Morgunblaðið - 14.07.1999, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 14.07.1999, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fjölmenni var við setningu 23. landsmóts skáta á Úlfljótsvatni í gærkvöldi HELGI Grímsson, fræðslustjóri Bandalags íslenskra skáta, á mótsstað við Ulfljótsvatn. Pyrir aftan hann má sjá skáta koma sér fyrir á svæðinu. Morgunblaðið/Jim Smart EKKI skal fjölyrt um hvort þetta sé nýjasta tíska í skátabúningum, en þessi glaðbeitti hópur sá engu að síð- ur um að bjóða mótsgesti velkomna að Ulfljótsvatni. Búist við 5.000 þátt- takendum Landsmót skáta var sett á Ulfljótsvatni í gærkvöldi. Þar munu hátt í 5.000 skátar, þar af um 1.000 erlendis frá, dvelja við leik og störf næstu vikuna. Finnur Friðriksson og Jim Smart fóru að Ulfljótsvatni í gær og ræddu við aðstandendur mótsins og móts- gesti sem voru að gera sig klára til leiks. HELGI Grímsson, fræðslustjóri Bandalags íslenskra skáta, segir undirbúning fyrir mótið hafa staðið yfir í 2 ár og mun hann einkum hafa fcsiiiBi' sð því sð -gera ifiótssysðið sem best úr garði hvað varðar t.d. hreinlætis- og tjaldaðstöðu. Þá var, að sögn Helga, mikil vinna lögð í að útbúa dagskrá mótsins. „Við sendum valdagskrá út um allan heim til allra þeirra sem skráðu sig á mótið, en þar var hægt að velja úr einum 70 dagskrárliðum. Við höfum síðan unnið úr svörunum og dagskráin fer í gang á fimmtu- daginn. Það sem virðist vera vinsæl- ast er klifur og sig, en einnig má nefna kanósiglingar, hellaferðir, vatnasafarí og gönguferðir. Útilíf af ýmsum toga er því efst á baugi, enda er það okkar mottó að skátalíf sé útilíf." Heilu bæjarfélagi komið á laggirnar Landsmótið verður mjög um- fangsmikið að þessu sinni og segist Helgi eiga von á því að hátt í 5.000 manns taki þátt í því um lengri eða skemmri tíma. Það er því ekki að undra þótt Helgi tali um að heilt bæjarfélag muni rísa á Úlfljóts- vatni, ekki síst ef haft er í huga að þar verður boðið upp á megnið af þeirri þjónustu sem fáanleg er í rót- grónari bæjum. Þannig verða starf- rækt pósthús og banki á mótssvæð- inu, þar verða verslun og kaffihús og útvarpsstöð og daglegt mótsblað munu sjá um að fræða mótsgesti STÖLLURNAR Wang Chung Yee (neðst t.v.) og Tam Lai Yee og þeir Lau Chi Chuen (efst t.v.) og Fok Kwai Wing komu alla leið frá Hong Kong til að vinna við dreifingu matarbirgða á landsmótinu. Er ekki annað að sjá en þeim líki vel við starfið. um gang mála. Einnig verður starf- rækt sjúkragæsla á mótinu og er hún í höndum Hjálparsveitar skáta í Reykjavík. Ekki verður annað sagt en að mjög alþjóðlegur blær verði á hinu nýja bæjarfélagi þar sem um 1.000 erlendir skátar frá 22 löndum mæta til leiks og eru 120 þeirra starfs- menn mótsins. Segir Helgi það mik- ið ævintýri fyrir íslenska skáta að fá að kynnast erlendum félögum sín- um. Eru þau kynni raunar einn af meginþáttum mótsins og er dag- skráin í dag gerð með það í huga að koma þeim á. „Eitt það mikilvæg- asta við skátamót er að kynnast sjálfum sér og öðrum og finna þau alþjóðatengsl sem skátahreyfingin kemur á. Hér gefum við lítið fyrir landamæri og fólk af öllum trúar- brögðum skemmtir sér saman í sátt og samlyndi," sagði Helgi. Mótsgestir fullir tilhlökkunar Þegar Morgunblaðið bar að garði voru mótsgestir í óða önn að koma sér fyrir á svæðinu. Þeir John Grim, Eric Stevenson og Eric Lind frá Neyv York £ Bandaríkjunum sátu þó hinir rölegustu á bekk við nýreist tjald sitt og fylgdust með mannlíf- inu. „Við erum mjög ánægðir með að ver'a komnir til Islands og landið er mjög fallegt. Við hefðum þó gjaman viljað vera lausir við flugnagerið hér við vatnið," sögðu þeir félagar. Sögðust þeir hlakka mjög til að hitta gamla vini sem þeir höfðu kynnst á fyrri alþjóðlegum skátamótum og töldu slík mót bráð- nauðsynleg til að efla skátahreyf- inguna á heimsvísu. Skammt frá tjaldi Bandaríkja- mannanna hafði hress hópur ung- linga úr skátafélaginu Landnemum í Reykjavík komið sér fyrir. Sögð- ust þeir einkum hlakka til að kynn- ast erlendum félögum sínum og vonuðust til að stofna til varanlegra kynna við þá. „Eg ætla líka að reyna að ná í nokkur símanúmer," varð einum piltanna á orði. „Það hljóta að vera einhverjar sætar steJnm’-f nllum bessum. fiölda." I búðum Landnema var þó þegar einn erlendur skáti tií staðar; Kanadamaður sem náð hefur hæsta skátamerkinu og voru íslensku ung- mennin afar ánægð með félagsskap hans. Erlendir starfsmenn mótsins komu mislangt að. Fáir munu þó hafa lagt lengri leið að baki en þau Wang Chung Yee, Tam Lai Yee, Lau Chi Chuen og Fok Kwai Wing frá Hong Kong. Verkefni þeirra mun vera að dreifa mat til móts- gesta og grípa í önnur verk eins og með þarf. „Við efumst því um að við fáum mikinn tíma til að taka þátt í dagskrá mótsins, en við ætlum hins vegar að skoða okkur aðeins um að því loknu og fara t.d. í Bláa lónið.“ Sögðu þau það afar spennandi tæki- færi að fá að koma til íslands og taka þátt í landsmótinu, enda hafði ekkert þeirra komið hingað fyrr. EKKI þýðir að slá slöku við þótt búið sé að tjalda og þessi hópur danskra skáta tók því létta æfingu til að hita upp fyrir mótið. Um þúsund erlendir skátar taka þátt í mótinu. ÞEIR Eric Lind (lengst t.v.), Eric Stevenson og John Grim, frá New York í Bandaríkjunum sitja hér fyrir framan tjaldborg sína. I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.