Morgunblaðið - 14.07.1999, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 14.07.1999, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1999 15 Héraðsdómur Norðurlands eystra KEA greiði bætur vegna vinnuslyss KAUPFÉLAG Eyfirðinga var ný- lega dæmt í Héraðsdómi Norður- lands eystra til að greiða fertugum manni á Dalvík 3,6 milljónir króna auk vaxta vegna vinnuslyss sem hann varð fyrir um borð í Sólfelli EA sem lá við bryggju í Hrísey í október árið 1989. Maðurinn sem var starfsmaður Bílaverkstæðis Dalvíkur, sem þá var í eigu KEA, slasaðist er hann var ásamt fleirum við störf um borð í Sól- felli, en verkefni þeirra var að setja niður járnstyttur í lest skipsins. Þær voru um 170 til 190 sentimetrar að hæð og 50 til 80 kíló að þyngd. Var hverri styttu komið lóðrétt fyrir á 50 sentímetra háum stólpa og lestin þannig hólfuð niður. Er maðurinn var að lyfta einni styttunni upp á stólpa fékk hann hnykk á bakið og féll á lestargólfið. Var hann úrskurð- aður með brjósklos í baki að lokinni læknisskoðun daginn eftir atvikið. Hann hefur verið metinn með 25% varanlega orörku. Vinnuaðstaða slæm Krafðist maðurinn 12 milljóna króna í skaðabætur auk vaxta frá þeim degi er óhappið varð, 19. októ- ber 1989. Rökstuddi hann dómkröfur sínar þannig að orsök slyssins verði rakin til þess að verkstjóm hafi verið áfátt, honum hafi verið ætlað að lyfta þyngri byrgði en ætla mætti einum manni að bera og það valdið brjósklosinu. Þá hafi verið þrýst á hann og starfsfélaga að hraða sér við verkið. Vinnuaðstaða hafi verið slæm og lestargólfið hált. Loks hefði átt að nota vélbúnað, s.s. rafmagnstalíu, til að lyfta styttunum eða flehn menn að vinna verkið. Kaupfélag Eyfirðinga krafðist sýknu af kröfum stefnenda en til vara að sök yrði skipt í málinu. Sýknukröfa var byggð á því að stefndi ætti enga sök á slysinu og það megi alfarið rekja til óhappatilviljun- ar. Vísað var til þess að stefnandi hafi verið þrítugur að aldri, bifvélavirkja- meistari að mennt og vanur að vinnu sem vélvirki að viðgerð og viðhalds- vinnu um boð í bátum og fiskiskipum. Hann og vinnufélagi hans hefðu átt að vera fullfærir um að meta aðstæð- ur á vinnustað og inna slysalaust af hendi það einfalda verk að setja upp stytturnar í lest Sólfells. Stefnandi eigi því aðeins við sjálfan sig að sakast hafi hann vanmetið aðstæður í þessu efni og færst of mikið í fang. Ábyrgð á slysinu skipt Var það mat dómsins var maður- inn hefði verið látinn sinna erfiðu verki þar sem á skorti að fullnægj- andi starfsöryggis væri gætt og verktilhögun og verkstjórn hefði ver- ið áfátt. Var því fallist á það með stefnanda að bótaskylda stefnda væri í gildi á grundvelli vinnuveitendaá- byrgðar. Maðurinn hefði hins vegar átt nokkra sök á því hvernig fór og því rétt að ábyrgð á slysinu yrði skipt þannig að hann bæri hana sjálfur að einum þriðja hluta. Sameining sveitarfélaga við Eyjafjörð Samstarfsnefnd verði skipuð BÆJARRAÐ Akureyrar hefur óskað eftir því við fulltrúa þeirra ellefu sveitarfélaga sem tóku þátt í fundi um sameiningu sveitarfélaga í Eyja- firði í síðasta mánuði, þ.e. allra sveit- arfélaga í Eyjafirði auk Siglufjarðar og Hálshrepps, að þau skipi fulltrúa sína í samstarfsnefnd til að vinna að athugun á sameiningu þessara sveit- arfélaga. Fulltrúar í nefndina verða skipaðir þannig að sveitarfélög með undir 1.000 íbúa skipa tvo fulltrúa hvert, þrír fulltrúar verða skipaðir fá sveit- arfélögunum Dalvíkurbyggð, Ólafs- firði og Siglufirði og fimm fulltrúar koma frá Akureyri. Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, lagði fyrr á árinu fram til- lögu þessa efnis að hefja viðræður um sameiningu allra sveitarfélaga í Eyja- firði. „Ég vona að sveitarfélögin taki vel í þetta og skipi fulltrúa sína í þessa samstarfsnefnd. Ég geri ráð fyrir að hún geti hafið störf fijótlega með haustinu," sagði Kristján Þór. HÉR má sjá hvar sápulöðrið fossar fram í höfnina. Morgunblaðið/Ásdís Sápulöður í Dalvíkurhöfn SÁPULÖÐUR sem rennur fram í Dalvíkurhöfn vakti athygli blaða- manns og Ijósmyndara í ferð þeirra á Dalvík á dögunum. Morgunblaðið kannaði hverju þessi freyðandi foss sætti og sagði Sveinbjörn Stein- grímsson, bæjartæknifræðing Dal- víkurbæjar að frárennslislögn úr frystihúsinu hefði bilað fyrir um mánuði síðan og var henni veitt þarna beint út í höfnina til bráða- birgða. Sveinbjörn sagði að til stæði að gera við lögnina þegar frystihúsinu yrði lokað vegna sum- arleyfa á næstu vikum. „Þetta er svokailað yfirfall úr frárennslislögninni til að bjarga flutningsgetunni og þetta er sápu- löður sem kemur þegar verið er að þvo í frystihúsinu. Þetta er nú ekk- ert meira eitur en svo að þetta eru efni sem notuð eru í matvælaiðnaði og eyðast um leið í sjónum". Aðspurður hvort þetta væri ekki til lýta fyrir vegfarendur og ferða- menn sagði Sveinbjörn að sápan væri bara sýnileg einhverja klukku- tíma á dag. „Mest er þetta nú bara hreint skolvatn," sagði Sveinbjörn að lokum. Sólrúnarmót Sjóstangaveiðifélags Akureyrar í Grímsey Ovenjugóð veiði INNANFELAGSMOT Sjóstanga- veiðifélags Akureyrar, SjóAk, var haldið í fyrsta skipti í Grímsey á dögunum, en þetta er í þriðja skipti sem félagið heldur slíkt mót. Mótið, svokallað Sólrúnarmót, er styrkt af fiskverkunarfyritækinu Sólrúnu á Árskógsströnd á Árskógssandi og var ákveðið að halda það í Grímsey í tilefni af 35 ára afmæli SjóAk. AIls tóku 42 keppendur þátt í mót- inu, þar af 16 nýliðar og voru þeir á aldrinum 16 til 71 árs. „Við erum al- veg í skýjunum. Ef ég miða við venjulegan afla á klukkustund á hvern veiðimann er þetta það mesta sem ég veit að veiðst hefur á svona móti, eða 40 kíló á veiðimann. Á síð- asta móti sem haldið var á Siglufirði veiddust 30 kíló á veiðimann á klukkustund," sagði Pétur Sigurðs- son stjórnarmaður í SjóAk. Sundferð og grillveisla Róið var á 12 bátum og voru 3-5 keppendur á hverjum bát. Keppend- ur komu til eyjarinnar á föstudags- kvöld og var róið á laugardagsmorg- un og veitt til hádegis. Heildaraflinn var rúmlega 10 tonn eða 245 kíló á Morgunblaðið/Margit Elva Einarsdóttir ÞAÐ var líf og fjör á bryggjunni í Grímsey þegar Sjústangaveiðifélag Akureyrar efndi til móts þar á dögunum. stöng að meðaltali. Eftir hádegisverð í boði kvenfélagsins Baugs var ungu kynslóðinni boðið í sjóstangaveiði sem um 50 ungmenni þáðu. Félagar í SjóAk tóku sundlaug Grímseyjar á leigu og buðu öllum sem vildu frítt í sund. Að lokum var haldin mikil grill- veisla í boði félagsins og var heima- mönnum og gestum í eynni boðið. Veitt voru verðlaun til aflahæstu félaga í SjóAk í karla- og kvenna- flokki, aflahæstu nýliða í karla- og kvennaflokki, aflahæstu bátanna og fyrir stærstu fiskana, eða alls um 20 verðlaun sem KE A gaf. Skipulagning mótsins var unnin í samvinnu við Kiwanisklúbbinn Grím í Grímsey sem m.a. sá um bátaöflun og sá Óttar Jóhannsson ritari félagsins um þá hlið málsins. Kostaði áðurU7Qö kr. pr. kg. Kostar nú 636 kr. pr. kg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.