Morgunblaðið - 14.07.1999, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 14.07.1999, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Börn bregða á leik á skólavöllum TVEIR hópar á vegum fþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur flytja leiktæki á milli skólavalla í borginni í sumar eins og undanfarin ár og slá upp Sumargríni. Vinnuskólinn leggur tólf starfsmenn til verkefnisins en sex manns starfa fyrir ITR. Leikvellirnir eru opn- ir virka daga frá hálf níu til þrjú. Á völlunum má finna kassabíla, stultur, loftdýnu og fleira sem gaman er að. Börnum gefst kostur á að Ieika sér í tækj- unum og starfsmenn leik- vallanna bjóðast til að mála þau í framan. í gær var leiktækjum komið fyrir á lóð Breiðagerðisskóla og það var eins og við mann- inn mælt; börnin úr hverf- inu dreif að. Sólin gægðist fram úr skýjunum þegar blaðamað- ur og ljósmyndari Morgun- blaðsins heimsóttu leikvöll- inn og ekki var laust við að lifnaði yfir starfsfólkinu á vellinum. Árni Brynjúlfs- son, Árni Freyr Gestsson, Haukur Jóhannsson og Isak Þórarinsson eru í vinnuskólanum og ferðast Morgunblaðið/Jim Smart sagði að þeir hefðu verið svolítið tregir til í fyrstu að mála börnin og sinna þeim en nú gengi allt vel. „Þetta gekk frekar illa fyrst. Krakkarnir voru hræddir hver við annan eftir að við máluðum þá,“ sögðu strák- arnir. „Ég ætla að vera fáni“ Ekki var annað að sjá en að piltamir hefðu yfirstigið byrjunarörðugleikana því þeir uppfylltu óskir hvers barnsins á fætur öðm um andlitsmálningu. Ltf.il dama vildi verða prinsessa og ungur maður sagði hátt og snjallt: „Ég ætla að vera fáni.“ Oftast vilja börnin klæðast dulargervi kattar- dýra af ýmsu tagi; Ijóna, tígrisdýra og katta. Stefanía segir að sér hafí komið á óvart að börn sækja leikvellina hvernig sem viðrar. Hún segir kassabílana og loftdýnuna vinsælustu leiktækin. Yngstu börnin vilja þó helst láta mála sig og fylgj- ast með brúðuleiksýning- um sem Stefanía samdi ásamt Þóreyju Birgisdótt- ur og Brynju Valdísi Gísla- dóttur. Sumar grín um borgina með Sumargrín. Stefanía Ragnarsdóttir, sem leiðbeinir strákunum, Morgunblaðið/Sverrir Aðkeyr- slan hefur breytt um svip Hlídahverfi AÐKEYRSLAN að vöru- móttöku verslanamið- stöðvarinnar Suðurvers hefur lengi verið eigend- um hússins til ama vegna þess að hún var öll út- krotuð. Tóku þeir sig því til og létu mála yfír krot- ið. Daginn eftir hafði ein- hver framtakssamur ung- lingur málað listaverk á vegginn. Ríkti almenn ánægja eigendanna með þetta framtak og voru þau skilaboð látinn berast til listamannsins þess efnis að hann skyldi bara Ijúka verkinu sem hann og gerði. Smáíbúdarhverfi 90 ár frá stofnun Slökkviliðs Hafnarfjarðar Framtíðin óráðin Hafnarfirdi SLÖKKVILIÐ Hafnar- fjarðar fagnaði á dögunum þeim áfanga að 90 ár eru liðin frá stofnun þess. Framtíð Slökkviliðsins sem sjálfstæðrar stofnunar er þó óráðin. Verið er að kanna möguleikana á að sameina slökkviliðin á höf- uðborgarsvæðinu og standa nú yfír hagkvæmnisathug- anir á slíkri ráðstöfun. Hafnarfjörður fékk kaup- staðarréttindi árið 1908 og í framhaldi af því var Slökkviliðið stofnað 9. júlí 1909. Slökkviliðið hafði fyrst aðstöðu í bamaskólan- um og voru menn skipaðir í liðið. Á fjórða áratugnum flutti liðið í geymsluhús- næði á Vesturgötu 6 þar sem nú er Sjóminjasafnið. Árið 1974 var tekin í notkun stöðin við Flatahraun þar sem Slökkviliðið hefur síðan verið til húsa. í tilefni af af- mælinu bauð Magnús Gunnarsson bæjarstjóri slökkviliðsmönnum og gest- um þeirra til veislu sl. föstu- dag. I dag eru 23 stöðugildi við Slökkvili ðið. Tveir starfsmenn sjá um akstur sjúkrabifreiða Rauða kross- ins, fimm eru á vakt og þrír á dælubifreið. Slökkvilið Hafnarfjarðar hefur á sinni könnu Hafnarfjörð, Garða- bæ og Bessastaðahrepp. Könnun á skipulags- breytingum Að sögn Helga ívarsson- ar slökkviliðsstjóra er vel búið að sjúkrabifreiðum en kominn væri tími á að end- urnýja tækjabúnað Slökkvi- liðsins. Engin endumýjun hefur átt sér stað frá því að nýr bíll kom árið 1986. í haust er þó fyrirhugað að taka í notkun stigabifreið sem verið er að standsetja. Hún var keypt notuð frá slökkviliði Keflavíkurflug- vallar. Jafnframt er verið að gera upp aflagða sjúkra- bifreið sem Rauða kross- deildimar á svæðinu gáfu Slökkviliðinu. Fyrirhugað er að nota bifreiðina til flutninga á tækjum, áhöld- um og mannskap. Helgi sagði að framtíð Slökkviliðsins væri afar óljós í þeim skilningi að nú færi fram athugun á hag- kvæmni þess að sameina slökkviliðin á höfuðborgar- svæðinu. í vor ákvað bæjarráð Hafnarfjarðar að óska eftir að „VSÓ ráðgjöf1 athugaði mögulegan ávinning þess að slökkviliðin á höfuðborgar- svæðinu sameinuðust. Einnig að athuguð yrði hag- kvæmni þess að Slökkviliðið verði rekið sameiginlega af Hafnarfjarðarbæ, Garða- bæ, Bessastaðahreppi og Kópavogsbæ. í dag er Slökkviliðið rekið af Hafn- arfjarðarbæ sem selm’ Garðabæ og Bessastaða- hreppi þjónustuna. Þessa möguleika er verið að kanna í samanburði við núverandi stöðu og á meðan þessi athugun stendur yfir verður að líkindum ekki far- ið í frekari fjárfestingar vegna Slökkvistöðvar Hafn- arfjarðar. Mannabreytingar fátíðar Slökkviðliðið sinnir marg- víslegum útköllum og sagði Helgi að það væri vel á meðan fólk sem lenti í vand- ræðum myndi eftir slökkvi- liðinu. Hann sagði liðið vera launaða björgunarsveit sveitarfélaganna og sjálf- sagt fyrir fólk að leita þang- að þegar það væri ráðþrota. Það sem af er þessu ári hefur Slökkviliðið verið kallað út 154 sinnum af MAGNÚS Gunnarsson bæjarstjóri ávarpar slökkviliðsmenn og gesti þeirra í veislu sem Hafnarfjarðarbær hélt Slökkviliðinu í tilefni afmælisins. ýmsum tilefnum. Vegna bruna eru útköllin 87 en 67 vegna ýmissa áfalla. Þar af væru 26 útköll sem dælu- bíllinn lenti í vegna vatnsleka og annarra erfið- leika vegna vatnselgs. Helgi hefur verið slökkviliðsstjóri í 17 ár. Hann sagði mannabreyt- ingar fátíðar í slökkviliðinu og ekki óalgengt að synir tækju við af feðrum. Áður fyrr hefðu synirnir fengið að fljóta með í útkall, síðan fengið hanska og hjálm í næstu útköllum og þannig unnið sig inn í slökkviliðið. Helgi sagðist því telja að þeir sem ynnu hjá Slökkvilðinu væru nokkuð sáttir við sinn hag. Morgunblaðið/Jón Svavarsson í TÆKJAGEYMSLU Slökkviliðs Hafnarfjarðar. Frá vinstri talið eru Hrólfur Jónsson slökkviliðsstjóri Reykjavíkur, Helgi ívarsson slökkviliðsstjóri Hafnar- fjarðar, Magnús Gunnarsson bæjarstjóri og Egill Bjarnason yfirlögregluþjónn í Hafnarfirði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.