Morgunblaðið - 14.07.1999, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 14.07.1999, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ _______________UMRÆÐAN „Syndaaflausn“ Landsvirkjunar KRAFAN um lög- formlegt mat á um- hverfísáhrifum Fljóts- dalsvirkjunar bergmál- ar þessa dagana um allt þjóðfélagið og hefur notið sívaxandi stuðn- ings frá því hún var sett fyrst fram af fullum þunga í ályktun Nátt- úruvemdarþings í febr- úar 1997. TU þingsins er boðað af umhverfisráð- herra og það er helsti lögboðni vettvangur í landinu í hvers kyns umfjöllun náttúra- vemdarmála. Aðild að þinginu eiga allir stærstu hagsmunaðilar landsins sem sýsla með íslenska náttúru á einn eða annan hátt. Um er að ræða eitt lýðræðislegasta fyr- irkomulag sem þjóðin býr við í nátt- úravemdarmálum. Skilaboð frá Náttúravemdarþingi era skýr til- mæli til ráðamanna þjóðarinnar um meirihlutavilja þeirra aðila sem best til þekkja og bera hag íslenskrar náttúra fyrir brjósti. Síðan ályktun Náttúravemdar- þings var samþykkt hafa ótal áskor- anir verið bomar fram um lögform- legt umhverfismat á Fljótsdalsvirkj- un. Skemmst er að minnast þess þegar Davíð Oddssyni forsætisráð- herra var afhent um daginn áskoran frá fjölmörgum fyrirtækjum í ferða- þjónustu ásamt öllum helstu útivist- ar- og náttúruvemdarsamtökum landsins. Félagsmenn þessara sam- taka skipta tugþúsundum. Nokkra áður kom fram að meirihluti um- hverfisnefndar Alþingis er þeirrar skoðunar að Fljótsdalsvirkjun skuli gangast undir mat samkvæmt lög- um. Einstakir þingmenn, þ.á m. Kristján Pálsson, hafa meira að segja sagt að þyrma beri Eyjabökk- um óháð niðurstöðu úr umhverfis- mati. Afstaða Kristjáns fellur sam- an við álit meirihluta þjóðarinnar, en samkvæmt skoðanakönnun DV í janúar sl. er tveir þriðju hlutar landsmanna andvígur uppistöðulóni á Eyjabökkum. Krafa um umhverf- ismat kom einnig skýrt fram vorið 1997 í tillögu Samvinnunefndar um svæðisskipulag miðhálendisins. í greinargerð nefndarinnar var gerð- ur fyrirvari um lónstærð og þar stendur m.a. að „gildi Eyjabakka- svæðisins vegna sérstæðs gróður- fars, dýralífs, landslags o.fl. er svo -/elina Fegurðin kemur innan frá mikið að ástæða er til að endurskoða tilhögun virkjunarinnar skv. gildandi lögum“. Vegna þrýstings frá virkjunar- sinnum var þessum fyr- irvara hins vegar kippt út og þannig staðfesti Guðmundur Bjamason fyrrv. umhverfisráð- herra því miður svæðis- skipulagið. Siv Frið- leifsdóttir umhverfis- ráðherra virðist ekki ætla að bæta fyrir axar- sköft fyrirrennara síns og ber við að hún fylgi stefnu ríkisstjómarinn- ar í uppbyggingu orku- freks iðnaðar. Þannig hefur hún að engu vísbendingar um meirihlutavilja þjóðarinnar og skýt- ur sér undan veigamikilli ábyrgð sem hún ber sem umhverfisráð- herra á einstakri hálendisvin á al- þj óðamælikvarða. Ráðist Landsvirkjun í Fljótsdals- virkjun án þess að framkvæmdin fari í lögformlegt matsferli hjá Skipulagsstofnun, þá er ekki einasta sniðgenginn lýðræðislegur réttur landsmanna til að hafa áhrif á gerðir sem munu hafa meiriháttar áhrif á Virkjanir Nægur tími og heimild, segír Hilmar J. Malmquist, er til að meta umhverfísáhrif Flj ótsdalsvirkjunar samkvæmt lögum. náttúra landsins, heldur er einnig sniðgenginn lögbundinn umsagnar- réttur fagaðila á borð við Náttúra- vemd ríkisins, Náttúrufræðistofnun Islands og Orkustofnun. Hugmynd Landsvirkjunar um að stýra mats- ferlinu á eigin spýtur er dæmd til að mistakast. Landsvirkjun á það mik- illa hagsmuna að gæta í fram- kvæmdinni að lítil glóra er í því að veita fyrirtækinu sjálfdæmi í mál- inu. Mikilvægi þess að fara lögform- lega leið í umhverfismati á fram- kvæmdum sem Landsvirkjun kem- ur að hefur sýnt sig á undanfömum misseram. Nýlegt dæmi er Vatns- fellsvirkjun. Þar leiddi matsferlið til þess að Landsvirkjun var gert dömubuxur frá gardeur Otumv tískuverslun v/Nesveg, Seltj., s. 5611680 óhægara um vik að skerða hið frið- lýsta svæði Þjórsárvera vegna byggingu Norðlingaölduveitu. Ann- að dæmi er Hágöngumiðlun. I úr- skurði Skipulagsstofnunar var m.a. ákvæði um að haft skyldi samráð við Náttúravemd ríkisins um vegagerð að miðlunarlóninu. Hefði þetta ekki komið til myndi nú blasa við nær þráðbeinn uppbyggður vegur milli fimmta áfanga Kvíslaveitu og Syðri Hágöngu, Ijótt ör í víðerninu þvert yfir Sprengisand, sem þjónaði engu hlutverki umfram gamla vegslóðann sem þar er fyrir. Það kom og í Ijós að gamli vegurinn gagnaðist verk- takanum fullkomlega þrátt fyrir gagnstæðar staðhæfingar Lands- virkjunar þar um. Þessi dæmi veita smjörþefinn af því hversu afdrífa- ríkt það kann að vera að sleppa lög- formlegu umhverfismati þegar fyr- irhuguð Fljótsdalsvirkjun á í hlut. I bráðabirgðaákvæði í lögum um mat á umhverfisáhrifum stendur: „Þrátt fyrir ákvæði 17. gr. laga þessara era framkvæmdir sam- kvæmt leyfum útgefnum fyrir 1. maí 1994 ekki háðar mati á um- hverfisáhrifum samkvæmt lögum þessum." Engu líkara er en að virkj- unarsinnar túlki orðalagið „ekki háðar“ þannig að umrædd fram- kvæmd „eigi ekki“ að fara í mat. Háværastu virkjunarsinnar hafa hampað ákvæðinu sem einskonar syndaaflausn Landsvirkjunar. En í raun er orðalagið ekki sértækara en svo að unnt er að setja allar fram- kvæmdir í lögformlegt mat óháð dagsetningu framkvæmdaleyfis. Vilji er allt sem þarf. í bráðabirgða- ákvæðinu felst engin syndaaflausn en á hinn bóginn skýr heimild fyrir fyrirtækið sjálft að setja Fljótsdals- virkjun, sem fékk framkvæmdaleyfi árið 1991, í lögformlegt matsferli. Umfang þeirra náttúruspjalla sem stafa munu af Fljótsdalsvirkj- un með uppistöðulóni á Eyjabökk- um er gífurlegt. Hafi Landsvirkjun minnsta skilning á umhverfisvernd og þýðingu íslenskrar náttúra fyrir þjóðmenningu okkar lætur hún ótilneydd meta lögum samkvæmt umhverfisáhrif af völdum fram- kvæmdarinnar. Að öðrum kosti sýnir fyrirtækið alvarlegan skiln- ingsskort og mun, ásamt öðram sem vinna gegn lögformlegu um- hverfismati, verða fyrir verulegum álitshnekki bæði hér heima og er- lendis. Nægur tími er til stefnu. Lög- formlegt matsferli tekur í minnsta lagi um fjóra mánuði. Þetta á bæði við um Fljótsdalsvirkjun og sjálfa álverksmiðjuna í Reyðarfírði. Landsvirkjun reiknar með að nið- urstaða í mati álverksmiðjunnar liggi fyrir í febrúar. Verði frum- matsskýrslur fyrir báðum fram- kvæmdunum lagðar samtímis inn á borð Skipulagsstofnunar gæti nið- urstaða legið fyrir snemma á næsta ári. Sjái Skipulagsstofnun hins vegar veralega annmarka á annarri eða báðum skýrslunum gæti orðið lengra í niðurstöðu. Við þessa óvissu ber Landsvirkjun að una enda mikið í húfi og ekki sæm- andi að rasa um ráð fram. Höfundur er istjórn Náttúru- vemdursamtakn íslnnds. Hilmar J. Malmquist Sameinum Innnes in - og sundrum þeim um leið ALDARFJÓRÐUNGUR mun nú vera liðinn síðan ég vakti fyrst á því athygli opinberlega hve fá- ránlegt það er í raun og veru að samfelld byggð á Innnesjum við Faxaflóa skuli deilast niður á mörg sveitarfélög. Það gerði ég á fundi sem var á sínum tíma hald- inn á Hótel Borg í Reykjavík til kynningar á væntanlegum grunn- skólalögum - sem náðu samþykki 1974. A þeim fundi varpaði ég fram þeirri hugmynd að eðlilegt væri að sam- eina höfuðborgarsvæð- ið allt undir eina borg- arstjórn, - en skipta því um leið niður í 10-20 þúsund manna sj álfstj órnarhverfi, sem hefðu endanlegt vald í ákveðnum mál- um. Ég man að Páli heitnum Líndal þótti þetta afspyrnuvond hugmynd, einkum það að skipta Reykjavík upp og láta til að mynda Breiðholtið fá sömu réttarstöðu og Garðabæ eða Seltjarnarnes í hinni nýju borg. Nokkrum árum síðar áréttaði ég þessa hugmynd mína með grein í Morgunblaðinu. Þá var Davíð Oddsson nýlega orðinn borgarstjóri í Reykjavík og á Sameining Hvaða máli skiptir hvorum megin við strík á korti menn búa, spyr Kristján Bersi Ólafs- son, þegar byggðin er löngu orðin að einu at- vinnusvæði? næsta skólanefndarfundi í Hafn- arfirði eftir að greinin birtist spurði einn samflokksmaður Da- víðs í nefndinni mig að því, hvort mig væri farið að langa svona mikið til að komast í Borg Davíðs. En ég bað hann þá að minnast þess að á eftir Davíð hefði komið Salómon. Sjónvarpsþáttur nú í kvöld, 8. júlí 1999, hefur kveikt í mér löng- un til að rifja þetta upp. Þar taldi oddviti minnihlutans í borgar- stjórn Reykjavíkur það mjög ámælisvert að einhverjir Reykvíkingar hefðu á liðnum ár- um neyðst til að flytja til Kópa- vogs, af því að Reykjavíkurborg hefði ekki getað boðið þeim nógu margar eða nógu góðar bygging- arlóðir. En hvaða máli skiptir það? Hvaða máli skiptir það hvort menn búa hérna megin eða hinum megin við eitthvert strik á korti, þegar byggðin er hvort sem er samtengd og fyrir löngu orðin að einu atvinnusvæði? Ibúana skiptir það örugglega sáralitlu máli, en atvinnumenn í sveitarstjórnar- málum (nú vantar mig gott ís- lenskt orð yfir það sem á sænsku heitir „kommunalpampar") virð- ast láta það skipta sig máli, - sennilega af því að þeir telja sér skylt að takmarka hugsun sína og sjóndeildarhring við landamæri sveitarfé- lagsins og leyfa sér ekki að hafa heildar- yfírsýn yfír svæðið allt. Höfuðborgarsvæðið stendur á landi tveggja fornra hreppa: Seltjarnarnes- hrepps og Alftanes- hrepps. (Hérna lít ég framhjá landvinning- um Reykjavíkurborg- ar á Kjalarnesi, sem eru landfræðilegt stíl- brot og hljóta fyrr eða síðar að ganga til baka.) Það gæti verið gott upphafsskref til sameiningar svæðisins alls að endurreisa sem fyrst þessa tvo fornu hreppa, leggja Seltjarnarneskaupstað og Kópavog til Reykjavíkur, og sam- eina Bessastaðahrepp, Garðabæ og Hafnarfjörð í eina heild. Jafn- framt þarf að koma á fót skipu- lögðum hverfastjórnum í báðum sveitarfélögunum og skilgreina í einstökum atriðum verkaskipting- una milli þeirra og yfirstjórnar- innar. Eðlilegt virðist að stærri einingarnar hefðu skipulagsmálin á sinni könnu, gatna- og vegakerf- ið og rekstur veitustofnana, - en hverfin ættu að vera sjálfráð um félagsleg mál af ýmsu tagi, þar á meðal rekstur bæði grunnskóla og leikskóla. Með þessu ynnist tvennt: annars vegar aukin hag- kvæmni á þeim sviðum þar sem stærð rekstrareiningarinnar skiptir máli, og gleggri yfirsýn yf- ir heildina; og hins vegar vald- dreifing og aukið lýðræði á þeim sviðum sem standa næst fólkinu sjálfu. Þessi hugmynd að skipulagi höfuðborgarsvæðisins var fylli- lega tímabær fyrir aldarfjórðungi þegar ég orðaði hana fyrst, og núna held ég sé farið að verða óhjákvæmilegt að íhuga hana í fullri alvöru. Annars vegar er skipting svæðisins í sex sveitarfé- lög alvarlegur dragbítur á eðli- lega þróun þess; en á hinn bóginn eru stærstu sveitarfélögin - og þá sérstaklega Reykjavíkurborg - orðin svo stór að þau geta ekki annað en stjórnað jafnvel við- kvæmustu grenndarmálum, eins og til að mynda skólamálum, á miðstýrðan og ólýðræðislegan hátt. Með því skipulagi sem hér hefur verið reifað væri hægt að eyða þessum annmörkum báðum. Höfundur var skólameistari ( Flens- borg í Hafnarfirði. Kristján Bersi Ólafsson [E<sŒl(B<s(im leysir vandann Reflectix er 8 mm þvkk endurgeislandi einanarun í rúllum. 7 lög en 2 ytri alúminíum-lög endurgeisla hitann. Breiddir: 61 og 122 mm. Rúllulengdir: 15, 38 og 76m. ’ háaloft, bak við ofna, i fjós, hesthús, á rör, á veggi, tjaldbotna, sessur, svefnpoka o.m.fl. Skæri. heftibvssa oa límband einu verkfærin. PP &co Þ.ÞORGRÍMSSON & CO ÁRMÚLA 29 S: 553 8640 & 568 6100 Stretchbuxur kr. 2.900 Konubuxur frá kr. 1.690 Dragtir, kjólar, blússur og pils. Ódýr náttfatnaður. Nýbýlavegi 12, sími 5544433
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.