Morgunblaðið - 14.07.1999, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 14.07.1999, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1999 47 I DAG BRIDS Umsjón Giiómundiir Páll Arnarsiin ÞEGAR eftirfarandi spil kom á skjáinn í töfluleik Hollendinga og Spánverja lágu þegar fyrir úrslit úr spilinu í öðrum leikum. Mörg pör höfðu reynt sex lauf og alls staðar höfðu fengist tólf slagir: Suður gefur; enginn á hættu. Norður A ÁK5 VÁ854 ♦ D63 * 1064 Vestur Austur A D10963 A 8742 V G97 V K102 ♦ K92 ♦ 10854 *52 *G7 Suður *G V D63 ♦ ÁG7 * ÁKD983 Hollendingarnir í lokaða salnum stönsuðu í þremur gröndum, svo töflu- skýrendur bjuggust við að Spánn myndi vinna góða sveiflu þegar Lantaron og Goded renndu í sex lauf: De Boer Goded Muller Lantaron 1 tígull* 3grönd Pass llauf 1 tyarta 41auf 61auf Svar norðurs á tígli var yfirfærsla í hjarta, en þessi sagnvenja er mjög að ryðja sér til rúms í eðlilegum kerfum. Eins og sést liggur hjartað vel, svo slemman vinnst auð- veldlega með því að spila hjarta að drottningunni og henda síðan tveimur tíglum niður í spaða og fríhjarta. Lantaron fékk út tígul frá kóngnum og átti fyrsta slaginn á gosann. Þessi „þægilega" byrjun átti eftir að skapa sagn; hafa ýmis vandræði. I fyrsta lagi kom til greina að reyna innkast á vestur. Taka tvö tromp, henda hjarta niður í háspaða, trompa spaða og spila svo tígulás og meiri tígli. Ef vestur á báða rauðu kóngana verður hann að gefa slag. Lantaron stóðst þessa feistingu og ákvað frekar að spila hjarta að drottn- ingunni. Það var þá enn möguleiki að trompfría hjartað ef vestur ætti hjartakóng (en þá er hjarta hent í spaða og hjarta trompað). Lantar- on tók sem sagt ÁK í trompi, spilaði spaða á ás- inn og litlu hjarta úr borði. Mjög gott, en nú var komið að Muller í austur. Hann lét tvistinn án minnstu umhugsunar! Muller var svo sann- færandi að Lantaron trúði því ekki að hann ætti kónginn og lét lítið hjarta heima. De Boer fékk slaginn ódýrt á sjö- una og spilaði spaða. Enn mátti vinna spilið með því að henda hjarta niður í háspaða og trompa út hjartað, en Lantaron fór aðra leið. Hann henti tígli í spaðakónginn, tók tígulás og renndi niður öllum trompunum. Ef vestur hefði byrjað með rauðu kóngana hefði hann þvingast þegar síðasta trompinu var spilað, en De Boer var ekki í nein- um vandræðum og Muller fékk síðasta siaginn á hjartakónginn Árnað heilla lyrkÁRA afmæli. í dag, I Vfmiðvikudaginn 14. júlí, verður sjötugur Ólafur Þorsteinsson, fyrrv. fram- kvæmdastjóri Valar hf. Ólafur er að heiman. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- blað. Samþykki afmælis- barns þarf að fylgja af- mælistilkynningum og/eða nafn ábyrgðar- manns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, Sent í bréfsíma 569-1329, sent á netfangið ritslj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Hlutavelta ÞESSIR duglegn krakkar söfnuðu með tombólu kr. 7.843 til styrktar flóttafólkinu frá Kosovo (Rauði kross Islands). Þau heita Aðalbjörg Rósa Indriðadóttir og Einar Ivarsson. HOGNI HREKKVISI Ég var abrcuna atgefa fioru/m sprttuéu. ‘ Stefán frá Hvítadal 1887/1933 LJOÐABROT ERLA Erla, góða Erla! Eg á að vagga þér. Svíf þú inn í svefninn í söng frá vörum mér. Kvæðið mitt er kveldljóð, því kveldsett löngu er. Úti þeysa álfar um ísi lagða slóð. Bjarma slær á bæinn hið bleika tunglskinsflóð. Erla, hjartans Erla, nú ertu þæg og góð! Æskan geymir elda og ævintýraþrótt. Tekur mig með töfrum hin tunglskinsbjarta nótt. Ertu sofnuð, Erla? Þú andar létt og rótt. Brot úr Ijóðinu Erla STJÖRIVUSPA eltir Frances Drake KRABBI Afmælisbarn dagsins: Þú ert ákveðinn en sanngjarn og vinir þínir vita að þeir eiga hauk í homi þar sem þú ert. Hrútur (21. mars -19. aprfl) Breytingar liggja í loftinu hvort sem þér líkar það bet- ur eða verr svo það fer best á því að fylgja flæðinu. Þér verður gert tilboð. Naut (20. apríl - 20. maí) Refsaðu þér ekki fyrir gömul mistök því það eina sem þú getur gert er að að biðjast afsökunar og sjá til þess að þau gerist ekki aftur. Tvíburar t ^ (21. maí - 20. júní) nrt Þú færð tækifæri til að láta ljós þitt skína og skalt ekki hafa neinn ótta því þegar upp er staðið mun útkoman koma sjálfum þér mest á óvart. Krabbi (21. júní - 22. júlt) Láttu allar áhyggjur lönd og leið um stund og lyftu þér upp og njóttu augnabliksins. Leggðu áherslu á að um- gangast aðeins jákvætt fólk. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) iW Gættu þess að dæma mann- inn ekki af útlitinu einu sam- an og kannaðu vandlega hvað inni fyrir býr því þá gæti margt átt eftir að koma þér á óvart. Meyj(l (23. ágúst - 22. september) (ɧL Rómantfldn ræður ríkjum þessa dagana og þú ert í sjö- unda himni því allt virðist ætla að ganga upp hjá þér. Vog xrx (23. sept. - 22. október) Æk'úi Þegar þú hefur tekið ákvörð- un verður þér ekki haggað. Það er ágætt að standa fast á sínu en stundum þarf líka að taka tillit tii annarra. Sþorðdreki (23. okt. - 21. nóvember) Þú leggur þitt af mörkum til að gera aðra hamingjusama og kímnigáfa þín fellur í góð- an jarðveg. Það gleður sjálf- an þig mest. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) íttO Þú ert upp á þitt besta og hefur jákvæð áhrif á um- hverfi þitt með léttleika þín- um. Njóttu athyglinnar en iáttu allt oflæti lönd og leið. Steingeit (22. des. -19. janúar) ámr Það er betra að fara sér hægar og gera hlutina vel heldur en að kasta til hend- inni og fá skammir í hattinn. Þolinmæðin þrautir vinnur allar. Vatnsberi (20. janúar -18. febrúar) cáw Þú gleðst yfir því að öldum- ar hefur lægt og allir eru á eitt sáttir. Einbeittu þér að því að tala hreint út um hlut- ina frekar en byrja þá inni. Fiskar m (19. febrúar - 20. mars) M«*> Þér reynist erfitt að hafa áhrif á aðra og skalt ekkert leita ástæðunnar nema þú sért tilbúinn til að horfast í augu við sannleikann. Stjömuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Útsalan hefst í dag ennor Laugavegi 40, simi 552 4800 ecco dagar 14.-17. júlí % afsláttur af öllum ecco skóm Póstsendum samdægurs oppskórinn VELTUSUNDI V/INGÓLFSTORG SÍMI 552 1212 LAURA ASHLEY Utsalan hefst í dag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.