Morgunblaðið - 14.07.1999, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 14.07.1999, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1999 45 BREF TIL BLAÐSINS Oumflýj anlegar Frá Kjartani Ólafssyni: MIKIÐ hlýtur þann hóp borgarbúa sem nýta sér þjónustu Strætisvagna Reykjavíkur að svíða í afturendann eftir síðasta rassskell R-listans. Þakklætið fyrir viðskiptin er að bjóða upp á hækkun á þjónustu sem færri og færri nýta sér og fer þeim varla fjölgandi eftir síðustu hækkan- ir. Að það skuli vera svar borgarinn- ar við því að fólk nýtir sér ekki þjón- ustu hennar að hækka verð fyrir hana. Verður það varla til þess að auka viðskipti viðkomandi stofnunar. Það hlýtur að vera umhugsunarefni fyrir borgina hvers vegna fólk nýtir sér ekki þá þjónustu sem í boði er, varla er það vegna þess hve ódýr hún er, þó það sé eina svar borgar- innar að hækka verð þjónustunnar. Það hlýtur að vera hægt að gera bet- ur, það er til dæmis varla ódýrt að transporta um borgina á extra löng- um liðvagni allan daginn með að meðaltali kannski 10 farþega, fyrir utan kannski 1 eða 2 ferðir sem stærð hans kemur að gagni, auk þess sem leiðakerfið eins og það er í dag gerir það að verkum að vagnar keyra stofnbrautir í halarófu og flestir tómir eða svo gott sem allan daginn. Það hlýtur að vera hægt að gera betur. Eitt er þó skrýtið varðandi þessa hækkun sem er ein af mörgum hækkunum borgarinnar undanfarið Jón Þor- steinsson var ekki á myndinni Frá Þorsteini Guðjónssyni: í LESBÓK Mbl. 26. júní er grein eft- ir Jónas Kristjánsson (fyrrverandi forstöðumann Arnastofnunar) um skáldið og handritafræðinginn Jón Helgason frá Rauðsgili í Hálsasveit. En hann átti aldarafmæli 30. júní sl., og hefur þess verið minnst með ýms- um hætti. Greininni fylgir mynd af þremur mönnum, sem sitja á bæjar- vegg og undir henni stendur: „Jón Helgason heilsar upp á góða granna í Borgarfn-ði, Þorstein Jónsson á Úlfs- stöðum og Jón föður Þorsteins." Hið rétta er að Jón Þorsteinsson, faðir Þorsteins Jónssonar, er alls ekki á myndinni, heldur er þarna Sigurður Jónsson, sem nefndur var „Siggi ha“ vegna heymardeyfu sinnar. Bærinn (húsið) mun vera Hólakot, þar sem Siggi hafðist við síðustu ár sín. Jón kom færandi hendi og gaf Sigga sjón- auka, sem hann þáði með þakklæti. ÞORSTEINN GUÐJÓNSSON, Rauðalæk 14, Reykjavík. SÚnUORF ... semslá í gegn! K^Iþór hf Reykjavík - Akureyri Reykjavlk: Ármúla 11 - Slmi 568-1500 Akureyri: Lónsbakka - Slml 461-1070 þrátt fyrir að kosningaloforð R-list- ans hafi verið engar hækkanir og það er það að þessi hækkun er ekki D-listanum að kenna. Flestar hækk- anir sem komið hafa eru vegna vanda sem á sér langan aðdraganda og voru þær allar óumflýjanlegar vegna óráðsíu fyrri stjórnar, en þessi hækkun á sér einhverjar aðrar óum- flýjanlegar ástæður. KJARTAN ÓLAFSSON, Rósarima 6, Reykjavík. ---------------------- Sumarljóð Frá Eggerti Laxdal: Lækirnir syngja sumarljóð. Fuglamir kvaka í móunum. Sólin hellir sér yfir landið. Karl og kona koma ríðandi, stígaafbaki EGGERT E. LAXDAL, Frumskógum 1, Hveragerði. Viltu verða rík/ur... ...og auðga líf þitt með því að kynnast nýrri menningu? I LOK AGUST ERU VÆNTANLEGIR 37 ERLENDIR SKIPTINEMAR TIL ÍSLANDS. HEFUR ÞÚ ÁHUGA Á AÐ OPNA HEIMILI ÞITT FYRIR SKIPTINEMA í 5 EÐA 10 MÁNUÐI? Þú þarft: • Hús- og hjartarými. • Opinn huga og víðsýni. • Áhuga á að sjá ísland með augum útlendings. Þú þarft ekki: • Að kunna ensku. • Að elda mat í öll mál. • Að vera með stanslausa skemmtidagskrá. AFS á íslandi Ingólfsstræti 3, 2. hæð, símí 552 5450 www.itn.is/afs Svona maður ekki s um *L& íyrtU “»í ““m Vií eUd \ o«lm'n"'nS?rS \ ISSLT5-S?- j - - Oí' Morgunblaðið 12. september 1995 R-listinn fargjöld SVR Svona gerir maður ekki - aftur! Síðast þegar R-listinn hækkaði fargjöld SVR barðist Helgi Hjörvar gegn því og skrifaði harðorða grein í Morgunblaðið. „Það kunna að vera erfiðir tímar í fjármálum borgarinnar. En að leggja sérstaka skatta á farþega SVR umfram aðra borgara er að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur.“ „Við höfum engar lausnir, enga sýn, en sendum borgurunum reikninginn fyrir getuleysinu.“ R-listinn hefur aftur hækkað fargjöld SVR, nú um allt að 25%. Helgi Hjörvar, forseti borgarstjórnar, skuldar Reykvíkingum slcýringar! Sjálfstæðismenn í borgarstjórn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.