Morgunblaðið - 14.07.1999, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.07.1999, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Vöxtur í Tungufljóti síðustu daga í lítilsháttar rénun Stíflugarður minna skemmdur en dttast var LÍTILLEGA hefur rénað í Tungufljóti, eða um 6 sentímetra, en enn er þessi fyrrum bergvatnsá eins og beljandi jökulfljót á að líta, að sögn Margeirs Ingólfssonar, for- manns hreppsráðs í Biskupstung- um. Hann segir þá sem skoðað hafa aðstæður óttast enn að Hagafells- jökull rjúfi haft við affallið frá Hagavatni, sem gæti leitt til þess að vatnið tæmdist. „A meðan jökullinn er á skriði er þessi hætta til staðar. Við viljum trúa því að hann fari ekki svo langt, en miðað við hvað farið hefur sein- ustu tvo mánuði getur allt gerst,“ segir Margeir. Viðgerð eftir vatnavexti Sveinn Runólfsson landgræðslu- stjóri segir að við seinustu könnun á vegum Landgræðslunnar á svæð- inu hafí komið í ljós að stíflugarður- inn í Sandvatni sé minna skemmd- ur en menn hafi óttast. „Það er erfitt að komast að þessu, en við höldum að skemmdir á garðinum við útfall Asbrandsár séu minni en við héldum. Eitthvað hefur þó farið ofan af honum og hann lækkað með þeim afleiðingum að lækkað hefur í Sandvatni," segir Sveinn. „Ef það reynist rétt vera reiknum við með að gera við garðinn þegar þessum vatnavöxtum linnir, enda hefur ár- angurinn af að stækka Sandvatnið verið mjög góður. Það hefur dregið geysilega mikið úr sandfoki af þessu vatnasvæði Sandvatns niður á Haukadalsheiðina, en áður fauk mikið þangað.“ Margeir segir heimamenn telja koma vel til greina að búa til stíflu þar sem affallið er úr Hagavatni í dag og hækka yfirborð vatnsins, þannig að affallið verði á ný það Morgunblaðið/Ragnar Th. Sigurðsson GÖNGUBRÚIN við affallið úr Hagavatni, Parið, stóð enn í gær en myndarlegir isjakar gerðu að henni atlögu. sem það var fyrir 1939, þegar fyrir- staða brast í Hagavatni og Nýifoss myndaðist. „Þá myndum við geta sökkt gömlum vatnsbotni sem hef- ur staðið upp úr síðan 1939, en úr honum hefur verið mikið moldrok og fok yfir okkur hér á Suðurlandi. Þær hugmyndir strönduðu á sínum tíma hjá umhverfisráðherra eftir umhverfismat, en þessir atburðir nú ýta þeim hugmyndum af stað aftur,“ segir Margeir. Stífla fyrir 20 milljónir? Sveinn segir að stíflugerð við af- fallið frá Hagavatni komi vel til greina, en slík framkvæmd myndi kosta liðlega 20 milljónir króna að hans mati. „Þessi möguleiki er í at- hugun og ef að hann yrði að veru- leika kæmi til greina að Land- græðslan legði því verkefni lið enda mikil landgræðsla í því að koma í veg fyrir moldarfok og landeyðingu á þessum slóðum." Skólahald í Skógum lagt niður eftir 50 ára starfsemi Of fáar umsóknir bárust SKÓLANEFND Framhaldsskólans í Skógum hefur ákveðið að skóla- hald verði lagt þar niður í núver- andi mynd vegna lítillar aðsóknar nemenda. I fyrra var hestadeild í skólanum og framhaldsnám að sögn Drífu Hjartardóttur for- manns skólanefndar. „í vetur gekk þokkalega vel en nemendum fækkaði um áramót og þeir sem luku prófí í vor, 31 talsins, gerðu það með glæsibrag," segir Drífa. Tíu manns hafa starfað við skólann í vetur, þar af fímm kenn- arar. I vor auglýsti skólinn eftir umsóknum og bárust aðeins 18 umsóknir, og þar af staðfestu ein- ungis 11 skólavist sína. „Það var úr vöndu að ráða og þýddi ekki að halda áfram með skólann í þessu formi," segir Drífa. Tíðarandanum um að kenna „Eins og gerst hefur með alla héraðsskóla hefur nemendum fækkað ár frá ári. Ég held að þetta sé tíðarandinn, unglingamir vilja vera þar sem fjöldinn er og ég held að það þýði ekkert að berjast á móti því. Þegar nemend- ur em alltof fáir fellur félagslífíð um sjálft sig og það skiptir nem- endur miklu máli. Mér fínnst af- skaplega sorglegt á 50 ára afmæli skólans að það þurfi að hætta með framhaldsnám, en ég lít samt sem áður björtum augum fram í tím- ann og bind vonir við að þama verði mikil menningarstarfsemi áfram.“ Á seinasta ári tóku heimamenn við rekstri skólans og var hann gerður að sjálfseignarstofnun í SKÓGASKÓLI hefur lokið hlutverki sínu sem framhaldsskóli. eigu héraðsnefndar Rangárvallar- sýslu og héraðsnefndar Vestur- Skaftafellssýslu. Gerður var samn- ingur við menntamálaráðuneytið um að það greiddi kostnað vegna þeirra nemenda sem luku prófum frá skólanum í haust, auk þess sem húsnæðið er i eigu ríkisins. Hótelrekstur hefur verið um langt árabil í húsnæði skólans að sumarlagi og verður áfram, að sögn Drífu. „Við getum gert margt þó svo að ekki verði um framhaidsskóia að ræða og í því sambandi hefur m.a. verið rætt um að bjóða upp á námskeið á staðnum. Húsnæði býður upp á kennslustofur og fundaaðstöðu, matsal og ágætis herbergi, heitan pott og sundlaug, svo eitthvað sé nefnt, þannig að um ákjósanlega aðstöðu er að ræða.“ Nýtt í þágu byggðasafns í liðinni viku gengu forsvars- menn skólanefndar Framhalds- skólans í Skógum á fund mennta- málaráðherra og ræddu ýmsa kosti sem til greina kæmu, ef skólahald héldi ekki áfram. „Við ræddum um málefni skólans og komumst að þeirri sameiginlegu niðurstöðu um að nýta skólahús- næðið sem best í þágu Byggða- safnsins á Skógum," segir Björn. Auglýsir eft- ir aðstoð lögfræðinga GENNADIY Karmanov, skip- stjóri á togaranum Odincova, segir að útgerðarmaður skips- ins, Sæmundur Arelíusson, neiti að reikna skipverjum laun frá 1. júlí sl„ enda líti hann svo á að þeir hafi verið í verkfalli frá þeim tíma. Sæmundur kom til fundar við skipverja á Odincova í gær, en Karmanov segir að ekkert hafi verið greitt upp í launakröfur þeirra, sem eru á annan tug milljóna. Ahöfn Odincova hefur að und- anförnu vakið athygli á stöðu sinni. Karmanov segir þó fráleitt að það jafngildi verkfalli, skip- verjamir séu innlyksa af völdum útgerðarmannsins, og á meðan svo er skuli þeim reiknast laun. Karmanov segist ekki sjá aðra leið en að höfða mál gegn Sæ- mundi. Hann auglýsir því eftir aðstoð íslenskra lögfræðinga. Nýjar kartöflur markað í ágúst Sprettu- tíðin er misjöfn á landinu KARTÖFLUBÆNDUR í Þykkva- bænum munu ekki endurtaka leik- inn frá í fyrra, þegar þeir tóku fyrstu kartöflurnar upp fyrir miðj- an júlí. „Skaparinn hefur gefið okk- ur lítið annað en rigningu," segir Sigurbjartur Pálsson, kartöflu- bóndi á Skarði í Þykkvabæ, um sprettutíðina í sumar. Hann segir veðrið næsta mánuðinn skipta sköpum og býst við að nýjar kart- öflur frá Þykkvabænum komi í búðir um næstu mánaðamót. „Sumarið í fyrra var sérstaklega gott, en nú kemur nýjasta upp- skeran í búðir á vanlegum tíma,“ segir hann en það munu vera kart- öflur sem settar voru niður snemma í vor og ræktaðar undii’ plasti. I byrjun september er áætl- að að taka upp til geymslu í Þykkvabænum. Uppskera í meðallagi í Eyjafírði í Eyjafírðinum er útlit fyrir að kartöfluuppskeran verði í meðal- lagi segir Sveinberg Laxdal kart- öflubóndi á Túnsbergi en bendir á að margt sé enn óljóst. „Vorið fór vel af stað en í lok maí kom hins- vegar mikill kuldakafli og því settu bændur nokkurn hluta af sinni ræktun niður með seinna móti,“ segir hann. Uppskeran frá þeim gæti því komið nokkru seinna en í fyrra, þ.e.a.s. eftir miðjan ágúst. Á Fljótdalshéraði eru kartöflu- bændur ákaflega bjartsýnir í blíð- unni. „Þetta lítur mjög vel út,“ seg- ir Bragi Gunnlaugsson á Setbergi. „I svona góðu árferði gætu kartöfl- urnar komið í búðir hér fyrir aust- an um 20. ágúst,“ segir Bragi og segir undirvöxtinn í kartöflunni byrja þegar dimma fer af nótt. Bondevik til Islands FORSÆTISRÁÐHE RRA Noregs Kjell Magne Bondevik og frú Björg Bondevik koma í opinbera heimsókn til landsins dagana 9. til 11. ágúst næstkomandi. í heimsókninni mun Bondevik eiga viðræður við Davíð Oddsson forsætisráðherra og fund með ut- anríkismálanefnd Alþingis. Andlát STEIN GERÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR STEINGERÐUR Guð- mundsdóttir, skáld og leikkona, lést á Sjúkra- húsi Reykjavíkur í fyrradag. Hún var 86 ára. Steingerður fæddist 12. október 1912 á ísa- firði og voru foreldrar hennar Guðmundur Guðmundsson skóla- skáld og Ólína Þor- steinsdóttir. Hún bjó í Reykjavík frá árinu 1913 og nam högg- myndalist hjá Einari Jónssyni myndhöggv- ara árin 1931 til 1933 eftir að hafa sótt einkatíma í íslensku og erlend- um málum. Steingerður vai- í leik- skóla Lárusar Pálssonar frá 1940 til 1942 og hélt síðan í framhalds- nám í leiklist í Banda- ríkjunum þar sem hún dvaldi frá 1943 til 1946. Fyrsta árið þar nam hún við The American Academy of Dramatic Arts og tvö síðari árin ballett og látbragðsleik í rússneskum einka- skóla. Síðar kynnti hún sér einnig leiklist í Svíþjóð og Bret- landi. Sérgrein henn- ar var einleikur og las hún upp og lék einleik í útvarpi í um þrjá áratugi. Þá skrifaði hún einnig bæði leikrit og ljóð og var um skeið leiklistargagnrýnandi. Steingerður var ógift og barn- laus.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.