku þátt í mótmælunum sem skipulögð voru af samtökum sem kalla sig Borgaraleg andspyma. Atökin brutust út er um þúsund manns reyndu að taka yfir ráðhúsið í bænum og lögregla stóð í vegi þeirra. Þá skýrði Beta frá því að um fimmtán hundruð manns hefðu safn- ast saman í Leskovac á mánudags- kvöld, sjöunda daginn í röð, og kraf- ist þess að sjónvarpstæknimaðurinn, Ivan Novkovic, yrði látinn laus úr haldi. Sl. þriðjudag rauf Novkovic útsendingu og hvatti almenning til að fjölmenna í mótmælagöngu gegn bæjarstjóranum Zivojin Stefanovic, sem svo snerist upp í 20.000 manna mótmæli gegn Milosevic forseta. Fólkið krafðist þess á mánudag að Stefanovic segði af sér og að Nockovic yrði látinn laus úr haldi. Ráðgert var að mótmælaganga yrði farin að fang- elsinu í gærkvöldi. Samtök um breyt- ingar ráðgerðu einnig í gær að halda fjöldamótmæli í Jagodina, um 120 km suður af Belgrad, seinni part gær- dags. Hafa samtök stjómarandstöðu- flokkanna lýst því yfir að þau muni standa fyrir ijöldamótmælum víðs- vegar í Serbíu sem enda munu með fjölmennum mótmælum í Belgrad. I gær héldu samtökin áfram að safna undirskriftum frá fólki sem styður afsögn Milosevics og í gær var þeim safnað í Belgrad. Alls hafa rúmlega 150.000 undirskriftir safn- ast en listinn ber yfirskriftina: „Frá því að Milosevic komst til valda hef- ur hann orðið tífalt ríkari á sama tíma og Serbía hefúr orðið tíu sinn- um fátækari.“ SKÆRULIÐAR múslíma í Kasmír höfnuðu opinberlega í gær áskorun Pakistanstjómar um að þeir hörf- uðu frá landsvæði því sem þeir hafa barizt við indverska herinn um yfir- ráðin yfir að undanfömu. En þeir lýstu því engu síður yfir, að þeir myndu „færa sig um set“. „Eins og er hafa hinir heilögu stríðsmenn [múdjahedín-skærulið- ar] komið sér saman um nýja að- gerðaáætlun sem felur í sér að færa sig um set á Kargil-víglín- unni,“ segir í yfirlýsingu frá Sa- meinaða Jihad-ráðinu, regnhlífar- samtökum 15 skæruliðahópa múslíma í Kasmír. Skæruliðasamtökin héldu fast við ekki leyfa geimskot Progress- birgðaflaugar frá Baikonur-geim- ferðamiðstöðinni nema að því til- skildu að rússnesk stjómvöld upp- fylli fjölda umsaminna skilyrða. Þetta sagði Nursultan Nasar- bayev, forseti Kasakstans, í gær, en í fyrradag vöraðu rússnesk stjómvöld við því að hætta kynni að skapast á hrapi geimstöðvarinn- ar Mír, ef til hennar bærust ekki aukabirgðir og búnaður til við- gerða á allra næstu dögum. „Nasarbayev hefur sagt að spumingin um geimskot Progress- flaugarinnar verði þá aðeins leidd til lykta að skilyrðunum uppfyllt- um. Nasarbayev átti áður símasam- tal við Sergej Stepasjín, forsætis- ráðherra Rússlands, um málið, en Kasakstanstjóm bannaði að nokk- urri flaug yrði skotið á loft frá Bai- konur eftir að eldflaug þaðan sprakk í loft upp eftir flugtak í síð- ustu viku, með þeim afleiðingum þá opinberu afstöðu að hafna sam- komulagi Nawaz Sharifs, forsætis- ráðherra Pakistans, og Bills Clint- ons Bandaríkjaforseta, þar sem skorað var á skæruliða að hörfa frá því svæði í fjallgarðinum þar sem að undanförnu hefur komið til harkalegustu vopnaskipta Ind- verja og Pakistana í 30 ár. „Kemur alls ekki til greina" ,j\.ð við hörfum frá Kargil vegna einhvers milliríkjasamkomulags eða áskorunar kemur alls ekki til greina," segir í yfirlýsingu skæra- liðanna eftir að leiðtogar þeirra höfðu íhugað viðbrögð við áskoran Pakistanstj órnar. að eitrað brak dreifðist yfir land- svæðið í kring. Hafa stjórnvöld landanna tveggja síðan þá deilt hart um framtíð geimskota frá Baikonur, sem var áður geim- ferðamiðstöð Sovétríkjanna en Rússland leigir nú af Kasakstan. Rússnesk stjómvöld greindu frá því í mánudag að geimstöðin Mír, sem komin er til ára sinna, muni hugsanlega hrapa til jarðar snemma á næsta ári nema Ka- sakstanstjórn heimili að birgða- flaug verði skotið á loft fyrir næsta sunnudag með búnað innanborðs sem getur skipt sköpum um að Mír haldist á sporbraut um jörðu. Júrí Koptev, yfirmaður rúss- nesku geimferðastofnunarinnar, sagði að ákvörðun Kasakstan- stjórnar um að fresta geimskoti því sem áformað hafði verið í dag, mið- vikudag, gæti valdið því að hin fjórtán ára gamla geimstöð yrði stjórnlaus eftir að áhöfnin sem nú er þar um borð yfirgefur hana í ágúst. Engin geimskot leyfð frá Baikonur Geimstöðin Mír sögð geta hrapað Almaty, Moskvu. Reuters. KASAKSTANSTJÓRN hyggst Hörð átök kólumbíska stjórnarhersins og liðsmanna FARC Tæplega 300 skæru- liðar felldir um helgina Bogotá. AFP. UMF AN GSMIKIL átök kól- umbískra skæraliða úr röðum FARC og stjórnarhersins sem geis- að hafa í suðurhluta Kólumbíu und- anfarna daga virðast hafa náð há- marki sínu og lýstu talsmenn hersins því yfir í gær að sigur hafi náðst. Atökin hófust sl. föstudag með stór- sókn skæruliða á borgir og bæi og segja talsmenn FARC að skæraliðar hafi fellt um 60 hermenn. Kólumbísk hermálayfirvöld sögðu í gær að rétt undir þrjú hundrað skæraliðar hafi verið felldir og sýndu þeir frétta- mönnum hluta hinna föllnu í bænum Puerto Lleras, um 160 km suður af Bogotá, höfuðborg landsins. Um þriðjungur þeirra vora konur. Bandaríkjastjórn hefur farið þess á leit við skæraliða að þeir stöðvi árásir sínar á stjórnarherinn og hefji friðarviðræður við stjórnvöld. James Foley, talsmaður bandaríska utan- ríkisráðuneytisins, fordæmdi í gær hernaðaraðgerðir FARC og mann- ránsöldu þá sem skæraliðar hafa staðið fyrir. Lítil von um árangur í friðarviðræðum Háttsettir embættismenn í Bogotá hafa sagt að sókn FARC hafi verið gerð með það í huga að styrkja samningsstöðuna fyrir komandi frið- arviðræður sem Andres Pastrana, forseti Kólumbíu, hefur beitt sér fyr- ir. Viðræður deiluaðila, sem eldað hafa grátt silfur saman í rúm 30 ár með þeim afleiðingum að um 35.000 manns liggja í valnum eftir átök síð- asta áratugar, áttu að hefjast í liðinni viku en var frestað til 20. þessa mán- aðar. Telja menn litla von til þess að við- ræður skili miklum árangri en hafa sumir þó viljað meina að FARC sé í mun sterkari aðstöðu eftir átök helg- arinnar. „Þeir hafa sýnt fram á getu til að beita valdi og ógna stjórninni sem mun aftur gera þeim kleift að ít- reka hagsmunamál sín er að samn- ingsborðinu kemur,“ sagði Alfredo Ranger, fyrram þjóðaröryggisráð- gjafi landsins, í samtali við BBC. Meðal krafna FARC eru umfangs- miklar umbætur í málefnum fá- tækra, endurúthlutun lands og að- gerðir til að spoma við landlægri spillingu stjómmálamanna. Stjórnvöld í Kólumbíu hafa lýst yf- Reuters KÓLUMBISKUR hermaður stendur hjá likum þeirra 39 skæruliða sem sijóm- arherinn felldi í fyrirsát í útjaðri bæj- arins Puerto Lleras. ir útgöngubanni frá sólsetri til sólarapprásar í um þriðjungi landsins - þ.á m. úthverfum Bogotá - til að forða almenn- ingi frá átökunum. Fregnir herma að mestu átökin hafi staðið við Puerto Lleras og að liðsmenn FARC hafi ráðist gegn stjómarhem- um með brynvörðum vögnum. Þá féllu tvö börn í átökum í Caqueta-fylki eftir að heima- gerð sprengja skæraliða ger- eyðilögðu íbúðarhús sem var áfast lögreglustöð í bænum Valparaiso. Tveir lögreglu- þjónar féllu í svipaðri árás í bænum Antioquia. A sunnudag var haldin útför þeirra hermanna er féllu í árás á búðir skæruliða í fjalllendinu suður af Bogotá. Er talið að árásin hafi markaði upphaf átaka helgarinnar. hafnfirðingar OG NÁGRANNAR! ÚTSALAN HEFST Á MORGUN 20-50% AFSLATTUR Nýtt kortatímabil FILA adidas FJÖRÐUR, HAFNARFIRÐI S. 565 2592
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.